Vísir - 15.09.1953, Blaðsíða 8

Vísir - 15.09.1953, Blaðsíða 8
Þeir tem gerast kaupendur. VÍSIS eltir 10. livers mánaðar fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. w&Mtm. VÍSIK er ódýrasta blaðið og }»ó það fjel- breyttasta. — Hringið í sima 1660 og gerist áskrifendur. Þriðjudaginn 15. september 1953 Framleiðslan er ónóg í ríkjunum austan tjalds. Matvælaframleiðsla Rússa of lítil. í útvarpi og blöðum Moskvu var á sunnudag birt samþykkt miðstjórnar kommúnistaflokks ráðstjórnarinnar um landbún- aðarframleiðsluna og nauðsyn- ina á, að auka hana á næstu árum. Það var Kruchev, hinn nýi aðalritari miðstjórnarinnar, sem lagði fram tillögurnar. í greinargerð segir, að dregið hafi úr framleiðslunni, svo að ekki sé fullnægt eftirspurn al- mennings og matvælaiðnaðar, og m. a. vikið að því að naut- gripaeign, sem sjálfseigna- bændum sé heimil, hafi stórum minkað o. s. frv. Er allmjög vikið að gagnrýni þeirri, sem fram kom áður hjá Malenkov varðandi þessi mál. — í brezkum blöðum er sagt, gð það hljóti að hafa verið áfall íyrir kommúnistka leiðtoga, að uppgötva, að samyrkjufyrir- komulagið hefði brugðist, vegna þess að það hefði verið sett í óþökk bændastéttarinnar, sem aldrei hefði sætt sig við það, og því hefði það ekki getað heppnast. Blöðin telja þó, að ekki muni verða nein breyting á höfuðstefnu stjórnarinnar, að því er varðar samyrkjubú- Rússar heims- vneisfarar í lyft- ingtim. Fyrir skemmstu fór fram heimsmeistarakeppni ■ Iyfting- tun í Stokkhólmi, og báru Rússar sigur af hólmi. Unnu þeir titilinn „bezta lyftingaþjóð heims“, en Banda- ríkjamenn urðu að láta sér nægja annað sætið. Fréttaritari AP. í Stokkhólmi segir, að þetta sé í fyrsta skipti, sem lyftingamenn Bandaríkja- manna og Rússa reyni með sér siðan á Ólympíuleikunum í Helsinki. Það þótti nokkrum tíðindum sæta, er John Davis, banda- ríski Ólympíumeistarinn í þyngsta flokki, varð að lúta í lægra haldi fyrir Kanada- manninum Doug Hepburn. Rússar sigruðu í keppninni, eins og fyrr segir, fengu 25 stig, en Bandaríkjamenn 22. skapinn. Aformað er hækkað verðlag landbúnaðarafurða. í öðrum löndum austan járn- tjalds er nú mjög hvatt til auk- innar framleiðslu. T. d. hefur Zapotocki forseti Tékkóslóvak- íu flutt 2 ræður og hvatt tii aukinnar framleiðslu, t. d. stáls, járns og kola. í ræðu í gær á „námumannadeginum“ sagði hann, að efnahagur landsins hefði beðið tjón af völdum kolaskortsins — dregið hefði úr annari framleðislu, og afkoma almennings rýrnað. Krónprinsinn í kappsiglingu. Ólafur, krónprins NorS- manna, ætlar að fljúga til Bandaríkjanna í dag til þess að taka þar þátt í kappsiglingum. Ólafur krónprins, sem er gamall Ólympíusigurvegari á kappsiglingum, ætlar að stjórna 6 metra kappsiglingabáti Jörgen Loi'entzens útgerðar- manns í Osló. Kappsighngarn- ar fara fram undan Long Island við New York. Ólafur krón- prins hverfur heim aftur um mánaðamótin. Tjón af fléð- bylgju á Fiji. Flóðbylgja olli allmiklu tjóni á Fiji-eyjum í gærmorgun. Steyptar byggingar klofnuðu, en smábátum i höfnum sópaði burt, eða upp á land. Samband er ekkert við eyjarnar nema gegnum eina radiostöð. Flóðbylgjan var 10 metra há og fór um 100 metra leið upp á eyjarnar. Þetta gerðist um háfjöru, og mundi tjón hafa orðið ægilegt, ef hún hefði skollið á eyjunum á háflæði. NauBfenti á Ítalíu. ítalskar fregnir herma, að júgóslavneskur orustuflugmað- ur hafi nauðlent innan ítölsku landamæranna í gær — og beð- ið um hæli sem pólitískur flóttamaður. Hafi hann verið búínn að fá nóg af stjórn Titos. Bíl stolið og ekið austur undir Eyja- fjöll. Aðfaranótt laugardagsins var bifreið stolið af Njálsgötunni, og voru þeir sem rændu bifreið- inni handsamaðir austur á Sel- fossi klukkan 5 síðdegis