Vísir - 25.11.1953, Side 1

Vísir - 25.11.1953, Side 1
VI 43. Atg. Miðvikudaginn 25. nóvembcr 1953 270. tbl. ísL stúdent sigrar skák- meistara Frakka Jón Einarsson stúdent héðan úr Hekjavík, sem nu stundar tungumálanám viö Sorbonne-háskólann í París, tók nýlega j»átt í skákmóti þar í borg við ágætan orðs- tír. Þetta var hraðskákmót, sem fram fór hinn 1. þ. m., og tóku þátt í 2»ví ýmsk beztu skákmenn Frakka. Jón varð nr. 2.—3., fyrir of- an skákmeistara Frakka. Efstur varð Muffang með 12 v. (þátttakendur voru 15), þá Jón og Pópel, 11 v., 4. varð Raizman, skákmeistari Frakka, en 5. varð Simonvie, Júgóslavi. Jón tapaði fyrir Muffang v og, Popel, og gerði jafntefli við Raizman. en sigraði hina ií. — Að verðlaimum hlaut hann 400 franka. Fækkað í liði US í Evrópu N. York (AP). — Banda- . ríkjamenn hafa fækkað í her- námsliði sínu í Evrópu um 50.000 á þessu ári. Þetta hefur verið gert há- vaða- og skrumlaust, með þeim hætti, að í stað ýmissa þeirra, sem fengið hafa heimferðar- leyfi að loknum skyldustörfum, hafa ekki aðrir verið sendir í staðinn. En óneitanlega hefur þetta komið mönnum vestra spánskt fyrir sjónir, því að stjórnin hef- ur harðlega neitað, að hún á- formi að fækka í herliði sínu í álfunni. Reynt ai blanda Austur- ríki í deilu. Róm (AP). — Orðrómur hef- ur verið á kreiki um, að Júgó- slavar leiti stuðnings Austur- ríkismanna í Triestedeilunni. Málið varðar Austurríki, af því að vöruflutningar til Júgó- slavíu eiga sér stað um Trieste, en til þessa hafa Austurríkis- menn haft þau hyggindi til að bera, að blanda sér ekki í deil- una. Þegar keisaradæmið Austur- riki—Ungverjaland var til var Trieste helzta hafnarborg þess. — Enn hafa heyrst raddir um, að bezt væri bæði fyrir Ítalíu og Jugóslavíu, að Austurríki fengi borgina, en þær raddir eru fáar og ekki háværar. Japan bodimi griftasáttmáli. Kínverskir kommúnistar eru sagðir hafa boðið Japan upp á griðasáttmála. Skilyrði er þó, að Japan hafni sáttmála sínum við Bandarík- in, en sá sáttmáli heimilar þeim herstöðvar í Japan. HlcCarthy kveðst reiðuhúinn að láta þjóðina dæma stefnu sina. Ofurölva menn hirtir á götuitum. í gærkveldi og nótt hirti lög- reglan liér í bænum tvo ofur- ölva menn, sem lágu hjálpar- vana á götum úti. Annar þessara manna fannst niður við höfn, skammt frá kolakrananum. Lögreglan flutti hann á Landsspítalann til at- hugunar, en ekki fannst neitt athugayert við hann annað en ofurölvun og lítilsháttar meiðsli á vör. Að læknisathugun lok- inni • tók lögreglan manninn í vörzlu sína. Hinn maðurinn fannst með- vitundarlaus sökum ölvunar í Aðalstræti um fjögurleytið í nótt. Læknir var sóttur til hans, en .hann kvaðst ekki sjá önnur sjúkdómseinkenni en ölvun. Lögreglunni var í nótt til- kynnt um enn einn ölvaðan mann, en hann hafði þó rænu á því að reyna að komast inn í bifreiðar, sem á ^segi hans urðu. Lögreglan sótti manninn og tók hann f vörzlu sína. Tilraun til ijinbrots. í gærmorgun var lögreglunni tilkynnt um innbrotstilraun í verzlun Kron á Hverfisgötu 52. Hafði verið brotin þar rúða en tilraun til þess að fara þar inn hafði mistekizt og niaðurinn orðið frá að hverfa. Árekstrar. í gær urðu hér í bænum sex árekstrar bifreiða, sem teljast má helzt til mikið í auðri jörð og við hin æskilegustu akst- ursskilyrði. Alls hafa nú orðið 995 árekstrar það sem af er ár- inu, svo af að líkum lætur verð ur þess ekki langt að bíða að þeir nái þúsundinu. Á sama tíma í fyrra var tala árekstra 