Vísir - 18.09.1953, Side 1
171
wF A
AX. árg.
Föstudaginn 18. september 1953
212. tbl.
Vishinsky svarar hráð-
lega ræðu J. F. Duiies.
Allsherjarþingið hefir samþykkt
skipun dagskrár.
Einkaskeyti frá AP.
New York í morgun.
Vishinsky utanríkisráðherra
Ráðstjórnarríkjanna sagði við
fréttamenn í gærkveldi, að
hann myndi svara John Foster
Dulies utanríkisráðherra Banda
ríkjanna í ræðu á allsherjar-
þinginu innan fárra daga.
Þessi ummæli eru skilin á
þann veg, að Vishinsky muni
bíða fyrirmæla frá ríkisstjórn
sinni, áður en hann svarar Dull
es. Fulltrúar á allsherjarþing-
inu ræddu mikið sín í mijli í
gær ræðu Dulles, og einkanlega,
að hann boðaði að stefna Banda
ríkjastjórnar í afvoþnunarmál-
um væri ekki ósveigjanleg,
heldur myndi hún taka til gaum
gæfilegrar athugunar allav
gagnlegar tilögur, sem fram
kynnu að koma. Dulles sagði,
að ráðstjórnin hefði nú tæki-
færi í ótal málum, svo sem
varðandi Þýzkaland, Austur-
ríki, Kóreu o. fl., til þess að
sý-na samkomulags- og friðar-
vilja sinn í verki.
Allsherjarþingið samþykkti í
gærkveldi að taka á dagskrá
þau 72 mál, sem dagskrárnefnd
hafði gert slíka samþykkt um
á fundi sínum, þrátt fyrir mót-
mæli Eússa og Suður-Afríku-
manna um viss mál. Fulltrúi
Frakka hreyfði ekki andmæl-
um gegn því, að Marokkómál-
ið væri rætt, en búist er við, að
hann lýsi yfir því, er það verð-
ur tekið fyrir, að hér sé um
innanríkismál Frakkaveldis að
raaða, og muni fulltrúar Frakká
ekki taka þátt í umræðum og
ganga af fundi.
16 þjóða nefndin
j tir við kommúnistum.
16 þjóða nefndin kom saman
á fund í gærkveldi og var sam
þykkt að fela Bandaríkjastjórn
að ítreka tillögur um, að stjórn
málafundurinn verði haldinn
15. október, á einhverjum
þeirra þriggja staða, sem fyrr
voru gerðar tilögur um. Fram
hjá þessum tillögum gengu
kommúnistar alveg, en séndu
í staðinn gagntillögur um að
fleiri þjóðir en áður hafði vef-
ið ráð fyrir gert fengju að senda
fulltrúa á ráðstefnuna.
Togaraniii':
KakHukur selur
á morgun.
Togaraflotinn er nú drcifður
um hin ýmsú mið, en átta þeirra
veiða fyrir Þýzkalands • a.ækað.
Flestir þeirra eru annað hvort
á heimleið eða útleið, en Kald-
bakur á að selja afla sinn í Cux-
haven á morgun. Þá er gert
ráð fyrir, að Bjarni riddari
selji í Þýzkalandi á mánudag,
en Jón Þorláksson á þriðjucag.
Á veiðum eru nú Skúli Magnús
son og Neptúnus.
Afli togara á Grænlandsmið-
um hefur verið rýrari undan-
farið, og öllu lélegri en í fyrra.
Akurey var væntanleg tii Akra
ness af Grænlandsmiðum i dag
og verður aflinn hertur. Bjarni
Ólafsson er á veiðum og veið-
ir í herzlu.
Af togurum þeim, sem veiða
■karfa fyrir Rússlandsmarkað,
eru þessar fréttir helztar: Ask-
,ur, Elliði, Geir, Fylkir, Haf-
liði, ísólfur og Marz eru á veið-
um, en Karlsefni á að landa hér
í dag.
