Vísir - 05.10.1953, Page 1
41. árg.
Mánudaginn 5. október 1953.
226. tbl.
Rafmagitsiaust Settgi í gær vegna : |J
tenginga viB írafossorkuver.
Efægt að hleypa straumi á fyrirvaralatest.
Rafmagnslaust varð í bænum 1 nokkrum spennistöðvum í bæn-
í gærmorgun og stafaði það af
því að verið var að vinna í úti-
tengivirki austur við Sog að
undirbúningi tengingar gömlu
®g nýju stöðvarinnar.
Var þessum undirbúningi
lokið um kl. 13.30, og er nú
hægt að hleypa straumnum á
nýýu línuna án neins fyrirvara,
en þó mun það ekki gert fyrr
en um næstu helgi.
Samkvæmt upplýsingum er
Vísir fékk hjá rafmagnsveit-
unni í morgun, var ætlunin að
Ijúka þessum undirbúningi að-
íaranótt sunnudagsins eða fyrir
kl. 8 á sunnudagsmorguninn, en'
vepna óhagstæðra veðurskil-
yrða og annarrar aðstöðu tók
þetta mun lengri tíma en gert
hafði verið ráð fyrir og fékk
bærinn því ekkert rafmagn frá
Sogi fyrr en um kl. 13.30 í gær-
dag. Voru mörg hverfi í bænum
algerlega rafmagnslaus mest
allan morguninn, en reynt þó að
miðla rafmagni frá Elliðaár-
stöðinni og varastöðinni, en það
er ekki nema Va þeirrar orku,
sem bærinn þarf. Við þessa á-
lagstakmörkun urðu bilanir í
um, þannig að viðgerð þurfti aö
fara fram eftir að álag var aft-
ur komið á frá Soginu, og voru
því einstaka hverfi í bænurn
rafmagnslaus fram ef'tir degi.
Auðsir i fá«
tækrshæli.
Róm (AP). — í fátækrahæli
í Torino hafa 200,000 lírur í
seðlum fundizt saumaðar inn í
madressu.
Seðlarnir eru allir frá því
fyrir 1918, en þá vár hægt að
eta sig mettan á Ítalíu fyrir
eina líru. Nú eru þeir hinsvegar
einskis virði.
® £*S S ® ® >» a
ja tlytja ehki ut-
lendinga til að manna vélbátana
Til eftirbreytni ?
N. York (AP). — í Jackson-
ville í Floride gilda strangar
reglur um höfuðbúnað kvik-
my ndahúsgesta.
Þar verður hver karl og kona,
sem tekur ekki ofan, meðan á
sýningu stendur, að greiða 10
dollara sekt. Gildir þetta þó
ekki fyrir efsta ekk.
Saknað báts með 2
mönnum.
Ætluöu að koma að landi á laugardag.
Óttazt er um trillubátinn
Teistu, RE 148, sem fór í róður
um kl. 1 e. h. í fyrradag.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Vísir fékk hjá Slysavarnafélagi
íslands í morgun, ætluðu menn-
irnir á bátnum, en þeir voru
tveir, að vera komnir að landi
ekki síðar en kl. 6 síðdegis á
laugardag. Þann dag var sléttur
sjór á Faxaflóa og logn til mið-
nættis. Bátverjar höfðu að
sjálfsögðu árar meðferðis og
segl, en hins vegar engin ljós-
ker.
Þegar farið var að óttast um
bátinn, var hafin leit að hon-
um. í gær var leitað allan dag-
inn. Meðal annarra leituðu
varðskipið Þór og Björn Páls-
son í flugvél, auk annarra aðila,
en ekkert hefur spurzt til báts-
ins.
En þegar dimma tók í gær,
veittu menn því athygli, að
slökkt hafði verið á vitanum
á Þormóðsskeri undan Mýrum,
og getur verið, að bátverjar
hafi komizt í skerið og slökkt
á vitanum, til þess að vekja á
sér athygli. í morgun var verið
að ganga úr skugga um, hvort
svo gæti verið, og mun Björn
Pálsson hafa flogið yfir það, en
ólendandi var þar sökum brims.
