Vísir - 19.09.1953, Blaðsíða 1
vi
41. irg.
, % •
Laagardaginn 19. september 1953
213. tbU
Þeir skulu lenda í helvíti, áður
en þeir hindra fiskinnflutninginn.
George Dawson skrifar skelegga grein í Sunday Express,
tii að skýra afstöðu sína varðandi fisksöluna.
Tddð undir á-
skorun til Rússa.
London (AP). — Fulltrúar
Ástralíu og Nýja Sjálands
fluttu rœður á allsherjarþing-
inu í dag og studdu áskorun
Oulles, utanríkisráðh. Banda-
ríkjanna, til ráðstjórnarinnar
rússnesku, að sýna friðarvilja
sinn í verki.
Casey, utanríkisráðherra
Ástralíu, sagði í sinni ræðu, að
bæði austan og vestan járn-
tjalds yrðu bráðlega til nægar
birgðir af kjarnorkusprengj-
um, til þess að leggja allar mik-
ilvægar miðstöðvar í auðn, ef
til styrjaldar kæmi milli „aust-
urs og vesturs“. Hvatti hann
því eindregið til, að reynt yrði
að sættast á öll ágreiningsmál,
áður en of seint yrði.
Webb, fulltrúi Ástralíu, sem
tók í sama streng, vék að Kóreu
málunum, og lagði áherzlu á,
að koma yrði í veg fyrir, að
þvæla um formsatriði og til-
högun enda yrði það til þess
að tefja raunverulegar sam-
komulagsumleitanir um deilu-
atriðin sjálf.
Mau-Mau-menn
dæmdir.
London (ÁP). — í Kenya
hafa 44 Mau-Mau-menn verið
dæmdir til lífláts.
Menn þessir voru sekir fundn
ir um hina viðbjóðslegu árás á
þorp nokkurt sl. vor, er tugir
manna voru myrtir á hinn
hryllilegasta hátt.
Það, sem Sunday
Express sagði fyrir
þremur vikum:
The Sunday Express hefur engar
sérstakar mætur á Mr. Dawson, en
takist honum að rjúfa samtök fisk-
hringsins (h. e. togaraeigenda) eiga
brezkar húsmæður honum miklar
þákkir að gjalda.
Ofansltráð er úr ritstjórnargrein, sem birtist í The Sun-
day Exprcss 23. ágúst. Þessi skoðun hefur sætt harðri gagn-
rýni brezka fiskiðnaðarnianna (þ. e. togaraeigenda) •' bréfum
til blaðsins og stéttarmálgagni þeirra. Togaraeigendur óskuðu
eftir að koma á fund með ritstjóranum svo að þeir gætu
persónulega lagt málið fyrir hann.
The Sunday Express féllst á þetta, en telur sanhgjarnt,
að ef togaraeigendur komi til fundar í Fleet Street, skuli Mr.
Davvson koma líka.
Mr. Dawson þá boðið.
En hinsvegar neituðu togaraeigendur að koma á fund, ef
Mr. Dawson væri viðstaddur.
Það eru ekki margir, sem eru í neinum vafa um, í hverju vinna
kafarans er fólgin, en það eru færri, sem vita, hvernig hún
gengur fyrir sig. — Þessi mynd er tekin á sýningu, sem nýlega
var haldin í London, og sýnir kafarann að vinnu í sérstöku
keri og umhverfis það safnast einkum áhugasamir drengir.
Rússum mistókst Everest-
ganga á s.l. vetri.
Misstu 6 menn hátt í norðufhlíðunum.
Flugsýningin.
verður á morgun-
ef vcður leyfir.
Undanfarið hefur sýning
flugmálafélagsins á Reykjavík-
urflugvelli við flugturninn ver-
ið opin almenningi. Hefur hún
verið vel sótt, enda er þar margt
fróðlegt að sjá.
