Vísir - 15.10.1953, Blaðsíða 1
<3. árg.
Fimnitudaginn 15. október 1953
235. tbl.
Skipstjórinn á Ingólfi Arnar-
syni Sigurjón Stefánsson, ungur
maður, aðeins liðlega þrítugur.
Iðnþingid:
Rætt um verk-
náiiisskólan&0
Þingfundir hófust kl. 10 f.
h. í gær, og var haldið áfram
til kl. 6 síðdegis.
Helgi Hermann Eiríksson,
bankastjóri, minntist herra
biskupsins Sigurgeirs Sigurðs-
sonar, en þingfulltrúar vottuðu
hinum látna virðingu sína með
því að rísa úr sætum.
Rætt var meðal annars um
réttindi verknámsskólanna, frv.
til laga um iðnskóla, árstíða-
bundið atvinnuleysi, skattamál,
söluskatt, lánsfjárþörf iðnaðar-
ins og Iðnaðarmálastofnun ís-
lands.
í gær sátu þingfulltrúar
kvöldverðarboð iðnaðarmála-
ráðherra að Hótel Borg.
Telpa brennist á
heitu vatni.
Það slys varð að Svartagili
í Þingvallasveit á mánudaginn,
að telpa brenndist í eldhúsinu
þar.
Telpan, sem er tæplega 11
ára, hljóp í ógáti á mömmu sína
sem hélt á máli með heitu vatni
í hendinni, og helltist vatnið yf
ir telpuna. Brunasmyrsl voru til
á heimilinu og þeim roðið á
sárin, en auk þess var bíll feng-
inn til að flytja telpuna í
sjúkrahús hér. Munu meiðsli
hennar ekki mjög alvarleg.
E I
01
ningiim ti
Fiskur úr Ingólfi Arnarsyni á
borðum borgarbúa i morgun.
SSik viwtitiihr&ffik óþ&Sikí
i fisktlrtíiiitt«jti ú íir*>íStBBt4Í5
Viðíal vsð l»ór;triii Oígeirsson ræðis-
inami og Ilárð Jakobsson irélía-
ritara Vísís.
George Dawson stóð víð þaó, sem hann sagði, er
hann lofaði því, aÖ hann skyldi taka upp skjótari dreif-
ingu á fiski á Bretfandi en áður hefur þekkzt, því aS
fiskur úr Ingóffi Arnarsyni, sem Dawson sendi tif
London, var kominn á BiHingsgate-fiskmarkaSinn í
London kf. 5.20.
Vísir átti símtal við Þórarin Olgeirsson, vararæðismann ís-
lands í Grimsby kl. 11 í dag, og tjáði hann blaðinu þessar
fregnir. Sagði Þórarinn, að þessi vinnubrögð Dawsons hefðu
vakið feikna athygli, enda hefðu blaðamenn, fréttaljósmyndarar
og sjónvarpsmenn flykkzt á BiIIingsgate-markaðinn til þess að
sjá fyrsta íslenzka togarafiskinn seldan eftir að löndunarbannið
hafði verið rofið.
Símasamband við Grimsby, "morgun, og var þar samankom-
var í fyrstu mjög slæmt í morg- j inn mikill fjöldi blaðamanna.
un, en nokkru síðar fékk Vísir j fréttaljósmyndara og sjónvarps
aftur samband við Þórarin, og manna, til þess að veru við-
þá mjög greinilegt. Gat blaðið ( staddur er „mertfiskurinn“,
jafnframt haft tal af Bárði fyi'sti íslenzki togarafiskurinn
Jakobssyni lögfræðingi, sem er i eftir löndunarbannið, komst í
fréttamaður Vísis á Bretlandi, hendur húsmæðra. Vakti at-
en hann hefur að sjálfsögðu! burður þessi feikna athygli, og
fylgzt með löndun úr Ingólfi. má segja, að með þessum við-
Dawson vildi hafa snör brögðum Dawsons sé brotið
liandtök á fyrstu sending-
unni til London, svo að hann
lagði af stað kl. 1 í nótt með
það fyrsta, sem kom á Iand
nýtt blað í sögu fiskdreifingar
á Bi'etlandi.
Löndun úr Ingólfi Arnarsyni
hófst kl. 12 á miðnætti í nótt,
úr Ingólfi, eða 700 stones ej,ns 0g ráð hafði verið fyrir
(um 4% lest) til London, og gert, og gekk hún að öllu leyti
var fiskurinn kominn til Bil- 1 ag óskum. Ekki kom til neinna
lingegate markaðsins kl. átaka, og þurfti aldrei á lög-
5.20 í morgun, og er það reglu að haidaj
en hún var til
algert met í skjótri fisk- taks, ef togaraeigendur hefðu
gripið til ofbeldisverka. Var
löndun lokið kl. 8 í morgun.
