Vísir


Vísir - 27.10.1953, Qupperneq 1

Vísir - 27.10.1953, Qupperneq 1
43, árg. Þriðjuctaginn 27, október 195? | 245. tb'. Þrjú siys I gær. Kviknar í kerbergi frá útvarpi, ab taiið er. Þrjú slys urðu hér í bænum I gær og gærkveldi. Um miðjan dag í gær var 6 ára drengux-, Brandur G. Brandsson, Hverfisgötu 83, fyr ir bifreið á Laugaveginum rétt við gatnamót Vjtastígs. B&f- reiðarstjórinn taldi drenginn hafa hlaupið skyndilega út á götuna beint fyrir framan bif- ‘reiðina og fékk bílstjórinn ekki að gert þrátt fyrir að hann hemlaði þegar í stað. — Drengurinn kastaðist 1-—2 ra. írarn á götuna og í fyrstu virt- ist drengurinn lítið sem ,ekk- ert meiddur. Samt tók bifreið- arstjórinn drenginn upp i bif- reið sína og flutti hann á Land- spítalaim til athugunar. Sú at- huyun leiddi í ljös að drengur- iim hafði fótbrotnað á hægra faestL Lögreglan biður sjónarvotta aðkoma tii viðtals. Um áttaleytið var lögreglunni tilkynnt um mann sem íægi sus athuguð. Sanddælingarskipið Sansu fór inn í Sund fyrir helgina, eins og getið var í laugardags- biaðinu. Þar með var lokið sanddæl- irxgu, sem fram fór eingöngu í tilrauna skyni fyrir bæinn, til þess að athuga möguleikana á að dæla upp sandi, sem nothæf- ur væri sem byggingarefni. Sansu hafði farið út í flóa í sama tilgangi áður en það fqr austur á Homafjörð og fannst sandur á um 30 metra dýpi, sem verður rannsakaður á efna- ransóknarstofu, með tilliti til þess hvort hann er nothæfur sem byggingarefni. Gaf leitin úti í flóa betri raun en inni í Surxdum. Þetta mál er enn algerlega á rannsóknastigi, en reynist sandurinn gott byggingarefni, má líklegt telja, að málið verði athugað frekara. ósjálfbjarga á Sólvallagötu. — Lögreglan fann manninn, hafði hann verið allmjög ölvaður og dottið á götuna. Þar sem mað- urinn kveinkaði sér mjög og kvaðst kenna sársauka í öxl, fluttu lögreglumennirnir hann á Landspítalann og kom þá í ljós að hann hafði farið úr axl- arlið. Þriðja slysið varð niður við þöfn, í vöruskemmu Eimskipa- félags íslands um hálfníu leyt- jð í gærkveldi. Þar hafði mað- ur, Jón Gíslason að nafni, klemmst á hægri hendi milli itveggja kassa og meiðzt svo að flytja varð hann í sjúkrabif- reið á Landsspítalann. Eldur í herhergi. í nótt var slökkviliðið kvatt að Eskihlíð 13. Þar hafði eld- pr koxnið upp í. xbúðai'he.rbergi ií kjallara og þóttu mestar lík- 'pr til að kviknað hefði út frá útvarpi. Talsverðar skemmd- j ir urðu á sængurfatnaði o. fl. 1 Ölvuri við akstur. Einn maður var tekinn fast- ur í gær fyrir að aka bifreið undir áhrifum áfengis. Barn í óskilum. Maður sem var i gær á ferð á Kópavogsbrai'j. fann líarn, sem ekki vissi hvar það átti heima og skilaði því til lögregl- unnar. Var seinna spurzt fyrir um barnið og það sótt: Verkfallinu tokift í London. London (AP). — Verkfaili bifreiðarstjóra á olíubifreiðum lauk í gærkveldi. Var samþykkt á tveimur fundum verkfallsmanna, að hverfa aftur til vinnu í dag. Samkomulagsumleitanir í deilunni hefjast á morgun. — Hermenn hætta flutningi og dreifingu á benzíni, en munu verða til slíkra starfa kvaddir af nýju, fari