Líkan það, sem hér birtist mynd af, er af Tjöininni og umhverfi hennar, og hefur Axel Helga-
son, rannsóknarlögregluþjónn, gert bað. Svo sem menn rekur ef til vill minni til, efndi Reykja-
víkurbær á sínum tíma til samkeppni um skipuiag og skreytingu umhverfis Tjarnarinnar. —■
Ætlaði Axel a ð taka þátt í samkeppni þeirri, en er til kom, vannst honum ekki tími til
að ljúka við tillögur ssnar sakir anna. Nú hefur hann liinsvegar lokið líkani þessu fyrir
nokkru — vann hað, i frístundum sínum á síðasta vetri — og hefur sent hað bæjarráði.
Segir hann blaðinu, að hann hafi ekki fyrst og fremst gert líkanið, til þess að það væri „inn-
legg“ í málið, heldur sér til skemmtunar. Gerir Axel ráð fyrir, að Lækjargatan verði fram-
lengd beint af augum suðvestur yfir Tjörnina, en fyrir enda hennar rísi ráðhús Reykjavíkur
í garðinum við Bjarkargötu. — Líkanið er gert úr leir, gibsi, og trétexi, húsin eru málaðir
trékubbar og trén úr nögium og svömpum. (Ljósm.: Ragnar Vignir).
9 nýir þingmenn taka sæti á
þinginu, sem kemur saman 1. okt
Forsetabréf gefið út um samkomudag þess.
Forseti ísiands gaf í gær út 'urbjörnsson, 8. landkjörinn þing
forsetabréf, er kveður Alþingi
saman til funda fimmtudaginn
1. október næstkomandi. Fer
þingsetning fram að lokinnl
guðsþjónustu í Dómkirkjunni,
er hefst klukkan 13.30.
Á þessu þingi taka sæti 9
nýir þingmenn,, og hefur því
orðiS allmikil breyting á þing-
mannaliðinu frá því síðasla
þingi lauk.
Hinir nýju alþingismenn eru
þessir:
Frá Sjálfstæðisflokknum:
Einar Ingimundarson, þingmað-
ur Siglfirðinga, Ingólfur Flyg-
enring, þingmaður Hafnfirð-
inga, Jón Kjartansson, þingmað
ur Vestur-Skaftfelinga og
Kjartan Jóhannsson, þingmað-
ur fsfirðinga.
Frá Þjóðvarnarflokknum:
Gils Guðmundsson, 8. þingmað-
ur Reykvíkinga og Bergur Sig-
Það var útborg-
un hjá Dawson.
George Dawson er ekki
auralaus, eins og alkunna er,
en útborgun hjá honiuh fer
fram með óvenjulegum hætti.
Fréttamaður enska blaðsins
„Daily Mirror“ segir svo frá
fyrir fáum dögum: Þegar eg
var á heimleið, gekk eg fram
hjá Dorchester Hotel. Þar var
risavaxinn Rolls Royce-bíll
fýrir framan gistihúsið. Þá sá
eg þrekinn mann seilast inn í
bílinn, ná þar I einhverja papp-
írsvöndla, sem hann rétti ein-
hverjum mönnum, sem biðu á
stéttinni. Þrekni maðurinn var
George Dawson, og pappírs-
vöndlarnir voru fimm punda
seðlar. Mennirnir, sem biðu á
stéttinni, voru starfsmenn
Dawsons í hinu nýja fiskfyrir-
tæki hans. Þetta var nefnilega
útborgunardagur, það var allt
og sumt.
„járnnáman" á Ðynskógafjorum:
400 lestum járas náð í sum-
ar — 3—4000 eru eftir.
Meira verður ekki bjargað á þessu ári.
ítalir haf'a grafið upp borg
nærri Róm, sem Hannibal lagði
í eyði 200 árum f. Kr. b.
maður.
Frá Kommúnistaflokknum:
Gunnar Jóhannsson, 4. land-
kjörinn og Karl Guðjónsson, 9.
landkjörinn.
Frá Alþýðuflokknum: Egg-
ert Þorsteinsson, 7. landkjörinn
þingmaður.
Þeir sem fara:
Þeir þingmenn, sem áttu sæti
á síðasta þingi, en hverfa nú af
Alþingi, eru þessir:
Frá Sjálfstæðisflokknum:
Þorsteinn Þorsteinsson og Krist
ín Sigurðardóttir. — Frá Al-
þýðuflokknum: Stefán Jóhann
Stefánsson. —Frá Kommúnista
flokknum: Áki Jakobsson, Ás-
mundur Sigurðsson, Jónas
Árnason og Steingrímur Aðal-
steinsson. — Frá Framsóknar-
flokknum: Jón Gíslason og
Rannveig Þorsteinsdóttir.