Þórarinn Olgeirsson full-
dreifingu frá togarabæjun-
um Grimsby og Hull.
Þá boðaði Dawson til blaða-
mannafundar í Billingsgate í
• ' - •>.
Ingólfur Arnarson með fullfermi á ytri höfninni hér.
yrti, að fiskurinn úr Ingólfi
Arnarsyni hefði verið fyrsta
flokks að öllu le.yti, og betri
fiskur liefði ekki sézt úr
togara í Grimsby um langt
slteið. Kvaðst Ihann viss um,
að beti-i fiskur væri ekki á
markaðinum í Bretlandi í
dag.
Til marks um athygli þá,
sem korna Ingólfs Arnai'sonar
til Gi'imsby vakti, má geta
þess, að iönduninni var sjón-
varpað, en slíkt er ekki gert,
nerna um mjög óvenjulega og
athyglisverða atburði sé að
ræða.
Bárður Jakobsson hafði far-
ið um borði í Ingólf Arnarson
og átti tal við skipvei'ja. Voru
þeir allir í bezta skapi. Öllum
leið vel, og báðu þeir hann fyrir
beztu kveðjur til vina og
vandamanna heima. Sögðu þeir,
að fei'ðin hefði gengið óvenju
,vel og greiðlega. Ekki urðu
skipverjar varir við neina
gremju í sinn garð, heldur þvert
á móti. Bárður Jakobsson
skýi'ði fi'á því, til gamans, að
skipverjar heföu boðið sér há-
degisverð í dag, ,,upp á baunir
og saltkjöt“.
Dawson tók við öllum fisk-
inum, nema 58 kittum, sem
fiskkaupmaður í Grimsby
keypti, en hann var eini kaup-
andinn, sem bauð sig fram.
Eins og fyrr greinir, vcru það
ekki nema 4500 kg., sem Daw-
son fór með til London. En
með þessu vildi hann sýna,
hvernig unnt væri að koma
fiskinum glænýjum á mai'kað-
inn, og hafði hann með þessu
einskonar „sýnikennslu“ á
di'eifingaraðfei'ðum þeim, sem
hann hyggst nota.
Brezkir togaraeigendur
ætluðu að beita klækjum til
þess að tefja dreifingu fisks-
ins, m. a. með einjiverjum
tiltektum í sambandi við
heilbrigðisvarnir. Þórarinn
Olgeirsson sagði, að þetta
hefði mistekizt með öllu,
„við önzuðum þessu ekki“r
eins og hann komst að orði í
símanum í morgun.
Bárður Jakobsson sagði, að
einu æsingarnar, sem hann
hefði oi'ðið var við, hefðu ver-
ið í sumum blöðum, en þar ei'u.
togaraeigendur „á bak við;
tjöldin". Hvergi kom til handa-
lögmáls, eða neinna ofbeldis-
vei'ka, og sagði hann, að þessi
fyrsta löndun okkar hefði £
öllu gengið mjög að óskum.
Sagði hann, að það væri ekki
sízt að þakka Þórarni Olgeirs-
syni, en þar ættum við sannar-
lega hauk í horni.
Til viðbótar þessu skal sagt,.
að togaraeigendur hér heima:
hafa að sjálfsögðu gert ráðstaf-
anir til þess, að fiskflutning-
um til Bretlands verði hraðað-
eftir því, sem fi'ekast er unnt.
Gjöf til kaupa á
sjúkraffugvél.
í gær barst Slysavarnafélagí
íslands höfðingleg gjöf til
kaupa á sjúkraflugvél.
Eftirtaldar konur úr stjórn:
Slysavarnadeildarinnar Hraun-
prýði í Hafnarfirði Rannveig
Vigfúsdóttir, Sólveig Eyjólfs-
dóttir og Arndís Kjartansdóttir
afhentu i gær á skrifstofu
Slysavarnafélagsins 15.000
krónur til kaupa á nýrri
sjúkraflugvél.
Þessi m5rnd var tek-
in af Dawson £
Prestwick í sumar,
er hann kom héðan.
Hafði hann með sér
fallegan þorsk, sem
hann kvað vera sýn
ishorn þess fisks, er
hann mundi flytja á
brezkan markað síð
ar á árinu. Birtist
mynd þessi m. a. á
kápu bókar þeirrar,
sem nú er nýkomin
út um Dawson héi*
í bænunx.