Vísir - 13.10.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 13.10.1953, Blaðsíða 1
43. érg. Þriðjudaginn 13. október 1953 233. tbl. Ætlaði að stela slökkviliðs- bíl — lenti í fangageymslu. Ölvaður maður gengur milli húsa og brýtur rúður. Um helgina voru þrjár til- raunir gerðar til þess að stela bílum. Þær mistókust allar, en tveir sökudólganna voru hand- teknir og fluttir í fangageymsl- ana. Annar þeirra, sem var hand- tekinn, var í senn svo frumleg- ur og djarfur að ætla sér að stela slökkviliðsbíl. Hafði slökkviliðið verið gabbað að- faranótt súnnudagsins að Aust- lu'stræti 4, en á meðan slökkvi- iiðsmennirnir voru að grennsl- ast fyrir urn ástæðuna til út- kallsins skildu þeir bifreiðina eftir á götunni. — En þegar slökkviliðsmennirnir komu að bílnum aftur var ölv aður maður komiirn upp í hann og var að reyna að konta honum í gang. Maðurinn neitaði að ;segja til nafns síns og tók lög reglan hann í vözlu sína. í fyrrakvöld, um hálftíuleyt ið, barst lögreglunni tilkynning um að. drukkinn maður væri að reyna að komast inn í óviðkom- andi bíl er sfóð á Nönnugötu t.ögreglan fór á staðinn og náði manninum, en sá neitaði einnig að segja til nafns síns og flutti lögreglan hann í f angageymsluna. Þriðja tilraunin til bílþjófn- aðar var gerð í Hlíðahverfinu í fyrrinótt. Hún mistókst og var sökudólgurinn allur á bak og burt þegar lögreglan kom á vettvang. Braut rúður. Aðfaranótt laugardagsins var tilkynnt til lögreglunnar frá húsi einu við Egilsgötu, að mað- ur væri þar fyrir utan, allmjög undir áhrifum áfengis og væri að brjóta rúður þar í húsinu. Seinna kom í ljós að sami mað- ur hafði víðar komið við sömu erinda og alls hafði hann brotið 10—15 rúður í húsum við Eg- ilsgötu og Barónsstíg. Lögreglan hóf leit að mann- inum og á Miklatorgi hitti hún drukkinn mann er hún taldi að e. t. v. myndi vera rúðubrjót- urinn og fór með hann niður á lögreglustöð. Neitaði hann hlutdeild sinni í rúðuárásum, en við athugun kom í ljós, að í uppbrotum á buxnaskálmum hans fundust rúðuglersbrot, sem hann gat ekki gert grein fyrir.. Engir báfar á sjó i viku. Frá fréttaritara Vísis. Akranesi í gær. Síðastliðna viku voru st.öð- ugar ógæftir og engir bátar á sjó. Nokkrir bátar bíða átekta og inunu reyna, er lægir. Það mun vera um 10 bátar, sem enn eru með net. Engir togarar hafa komið inn síðan á þriðjudag í fyrri viku. Var sleginn niður. Aðfaranótt sunnudagsins var maður sleginn niður við pylsu- vagnana og það svo rækilega að hann var ósjálfbjarga. Árás- armanninum þótti þó ekki nóg að gert og sparlcaði í hann þarna liggjandi. Ekki náðist í árásarmanninn, en lögreglan bjargaði hinum, kom honum til læknis og lét hjúkra honum. Meiðsli virtust ekki alvarleg, og var maðurinn fluttur heim að sjúkraaðgerð lokinni. Osjálfbjai-ga hestur. Síðastliðinn laugardagsmorg- un, laust fyrir hádegi, var lög- reglunni'skýrt frá því, að hest- ur lægi ósjálfbjarga í skurði við Kaplaskjólsveg. Voru lög- reglumenn sendir á vettvang. Drógu þeir hestinn upp úr skurðinum og skiluðu honum til réttra hlutaðeigenda. 83% útflutnings Svía á frúista. St.hólmi. — Frílistinn hefur frá 1. okt. verið aukinn um nýjan flokk vara.