Flugsýningunni, sem fram
átti að fara í sambandi við flug-
daginn, hefur verið frestað sök-
um óhagstæðra veðurskilyrða.
Það mun þó ákveðið, að hún
fari fram á morgun, ef veður
leyfir. Hefst hún væntanlega
kl. 2 e. h. Þá munu fljúga yfir
völlinn þær íslenzkar flugvél-
ar, sem tiltækilegar eru þann
dag, og má gera ráð fyrir, að
þær verði eitthvað 14—15 og
af ýmsum gerðum. Ráðgert er
að sýnt verði listflug, sviffug,
enn fremur keppni atvinnu-
manna í svonefndri marklend-
ingu- Þá verður gamanþáttur,
þ. e. a. s. Baldur og konni ætla
að fljúga, og ætlar Konni að
skýra áhorfendum frá því,
hvernig flugið tekst. Björn Páls
son hyggst sýna björgunarflug,
en björgunarsveitir frá Reykja
vík og Keflavík munu einnig
taka þátt í þeim sýningum.
Sýnt verður flugtak með rak-
ettum, og gera það menn af
Keflavíkurflugvelli. Þá verður
varpað niður birgðum úr heli-
kopter-flugvélum, og þrýsti-
loftflugvélar koma í heimsókn.
Sýning flugmálafélagsins,
sem, eins og áður hefir verið
sagt, er óvenju fjölsótt-
Alþjóðasambandi fjallamanna
í Sviss hefir borizt til eyrna,
að Rússar hafi gert tilraun til
að klífa Everest-tind á sl. ári,
en mistekizt.
Gerðu Rússar tilraun þessa í
desember-mánuði, og lauk
henni með því, að sex þátttak-
endur biðu bana. Hafði fjall-
gönguflokkurinn æft sig lengi,
oð afráðið var að hefjast handa,
er það fréttist, að Svisslending-
ar ætluðu að gera aðra tilraun
eftir að sú, sem gerð var um
vorið, hafði ekki tekizt.
í leiðangri Rússa voru 35 van
ir fjallamenn, auk fimm vís-
indamanna, og var sérgrein
eins athuganir á þoli manna í
súrefnissnauðu lofti. Flugu þeir
frá Moskvu 16. ágúst í fimm
flutningavélum hersins og farið
til Lhasa í Híbet, en þaðan varð
að ganga til róta fjallsins að
norðan og tók sú ferð mánuð.
Komið var aftur til bækistöðv-
anna við fjallsræturnar 27. des-
ember sl., og vantaði þá sex
leiðangursmanna.
Menn þessir fórust, þegar þeir
höfðu sett upp 8. tjaldbúðir sín-
ar í 26,800 feta hæð yfir sjávar-
máli. Féll skriða á þá og sóp-
aði þeim langar leiðir niður
hengiflug. Þótti hinum leiðang-
ursmönnum þá rétt að halda
heimleiðis.
Skégareldar
i FrakkBandi.
París (AP). — Skógareldar
mikijir geisa í S.-Frakklandi
um þessar mundir.
Sjóliðar frá Toulon hafa ver-
ið sendir til að berjast við eld-
ana, auk hersveita frá Marseill-
es. Eldarnir hafa eytt skógum
á um 2000 ha. svæði.
Meðan þeirra, sem fórust,
var foringi leiðangursins, Desh-
nolvan, slyngasti fjallamaður
Rússa, og tveir af vísinda-
mönnunum.
Þeir fá fiskkin
ókeypisl
B. Aires (AP). — Tvo daga
vikunnar geta menn í helztu
hafnarborgum Argentínu feng-
ið fisk ókeypis.
Er þetta gert til þess að draga
úr kjötneyzlu í landinu, því að
nautgripastofninn hefir geng-
ið svo saman, að hann er nú
talinn um þriðjungi minni en
1950. Er því svo komið, að Arg-
entína getur sennilega ekki
staðið við samninga við Breta
um að senda 162,000 tonn af
frystu kjöti fyrir áramót, því
að þeir hafa aðeins sent rúm-
lega þriðjung af því magni. En
á hinn bóginn þorir stjórnin
ekki enn að setja á skömmtun,
þótt að því kunni að reka.