944. Hann og Stevenson fluttu báðir út- varps- og sjónvarpsræður í gær. (*erí ráð fyrir lálSausri koMiinoa- hrið til næsfa Jiausts. Einkaskeyti frá AP. — „Nfeiy Yórk í,mórg|in. McCarthy öldungadeiJdarbingmaðúr flutti ræðu i gærkvöldi, sem útvarpað var og sjónvarpað um öll Bandaríkin. Kvaðst hann vera fús til þess að leggja „McCarthyisn»ann“ undir úrskurð þjóðarinnar. McCarthy varði mestum hluta ræðu .sinnar til ádéilii á „Trumanismann“, er hann svo nefndi, eða- stjórnai'stefnu Tru- mans, og sagði að rétt væri ,að þjóðin gerði upp á milli sinnar stefnu og hans; Var þetta sagt í: tilefni af ummælum Trnmans um, að stjórn Eisenhowers hefði aðhyllst McCarthyismann, með áróðri þeim, sem hafinn var gegn Truman og demokrötum, af Brownell dómsmálaráð- herra, er hann kvað Truman hafa haldið hlífiskildi yfir Har- ry Dexter White aðstoðarfjár- málaráðherra, vitandi það, að hann var þeim sökum borinii, að hann væri kommúnisti. McCarthy lýsti sig andvígan skoðun Eisenhowers að komm- únisminn yrði ekki kosninga- mal næsta haust og gagnrýndi stjóm republikana fyrir að fygja sömu stefnu og Truman, að styðja Breta efnahagslega, en þeir hefðu alla tíð verzlað við kínverska kommúnista meðan barizt var við þá. Adlai Stevenson, forsétaefni demokrata í Bandaríkjunum í seinustu kosningum, vítti í gær harðlega þá bardagaaðferð, er republikanar hafa tekið upp. Einkunnarorð þeirra væru „til- gangurinn helgar meðalið" og einskis svifist. Inn í hinar miklu deilur bandarískra st.jórnmálamanna. Mörg íslenzk skip buðu aðstoð. Leitinni að flaki handarísku flug- vélarinnar haldið enn áfrani. Enn er haldið áfram að leita að fiaki bandarísku flugvélar- innar, sem fórst vestur af Beykjanesi fyrir 10 dögum. Flugvélar hafa alltaf leitað, þegar veður hefur leyft, en eins og Vísir hefur sagt frá, hefur stundum ekki verið hægt að leita vegna veðurofsa. Þegar flestar flugvélar haía verið við leitina, hafa þær verið fimmtán, og þá vei'ið brezkar flugvélar auk amerískra. Um eitt skeið var íalað um að senda fleiri flugvélar hingað frá Bandaríkjunum, og flytja flugvélar í stöðvum þar til, svo að hvergi yrði þó opið skarð. Hefði þar verið um flutninga á svæðinu alla leið vestur að Kyrrahafsströnd að ræða. Af þessu varð þó ekki, því að svo mikil þrong var ,orðin á Kefla- víkurflugvelli, að ekki var hægt að koma þar fyrir fleiri björg- unarflugvélum með góðu móti. Síðan Tröllafoss fann hluta af vinstri væng flugvélaiinnar á sunnudag — en hann sökk, þegar átti að innbyrða hann í amerískt veðurathugunaskip — hafa flugmenn tekið eftir öðru braki á sjónum á svipuðum slóðum, en ekki hefur verið unnt að ganga úr skugga um, hvort það er úr flugvélinni. Mörg íslenzkt skip, svo sem togarar er voru á leið milli Grænlands og íslands, hafa boðizt til að hjálpa við leitina, og munu hafa borizt slík hjálp- artilboð frá tíu íslenzkum skip- um. Leitinni mun verða haldið á- fram tí.1 vikuloka og leita m. a. tíu flugvélar í dag. Höfðu sem liklégt .er, að ekkert lát verði á fram að. haustkosning- unum að ári, hefur nú vérið varpað nýrri' ,',sprengjú“. . . Oameríska nefndin vill hváð sem tautar hafa tal af Rúss- anum Gusenkov; fyrrver- andi sendisveitárstarfs- manni í Ottawa, sem fékk landvistarleyfi í Kanada, eft ir að hafa ljóstað upp um njósnabring kommúnista ’þar, en það er.einmitt í sam- bandi við Harry Dexter White-málið, sém. nefndm vill hafa tal af Bússanum. Lester Pearson, utanríkisráð- herra Kanada hefur