á Iaug- ardaginn. . Höfðu þeir þá ekið víða um sveitir austanfjalls og allt aust ur að Hamraendum undir Eyjafjöllum. Bifreiðin, sem stolið var er eign amerísks starfsmanns á Keflavíkurvelli og ber skrá- setningarmerkið GO-2050 og er „model“ 1953. Það, sem fyrst spurðist til bifreiðarinnar, var það, að á laugardagsmorguninn sá sýslu- skrifarinn á Selfossi bifreið ek- ið austur gegnum þorpið með miklum hraða, og virtist að þarna gæti verið um að ræðaj bifreiðina, sem saknað var. —! Tilkynnti hann lögreglunni! þetta. Síðar um daginn sá bil- stjóri úr Reykjavík bifi'eiðina á vesturleið hjá Hvolsvelli og tilkynnti lögreglunni og voru þegar gerðar ráðstafanir til þess að stöðva bifreiiðina, er hún kæmi að Ölfusárbrú. Stigu þá út úr henni þrír piltar, 18, 20 og 22 ára og voru allir drukknir. Voru þeir þá búnir að vera á stöðugri ferð frá því um nóttina, er þeir stálu bif- reiðinni á Njálsgötunni, höfðu meðal annars ekið til Þingvalla og Laugarvatns, en síðan til' baka og niður á Selfoss og aust- ur allar sveitir austur undir Eyjafjöll, en.voru nú á heim- leið. Ekki höfðu þeir ekið neins staðar út af, en bifreiðin var þó eitthvað skemmd, m. a. vél- in. Myndarteg bókaiítgáfa enningarsjóBs í haust. Mý skáldsaga eftir Guðmund Oaníelsson í stærra upplagi. en hér hefir tíðkart áftur. MeSal féíagsbóka, sem Menn lagsalmanakið 1954, en í því ingarsjóður gefur út á þessu hausti er ný skáldsaga eftir Guðmund Daníeísson rithöfund og er þetta fyrsta skáldsagan eftir íslenkan höfund, sem menningarsjóður gefur út. Má jafnframt fullyrða að eng in skáldsaga íslenzks rithöf- undar hafi komið út í jafnstóru upplagi hér á landi og þessi skáldsaga Guðmundar, þar sem félagsmenn menningarsjóðs eru nú um 11000. Af öðrum félagsbókum menn ingarsjóðs, sem koma út á þessu hausti má nefna: Þjóðvinafé- Fimmveldafundur um Irieste. ítalska stjómin hefur form- lega lagt fram tillögur um fimmveldafund, til þess að| ræða þjóðaratkvæði í Trieste. | Júgóslavneska stjórnin hef- ur lýst yfir, að hún telji þessar tillögur óaðgengilegar með öllu. Júgóslavía hafi enga ástæðu til að ætla, að litið verði með sann girni á kröfur Júgóslava á fimm veldaráðstefnu, þar sem Vestur veldin og Ítalía eigi fulltrúa, og minnir á yfirlýsingu Vest- .urveldanna frá 1948, þar sem Ítalíu hafi raunverulega verið lofað Trieste. Fiskafli í júlílok 10% meiri en á sama tíma í fyrra. En heldur mtitni exi 1051. Mest brögft aft kartöfluhmíð- ormi í Vík og á Akranesi. Kartöfluhnúðormar hafa fundist á yfir 20 stöðum í Rvk go nokkrum stöðum öðrum, | Vík í Mýrdal, Akranesi og víð- , ar, en hvergi norðanlands. Samkvæmt viðtali við Geir Gígju hefir rannsókn á þessum kartöflukvilla verið haldið á- iram í Reykjavík og úti um land. í Reykjavík hefur hans orðið vart á 21 stað alls, aðal- lega í Vesturbænum og Alda- mótagörðunum, ennfremur við Laufásveg og Grundarstíg og Sjafnargötu. Athuguð hafa verið 300 sýnishorn í Reykja- vík. Utan Reýkjavíkur hafa hnúðormarnir fundist á Eyrar- bakka, Akranesi, Vestmanna- eyjum og Vík í Mýrdal. Lang- mest brögð að honum eru í sandgörðunum í Vík í Mýrdal og Akranesi, en á þessum stöð- um eru mjög gamlir garðar, og má ætla að sandfok kunni að greiða fyrir útbreiðslu kvillans. í Þykkvabænum, en þar er mikil kartöfurækt, hefur hans ekki orðið vart. Auk fyrrnefndra staða hefur rannsókn farið fram á görðum í Borgarnesi, Hvammstanga, Blönduósi, Sauðárkróki, Dal- vík, Svalbarðsströnd, Akureyri og nágrennis og allmörgum sveitabæjum, en hvergi norðan- lands hefur kvilla orðið vart, og virðist því tilvalið að fá útsæði þaðan næsta vor. Síld til bræðslu 12.421 (2.619) smál. Síld til annars (54) smál. Þungi fisksins er miðaður við slægðan fisk með haus að und- anskildum