____ Eru þá 83% alls útflutnings á frílista, og fer hann til landa í öllum heimsálfum, ailt frá Filippseyjum til landa í Efna- hagsbandalagi Evrópu. (SIP). • m Onnur Irafoss- vélin reynd. Tekin í notkun á föstudag. Lokaundirbúningi írafoss- virkjunarinnar hefur miðað vel áfram, og þann 16. (á föstu- dag), bætast tæp 16 þúsund KW við raforkumagn það, sem nú er fyrir hendi frá Sogs- og Elliðaárstöðvunum. Þegar hefur fyrri vélasam- stæða írafossvirkjunarinnar verið reynd með 16 þús. KW álagi, og tókst það ágætlega. Innan skamms verður síðari vélasamstæðan — með sama orkumagni — tekin í notkun, en í bili er ekki þörf fyrir nema aðra samstæðuna. Eins og stendur framleiða Sogs- og' Elliðaáraflstöðvarnar 27 þús. KW, en með 16 þús. KW viðbót, .verður unnt að af- nema skömmtunina. og þá verður nægileg orka til allrar veniulegrar notkunai’. Munu ■jtueijujBt ua ‘egiEA eurunps Vatnsrennsli í Soginu hefur undanfarið verið 100—120 ten. m. á sekúndu, en meðalrennsli er 112—116 ten.m. Nægir það til venjulegrar rafrokuvinnslu. Jan Hajdukiewics, Pólverjinn, sem átti sæti í: hlutlausu nefd- inni í Kóreu, er harih taláði i útvarp og gérði grein fyrir 'þeirri ákvörðun sinni, að hverfa eltki hebn aftur, heldur leita hælis sem þólitískur ílótta- maður h'já hinum frjálsu þjóð- um. — Jan kvaðst lengi hafa verið andvígur kommúnistum. Fyrsta hríð haustslns olii miklum símabilunum. Aðeins ein lína í lagi norður. Hefir fengið lausn í 3 ár. Árni Friðriksson fiskiíræð- ingur er nýkominn heim frá Danmörka, en þar sat hann fund Afþjóðahafrannsókna- ráðsins. Hann tekur um næstu áramót við starfi sínu sem framkvæmdastjóri ráðsins. Hefur Árni Friðriltsson feng- ið lausn frá störfum sem for- stöðumaður fiskideildar At- vinnudeildar Háskólans næstu 3 ár.___________________ Vísir hefur átt stutt viðtal við Árna Friðriksson. Kvað hann það hafa þótt sjálfsagt að breyta til og fela fiskifræðingi þetta starf, en sá maður, sem nú g'egndi starfinu væri ekki fiskifærðingur, en hins vegar málamaður ágætur og þaul- vanur skrifstofumaður, er lengi hafði starfað í utanríkisráðu- neytinu danska og' mundi hann nú hverfa þangað aftur. Kvað| hann enga óánægjurödd hafa heyrst í Danmörku um ráðn- inguna, nema í Extrabladet, sem eins og kunnugt væri hefði ekki það álit á sér, að tekið væri neitt tillit til þess. Mundu að bak ummælum þess hafa staðið einhverjir, sem von- sviknir hefðu verið. Kvaðst Árni Friðriksson þess fullviss, að Danir hefðu ekki viljað ann- an útlending fremur í starfið en sig. Landvamir Svía kosta 7 milljarða. St.hólmi — Yfirhershöfðingi Svia telur þörf á 2,2 milljörð- um s. k. (7 milljörðum ísl. kr.) til landvarna árið 1954—55. Er þetta meira, en farið hefur verið fram á til landvama áð- ur, og orsakast mest af því, að ný tæki verða tekin í notkun, svo sem flugvélar. Auk þess} evkst eldsneytisþörf hers og flota. (SIP). í hríðarveðrinu í gær og í fyrrinótt urðu allmiklar síma- bilanir og í inorgun var ekki nema ein lína í notkun við all- ar stöðvarnar norðanlands. Fannfergi var mikið víða í veðrinu og vegir tepptust, en ferðafólk varð að halda kyrru fyrir. Óttast er, að fé.hafi fennt nyrðra, en ekki kunnugt enn, hversu mikil brögð eru að því- Á Árskógsströnd í Eyjafirði brotnuðu símastaurar. Var mik- il ísing á símalínunnl þar. — Sums staðar í Eyjafirði tókst að koma fé í hús, en yar erfitt veðurs vegna, og fé, sem var að fenna, tókst að bjarga. Fé mun einnig hafa fennt í Suður-Þing- eyjarsýslu, en fannkoma var mikil víða allt frá Vestfjörðum til Melrakkasléttu. í Skagafirði var hríðarveður þar síðdegis í gær en þá tók að lygna. tÞar sem í Eyjafirði og S.