...........*....
Fljót ferð
hjá Lagarfossi.
M.s. Lagarfoss kom hingað í
gærmorgun kl. 4 eftir óvenju
fijóta ferð frá New York.
Skiþið var réttan 7 % sólar-
hring á leiðinni, en það þykir
fljót ferð á þessum tíma árs
og með fullfermi. Þó mun ekki
hafa verið um metferð að ræða,
því að bezti fími vöruflufninga-
„Fossanna“ á þessari ieið er
tæpir 7 sólarhringar.
Eg vil taka eitt fram skýi't og
skilmerkilega, þegar í byrjun.
Eg er enginn Sir Galahad, sem
kemur ríðandi á hvítum hesti,
til þess að heyja baráttu fyrir
brezkar húsmæður. Eg er kaup
sýslumaður. Eg' lagði út í ís-
lenzku fiskkaupin til þess áð
hagnast og ekki í neinum til-
gangi öðrum.
Eg hef stundum verið kallað-
ur fyrrverandi ,,hjólböru“-
strákur og stundum mektugur
fjármáiamaður, en hvað sem
menn vilja kalla mig, er eg
maður, sem fæ um það bil lOO
tillögur vikulega í bréfum frá
fólki um það, hvernig það getí
hagnazt fjárhagslega, ef ég vilji
styðja það. Eg les alltaf slíkar;
tillögur af gaumgæfni, en að-
eins endrum og eins skýtur,
einhver upp kollinum, sem
gagn er í. j
Það var fyrir nokkrum mán-
uðum, að mér var sagt, að inn-
flutningur á íslenzkum fiski
hefði verið bannaður með ein-
hliða aðgerðum togaraeigenda.
Þá varð mér ljóst: Að ef ég gæti
flutt inn íslenzkan fisk þrátt
fyrir bannið, mundi ég hagn-
ast á því fjárhagslega.
Þetta er land hins frjálsa
framtaks og það er samkeppn-
in, sem við lifum á.
Þá óskaði eg eftir fundi
með íslenzka ræðismanninum í
London. Og hann sagði mér
þessa sögu: >
ísland lagði bann við togara-
veiði á vissum svæðum. Vegna
þessarar ákvörðunar settu tog-
araeigendur löndunarbannið.
Mjög fáir botna neitt í því,
sem gerzt hafði. Það gerði ég
ekki sannast að segja — fyrr en
ég fór að kynna mér það.
Það voru Norðmenn, sem
byrjuðu. Eftir styrjöldina lögðu
þeir bann við erlendri togara-
veiði á vissum fiskimiðum und
an ströndum landsins. Málið
kom fyrir Haagdómstólinn 1951
og úrskurðurinn var Norðmönn
| um í vil.
Hefndarráðstafanir.
I Dómsniðurstaðan leiddi ekki
til þess, áð norskur fiskur væri
bannfærður í Bretlandi. Norð-
menn eru ekki hættulegir ,
keppinautar við togaraeigend-
ur í Bretlandi, svo að þeir urðu
ekki gripnir heilagri vandlæt-
ingu.
íslendingar gerðu nú hið
sama og Norðmenn og bönnuðu
togaraveiði á nýjum svæðum.
Það er enginn váfi á, að þetta
bann hefur leitt til þess, að tog-
arar hafa ekki. lengur aðgöngu
að tveimur beztu fiskimiðun-
urij í norðurhöfum.
íslendingar — en útvegurinn
er þeirra höfuðatvinnuvegur —
voru áhyggjufullir. Þeir óttuð-
ust fiskþurrð á þessum mið-
Frh. á 4. s.