Vísir - 08.10.1953, Page 1
11. árg.
Fimmtudaginn 8. október 1953.
229. tbi.
Veiiar vii Grænland minnka.
Aðeins einn togari mun vera þar nú.
Veiðar íslenzkra togara við
Grænland eru nú alveg að f jara
út.
Er blaðinu ekki kunnugt um
nema einn íslenzkan togara,
sem þar er, en það er Bæ.iar-
útgerðartogarinn Þorkell máni,
og fer að líða að því að hann
komi. Han nfór héðan 2. sept-
ember.
Togararnir eru nú margir á
ísfiskveiðum fyrir Þýzkalands-
markað og saltfiskveiðum hér
við land. Hallveig Fróðadóttir
er enn til viðgerðar, en af öðr-
um Bæjarútgerðartogurum hef
ur blaðið þessar fregnir: Ingólf-
ur Arnarson fór á ísfiskveiðar
30. sept., Skúli Magnússon fór
á ísfiskveiðar 5. okt. og Jón
Þorlákssorr 2. okt., en Þorsteinn
Ingólfsson lagði upp karfa í gær
149.8 1., og fer aftur á veiðar
í kvöld. — Pétur Halldórsson
Naglinn gekk inn
í bak drengsms.
Óvenjulegt slys vildi til að
Vatnsenda í Villingaholtshreppi
í gær, er drengur féll á bakið
ofan af brúsapalli og gekk nagli
inn í bakið á honum.
Um nánari atvik var Vísi ek'ki
kunnugt í morgun, e ndrengur-
inn, sem.heitir Helgi Ámunda-
son, var fluttur til héraðslækn-
isins, sem sendi hann til Reykja
víkur í sjúkrabifreið, sem sýslu
maðurinn á. Naglinn mun hafa
verið sex þumlungar á lengd,
og var jafnvel óttazt, að hann
kynni að hafa gengið inn í
brjósthol drengsins.
Saltað í 55.000
tn. hér syðm.
Að undanförnu hefir verið
lítið um síldarsöltun sunnan-
lands, enda ógæftir hamlað
%eiðum.
Láta mun nærri, að saltað
hafi verið sunnanlands í
55.000 tn., þar af 25.000 tn.
stórsíld, hitt millisíld. — Af-
skipun á sunnanlandssíld mun
hefjast síðari hluta þessa mán-
aðar.
og' Jón Baldvinsson eru á salt
fiskveiðum. Askur kom af karfa
veiðum í morgun, en Karlsefni
er væntanlegur á morgun. —
Hafnarfjarðartogarar: Júní er
inni og landar, Júlí og' Bjarni
riddari eru á karfaveiðum, og
Röðull á leið til Þýzkalands. ■
Akranes: Akurey er á karfa-
veiðum, lagði upy afla sl. laug-
ardag. ____________
Laxárvirkjun tckin í
notkun á laugardag.
Ákve'ðið hefir verið að Lax-
árvirkjunin nýja verði tekin í
notkun næstkomandi laugar-
dag, 10. október.
Öllum undirbúningi að því er
nú lokið og fóru aðalprófanir á
vélum með. álagi fram í vikunni
sem leið. — Með virkjun þess-
ari er náð nýjum og miklum á-
fanga í raforkumálum lands-
ins og verður þess minnst með
sérstakri athöfn nyrðra og
verður nánara frá tilhöguninni
sagt síðar. Muiui.þar verða við-
staddir allir forvígismenn og
aðrir, sem mest hafa komið við
sögu virkjunarinnar.
Oiurcliill vinnur ennþá
að fundi æðstu manna,
Sr. Friðrik gestur
KFUM í Daumörku.
Dr. theol. síra Friðrik Frið-
riksson dvelst í Danmörku um
‘þessar mundir og mun vera
væntanlegur heim í byrjun
næsta mánaðar.
Hann fór utan í boði K. F. U.
M. í Danmörku, sem hélt há-
tíðlegt 75 ára afmæli sitt hinn
16. f. m.,' og var þar heiðurs-
gestur, en síra Friðrik hefir,
sem kunnugt er, starfað mikið
fyrir K. F. U. M. í Danmörku
og nýtur þar mikillar virðing-
ar og ástar mikils fjölda
manna.
