Vísir


Vísir - 20.11.1953, Qupperneq 1

Vísir - 20.11.1953, Qupperneq 1
43. íig 266. {!»{. Alþjóöalögregla hefur haldið uppi reglu í Tricste árum saman, og er myndin af sveit lögfeglu- manna á -fer f í borginni. Frakkar óttast endurvíg- búnað Þjóðverja sem fyrr. Afstaða þingsins ræður stefnu á Bermudafundinum. Umræðunni um utanríkismál Vishinsky og í fúlltrúadeild franska þjóð- Bermudaráðstefnan. þingsins lýkur í dag. í gær og Vishinsky hamaðist gegn fyrstu tvo daga umræðunnar Bermudaráðstefnunni í ræðu í snerist allt að kalla um varnar- stjórnmálanefnd SÞ í N. York málin og einkum Evrópuherinn ií gærkveldi og taldi hana og endurvígbúnað Þýzkalands. haldna til þess að efla samtök- Skoðanir manna eru mjög in gegn Rússum. Hann raédrji skiptar, en það einkcnndi þær ,að nýju afvopnunar- og kjarn- yfirleitt, hversu djúpt liggja orkutillögur Rússa, sem hann rætur óttans við endurvígbún- hefur enn lagt fram, og benti að Þýzkalands. Sumir þing- fulltrúi Grikkja á, að slíkt væri menn vildu alls eki leyfa end- tilgangslaust, þar sem þær urvígbúnað, aðrir töldu að end- hefðu jafnan verið felldar, er urvígbúnaður Þýzkaland? væri Rússar hefðu lagt þær fram. staðreynd, sem ekki býddi að.! —— loka augunum gegn. M. a. kom •■■■•-« »• n i • Miklir flutnmgar um Lundúnahöfn. Fékk 2000 kit á 2 Vi degi. Afli glæðist eftir ofviðrið. Fiskafli á togara hefur glæðzt mikið eftir ofviðrið í byrjun vikunnar. Til marks um það er t. d., að togarinn Fylkir, sem kom inn um hádegisbilið, fékk fyrir vestan land 2000 kit á 2 Vó degi eða 127 lestir, mestmegnis þorsk, og með slíkri veiði myndi togarinn hafa fyllt sig á 3—4 dögum. Það mun hafa verið gert ráð fyrir því fy rst, að Fylk- ir sigidi til Gvimshy með aflann, en sú breyting hef- ur orðið, að togarinn landar hér, að því er blaðið frétti í morgun. Um orsakir þess, að Fylkir siglir ekki út með aflann, er blaðinu ekki kunnugt, en sennilega ekki óskað eftir því. Þar sem um fyrsta Jlokks fisk er að ræða, er slæmt, að hann skuli ekki komast í hend- ur brezkra húsmæðra. Goðanes seldi helming aila síns í Grimsby í morgun, og mun selja hinn helminginn í jfyrramálið. Það er önnur sal- an í þessari viku í Grimsby. Ágúst seldi fyrr í vikunni, sem áður hefur verið getið. Heyrzt hefur, að þýzkir tog- arar séu farnir að veiða fyrir markaðinn í Grimsby, en ekki hefur enn frézt hingað, að þeir hafi landað þar. ísólfur landar í Þýzkalandi á morgun. Sprengjuárásir á l\lati Ma-u. London (AP). — 3 brezkar Lincolnsprengjuflugvélar réð- ust í gær með sprengjukasti á ' felstaði Mau-Mau-manna í frumskóginum á Nerisvæðinu. Varpað var niður 17 500- punda og 1000-punda sprengj- um. Tilgangurinn er að hrekja Mau-Mau-manna úr felustöðv- unum, svo að unt sé að elta þá uppi. Styrkjum ástvini þeirra, er fórust í Eddu-slysinu. Það þarf ekki að lýsa því fyrir Hafnfirðingum hvert skarð er fyrir skildi við hið sviplega fráfall þeirra, sem fórust með v.s. „EDDU“ á Grundarfirði óveðursnóttina 16. þessa mánaðar. Fimm ekkjur, unnusta og átján börn eiga hér um sárast að binda, og 5 foreldrar og 2 mæður og fósturmóðir að auki, fyrir utan annað nákomið skyldulið. Enginn mannlegur máttur má bæta það tjón, sem hér er orðið, en ég hef fundið svo almenna samúð hjá bæjarbúum með ástvinum hinna horfnu vina og ég veit svo ríka löng- un yðar til þess að rétta fram hönd þeim til stuðnings, að ég tel mér bæði ljúft og skylt, að beita mér fyrir almennri fjár- söfnun þeim til handa. Adolf Björnsson forstjóri og Ólafur Elisson forstjóri munu ásamt mér veita viðtöku fram- lögum. Sýnum bróðurhug og samúð- arvott með þeim hætti, sem í voru valdi stendur. Garðar Þorsteinsson. GruntSarfjarðar- sílditi varð 30.000 mál. Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir hefur fengið hjá Fiskifé- laginu, nemur sílldaraflinn af Grundarfirði samtals röskum 30.000 málum. Síðastliðinn laugardag, eða ,fyrir óveðrið voru komin á land 27.874 mál síldar, en síðán hef- ur ekkert aflast. Hins vegar voru margir bátar með slatta og hafa landað því síðan, og munu það hafa verið samtals kringum 3000 mál. Síldaraflinn-af Grurid arfirði var lagður upp í Stykk- ishólmi, Ólafsvík, Reykjavík og Pafnarfirði. Alls voru 30 bátar komnir ,til veiða á Grundarfirði, en flest ir þeirra eru nú komnir heim, ,enda hefur hvergi orðið síldar vart eftir óveðrið, og er almennt álitið, að ekki þurfi að gera ráð fyrir frekari síldveiði á þess- um vetri. Gera verkfall. b sólarhriflig. London (AP) — Fuulltrúar vélsmiða og skipasmiða í Bretlandi hafa ákveðið sólar- hrings verkfall til stuðnings kaupkröfum sínum, sem ná til 3. milljóna manna. Ákvarðanir um verkfallið voru teknar í gær. Það hefst kl. 7.30 að morgni 2. des. og stend- ur til jafnlengdar 3. des. — Undanþegnir eru ýmsir, sem starfa í þágu ríkis og bæjarfé- laga, við stofnanir, sem reknar eru í almennings þágu. fram ótti um, að er fram lið'u stundir mundi Þýzkaiand hafa sterkasta aðstöðu í varnarbanda lagi Vestur-Evrópu, jafnvel þótt Bretland fengist til fulirar þátttöku. Almennt ér beðið með mík- illi óþreyju eftir úrslitum at- kvæðagreiðslunnar í kvöld, en hún sker úr um vilja þmgsins varðandi Evrópuherinn, og markar stefnuna fyrir Laniel á Bermudaráðstefnunni, haldi hann velli. Bermudaráðstefnan — aðalmál hennar. Mikið var rætt um það í London, að Sir Winston Ghurc- hill forsætisráðherra Bretlands muni hreyfa því á Bermuda- ráðstefnunni, að hann fari einn rf.il fundar við Malenkov, ef ekkx næðist samkomulag um að æðstu stjórnmálaleiðtogar fjór- veldanna kæmu saman á fund.. Ætla sumir, að tillagan muni j verða aðalmál ráðstefnunnar. i London (AP). — Um Lund- únajhöfn fóru á síðasta ári skip, sém voru næstum 60 milljónir lesta. Var það tveim milljónum meira en 1951, en 2,3 millj. minna en á síðasta hámarksári, 1939. Um höfnina fóru 48 millj. lesta af .varningi, milljón. minna en 1951. Tekjur hafnar- innar námu 12,9 millj. punda (nærri 600 millj. kr.). Amerískt skip er nýkomið til hafnar í Þýzkalandi með 6000 lestir matvæla, sem Bandaríkja- menn ætla að gefa Þjóðverjum íyrir jólin. Edda virðist óbrotin. Vélskipið Edda virðist ó- brotið, þar sem það liggur á sjávarbotni í Grundarfirði. Fréttamaður Vísis í Grafar- nesi tjáði blaðinu í morgun, að gær hefði kafari farið niður að skipinu og athugað aðstæð- ur eftir því sem við varð kom- ið. Skipið liggur á bakborðshlið og snýr stefni fram fjöi-ðinn. Skipið sýnist vei-a óbrotið, og tvær síldarnætur eru þar ó- skemmdar, og ætti að vera létt verk að bjarga þeim. Hins veg ar mun vátryggingarfélagið taka ákvörðun um, hvort reynt verði að bjarga skipinu sjálfu, en það mun tryggt fyrir um. 1.5 millj. króna. Ekki varð kafarinn var við lík í íikipinu, en hánn komst þó ékki nema inn í eldhús skipsins, enda dimrnt þarna niðri á 14 faðma dýpi, og hann án aðstoðarmanns. í morgun vorn öll síldveiði- skin farin frá Grundarfirði, og ; suðaustan slydda. Skcðanakönnun í Hús- mæðrafélagi Rvíkur. Þessa dagana stendur yfir skoðanakönnun í Húsmæðrafé- lagi Reykjavíkur, til þess að leiða í ljós vilja húsmæðra í sambandi við afgreiðslutíma sölubúða. Það er viðræðunefnd Neyt- endasamtakanna, Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur ög Sambands smásöluverzlana, sem stendur að skoðanakönnun þessari, en hún miðar að því að fá álit húsmæðra til leiðbein- ingar í sambandi við væntan- legar tillögur Neytendasamtak- anna í þessum efnum. Hafa öllum meðlhnum Húsmæðrafé- lagsins verið send bréf, þar sem spurt er um álit þeirra í þessu sambandi. Grettir lýkur dýpkun á fsaflrði fyrir jól. Dýpkunarskipið Grettir hef- ur nú mánaðartíma unnið að dýpkun innsiglingarinnar til ísafjarðar. Hefur verkið gengið eftir áætlun, og er nú um það bil hálfnað. Samkvæmt upplýsingum er Vísi fékk hjá vitamálastjóra í morgun er búizt við að Grettir ljúki dýpkuninni fyrir jól. Verður innsiglingin dýpkuð um 1'2 metra, og verður rásin sem skipið grefur 700 metra löng 1 og 50 metra breið. Þegar dýpk- un þessari er lokið eiga skip að komast hindrunarlaust og án nokkurrar áhættu upp að I bryggju á ísafirði um háfjöm.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.