Vísir


Vísir - 08.10.1953, Qupperneq 4

Vísir - 08.10.1953, Qupperneq 4
V f «5 » s WflSIB. D A G B L A Ð Ritstjóri: Hersteinn Pálsson. Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstofur: Ingólfsstræti 3. Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm linur). ,tl a; Jlí Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. Skriður á handritamálinu ? Þess var getið til í forustugrein hér í blaðinu ekki ails fyrir löngu, í sambandi við kosningarnar, sem fram fóru i Danmörku fyrir skemmstu, að þing það, er þá yrði kosið, mundi að öllum líkindum fjalla um mál, sem íslendingum væri hjartfólgið. Var þar átt við handritamálið, og er nú komið á daginn, að mál þetta mun koma til kasta þingsins, svo sem ifram kom í hásætis- eða stefnuræðu Hedtofts forsætisráð- herra. Var þessa atriðis lauslega getið hér í blaðinu í gær. , Þótt vitað sé eftir ræðu ráðherrans, að einhver skriður muni nú fara að koma á mál þetta, að því er löggjafarsamkunöu Dana snertir, er þó ekki vitað enn, hversu langt stjórnar- flokkurinn hyggst ganga, og mun það vart verða vitað, fyrr ,en hann leggur fram frumvarpið, sem um þetta fjallar. Þar af leiðandi er erfitt um það að segja fyrir fram, hversu miklar gleðifréttir eru hér á ferðinni fyrir íslendinga, en um hitt er ekki að villast, að það er gott, að til úrslita dragi, eitthvert svar komi frá stjórnmálamönnum Dana við kröfum íslendinga. , Sumir líta svo á, að Danir muni ekki bjóðast til að afhenda Islendingum öll þau hrmdrit, sem vitað er um að eru í. danskri vörzlu, og safngripi þá, sem hafa verið fluttir til Danmerkur. Verið getur því, að þeir bjóði aðeins fram nokkurn hluta • handritanna, og er þá einnig eftir að vita, hvað þeir vilja skilja undan, hvort þar. verður um einhver dýrmætustu fjár- sjóðina að ræða. Úr því verður reynslan að skera, það er að segja frumvarpið, er það sér dagsins ljós. i Óhætt mun að gera ráð fyrif'því, að ýmsir menn eða hópar , manna í Danmörku muni rísa öndverðir gegn þvi að nókkur afhending fari fram, hvort sem um mikinn hluta handritanna • er að ræða eða ekki. Sýning sú á handritunum, sem haldin var i . í Kaupmannahöfn ekki alls fyrir löngu, bar þess vott, að þar eru ,til menn, sem berjast munu með oddi og egg gegn því, að hróflað verði við nokkru af safngripunum. Þó munu áhrif sýn- . ingarinnar ekki hafa orðið þau að öllu leyti, sem til var ætlazt, ,því að hugsandi menn hafa áreiðanlega séð gegnum það, sem þar fór fram, svo að íslendingar geta verið ánægðari en gera . mátti. ráð fyrir í fyrstu. | Hitt vitum við íslendingar líka, að við eigum marga og , trausta vini meðal Dana í máli þessu, og þeir munu einnig láta áhrifa sinna gæta, þegar til úrslitanna kemur, eins og þeir hafa haldið fram hlut okkar á liðnum árum. Áhrif þeirra geta upphafið áróður hinna, sem eru okkur mótsnúnir í mál- . inu, og vel það. j Fari svo, að Danir ætli ekki að bjóðast til að afhenda nema nokkurn hluta handritanna, sem þeir hafa undir höndum, verða íslendingar að sjálfsögðu að taka málið til athugunar. Verður að skoða það í ljósi þess, hvaða handrit Danir vilja láta af hendi, og hverjum þeir vilja halda. Síðan verða menn hér á landí að gera það upp við sig, hvort þeir vilja þiggja það sem boðið er — telja hálfan skaða betri en allan — eða gera fram- haldandi kröfu til alls, sem er í vörzlum Dana. Eins og stendur verður ekkert