Vísir - 28.09.1953, Síða 1
VI
4S. áíg.
Mánudaginn 28. september-1953
220. tbl.
Hjón bjsrgast nauðulega
úr brennandi íbúbarskúr.
Þau misstu húsgögn sín og allt innbú
í skúmum, sem brann tO ösku.
í nótt komust hjón með nauni-
irtdum út úr brennandi íbúð
sinn), en Ibúðin brann með
öllu sem í henni var.
Eldsvoði þessi varð í íbúðar-
skúr, sem var fyrir innan Ell-
iðaár, norðan Suðurlandsveg-
arins, skammt frá sandgryfj-
unum. Skúrinn bar nafnið „Sól-
setur“ og var Jón Árnason eig-
andi hans. í skúrnum bjuggu
ein hjón, en ekki annað fólk.
; Á öðrum tímanum í nótt
vaknaði húsráðandi við það að
eldur var kominn upp í íbúð
hans og skúrinn þegar alelda.
Vakti hann konu sína þegar í
stað og urðu þau að fara út um
glugga til þess að bjarga lífi
sínu. Engu fengú þau bjargað
úr íbúð sinni og brunnu hús-
gogn þeiirra óg allt innbú til
ösku. Slökkyiliðið var kvatt' á
vettvang um hálftvö leytið, en
þá var skúrinn alelda svo það
fékk ekkí við neitt ráðið og
brann hann að heita mátti til
ösku.
Um eldsupptök var ókunnúgt.
í gær var..slökkviliðið tvíveg-
is kvatt á vettvang. í gærmorg-
un, laust eftir kl. 6 var það
kvatt niður áð höfn. Þar hafði
kviknað út frá eldavélarröri í
hásetaklefa vélbátsins „Sigurð-
ur Jónsson". Eldurinn náði að
læsa sig í þiljur meðfram rör-
inu og komst alla leið upp úr
þilfarinu. Nokkrar skemmdir
urðu á bátnum en slökkviliðið
. slökkti fljótlega eftir að það
kom á vettvang.
Síðdegis í gær var slökkvi-
liðið kvatt á Laugaveg 15. Þar
var þó ekki um neinn eldsvoða
að ræða, heldur hafði verið
brennt drasli þar í miðstöð og
sló miklum reyk niður á ínilli
húsa. Fólk í nærliggjandi húsi,
sem sá reykinn, óttaðist að um
eldsvoða væri að ræða og gerði
Níu úr sösuu f jöldskyldu
brunnu tnni.
N. York (AP). — Nýlega
brann í Chicago stórt íbúðar-
hús, sem á annað hundrað
manns bjó í.
Átján manns biðu bana í
brunanum, þar af níu úr sömu
fjölskyldu — þar á meðal sex
börn. Var fólk allt í svefni, er
eldurinn kom upp á neðstu hæð
af. fjórum.
slökkviliðinu aðvart.
| Á laugardaginn, eftir hádeg-
ið, kom eldur upp í miðstöðvar-
klefa trésmiðjunnar Víðis á
Laugavegi 166. Komst eldurinn
í eitthvert timburdrasl og
myndaðist af því mikill reyk-
ur. Munaði minnstu að eldurinri
kæmist í hefilspæni og annað
eldfimt efni, sem geymt var
í næsta herbergi við miðstöð-
ina, en slökkviliðið fékk því af-
stýrt og fyrir bragðið urðu
þarna litlar eða engar skemmd-
ir.
n
Kopti" setur hæöar-
og hraÖamet.
N. York (AP). — Tvö ný
heimsmt hafa verlð sett í
„kopta“ nýlega.
Komizt hefir verið í 22,289
feta hæð á Piasecki „kopta“,
með tveim hreyflum, en þær
vélar nefnast ,,vinnuhestar“.
Fyrra metið var -21,220 fet. Þá
var sett hraðamet í sömu, flug-
vél á 3ja km. braut — 236 km. á
klst. Eldra metið var 207 km.
á klst.
Önnur ráð en áður
íbúar Mexico City eru nú
sem næst 2,3 milljónir.
Bonn (AP). — Sagan segir.
að pípuleikari einn hafi á sín-
um tíma Jeyst Hameln undan
rottuplágu.
Nýlega fjölgaði rottum
skyndilega mjög ört þar. Þá
var borgarbúum aðeins ráðlagt
að nota eitur, sem bærinn lagði
til endurgjaldslaust.___
- - mmmmsmmamammam
Lífskjörin sitja
á hakanimi.
Áætlanir tékknesku komm
únistastjórnarinnar hafa verið
of yfirgripsmiklar, segir for-
sætisráðherra hennar.
Hefur hann skýrt frá því, að
fjárfesting í landinu hafi veriið
of mikil, og hafi það valdið, að
áforrn um að bæta lífskjör al-
iriennings hafi orðið að sitja á
hakanum fyrir bragðið.