Þegar Vísir fór í prentun höfðu
engar nánari fregnir borizt af
þessu.
Á bátnum ,sem saknað er,
voru bræðurnir Eyjólfur og Ól-
afur Þorleifssynir, Baldursgötu
19 hér í bæ.
Það er næsta algengt, að laghendir menn smíði skipslíkön inni
í flöskum, svo sem sagt liefur verið frá í greinaflokknum um
„samborgarann“. Hitt er einsdæmi, að maður setji úr saman í
meðalaglasi, og mun Georg Pabst í Hessen vera sá eini, sem það
hefur leikið. Myndin er af hinum haga manni, vasaúrinu í
glasinu og samskonar úri.
Kona bíður bana I
umferðarslysi.
Varð fyrir varnarliðsbrfreið á
Hafnarfjarðarvegi.
Undirbúnisigi iokið í Woomera.
Hægt að gera prófunarsprengingu bráðlega.
Einkaskeyti frá AP.
Lokið er öllum undirbúningi
að kjarnorkuprófununum, sem
fram eiga að fara nú í vikunni,
í sandauðninni norðvestur af
VVoomera í Ástralíu.
Tekið er fram, að próíanirnar
fari ekki fram nema vindur sé
hagstæðrar áttar eða suðvestan
og blasi inn yfir sandauðnirnar,
en ekki yfir byggð svæði. —
Athuganastöðvar eru fjölmarg-
ar í mismunandi fjarlægð. At-
hugað verður m. a. hvaða áhrif
skálar og tjöld verða fyrir, mat-
væli o. s. frv. — Bretar og
Ástralíumenn standa að þessum
rannsóknum.
Flemming, bandaríslcur hers-
höfðingi, sem fer nieð heræv-
ingarmál, hefur í skýrslu til
Eisenhowers forseta, rætt nauð
syn þess, að frekari aðgerðum
í hervæðingarmálum verði hrað
að, og lokið margvíslegum und-
irbúningi. — Segir Flemming,
að allar líkur bendi til, að Rúss-
ar ráði nú yfir nægilega mörg-
um og voldugum kjarnorku-
sprengjum, til þess að leggja
margar borgir og lama sam-
göiigukerfi Bandaríkjanna, ef
viðbúnaður til varnar verði
ekki nægilegur ef til styrjaldar
kæmi.
Á laugatdagskvöldið varð
kona fyrir bifreið á Hafnar-
fjarðarvegi, skanimt frá Silfur-
túni og beið bana.
Kona þessi hét Júliana Ólöf
Árnadóttir, til heimilis að
Grænukinn 8 í Hafnarfirði. Var
hún fótgangandi á veginum á-
samt annarri konu þegar slysið
skeði.
Bifreiðin, sem Júlíana varð
fyrir var varnarliðsbifreið með
einkennisstafina VE 655. Sam-
kvæmt frásögn bifreiðarstjór-
ans á bílnum var hann að koma
að sunnan og var á leið til
Revkjavíkur. Þegar hann var
kominn inn undir svokallaðan
Hraunsholtslæk, en þá var
kluklcan 8.45 um kvöldið, sér
hann állt 1 einu tvær konur
gangandi á veginum framund-
an. í sama bili kom bíll akandi
á móti honum, sem líklega mun
hafa truflað eða blindað bíl-
stjórann á VE 655 eitthvað, en
hann kveðst hafa snarhemlað
eftir því sem hann gat. Skipti
það þá eng'um togum, að önnur
konan, sú er gekk innar á veg-
inum, \'arð fyrir bifreiðinni og
kast.aðist nolckra metra fram
fyrir hana og fram S veginn.
Lögreglan í Hafnarfirði var
þegar kvödd á staðinn, og þeg-
ar hún köm á að gizka 10—15
mínútum eftir að slysið skeði
var konan að gefa upp andann.