um það sagt, hver úrslit málsins verða eða hvað Danir gera, en þó virðist það mikilvægur áfangi, er þeir vilja sýna lit í málinu, hversu mikið sem þeir vilja svo ganga fii móts við okkur. Stórhýsið er að verða of lítið fyrir starfsemina. Ifjá Klæðaverzlnn ilndrésar Aiidréssonai* Ii.4*. staría nn um 100 manns. Klæðaverzlun Andrésar Andréssonar h.f. sýndi blaða- mönnum nýlega vinnustofur sínar og framleiðslu, í stórhýsi sínu, Laugavegi 3. Húsið er allt notað til starf- seminnar — upp í hanabjálka og er í rauninni orðið of lít- ið fyrir hana, því að hér er nú orðið um að ræða fjöldafram- leiðslu, að ,því er sumar fatn- aðartegundir snertir, að er- lendri fyrirmynd, sem fjöldi manns vinnur við. Alls vinna hjá fyrirtækinu yfir 100 manns, þar af um 60 að saumaskap. Með því að nota til hins ítr- asta þekkingu og reynslu, nú- tímatækni og skipulag, eins og fi-ekast er kleift, miðað við að- stæður, hefur verið unnið mark- visst að því, að framleiða vand- aðan en jafnframt ódýi’an fatn- að. Hefur nú því mai’ki verið náð, að framleiða t. d. í öilum algengum stærðum vandaðan karlmannsfatnað úr ágæum fataefnum fyi’ir 890 kr. Fataefni eru m. a. gabei'dine- efni, unnin í Gefjuni og Iðunni úr erlendri ull, og eru þessi efni fyllilega sambæi’ileg við erlend efni sömu tégundar. Einnig er saumað úr enskum efnum. Vandaðar og smekklegar kven- kápur, kosta nú kr. 1200, og er þar að sjálfsögðu um breytileg snið að ræða. Andrés Andrésson kvaðst hafa orðið var við, að menn teldu, að óathuguðu máli, að svo ódýr fatnaður sem hér um ræðir, 890 kr. gæti ekki verið vandaður, en það væri þó eng- an veginn almemit, því að sal- an væri mjög ör. Það væri hið nýja skipulag sem gei’ði það kleift að framleiða fatnaðinn svona ódýrt. Er það óneitanlega mikil- vægt, og mun koma sér vel fyrir fjölda manna, að geta fengið vönduð föt eigi dýrara verði, en útlit og gæði ættu menn að kynna sér frekar aí eigin í'eynd, því að „sjón er sögu ríkari.“ blússur U'(lariér'&eyejni. svart, gult og brúnt. Urjóitailiíl svart og hvítt. CUL tíicj lucfíja tjaUae^ni H. Toft Skólavörðustíg 8. Sími 1035. VIIMIMA Okkur vantar nokkr- ar stúlkur í eldhús og buffet strax. Upplýsingar á skrifstofu Sjálfstæðishússins í dag kl. 2—4. — Uppl. ekki geínar í sima. S|álfstæðishúsó5 Húsnælismálln. i A ð undanförnu hefur talsvert verið rætt um húsnæðismálin hér i höfuðstaðnum, og er það eðlilegt, þar sem .margar uþpsagnir voru miðaðar við síðustu mánaðamót og vandræðin á þessu sviði ærin. Bæjarstjórnin hefur og fjal]að «m máliý qg er þess að vænta, að árangur vex;ði, skjóti|rí og. g|xður’;af;;þéim ráðstöfunum, sem hún liefur forusfu urri,' er héþpiíegústú iéiðir hafa verið fundnar. AndstöðublöS Sjálfstæðisflokksins hafa gripið tækifærið til að hefja mikinn áróður, enda eru nú kosningar í nánd. Hefur Alþýðublaðið gengið einna lengst í þessu efni í gær; þegar það birti fregn um, að Bandaríkjarnaður nokkur hafi boðið 65 þús. kr. fyrirframgx-eiðslu fyrir leigu á 2ja herbergja íbúð, og því haft betur en gömul kona, sem aðeins gat boðið 25 þús. krónur. Virðist hér hafa verið um mil 1 jónamæring að ræða, því a<5 vai’la gæti óbreyttur Bandaríkjamaður snarað úr 4000 doll- urum fyrir íbúð til skamms tíma, því að þeir munu flestír hér ráðnir til eins eða tveggja ára. Hefði Aiþýðublaðið átt að nefna nöfn í þessu tilfelli máli sínu til sönnunar, öp.j^ttij&á