Vísir


Vísir - 29.10.1953, Qupperneq 1

Vísir - 29.10.1953, Qupperneq 1
WI 43, árg. Fimmtudaginn 29. október 1953 247. tbJ. Flugvélar eiga að fylgja sól. Lenda á sama tíma og þær taka sig upp á. London (AP). — Nú má ségja, aS kapphlaup Breta og Bandaríkjamanna um meiri hraða í farþegaflugi nái senn hámarki. Á aðalfundi Brezka flug- félagsins (skammstafað BO AC), sem haldinn var fyrir skemmstu, skýrði stjórnin svo frá, að hún hefði á prjónunum áform um að láta smíða stórar og svo hraðfleygar þrýstilofts- flugvélar til farþégaflugs, að þegar flogið yrði vestur um Atlantshaf mundi flugvélin lenda á sama tíma og hún tæki sig á loft. (staðartímar. Þetta táknar hvorki meira né minna en það, að flug- vélamar eiga að fylgja sól- inni á flugi sínu yfir hafið, sem svarar til þess, að flogið yrði xunhverfis hnöttinn á 24 klst. Flugfélagið naut einskis opin bers styrks á síðasta ári — í fyrsta sinn — og skilaði rúm lega 100 þús. punda hagnaði. Árið 1951 nam hagnaður 1,25 millj. punda, og var þá raun verulega halli, því að ríkis styrkurinn nam 1,5 millj. punda. Bandaríkin líka með. Vestan um haf koma þær fregnir, að Lockheed-flugfélag- ið ráðgeri að byrja á næsta ári að smíða farþegaflugu, knúna þrýstihreyflum, sem yrði stærri og hraðfleygari en allar aðrar farþegaflugur. Slíkar flugvélar yrðu þó ekki deknar í notkun fyrr en eftir fimm eða sex ár. Ilv. Maldbakur landar i Grim§by á laugardaginn. Tveir togarar ianda í næstu viku. Þvœtiíngsgrein í enskii blaði un* „vörnskipfi" Dan son v og Ffill. Látínn fara úr larnfi — og sagt upp, Samuel Force, bryti í mat sal hjá Hamilton-félaginu í Kcflavík, verður látinn fara úr landi. Hafa íslenzk stjórnarvöld ógilt vegabréfsáritun hans, en um, svipað. leyti hefur honum borizt uppsagnarbréf frá Hamilton-félaginu. Brottvísun manns þessa úr landi, er afleiðing undan- genginna atburða, sem les- endUm Vísis er kunnugt, en maður þessi stóð að ólög- mætri uppsögn tveggja ís- lenzkra starfsmánna félags- ins, en auk þess hefur mað- ur þessi á margan hátt sýnt óviðurkvæmilega framkomu í garð íslenzkra starfsmanna sem að sjálfsögðu varð ekki þoluð. Ellefu myndir seldar. Sýning Sigurðar listmálara Sigurðssonar hefur aðeins ver- ið opin einn heilan dag, og þó hafa þegar selst 11 myndir, sem telja má einstætt. Sigurður hefur eins og kunn ugt er getið sér mikinn og góð- ,an orðstír sem listamaður. — Hann hefur og um nokkur ár verið aðalkennari í listmálun og teiknun við kennara- og myndlistardeild Handíðaskól- ans og sýnir það m. a. það traust sem til háns er borið. Rfttiðir ræða aukaatriði. Tokyo (AP). — Fulltrúar kommúnista og Bandaríkja- stjórnar komu saman á fjórða fund sinn í Panmunjom í morgun. Arthur Dean aðstoðarutan- ríkisráðherra skoraði á full- ti-úa kommúnista að snúa sér að þvi að ræða hvar ráðstefn- an skyldi haldin og hvenær hún skyldi byrja, en í morgun átti öllum undirbúningi að þeirri ráðstefnu að vera lekið. Ganga Luiuhínabúar með giímu, er þoku gerir framvegis ? Lækiiar gera tillögu una jieKa London (AP). — Svartaþoka var í London víða í Suður- Englandi í morgun og eins í iðnaðarhéruðunum í Norður- Englandi og var talið, að henni mundi ekki létta þar fyrr en seint í dag... Mönnum er mjög minnis- stætt hið mikla manntjón í . ,.gulu“ þokunni í desember í íyrra, er 4000 manns létust af völdum þokunnar. Hafa Hafa vakið fádæma athygli tillögur nefndar, sem hefur að baki sér 6000 enska lækna, um fram- ieiðslu á grímum í stórum stíl handa borgarbúum. Er helzt talað um grímur svipaðar þeim, sem læknar nota við skurðað- gerðir, og talið að þær gætu orðið til mikillar hlífðar. Maðurinn er myndinni er Frakki, Alain Bombard, en hann er frægur fyrir að hafa siglt einn síns liðs yfir Atlantshafið í gúmmíbáti, sem hann smíðaði sjálfur, og engan mat hafði hann með sér, né heldur vatn. Hann sannaði með því, að skipbrots- menn geta haldið lífi „allslausir“ með því að notfæra sér sjóinn á réttan hátt. Drangajökull flytur 550 lestir beítusíldar til N.