þeim fiski, sem fór til fiskimjölsvinnslu, en hann er óslægður. Skipting fiskaflans milli veiðiskipa til júlíloka varð: Bátafiskur 150.230 smál., þar af síld 34.125 j þar af síld 31.077 smál. ( Togarafiskur 92.367 smál., þar af síld 247 smál. — Sam- tals 242.597 smái. Fiskaflinn í júlí 1953 varð alls 39.630 smál. þar af síld 30.962 smál. Til samanburðar má geta þess að í júlí 1952 varð fiskaflinn 22.691 smál. þar af síld 6.858 smál. Fiskaflinn frá 1. janúar til 31. júlí 1953 varð alls 242.597 smál. þar af síld 31.324 smál. en á sama tíma 1952 var fisk- aflinn 220.500 smál. þar af síld 6.858. Og 1951 var aflinn 251,- 710 smál. smál. Hagnýting þessa afla var sem hér segir (til samanburðar eru settar í sviga tölur frá sama tíma 1952): ísaður fiskur (20.536) Til frystingar 66.830 (97.715) smál. Til herzlu 71.232 (97.715) smál. Til söltunar 70.881 (78.409 V2) smál. í fiskimjölsvinnslu 299 smál. (1.363) smál. Annað 2.031 smál. (1.583) smál. Síld til söltunar 16.937 smál. (3.457) smál. Síld til frystingar 1.966 smál. (728) smál. birtist m. a. ritgerðin „Islenzk ljóðlist 1918—1944“ eftir Guð- mund G. Hagalín, og Árbók ís- lands 1952. Suðurlönd nefnist bók eftir Helga P. Briem sendi- herra og er hún fimmta bókin í safninu „Lönd og lýðir“. Þá verða gefin út Úrvalsljóð Egg- erts Ólafssonar og er það 12. bindið í flokknum „íslenzk úr- valsljóð". Og loks kemur út 78. árgangur Andvara. — Félags- gjaldið fyrir allar þessar bæk- ur er 55 krónur eins og síðasta ár. Aukafélagsbækur. Þá gefur Menningarsjóður út eftirtalin rit, sem aukafélags- bækur: „Andvökur“ Stephans G. Stephanssonar I. bindi, Sögu íslendinga í Vesturheimi, 5. b., Sagnaþætti Fjallkonunnar, og Sögu íslendinga, 8. bindi. Áskriftabækur. Á þessu ári koma út tvö leik- rit í leikritasafni Menningar- sjóðs, þau eru „Valtýr á grænni treyju“ eftir Jón Björnsson rit- höfund, og „Tengdapabbi" eft- ir Gustaf Geijerstam, í þýðingu Andrésar Björnssonar eldra. Lausasölubækur menningar- sjóðs verða þessar: Facts about Iceland, eftir Ólaf Hansson menntaskólakennara, Ljósvetn ingasaga og Saurbæingar, eftir Barða Guðmundsson og Mið- aldasaga, eftir Þorleif Bjarna- son og Árna Fálsson. Áætlað er að flestar þessara bóka komi út um mánaðamótin október— nóvember n.k. Af ritum þeim, sem út koma haustið 1954 má nefna: Al- menna bókmenntasögu eftir Kristmann Guðmundsson. —- Hvers vegna — vegna þess, fræðslurit um náttúrufræði, eftir Jón Eyþórsson, og And- vökur Stephans G., n. bindi. smál. smál. smál. smál. Topaz sýndur fyrir austan Fjall. Topaz, hinn bráðskemmtielgi gamanleikur Þjóðleikhússins, var sýndur fyrir austan fjall um helgina við húsfylli og á- gætar undiríektir. Urðu sýningarnar tvær að Selfossi og ein í Hveragerði. Leikurunum var afbragðs vel tekið, eins og annars staðar, þar sem Topaz hefur verið, sýndur. Sátu þeir boð frú, Magneu Jóhannesdóttur, for-1 manns Leikfélags Hveragerðis. Ný saga hefst á morgun. Á morgun hefst ný fram- haldssaga í blaðinu, og er hún eftir ameríska konu, Mary Roberts Rhinehart. Er hún þekktur höfundur í heimalandi sína, nýtur þar ekki minni hylli en til dæmis Agatha Christie meðal Breta. Hefur frú Rhinehart skrifað 50 sögur, og er þetta liin 51., sem frá henni kenjnr. Sagan er mjög spcnnandi, og má geta þess, að hún hefst á því, að ung kona leitar til lögfræðings, og kveðst vilja gera erfðaskrá sína, þar eð henni hafi græðzt fé, og hún vilji ekki, að maður hennar komist yfir það, ef hún aud- aðist. Og síðan rekur hver spennandi viðburðurinn ann an, en ást er með í sögunni, eins og vera ber. NÝIR KAUPENDUR FÁ BLAÐIÐ ÓKEYPIS TIL MÁNADAMÓTA, OG ÞARF EKKI ANNAÐ EN AÐ HRINGJA í SÍMA 1660.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.