50 dau&adæmdir
fyrir 150 morð.
London. (A.P). — Fimmtíu
menn hafa nú verið dæmdir til
dauða fyrir hryðjuverk í Ken-
ya seint í marz sl.
Er mönnum í fersku minni
árás á þorp eitt, er 150 manns
— karlar, konur og börn —
voru myrt af Mau-Mau-mönn-
um. Nú hafa 50 morðingjanna
verið dæmdir til dauða, en 55
í minni refsingar.
Kona hefir nú í fyrsta sinn
verið kjörinn forseti allsherj-
arþings SÞ. Er það frú Vijaya
Lakshmi Pandit, systir Nelmis,
forsætisráðherra Indlands.
Stillileg grein og sanngjörn
í „The Economist.“
„Ofbeídíð var aldrei síerkur leikur hjá
breskwn togaraeigendum."
í hinu kunna, brezka tíma- stjórnarinnar og brezkra tog-
riti, „The Economist", birtist araeigenda. Snemma á árimt
liinn 19. þ. m. stilliJeg grein og sem leið, féll dómur Haagdóm-
sanngjörn um fiskveiðadeiiuna stólsins Norðmönnum í vil og
og löndunarbánn það, sem ‘ heimilaði þeim að færa út iand-
haldið hefir verið uppi gegn i's- helgi sína. Vitaskuld fór hin is-
lenzkum togarafiski í Brctlandi lenzka ríkisstjórn eins að og:
undanfarið. ! markaði nýja landhelgislínu til .
• Grein þessi '.stingur rrjög í þess að vernda hrygningarstööv
stúf við ýmsar þær æsinga- af fisksins. Þó að veiði smábáta
greinar ög þvætting, sen, sést
hafa annað veifið í „Fishing
News“ og víðar undarfarnar
á þeim slóðum sé leyfð, er öll
togveiði þar bönnuð.
Eðlilegt var, að brezkum to.g-
Egyptar lögsækja
Aga Khan.
Kairo (AP). — Egypzka
stjórnin hefir ákveðið að höfða
skaðabótamál gcgn Aga Khan.
Keypti hann lóðir miklar í
Kairo fyrir sjö árum, og fékk
þær fyrir lítið verð, gegn því
að byggja á þeim stór íbúðar-
hús. Hefir ekki verið bjrrjað á
neinum framkvæmdum, og
krefst stjórnin 20 millj. kr.
skaðabóta.
Mannlaus bíll
renmtr inn um
glugga.
Á ellcfta tímanum í morgun
rann mannlaus vörubifreið inn
um glugga í verzluninni Ultiina
á Laugaveginum.
Svo lánlega vildi til að eng'-
inn var á ferð þarna á gang-
stéttinni í því bili er bíllinn
rann á gluggann. Hins - vegar
voru tvær stúlkur að þvo
glugga verzlunarinnar, og
skarst önnur nokkuð á glerja-
brotum, þegar glugginn brotn-
aði.
Bifreiðin, sem hér um ræðir,
var vörubifreiðin R 6213. Hafði
bifreiðarstjórinn lagt henni á
Klapparstignum um 15 metra
ofan við Laugaveginn og
bmgðið sér þar inn í hús til
þess að vitja manns, er hann
ætlaði að fara að aka með, en
skildi bifreiðina eftir í gangi.
Rann bifreiðin aftur á bak nið-
ur Klapparstíginn, og beygði
fyrir hornið á klæðaverzlun-
inni Ultima, fór síðan með aft-
urhjólið annað upp á gangstétt-
ina, en hornið á pallinum gekk
innúr rúðunni og felldi eina
„ginuna" í glugganum. Tvær
stúlkur voru að þvo glugga
verzlunarinnar, stóð önnur í
stiga en hin studdi stigann.
Voru þær að þvo næsta giugga
við þann, sem bifreiðin fór inn
um, og skarst önnur á glerja-
brotum er rúðan sundraðist
og var stúlkan flutt í Landspít-
alann, en ekki er talið að hún
hafi skorist alvarlega.
1700 km. vegur
um Arabíu.
Basra (AP). — Ætlunin er
að leggja fullkominn veg frá
nokkrum höfnum við Persa-
flóa til Miðjarðarhafs.
Veður vegurinn alla leið frá
borginni Dammam, sem er
gegnt Bahreineyjum, og vest-
ur til Sýrlands, en þar grein-
ist hann til 3ja hafnarborga.
Alls verður lengd vegarins um
1700 km., og mun kostnaði við
hann verða náð með því að láta
greiða gjald fyrir hverja bif-
rejð, $em um hann fer.
vikur. Hér fer á eftir útdráttur j araeigendum gremdist þessi á-
úr greininni: kvörðun, sem hrakti þá af sum-
„Hinar vel auglýstu tilrannuv um beztu miðunum. Þeir
gripu þá til þeirra refsiaðgerða
að skella á banni gegn innflutn-
ingi íslenzks fisks til Bretlands.