Félagsstarfsemi
K.F.U.M. og K. í Rvík.
verður með sömu tilhögun á
vetri komanda sem á undan-
förnum árum. Ha^dinn verður
sunnudagaskóli og svo er
drengja- og unglingsstarfið,
deildir ungra karla og kvenna
o. s. frv.
Veiðiþjófar við Austurland.
Læðasi b laBBdEael^i á iiæiasifi*|»eli.
Fré fréttritara Vísis.
Eskifirði, í gær.
Flestir vélbátar munu nú
hættir veiðum á djúpmiðum
austur í hafi, enda misjafn afli
undanfarið og slæmt veður.
V.b. Snæfugl frá Reyðarfirði
er nýhættur veiðum, en vitað
er, að Akraborg stundar enn
veiðar. Hins vegar hefir aflazt
sæmilega á smábáta. Annars
hafa sjómenn kvartað undan
ágengni erlendra togara, sem
laumast í landhelgina þegar
rökkva tekur. Talið er, að einn
bátur frá Norðifriði hafi orðið
fyrir línutapi af völdum veiði-
þjófa.
í gær losaði togarinn Aust-
firðingur 120—130 smál. af
karfa á Eskifirði, og er aflinn
ýmist flakaður fyrir Rússlands-
marka'ð, eða settur í bræðslu.
Jökulfell lestar nú karfa og
þorsk fyrir Rússlandsmarkað.
Undanfarið hefir verið nóg
atvinna á Eskifirði og víðast
annars staðar við sjávarsíðuna
á Austurlandi. Til Eskifjarðar
eru væntanlegir hjallar til
fiskhérzlu í næstu viku, en
þegar hafa verið reistir um 30
hjallar’ á staðnum. Það eru
Austfirðingur og Hraðfrysti-
húsið, sem standa fyrir hjalla
bvggingum, og mun togarinn
í nú taka til við að veiða fisk til
! herzlu.
//
Dóróthea Guðmundsson og dætrahópurinn.
Engif snákar í sveitinni hér
— og grasið svo grænt."
Vísir rabbar við v.-íslenzka fjöl-
skyldu, sem kann vel við sig hér.
Fyrir skemmstu dvöldu hér
vestur-íslenzk hjón Dóróthea
og Pálmi Guðmundssop frá
Kaliforníu með fjórum dætrum
sínum.
Pálmi er trésmiður að at-
vinnu, og eru þau hjónin búsett
skammt frá flotabænum San
Diego í Suður-Kaliforníu. Þau
eru bæði af alíslenzkum ættum,
giftust í British Columbia í
Kanada, en fluttust síðan suð-
ur til Kaliforníu.
Hingað kom Pálmi árið 1950
og vann við trésmíðar hjá Ham-
ilton-félaginu. Síðan kom kona
hans hingað upp með dætur
þeirra fjórar, á aldrinum 9—14
ára, og hugðust þau dvelja hér
um stund, og ætluðu dætur
þeirra að ganga hér í skóla.
Ekki varð þó af þessu, þar eð
ast svolítið um landið. Dæturn-
ar kunnu forkunnar vel við sig
hér, og geta má þess, til gam-
ans, að allar höfðu þær lært að
synda, meðan þær dvöldu hér
Frh. a 8. siðu.
Vonzkuveður á Ísafirði
að undanförnu.
Á ísafirði hefur að undan-
förnu verið vonzkuveður, rok
og úrfelli og allir bátar hafa
legið þar bundnir við bryggjur
af völdum veðurs.
Á dögunum fennti mikið í
fjöll á Vestfjarðakjálkanum og
tepptust þá fjallvegir um
stund sökum snjóa. Síðan gerði
asahláku og olli það smávegis
skriðuföllum á nokkurum stöð-
um. Hvergi urðu þær skriður
móðir Dórotheu, veiktist snögg- þð tij verulegs trafala né ollu
lega, og fóru þau af landi burt tjóni; sem orð er 4 gerandi.
aftur5 nú í vikunni. Þau koma
þó e. t. v. hingað aftur innan
tíðar.
Dóróthea er , fædd vestan
hafs, en talar íslenzku ljómandi
vel, enda komið hingað tvisv-
ar áður, árið 1921 og síðan árið
1936. Móðir Dórótheu, Odd-
fríður Halldórsdóttir, er systir
Þóru heitinnar, konu Jóns
Ólafssonar bankastjóra og al-
þingismanns.