-Noregs. Sjaldgæft að Morðmenn fái beitu hér, en líkar hun vel. Mál þetta var nokkuð rætt í neðri málstofunni í gær og i tók heilbrigðismálaráðherrann þátt í þeim. Gerði hann athuga- semdir við álit nefndarinnar, en málið verður athugað frek- ai-a. Ef til framleiðslu á slík- um grímum kæmi, er það tð sjálfsögðu mikilvægt atriði, að þær verði svo ódýrar, að eng- um verði um megn að eignast. þær. Þess eru engin dæmi, að í- búar heillar borgar sjáist á férli nema grímuklæddir, eins og verða mun, éf af því verður, að íbúar Lundúna — mann- flestu borgar heims — gangi með grímu upp á vasann, ef sú „gula“ skellur vfir. iitm ;u EB. «s Það er næsta sjaldgæft, að Norðmenn þurfi að leita til Is- lendinga og fá hér beitusíld. Þó hefur svo til tekist, að norskir útgerðarmenn hafa orð- ið að snúa sér til frystihúsanna hér og kaupa beitusíld fyrír verstöðvar í Norður-Noregi, þar sem beituskortur mun vera yfirvofandi. Hefur Drangajök- ull, annað skip h.f. Jökla verið að lesta síld þessa dagana — tekið hana í Keflavík og Vest- mannaeyjum — og fer frá Vestmannaeyjum í dag eða kvöld. Verður haldið rakleiðis til Norður-Noregs, þar sem. síldin verður lögð á land á fimm höfnum eða á svæðinu frá Tromsö til Vardö, en sú borg er við Hvítahaf og er skammt frá þeim stað, þar sem jám- tjaldið nær norður í haf. Það munu vera um 550 smá- lestir af beitu, sem skipið fer með, og mun það vera mesta magn, sem sent hefur verið héðan til Noregs eftir styrjöld- ina. í janúar 1948 fengu Norð- menn 300 lestir af beitusíld héðan. Stóð þá þannig á, að fiskimenn höfðu sumir orðið síðbúnir til síldveiða, svo að beitubirgðir hrukku ekki. Fannst þeim sú síld góð, sem þeir ferigú héðan,' enda er í rauninni enginn munur á gæð- um þeirrar síldar, sem notuð er til beitu og manneldis, því j að fiskurínn vill góða síld eins '! og maðurinn. íslendingar hafa nokkrum sinnum þurft að fá beitu er- lendis, en nú er þessu snúið við í þetta sinn. Ætla aft reisa 38 sementsverksmf&jur. London (AP). — Á næstu 4—5 árum ætla Tyrkir að reisa hvorki meira né minna en 38 sementsverksmiðjur, og er það sama félagið, sem kemur öilum upp með stúðn- ingi ríkisstjómarinnar. Fyr- ir þremur árum var sements notkun Tyrkja rúmlega 500,000 lestir, en þörfin er áætluð sexfalt meiri á næsta ári. í ár mun íramleiðslan verða rúmlega milljón lesta og væntanlega tvær millj. lesta á árinu 1956. Frá skékjilngimi Onnur umferð meistara- imeistaraflokks á Skákþingi Reykjavíkur var tefld í gær- kveldi og varð aðeins tveimur ,skákum lokið. Aðra þeirra vann Eg'gert Gilfei’ gegn Ingimundi Gu,ð- piundssyni, en hina vann Ingv- ar Ásmundsson gegn Inga R. Jóhannssyni. Hinar skákirnar urðu biðskákir. , Þriðju umferð í 1. og' 2. fl. ér lokið. . .Akureyrartogarinn Kald- bakur, sem er á útleið með - áfla sinn til Dawsons, landar í Grimsby á laugardagsmorg- un. Eins og Vísir hefur áður greint frá, eru alls sjö togar- ar að veiðum eða á útleið með fisk til Dawsons. í næstu viku tvær landanir, en síðan reglu- legar ferðir út með fisk, eins og áður hefur verið greint frá. Daily Mail, eitt áf stórblöð- um Lundúna, skýrði frá því hinn 23. þ. m„ að Dawson hyggist senda hingað heila skipsfarma af ýmsum vörum, sem íslendinga vanhagar um, sem greiðslu fyrir fisk þann, er íslenzkir togarar landa í Grimsby. Segir síðan í frétt Daily Mail: „Cockney milljónarinn sagði í gær, að samningi hans við íslendinga, sem gefur hon- um kost á öllum fiski sem ís- lendingar landa í Bretlandi næstu þrjú árin, sé öðru vísi háttað en venjulegu stað- greiðslufyrirkomulagi. Eg mun áreiðanlega senda vörur til íslands á næstu sex mánuðum, sagði Dawson, en ég greini ekki frá því, hvaða vör- ur það eru. En Dawson á sennilega við bíla (segir Daily Mail). Mikill skortur er á bílum á íslandi, en hann hefur mikil afskipti af slíkum viðskiptum síðan hann varð milljónari á því að seija ýmsan varning eftir stríðið. í gær sagði Dawson enn frá fyrirætlunum sínum í sam- bandi við „fiskveldi Dawsons.“ Hann hefur átt tal við embætt- ismenn í stjórnarnefnd Ind- lands á Bi'etiandi um ráðagerð- ir sínar um að senda fisk til Indlands. Fjórir íslenzkir togarar eru nú að veiðum fyrir hann, en sá fyrsti þeirra er væntanleg- ur hingað 14 dögum eftir að Ingólfur Arnarson rauf lönd- unarbannið. Síðan munu þeir koma annan hvern dag, mælti- Dawson.“ í sambandi við ofan- greinda frétt úr Daily Mait getur Vísir upplýst, sam- kvæmt viðtali við Björn Thors, framkvæmdastjóra Félags ísl. botnvörpuskipa- eigenda, að ekki er fötur fyrir fregn þessari um vöru- sendingar, sem blaðið telur Dawson ætla að láta sem greiðslu fyrir fiskinn. • í samningum Dawsons v>ð Frh. a 8. síðu. i

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.