samkomulagsum- leitanir út úm þúfur. Tíllögum rauðlföa hafnað. i*elr vildu þegar ræða aðild hlufflausra rikja. Einkaskeyti frá AP. N. York í morgun. A fundi í Panmunjom í morg un hafnaði fulltrúi Banda'- ríkjastjórnar, Arthur Dean, tillögum kommúnista um að taka á dagskrá aðild hlutlausra xíkja að stjórnmálaráðstefn- unni. Áður hafði hann lýst yfir, að hann hefði ekki umboð til þess að semja um slíkt. Hann le.gði til í gær, að stjórnmálaráð- stefnan yrði sett 23. nóv. og að kommúnistar segðu álit siít um tillögur Bandaríkjastjórnar um fundarstað. Fulltrúí Indlands í hlut- lausu nefndinni sagði í gær, að litlar líkur væx-u fyrir, að unnt yrði að halda áfram viðræðum við sti-íðsfanga til þess aö telja þeim hughvai-f. Fulltrúar Sviss og Svíþ)ióðar neita að :;am- þykkja, að valdi verði beitt til þess að knýja fangana til þess að hlýða á fortölur uni að hverfa heim. Kommúnistum hafa orðið mikil vonbrigði að afstöðu fanganna, sem hafa mælt til þeirra ókvæðisorðum, reynt að sparka í þá og hrækt fi-aman í þá. Fulltrúar Póllands og Tékkóslóvakíu í nefndinni krefjast þess, að fangarnir verði knúðir til þess að koma til yfirheyrslu. Fyrir fáum vikum lenti norður-kórcskur flugmaður MIG-vél sinni í S.-Kóreu. Hann kvaðst ekkcrt hafa vitað um þau 100,009 dollara verðlaun, sem Bandaríkjamenn liöfðu heitið manni, er færði þeim slíka flugvél, og nú er komið á dagixm, að manninn fýsti að hitta móður sína, og sýnir myndiix enduv- fundi þeirra í Seoul. Dularfull skotárás á bílstjóra í gærkveldi. Engir sjónarvottar að atburði þessum, en bílstjórinn er ekki hættulega særður. DularfuII árás var framin a bifreiðarstjóra, ísleif Magnús- son Sörlaskjóli 18 hér í bæ kl. langt gengin átta í gærkveldi. Um sjónarvotta að þessum atburði er ekki vitað enn sem komið er, en ísleifur sagði sjálfui- svo frá að hann hafi verið að koma sunnan frá Keflavíkurflugvelli og verið kominn vestur að Sörlaskjóli, en hann hafði viðgerðarskúr við húsið, sem hann bjó í og þangað fór hann til þess að ná í dekk og felgu sem hann átti og þurfti á að halda. fs- leifur fór inn í skúrinn en uppgötvaði þá að hann átti ekki neina heila slöngu og hætti þar af leiðandi við að taka dekkið út. Fór hann þá út í bílinn, sneri honum við og ók í áttina vestur Sörlaskjólið. En rétt í þann veginn er hann var að komast af stað og bíllinn aðeins kominn á hæga ferð, sér hann mann koma útá götuna, hálf- vegis í vég fyrir bílinn. Ekki veifaffi maðurinn honum, en þó virtist ísleifi sem hann vildi haia tal af sér og stöðvaði hann því bílinn og opnaði hui'ðina til hálfs. Sá þá ísleifur manninn, var hann hár og grannur, klæddur svöx-tum frakka og með svartan niðurbrettan hatt á höfði. Hurðin á bilnum opnaðist fram og um leið og maðurinn var að fara aftur með hurðinhi, taldi ísleifur sig sjá hann setja upp grímu úr hvítum pappír með rauðum lit í kinnum, en skofið úr fyrir nefi og augum. Sýndist ísleifi hann draga grímuna annað hvort upp eða niður fyrir andlitið. Að því búnu kemur maðurinn að bildyrunum, rekur um leið eitthvað í síðu ísleifs og kveðst þurfa að ryðja