Hafnarfjarðarlögreglan bið-
ur þá sem kynnu að hafa verið
þarna nærstaddir, eða séð
hefðu er slysið skeði, að gef-a
sig fram við lögregluna hið
allra fyrsta.
Heimsmel í
IHarðþonhlaupi.
Brezki hlaupagaipurinn J.
Peters heíur bætt met sitt í
Mara'ponhlaupi um 5,4 sek.
Hljóp hann vegalengdina í
gær á 2 klst. 18 mín. 34.8 sek.
eða 4.30 sek. betri tíma en
Zatopek hljóp hana á Ólym-
píuleikunum.
Ræddu rnálsð á fundi á
fosludaginn.
*
Oáiiæ^ðii* itteð
Itílakaup.
Útvegsmannafélag Reýkjavík-
ur samþykkti á fundi símim á
föstudaginn tillögu þess efnis,
að flytja beri inn útlendinga.til
þess að vinna á fiskibátaflotan-
um á vertíðinni vegna þess, hve
erfiðlega gangi nú að fá mann
á skipin.
Meðal þeirra ályktana, .-em
fundurinn samþykkti, voru þess
ar:
„Fundur haldinn í Útvegs-
mannafélagi Reykjavíkur 2.
október vítir það skilningsleysi.
fjái’hagsráðs, sem fram korn í
sambandi við veitingu innílútn
ingsleyfa á vörubílum sl. vetur
og sumar. Eftir harðvítuga bar-
áttu og vegna brýnna þai’fa.
margra útvegsmanna fékkst
loks á s.l. vetri samkomúlag við
ríkisstjórnina imi að útvegs-
menn fengju að flytja inn 55
vörubíla á bátagjaldeyrislist-
ann. En nú fyrir skömmu veittí.
fjái’hagsráð ýmsum öðrum þjóð
félagsþegnum leyfi til þess að
flytja inn 118 eða 120 vöru-
bíla á leyí'i án bátagjaldeyris-
álags. Þetta er eitt af mörgum.
dæmum er sína glöggt hversu.
hagur aðalatvinnuvegs þjóðar-
innar, sjávarútvegurinn, er
hörmulega fyrir borð borinn af
.stjói'narvöldunum, sem stafar
fyrst og fi-emst af því, hve harla
fáa málssvai’a hann á á alþingi.
í öðru lagi samþykkti fund-
ui’inn þessa ályktun:
„Vegna þeirra erfiðleika.
sem nú eru með að fá mann-
skap á fiskiflotann, sam-
þykkir fundur í Útvegs-
mannafclagi Reykjavíkur,
lialdinn 2. október, að skora
á stjórn LÍÚ að fara nú þeg-
ar að vinna að því, að leyfí
fáist til þess að flytja inn.
útlendinga til að vinna á
fiskiskipaflotanum á kom-
andi vetrarvertíð.“
Að lokum kaus fundurinn
fimm manna nefnd til þess að
í-æða við bæjarstjórn Reykjavik
ur um vandamál vélbáta í
Reykjavík.
Norðmenn sleppa
ur haldi.
Moskva (AP). — Rússneska
stjórn .n hefur ákveðið að Iáta
lausa finun Norðinenn, scm
handteknir voru í styrjöldinni.
Menn þessir eiga að hafa
verið í her Þjóðverja og hand-
teknir með þýzkum föngum.
Þeir hafa setið í fangelsi síðan
í styi’jaldarlok.
Sat þing
Evrópuráðsins.
Jóhann Þ. Jósefsson alþing-
ismaður er nýkominn heim frá
Strassborg, þar sem hann sat
ráðgjafarþing Evrópuráðsins.
Þinginu lauk um mánaðamót
in, og hafði staðið frá 15. f. rn.
Aði’ir fulltrúar íslands á þing-
inu voru þeir Hei’mann Jónas-
son og Stefán Jóh. Stefánsso.n.
Þeir nxunu væntanlegir heim
með Gullfossi. .