-Þing. .óttast menn, að fé hafi fennt. Stórhríð var á Holtavörðu- heiði í fyrrinótt og ofanhríð í Mýrasýslu ofanverði’i. Á Holta- vörðúheiði stöðvuðust bifreið- ar, vegna þess að skóf inn á hreyflana, en fannfergi var ekki mikið á heiðinni. Menn, sem í •bílunum voru, gistu í sæluhús- inu, eða sváfu í bílum sínum. Veður að ganga niður. í morgun var enn allhvasst á norðan á norausturlandi, en hægviðri og bjartviðri sunnan- lands og vestan. Hægviðri var og í Húnavatnssýslunum, en strekkingjir og snjókoma, er í Skagafjörðinn kom, en veður þar og austar mun ganga nið- ur síðdegis í dag. Frostið var 2—5 stig kl. 9 i morgun víðast, en mest 9 stig á Síðumúla í Borgarfirði. í Reykjavík var 3 st. frost kl. 9 og varð aldrei méii-a í nótt. Veðui'horfur eru þær, ;xð einnig lcomi hægviði’i og bjart- viðri á Norðurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá, Landssímanum eru vigerðar-' menn teknir til starfa milli Dal- víkur og Akureyrar. bar sem margir staurar mnnu hafa brotnað. Viðgerðai’mennirnir uröxi að hverfa aftur til Akureyrar í gær, vegna veðui-s og óíærðar. Staui’ar hafa brotnað nálægt Arnstapa í Ljósavatnsskarði, og á Fljótsheiði og viðgerðarxr.enn vinna nú á báðum stöðunum. Bilanir urðu í gær í Göngu- skörðum og var verið að gera við þær í gær. Þar höfðu línur sveiflazt saman, en sturar munu ekki hafa brotnað. Nánara verður um símabil- anir kuhnugt, er yiðgerðarmenn koma frá störfum og skila skýrslum sínum. Rússinn fékk 19,5 v. af 30. Rússneski skákmcistarinn Alatorcev þreytti fjöltefli í gær við 30 reykvíska skákmenn. Leikar fóru svo, að Alatorcev vann 14 skákir, tapaði 5, en 11 urðu jafntefli. Svarar þetta til þess, að vinningar hans hafi numið um 65%. Fjölteflið stóð í tæpar 7 stundir. 59 fulltrúar á iinþingi. 15. iðnþing íslendinga vaf sett sl. laugardag. Fulltrúar á þinginu eru 59, víðsvegar að af landinu. Björg- vin Frederiksen, forseti Lands- sambands iðnaðarmanna, flutti aðalræðuna við þingsetninguna, en síðan var tekið til við þing- störf. Fjölmörg merk mál liggja fyrir þinginu, og mun Vísir síðar birta fregnir af því og ályktanir, sem þar kunna að verða gerðar. Fyrsti forseti þingsins er Guðmundur Halldórsson húsa- smíðameistari, en Guðjón Scheving, málari í Vestmanna- eyjum annar, og Sigurður Guðmundsson, bakari á ísafirði, þriðji. IVorsku kosníngamar: Verkamannafl. heldur velli,- fylgi komnmnista hrakar enn. Fréttir þær, sem borizt hafa af þingkosningunum í Noregi, virðast benda til þess, ao Verka mannaflokkurinn lialdi meiri- hluta sínum í stórþinginu. Fréttir frá Osló kl. 10 f. h. voru á þessa leið: Verkamanna- flokkurinn 588.505 atkv. (í sömu kjördæmum 1949: 586.- 005). Bændaflokkurinn 140.930 (121.700). Hægri flokkurinn 183.433 (194.088). Kristilegi þjóðflokkurinn 177.292 (111.- 494). Vinsti’i flokkurinn 127.139 (167.694). Kommúnistar 58.502 (66.209). Osló fær nú 13 þingmenn, en hafði áður 8. Líklegt er talið, að þar fái Hægrimenn 5 þing- menn, Verkamnnaflokkurinn 5, Vinsti’i 1, Kristilegi þjóðflokk- urinn 1 og Kommúnistar 1. —• Fylgi kommúnista fer enn minnkandi í Noregi, en með breyttri kjördæmaskipun fá þeir væntanlega 5 þingmenn, en höfðu engan fyrir. Kl. 12 á hádegi var svo að sjá sem þingmannatala flokk anna yrði þessi: Hægri: 26, Bændafl.:14, Kristil. þjóðfl.: 16, Vinstri: 14, Verkamanna- íl. 75. Kommúnistar: 5.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.