honum úr vegi. Um leið ríður skot af. Kallar ísleifur þá á mann, sem heitir Pétur og hann sá standa á tröppunum að Söríaskjóli 9 rétt áður. En beið þó ekki eftir Pétri heldur „spýtti í“ og ók til systur sinnar sem býr í félags- heimili K.R. við Kaplaskjólsveg, og þaðan var lögreglunni gert aðvart um atburðinn. Isleifui’ var fluttur í Lands- spítalann og kom þar í ljós að hann var með skotsár aftan til við vinstra brjóstvöðvann og rispað um leið hægri handlegg ísleifs. Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknarlögreghmni í morgun voru margir menn við vinnu við 'liúsið nr. 7, sem er beint á móti húsi nr. 18, þar sem atburðurinn gerðist, þ. á. m. voru þrír bifreiðastjórar frá Steypu- stöðinni og loks Pétur, sem stóð á húströppunum nr. 9, en enginn þeiria varð nokkurs var. Cunard smíðar 2 hafskip. London (AP). — Cunard skipafélagið hefur samið um smiði nýs hafskips við John Brown skipasmíðastöðina vSð Clyde. Mun það verða um 20.000 lestir. — Félagið á tvö önnur 20 þús. lesta skip í smíðum í sömu skipasmíðastöð og em öll þessi þrjú ætluð til þess að vera í förum milli Bretlands og Kanada. Þrátt fyrir dýrtíð sá TCunardlínan sér ekki annað fært en ráðast í smíði þriöja skipsins, þar sem knýjandi þörf er endurnýjunar á skip- um félagsins, sem eru í Kanada siglingum. Fræðslufundur Varðar í kvöld. Landsmálafélagið Vörður efnir til fræðslufundar í kvöld, hins fyrsta á þessum vetri. Vörður hefur áður gengizt fyrir fræðslufundum, þar sem flutt hafa verið erindi um ýmis mál, sem ofarlega eru á baugi og allan almenning varða. Að þessu sinni flytur Jónas B. Jónsson fræðslufulltrúi erindi um fræðslu- og skólamál Reykjavíkur. Öllu sjálfstæðis- fólki heimill aðgangur að fund- inum, sem verður í Sjálfstæðis- húsinu og hefst kl. 8.30. Enn ágætur karfa- afli við Grænland. Sami uppgripaafli og áður mun vera á karfamiðunum út af Eystribyggð á Grænlandi. B.v. Skúli Magnússon, sem fór héðan 14. þ. m. er væntan- fór héðan 14. þ. m. kom í morg- un af Grænlandsmiðum með fullfermi. Allmargir íslenzkir togarar stunda nú karfaveiðar á þessum miðum og er aflinn flakaður fyrir Rússlandsmark- að. B.v. Jón Þorláksson kom frá Þýzkalandi árdegis í gær. Hafnarfjarðartogarar. Júlí og Bjarni riddari eru á karfaveiðum við Grænland og Surprise á karfaveiðum hér við land. Hann va rinni í fyrri viku. Júní selur í Þýzkalandi á fimmudag. Röðull er á veiðuin fyrir Þýzkalandsmarkað. — Ágúst fer væntanlega í fyrstu veiðiferð sina frá Hafnarfirði fyrir helgifta.-. Hvessir á Breta. Hva sviðri mikið fóv yfir Bretlandseyjar í nótt, Burtför margra hafsk.ipa tafðist og' yfirleitt héldu skip jkyrru fyrir í höfnum eða leit- | uðu vars. Hafskipið Queen I Mary lá undir Wight-ey í nótt. Enn rætt um Trieste. Haldið er áfram tilraunum til að ná samkomulagi í Trieste- deilunni. í gær ræddi Bidault, utan- rikisráðherra Frakka, við brezka sendiherrann í París og í dag ræðir brezki sendiherr- ann í Júgóslavíu við Popovics, utanríkisráðherra, sem er nv- kominn frá New York og Was- hington.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.