Vísir - 30.11.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 30.11.1953, Blaðsíða 1
43. árg. Mánudaginn 30. nóvember 1953. 274. tbl. Úr gengur eftir 43ja á víðavangi. Urift týndlist s smaiatnennskii 1906, en fannst 1949 ©g hefur gengii siftan. Nokkru eftir aldamótin síð- íistu týndi unglingspiltur norð- ur í Langadal í Húnavatnssýslu úrinu sínu í smalamennsku, en fyrir 4 árum fannst úrið aftur á grjótmel uppi í fjalli og síð- an hefur úrið géngið viðstöðu- laust. Það mun hafa verið árið 1902 að Jósafat Líndal, þá hóndi að Holtastöðum í Langadai, kom úr Reykjavík og færði þá Jó- nafan syni sínum svissneskt úr (frá G. T. Revue verksmiðj- unum) að gjöf. Jónatan átti úrið þá I nokli- ur ár og reyndist það hið bezta í hvívetna, en árið 1906 var Jónatan í smalamennsku í f jall- inu fyrir ofan bæinn. Munöi hann þegar hann leit síðast á úrið, en þegar hann ætlaði að líta á það næst, var það horf- ið. Var þá’gerð mikil og itar- leg leit að úrinu en án árang- urs. Fjörtíu og þremur árum seinna eða árið 1949 var mað- ur að smalamennsku á svipuð- um slóðum í Holtastaðalandi og Jónatan var forðum þegar hann týndi úrinu. Á grýttu melholti uppi í fjallinu sér smalinn glytta í eitthvað og sá að það myndi vera úr. Úrið var í hlífðarkassa eins og þá var titt til sveita, en bæði úrið og kassinn einn ryðklumpur og virtist ekki vera til nokkurs nýtt. Datt smalanum helzt í hug að fleygja úrinu þar sem það var komið, en hélt kannske að krakkar myndu hafa gaman af því og tók það þess vegna með sér heim. Kannaðist Jónatan bóndi þá strax við gripinn, hreinsaði hann ryðið af úrinu og dró það upp til gamans. En úrið tók þá að ganga án þess nokkrum dvtti slíkt í hug, og hefur geng- ið linnulaust og án minnstu viðgerðar þau fjögur ár frá því úrið fannst. Sigurður Tómasson úrsmiður hefur skoðað úrið og gangverk þess og telur hann undravert hve úrverkið hefur haldizt ó skemmt allan þennan tírna. Þrjár afhsöiur í Þýzkalandi. Þrír íslenzkir togarar selja ísfiskafla í Þýzkalandi fyrri hluta þessarar viku. Egill rauði selur í dag og Kaldbakur og Harðbakur' á morgun og miðviltudag. — Hvort fleiri sölur verða þar síðar í vikunni er enn ekki kunnugt, en ekkert liggur fyr- ir um sölur í Bretlandi í vik- 1». 1. des. 1878 var kvelkt á iteykjanesvita í fyrste síi** Kost'snaðui* var áœiláður 2© |>iik. kr. eis fór 10 jíós. fram úr áteílsfM. Logandi oba rann Brezkir Iæknar bentu nýlega á þá hættu, er íbúum f jölmargra borga stafar af reykþoku, er oft grúfir sig yfir borgiruar dögum saman. Leggja þeir til, a5 útbúnar verði gasgrímur fyr ir menn. Tízkuverzlanir ruku þegar upp til handa og fóta og bjóða konum nú grímur af því 4agi, sem.myndin sýnir. lillft Slökkviliðið var þrívegis kvatt á vettvang um helgina, en í engu tilfellanna var um veru- legan eldsvoða að ræða. í gærmorgun var slökkvilíðið beðið um aðstoð að Selásbletti 23 , en þar hafði kviknað út frá olíukatli í viðbyggingu hússins. Flaut olíu um gólfið og varð af allmikill eldur á tima, en eigandanum tókst að kæfa hann áður en slökkviliðið kom á staðinn. Skemmdir urðu furðulega litlar nema helzt af reyk, sem lagði um húsið. í gærkveldi varð skamm- hlaup út frá einangrunarleiðslu að útvarpstæki i kjallara húss- ins nr. 38 við Klapparstíg. — Loks var slökkviliðið kvatt að Mávahlíð 12 klukkan 1 í nótt, vegna íkviknunar út frá olíu- kyndingu. Búið var að slökkva þegar slökkviliðið kom á vett- vang. Á hvorugum framan- greindra staða var um skemmd ir að ræða. ChurchiU 79 ára í dag. Lendon (AP). — Sir Wínston Churchill forstætis- ráðherrá Bretlands er 79 ára í dag. Hann hefur fjöls&ylduboð inni síðdegis í nr. 10 Downing Street .pg móttöku á eftir. -— I morgun var hann í forsæti á stjórnarfundi, og það verður hann líka í fyrramálið, en ann- að kvöld leggur hann af stað til Bermuda ásamt Eden. Há- loftsflugvélin Canopus, sem flutti drottninguna og rriann hennar um Nýfundnaland til Jamaica, flytur þá þang'að. Ríkistekjur Svia námu mill- jarði s. kr. í júM—ágúst — fyrstu mánuðum yfirstandandi fjárhagsárs. Sæmílegisr aflf Fiinm bátar hafa róið frá Sandgerði undanfarna daga og aflað sæmilega, þrátt fyrir ótíð. Fréttaritari Vísis i Sand- gerði skýrði blaðinu frá því í morgun, að afli þessara báta hefði verið 5—6 lestir i róðri, og er það talið sæmilegt. Bát- ar eru allir á linu og roa skammt, eða þrjá stundax- fjórðunga undan eða svo. Lokað á hádegi