Kveikt á nýj-
um götuvitum,
en bílstjórar virðast
ekki hafa séð þá enn.
I gær var kveikt á nýju götu-
vitununi á Laugavegi og
Snorrabraut.
Bifreiðastjórar virðast þó
ekki ennþá hafa veitt þeim
fulla eftirtekt, og muna það ó-
gerla, að þeir hafi ekki for-
gangsrétt á Laugaveginum eins
og áður. Þannig óku t. d. tveir
bílar niður Laugaveginn
rauðu" klukkan rúmlega 8
morgun, og virtust bifreiða-
stjórarnir alls ekki hafa litið á
ijósmerkin, en óku þetta hik
laust í þeirri fullvissu, að þeir
væru á aðalbraut og í fullum
rétti.
Björgun járnsins á Dyn-
skógafjörum er nú hætt að
þessu sinni, og hafa verið tekin
upp um 400 tonn af hrájámi i
sumar, en talið er að eftir séu
þar milli 3000—4000 smálestir.
Samkvæmt upplýsingum er
Vísi fékk í gær hjá Helga Lár-
ussyni, var hætt við björgún
járnsins fyrir um það bil tveim
vikum, og er búið að flytja
kranann til Reykjavíkur, sem
notaður var við þetta verk.
Sagði Helgi, að aðstaða til
björgunarinnar hefði verið orð-
in mjög erfið, þar eð járnið er
alveg fram í flæðarmáli, og má
hvorki vera stórstreymt né
brim, ef unnt á að vera að vinna
að björguninni.
Niður að járninu er 5 metra
sandlag, og fyllist gryfjan
stöðugt, ef brimar eða ef stór-
streymt er. Verður því ekkert
hugsað um frekari björgun á
pessu sumri, en strax tekið til
á ný næsta vor, ef skilyrði verða
sæmileg. Annars sagði Helgi
Lárusson að skilyrðin til björg-
unar járnsins hefðu stórversnað
við ós þann, sem grafinn var
þarna fram í fyrra, en síðan
fellur alltaf yfir járnið. Áður
hafði myndast hár sandkambur
frámari við staðinn þar sem
jámið er, og féll þá aldrei upp
á sandinn, þar sem járnið er.
Nú hefur þessi kambur hins-
vegar sorfist burtu, svo að sjór-
inn fellur stöðugt yfir sandinn
í stórstreymi og þegar brimar.
Tínnguloss til
í október.
Menn vonast til, að ms.
Tungufoss verði afhentur í
Kaupmannahöfn í lok næsta
mánaðar.
Er gert ráð fyrir, að eig-
endur geti tekið við skipinu
af skipasmíðastöð B&W þ.
28. október, en þó getur sú
áætlun breytzt eitthvað. Þá
er gert ráð fyrir, að hitt
skipið, sem Eimskipafélagið
á í smíðum. ytra, verði sett
á sjó í lok nóvember-mánað-
ar. Er það mun stærra en
Tungufoss eða 2500 lestir.
Russar prófa
kjarnorktrvopn.
Tass-fréttastofan, hin opin-
bera fréttastofa Ráðstjórnar-
ríkian na, birti tilkynningu í
gærkveldi um prófanir ó kjarn
orkuvopnum.
Segir þar, að prpfanir á
mörgum nýjum tegundum
kjarnorkusprengna hafi farið
fram að undanförnu og heppn-
ast hið bezta.
1000 manns far-
ast í Biirma.
Flóð, er varð með rnjög
snögglegum hætti í Sittang-
fljóti í Burma, mun hafa orðið
1000 manns að bana.
Hafði orðið skýfall til fjalla,
svo að fljótið færði 5000 manna
bæ í kaf í vetfangi. 4000 manns
tókst að komast út fyrir bæinn,
en hinir eru allir taldir af.
Vísitalan 159 st.
Kauplagsnefnd hefur reiknað
út vísitölu framfærslukostnað-
ar í Reykjavík hinn 1. septem-
ber s. 1. og reyndist hún vera
159 stig'. (Viðskiptamálaráðu-
neytið, 17. sept. 1953.)