Þær lærðu allar
að synda hér.
Tíðindamaður Vísis átti stutt
viðtal við Dórótheu fyrir
nokkru, enda fátítt, að heil fjöl-
skylda, búsett vestan hafs, taki
sig upp og flytjist hingað, en sú
var ætlunin, að minnsta kosti
um nokkurn tíma. Þau höfðu
heimsótt æskustöðvar móður-
fólks Dórótheu í Miklholts^
hreppi á Snæfellsnesi 05 fsrð-
ísafjarðartogararnir eru
báðir í söluferðum. ísborg fór
fyrir nokkurum dögum til Dan-
merkur með afia sinn, en Sól-
borg er nýlögð af stað með full-
fermi. Var ferð hennar einnig
heitið til Danmerkur.
Reynt aB sætta iúgó-
slava og italf.
Sendiherrar Breta 05 Banda-
ríkjánna í Róin cg Belgrad ræða
nú á nýjan leik við ítalska og
júgóslavneska stjórnmálamenn
um TrieSte-deiIúna.
Fullyrt er, að Vesturveldin
þreifi fyrir 'sér um lausn á
þeim grundvelli, að núveranai
mörk á Triestesvæðinu haldist.
Dulles að snúast
á sömu skoðun.
Baii(larík|astjóian
í*erir sjrein Svrir
viillaorfi sínu.
Einkaskeyti frá AP. —<
Londoii í morgun.
Sir Winston Churchill forsæt-
isráðherra Bretlands ávarpar á
laugardag flokksþing íhalds-
flokksins, sem í dag verður sett
í Margate.
Hann vinnur enn að því, sam
kvæmt áreiðanlegustu heimild-
um, að fundur æðstu manna
fjórveldanna verði haldinn til
þess að reyna að ná samkomu-
lagi um heimsvandamálin.
Hið merka stjórnmálablað
Yorkshire Post, sem er mál-
gagn íhaldsflokksins, segir í
morgun, að Churchill muni
vinna að þessu eftir þvf sem
heilsa og kraftar leyfi. Blaðið
segir ennfremur, að enginn nú-
lifandi stjórnmálamaður hafi
eins mikla reynslu og Sir Win-
ston, eða sé eins vel fallinn til
að hafa forystu í þessum mál-
um, og vekur athygli á því, að
undanfarna daga hefur sveigst
mjög í þá átt, að
John Foster Dulles, utanrík-
ismálaráðherra Bandaríkj-
anna, sé að snúast á sveif
með Churchill, til athugunar
á möguleikum fyrir eins
konar nýjum Locarnosátt-
mála, eins og Churchill hef-
ur haft í huga, friðinum til
öryggis.
Það hefur einmitt verið til
athugunar í Washington að und
anförnu, m. a. fyrir áhrif frá
Adlai Stevenson, að bjóða Rúss
um upp á griðasáttmála. Nú
herma seinustu fregnir, að
Bandaríkjastjórn hafi gert rík-
isstjórnum Bretlands og Frakk
lands grein fyrir, hvaða skil-
mála hún teldi að hægt væri að
bjóða, og hefur verið sagt í
París af opinberum talsmanni,
að franska stjórnin teldi mikil-
vægast, eins og sakir standa,
að vinna að því, að fundur
æðstu manna fjórveldanna
verði haldinn, eins og Churchill
telur æskilegt, en verði hann
ákveðinn, sé tímabært að taka
ákvarðanir um hvaða skilmála
mætti bjóða upp á.
Utanríkismálin voru á dag-
skrá í Margate og ávarpaði
Anthony Eden flokksþingið, en
hann hefur nú tekið við em-
bætti sínu. Hann mun hins veg-
ar ekki svara gagnrýni, sem
fram kann að koma. Það gerir
Salisbury lávarður, sem gegnt
hefur embætti hans að undan-
förnu.
Fulltrúar þeirra 16 þjóða, sem
hafa herafla í Kóreu, komu
saman í New York í gær.
Búist er við, að fvrir kvöldið
verði búið að ganga frá svari
Þríveldanna við seintistu crð-
sendingu Rússa.
Fulltrúar Vesturveldanna eru
að ganga frá svarinu á fundum
í TpnHon