Nú hafa' fregnirnar um tilraun-
ir til þess að rjúfa það bann
varpað nokkru ljósi á aðferðir
þær, sem beitt er. Mr. Dawson,
seni hyggst ílytja inn fiskinn,
hafa verið bannaðar allar
bjargir í löndunarhöfnum, þar
á meðal neitað um öflun íss,
sem nauðsynlegur er til dreif-
ingar fiskinum. Þá hafa brezk-
ir togaraeigendur hótað því að
selja engum fískkaupmönnum.
fisk, sem verzla við íslenzka
togara.
Málstaður togaraeigenda
hefur ekki batnað við það, að
fiskur er nú dýrari en þegar
hinnar íslenzku samkeppni naut
við. Það var aldrei sterkur leik-
ur hjá togaraeigendum að beita
ofbeldisaðgerðum (strongarm
tactics) löndunarbanns. Sem
óopinbert diplomatiskt vopn er
það gagnslaust. íslenzka stjórn-
in hefur ekki afturkallað á-
kvörðun sína, jafnvel þó að fisk
veiðarnar hafi beðið nokkurn
hnekki. Rétt lausn alls málsins
væri vitanlega sú að láta fram
fara alþjóðlega rannsókn á of-
veiðivandamálinu á hrygning-
sem géra á til þess að hefja á
ný innflutning á íslenzkum tog-
arafiski til Bretlands vekja-énn
athygli á deilu íslenzku- iikis-
Br. verkamanitaflokk-
urínn heldur ársþing.
Ársþing brezka Verkamanna
flokksins hófst í Margate í
morgun.
Þar verða mörg . mikilvæg
mál á dagskrá, en vafalaust
munu utanríkismálin veröa þar
efst á baugi. Vitað er, að þar
verða tekin fyrir frumdrög. að
stefnuyfirlýs. flokksins ö þeim
málum, og að vinstri sinnar
flokksins munu koma fram
með ýmsar breytingartillögur.
Forsetahjónin
fengu höfðinglegar
móttökur í Hafnar-
firði.
Forseti íslands og' frú hans
komu í opinbera heimsókn til .
Hafnarf jarðar í gærdag. Hófst | arstöðvunum, ekki aðeins áls
athöfn í Hellisgerði kl. 15 og
var þar fjöldi manns saraau.
kominn til þess að fagna for-
setahjónunum. Bæjarstjóvinn í
Hafnarfirði bauð forsetahjón-
in velkomin. Lúðrasveit Hafn-
arfjarðar lék. Þá flutti forset-
inn ræðú og* að lokum söng
Karlakórinn Þrestir. Því næst
gengu forsetahjónin um Hellis-
gerði og skoðuðu garðinn und-
ir leiðsögn Ingvars Gunnars-
,sonar og áður en þau fóru það-
. an ávarpaði Kristinn Magnús-
son, form. Magna, forsetahjón-
in og afhenti þeim mynd af
Hellisgerði.
Því næst heimsóttu forseta-
hjóriin elliheimilið, síðan var
raftækjaverksmiðjan skoðuð,
Flensborgarskólinn og verk-
smiðjan Lýsi og mjöl. Að end-
jngu var .opinber móttaka í Al-
iþýðuhúsinu, og' þar flutti for-
seti bæjarstjórnar ræðu og
þakk iði forsetahjónunum kom-
una til Hafnarfjarðar. Hafnar-
f jörður var fánum prýddur í til-
efni forsetaheimsóknarinnar og
rnikill mannfjöldi var á göt-
unum þar sem forsetahjónin
fóru um.
lands- og Noregsmiðum, held-
ur einnig við Skotlandsstrend-
úr, þar sem fiskimenn hafa orð-
ið hart úti af völdum erlendra
togara.“
Dýpkun í Hornafirði
iokið í vikunnt.
Gert er ráð fyrir, að sand-
dæluskipið Sansu ljúki greftri
sínum í Hornafirði í lok næsttt
jviku.
Eins og Vísir hefur áður skýrt
frá, hófust framkvæmdir þar í
lok ágústmánaðar, og var gert
ráð fyrir, að verkið myndi taka
um það bil mánuð. Þessi áætlun
ællar að standast, með því að
um helgina átti Sansu ekki
eí'tir að graf a nema um. 25
metra, en því verki verður sem
sé lokið innan viku.
Þegar Sansu hefur lokið
þessu verki, geta hin smærri
strandferðaskip örugglega lagzt
að bryggju í Hornafirði, og
verður að þessu hin mesta
þamgöngubót, eins. og nærri.
má geta.