taka fregnina alvarlega. Ella verður að ætla bana úppspuna, tilbúinn til þess að vekja eingöngu úlfúð.og tortryggni. J Hliliers lyftiduft K 8 oz. og 16 oz. dósir. :* H. Benediktsscm & Co. j Hafnarhvoll, ■J Héykjavík. •vw*/1vvwwvvvwuvvvvvvwvvuvvwvvvvvwwwuvvvv^ >1 SKIPAUTGCRÐ RflKISINS Þeim, sem eiga garðávexti á afgreiðslu vorri, skal bent á, að vér höfúm ekki skilyrði til að geyma slíka vöru, ef frOst kemur. -—• Er því skorað á eigendur nefndra vara að iíekjá þær hið allrá í'vi'sta. ! i’" . . i " ■■•' ‘:: ; • - < ' - l f\ ' 1 : ■' : ! ' Fimmtudaginn 8. október 1953. Það er oft, sem mér berast bréf frá lesendum Bergiriáls, er fjálla um strætisvagnana, en ýmislégt i rekstri þessa nauðsynlega bæj- arfyrirtækis er alltaf undir smá- sjúnni lijá almenningi. Það er reyndar eðlilegt, þvi nær allir bæjarbúar nota vágnana einhverh tíma, og mikill fjöldi á liverjum degi. Eg get ekki alltaf dæmt um hvort bréfin eða umkvartan- irnar eru sanngjarnar, en þar sem dálkur þessi er opinber vett- vangur, ætlaður öllum almenn- ingi, verður ekki komizt hjá að birta bréfin, ef þau að öðru leyti eru þess cðlis að birting þeirra geti talizt réttlætanleg. Vagnarnir lokaðir. Grámann sendir mér eftirfar- andi bréf og þykir mér hann full liarðorður: „Það er að bera í i bakkafullan lækinn að segja þeirri stofnun (strætisvögnunum) til syndanna, en þær eru inargar og fækkar seint, en í þetta skipti ætla ég aðeins að drepa á tvö atriði. — Miðvikudagskvöldið 23. september sl. kom Sólvallabíll- inn á torgið, þcgar klukkuna vantaði tvær minútur i liálf ellefu. Bilstjórinn flýtti sér út, eins og í dauðans ofboði, og var fjarver- andi í 10 mínútur. En vagninn lokáður, og fólkið kom og beið við dyrnar. Eiga að vcra á verði. Eg man greinilega, að stjórn fyrirtækisins lét lxafa það eftir sér, að vagnstjórarnir xettu sem aílra minnst að yfirgefa vagninn á vakt siniii. En þetta er ekki einstætt fyrir- bæi’i. Þó eiga hér ekki allir vágn- stjórarnir óskilið mál, éins og gefur að skilja. Sumir virðast rækja starf sitt sómasamlega, en flestir láta sem þeir væru í eigin farartækjum, og væru sín- ir eigin húsbændur. — Það virð- ist svo sem eftirlitið sé ckkert betra. Bitnar á ungum sem gömlum. Farþegunum er bolað frá að setjast i sæti sín. Þeir verða að Mlma úti, kaldir eða blautir með- an vagnstjörinn, á fullti kaupi, situr inni, tottandi vindlinginn sinn og masandi. Ekki ætti néin- um manni að vera ofvaxið að vera við verk.sitt í sex Stundir á dag. Gremjulegast er þó, þegar þetta kemur niður á gömlu og útslitnu fólki, sem aldrei þekkti takmarkáðan vinnutíma. — Ætli þeir piltar ixefðu ekki vcrið lé- legir til afkasta í 12—18 stundir við aðgerð úti á sjó? Eftirlitið og yfirstjórnin segir lil sín. Ósamræmi í biðstöðvarheituni. Hitt atriðið er villandi ósam- rærni hjá vagnstjórunum, sem kémur sér illa fyrir aðkomufóiic- jjð'ísérstakiega. Eitt dæmi: Skóía- vörðustígur og Týsgata, ýmist nefnt en sami viðkomustaður. — Ejhn vagnst.jórinn segir þarna sitt á hvað“. Þannig lýkur bréfi Grámanns. Eg man það ekki, en mér þykir sennilegt, að það hafi veíið úr- liellisrigning þann 23. fyrra mán- aðar. — kr. Skyldl Pieck verda endarkjörínu'? í Þýzkalandi er miimst 4 ára afmælis austur-þýzka lýft- veldisins. Pieck, sem er 77 ára, hefu; Verið' endurkjörinn forseti.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.