lýst yfir, að maðurinn hafi áður gert hreint fyrir sínum dyrum og málið kunnugt, en þar fyrir muni verða gerð grein fyrir því í sambandsþinginu í dag. ,Verður væntanlega um leið tek in afstaða til þess, hvort Biiss- inn fái að fara til Bandaríkj- anna til að „vitna“, en Pearson hefur látið í það skína, að hann kunni að glata réttindum þeim, sem hann hefur fengið í Kan- ada, fari hann úr landi til þess, en ekkert væri til fyrirstöðu að nefndin kæmi og spyrði hann þess, er hún óskaði. Til marks um það, hve harð- sótt það er af republikönum, að fá manninn sem vitni, er, að Dulles utanríkisráðherra hefur lagt sitt lóð á metaskálarnai, og sagt, að það væri fullkom- lega verjandi, að fara fram á, að hann kæmi á fund nefndar- innar. Ogæftir vestra ísafjarðartogarinn Sólborg kom íil ísafjarðar í gær með á 4. hundrað lestir af karfa, sem veiðzt hafði við Grænland. Aflanum verður lagt upp á ísafirði, Bolungavík og Súða- vík, til þess að öll stærstu kaup túnin við Djúpið njóti atvinn- unnar. — Er þetta önnur ferð Sólborgarinnar á Grænlar.ds- mið í haust. Vegna stöðugra umhleyp- jnga og ógæfta að undaníörnu hafa smærri skip lítið getað stundf ð veiði. En þó hafa bátar fengið allt upp í 5 lestir í legu, þegar þeir hafa á annað bovð getað farið. Söfniniin vegns EdtEu-siyssins. Máiíáðarlegar grciðslur. Ein' góðkunningi blaðsinS kom að mali við ritstj. í gæi$ og bar fram þá hugmynd. þeir sem- viklu rétta hjdlpar-i - hönd ekkjum og munaðar-i •lausum vegna Eddu-slys.sins..1 gætú gert það með þvi a<S inna af hendi máuaðarlegar gr'eiðslur í éitt aiv Sjáífur bauðst hann tilað .greiða 10-0kr, á mánuði (í 12-mán.). Vísir álítur ; hugmyndt þessa líklega til að greiða: fyrir gjöfum manns og vill þvíi hér -með koma heuni á framfaéri. Bláðið veitir mót-i töku loforðum I þessu skyní til laugardagskvölds næstk. Fé það, sem þannig safnast, rennur. til barna, sem muri-; aðarlaus háfa orðið vegna’ slýssins, mæðra þeirra og gamalmenna, sem misst hafa fyrirvirinu sína. tvær þeirra bækistöð á Skerja- firði í nótt, en fóru aftur í morgun. t vill fella tillögur Rússa. Henry Cabot Lodge, aðalfull- trúi Bandaríkjanna á vettvangi S. Þj., hefur lagt til, að felidar verði í heild tillögur Rússa í afvopnunar- og kjarnorkumái- um. Rökstuddi hann þetta með því, að flestar. þeirra hefðu verið vegnar og léttvægar. fundnar. Mikið byggt í Eyjum nú. Miklar byggingaframkvæmd- ir eru nú í Vestmannaeyjuni, og athafnalíf yfirleitt með mikl- um blóma. Vísir átti tal við Vestmanna- eyjar í morgun, og tjáði tíð- indamaður Vísis blaðinu, að byggingaframkvæmdir væru með mesta móti, bæði hjá fyr- irtækjum og einstaklingum. —■ Meðal stórhýsa, sem nú rísa af grunni í Eyjum eru útbú Út- vegsbankans, skammt frá sam- komuhúsinu, en þar hefur ver- ið steyptur kjallari, ennfremur er fiskiðjuverið að reisa mikla fiskvinnslustöð, og Einar Sig- urðsson er að láta byggja fiski- mjölsverksmiðju. Þá eru ein- staklingar líka að byggja, og er sennilegt, að óvíða á landinu sé jafnmikið byggt og í Eyjum. Atvinna í öðrum greinum hef- ur einnig verið mikil, að vísu í skorpum, eins og gerist í ver- stöðvum. Ótíð hefur verið í Eyjum undanfarið og vinda- samt, og óreglulegar samgöng- ur af þeimsökum. Lávarðar ræða sjónvarp. Umræða um sjónvarn hefst síðdegis í dag í lávarðadeihl brezka þingsins. Áhuginn er mikill, ef marka má af því, að upp undir 40 þingmenn eru á mælendaskrá,

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.