á morgun. ÖII almenn afgreiðsla, þ. e. í verzlunum, skrifstofum, bönkum og öðrum fyrirtækj- um, hættir á morgun kl. 12 á hádegi í tilefni fullveldisaf- mælisins, Á sama tima er rakarastof- um bæjarins lokað og skósmíða vijinustofum. Afgreiðsla olíu- félaganna í sambandi við elds- ne>i.isflutninga í hús verður þó allan daginn. Einnig er, sam- kvæmt samningum, unmð í verksmiðjum og iðnaðarfyrir- tækjum allan daginn á morgun. Frú Fandit og kimmúnisminn. New York (AP). — Mme Pandií, forseti allsiíierjarþings- ins sagði nýlega, að vestrænu þjóðiraar gætu sjálfum sér um kennt, hve mikilli útbreiðslu komrnúnisminn hefði náð í Asíu. Asiuþjóðirnar hafi verið komnar á það stig, að þær hefðu fagnað hverjum sem væri, er þær töldu mundu hjálpa sér til að, losna úr viðjum nýlendu- kúgunar. Þetta hefðu vestrænu þjóðimar átt að sjá og skilja fyrr. Adenauer kanslari og stjórn- arfulltrúi Frakka halda áfram viðræðum í Bonn um Saarmál- i3. Siglingar við ísland hafa löngum verið hættulegar að vetrarlagi og eru sjóslys síðusíu vikna ný og hörmuleg sönnun þess. En þótt „sjórinn æði við ís- land“, ,eru hætturnar þó engan veginn eins válegar og þær voru fyrir rúmlega hálfri öld, því þá mátti segja að vitalaust væri á íslandsströndum. Vitamál komu fyrst til opin- berrar umræðu á Alþingi árið 1874 og var þá vakið máls á því að koma á vitaskattx, til þess að afla fjár til vitabygg- inga. Þessi tillaga féll af tveim ástæðum. í fyrsta lagi vegna þess, að ekki var talið fært að krefja skip um vitagjald, rrieð- an enginn viti væri til. f öðru lagi var Grímur Thomsen, á- hrifamesti maður þingsins, á móti málinu, þar eð hann taidi, að Dönum bæri að sjá um vita- byggingar á íslandi, þar eð hér væri um sameiginlegt hags- munamál þjóðanna að ræða. Kóngur beðinn aðstoðar. Var þá það ráð. tekið að biðja kóng um aðstoð í vitamálinu. Kóngur svaraði vitanlega ekki slíkri málaleitan sjálfur, en danska flotamálaráðuneytið fjallaði um hana vel og vand- legt, en hægt og bítandi í tvö ár, og komst lóks að þeirri spaklegu niðurstöðu, að þetta mál gæti ekki talizt hagsmuna- mál allra þegna Danakonungs og bæri því að hafna beiðninni. Þá taldi flotamálaráðuneytið litla þörf fyrir vita á Reykja- nesskaga, en þar var nýja vit- anum hugaður staður, og or- sakir voru þessar: Alls kæmu aðeins 70 skip að Reykjanes- skaga á ári. Skip þessi væru flest á ferð, meðan nótt væri bjöi't eða á tímabilinu frá 15. marz til 1. des. Ella sigldu skip aldrei á þessum slóðum. Eigí að síður vildi ráðuneytið mæla með því, að íslendingar fengju 12.000 kr. styrk úr ríkissjóðn- um danska til þess að koma upp vita á Reykjanesskaga, en. íslendingar skyldu leggja fram, .14.000 kr. úr landssjóði. ,,Fylla“’ skyldi aðstoða við flutninga. Framlag frá báðum. Þótt allt væri sparað við> byggingu vitans, og vitavarðar- bústaðui- mjög lélegur, fór kostnaður 10.000 kr. fram úr áætlun. En 1. desember 1878- gat yfirvérkfræðingurinn Al- exander Rothe látið kveikja á vitanum og eru því 75 ár á morgun, síðan fyrsti viti. á ís- landi lýsti sjómönnum á hættu- legri leið. Síðan hefur mikið áunnizt. Þ. 1. des. 1888 voru vitarnir orðnir þrír, 1. des. 1898 var talan kom- in upp í fimm, 1. des. 1908 var talan nærri fjórföld eða 18, og: 1. des. 1918 var sú tala nærri þrefölduð eða komin í 47. 1.. des. 1928 voru þeir orðnir 90, 1938 111 og 1. des. 1944 var tala þeirra 135, en síðan hefur þeim fjölgað enn. Jórdastíifistjórn fær lán hjá Bretiem. London (AP). — Brezka stjórnin hefur áveðið að veita. Jördaniustjórn lán að upphæð 2.350.000 stpd. (yfir 100 millj. kr.). —- Talið er, að Bretar hugleiði frekari fjárhagsaðstoð- við Jordaniu. 3 milljónir í verkfalli. London (AP). — Hinn 2. des. hefst sólarhrings mótmæla- verkfall 3.000.000 vél- og skipasmiða í Bretlandi, vegna þess að þeir hafa ekki fengið framgengt kröfum um 15% kauphækkun. Kanidlskt blað 100 ára. Sarnia, Ontario (AP). — The Saroia Canadian Observer hélt 16. nóv. upp á aldarafmæli sitt og 60 ára afmæli sem dag- b.lað. Afmælisblaðið var í 8 heftum, samtals 120 bls. Hver er þessi kona þarna á: myndinnl? Nafn manns henn- ar hefur verið nefnt í heims- fréttunum nær daglega undan- farin tvö ár, og er deilt ákaft um örlög hans. Já, þetta er eiginkona Mossadeks liins pers- neska. sem nú er fyrir herrétti,. og ákseramti hins opinbera vill a3 veréi Mílátinn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.