Vísir - 12.12.1953, Blaðsíða 8

Vísir - 12.12.1953, Blaðsíða 8
\ Þeír m*b germst kmupendur VÍSIS eftír I#. hvers niáaaSar fá blaðið ókevpis til cnánsðamóta. — Slmi 1660. oMripaS rfarm mp iuTBLU WISSIIi; VÍSIB er ódýrasta blaðið og |>aS fjol- breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerbt áskrifendur. Laugardaginn 12. desember 1953 Syning frtí dnitds' ÓÍBfscfóttiir á i- • ... ^ kirkiulistgripum .pmA í d». M,k,H alM,9' °9 «oður arangur Mnníriiír verda sriidír í §iokkhólnii eftir áramótin. f dag er opnuði í Þjóðminja- safninu sýning frú Unnar ÓI- afsdóttur á handunnum, kirkju- legum listmunum, og er Jietta í fjórða skipti, sem hún efnir til slikra sýningar hér. Tvívegis hefur verið óskað eftir því, að frúin efndi til slíkr- ar sýningar í Svíþjóð, og er í ráði, að hún fari til Stokkhólms eftir áramótin með hina fágætu og frábærlega vel gerðu muni, sem Reykvíkingum gefst nú kostur á að sjá fram undir jólin. Vöktu hrifni Sibyllu prinsessu. Hjá frú Unni starfa tvær systur, sem mörgum er kunn- ugt, Asdís og Iðunn Jakobs- dætur, og hefur Ásdís unnið hjá henni 12 ár, en Iðunn 3. Þær hafa og notið tilsagnar merkrar sænskrar konu, Gurly Hillbom, sem kom tvívegis hingað til þess að kenna þeim, en sérgrein hennar var kirkju- legur listsaumur. Gurly Hill- bom lézt í maí s.l. og var henn- ar þá getið sem færustu konu Svíþjóðar í þessari grein. Er þessa dagana haldin minning- arsýning um hana í Stokkhólmi. ,í>ær systur unnu í 2Vz mánuð á þessu ári í frægustu stofnun ávía, sem framleiðir kirkjulega listmuni, en það mun einstætt, að erlendu fólki sé gefinn kost- ur á aðalstarfi þar. Hefur þess verið getið í blöðum, að Sibylla Svíaprinsessa hafi komið í > stofnunina, er þær systur voru þar, og hafí þau orð um, að hún hefði ekkert fegurra séð þar, en það, sem þær voru með í höndunum. En þá gripi getur að líta á sýningunni. Er hér. um að ræða altarisrefil með upp- hleyptum gull- og silfursaum og altaristöflu, hvorttveggja frábærlega vel gert Aðrir munir. Mikla athygli vekja eftirtald- Ir munir: Altaristafla (Kristur á krossinum). Myndin er saurn- .uð,í dúk úr Be^sastaöahör, unn inn erlendis, og var altaristafl- an einkaeign Sveins heitins Björnssonar forseta, og nú eign frú Georgíu BjörnssoiL Blár hökull, nýgerður,, gull- saumaður með innsettum stein- um úr Glerhallarvík. Hér hefur verið brugðið út j frá því, sem algeng'ast er, að rafa hölcul í rauðum lit. Þessi fagri hökull er gjöf til Siglu- cjarðarkirkju, frá börnum og oarnabörnum Guðm. heitins Bafliðasonar. Altarisklæði, saumað með ís- enzkum hör og gullvír í svart /aðmál, og er allt efnið íslenzkt rema gullvírinn. Unnur sýn- r hér á fagran hátt, hvernig íún hugsar sér altarisskreyt- tngu á föstudaginn langa. Altaristafla (hjörturinn og crossinn), með 42 brimsorfn- im steinum úr Glerhallarvík, innsettum eins og brimið skol- aði þeim að rótum Tindastóls. Rúm Ieyfir -eigi að geta fleiri nuna sérstaklega, nema aðeins Irepa á knipplinga úr Bessa- staðahör, skatteraða samfellu (sem er í einkaeign), vegg- teppi (Mjallhvít og dvergarn- ir sjö) og útsaumað Kalablóm, tvennt hið síðasttalda gert af frú Unni, er hún var tólf ára. Til stuðnings blindum. Frú Unnur hefur jafnan látið allan ágóða af sýningum sínum renna til blindra, en vegna mikils tilkostnaðar verður sá háttur hafður á nú, að að- gangur að sýningunni verður 10 kr., en mönnum gefinn kost- ur á að kaupa smámuni úr málmi, ætlaða til að skreyta jólaborð, og gengur allur á- góði af þeim í blindrasjóðinn. Munirnir kosta 10 kr., en frjálst er þeim, er þess óska að greiða meira blindum til stuðnings. i balleftskóla Þjóðleikhússins. Gouzenko mun svara. Einkaskeyti frá AP. N. York í gær. Rússinn Igor Gouzenko, sem nú er kanadiskur borgari, hefur fallist á að svara fyrirspurnum manna úr undirnefnd innan- landsöryggisnefndar öldunga- deildar Bandaríkjaþings. Tilkynning hefur verið birt um þetta í Kanada. Fyrir- spurnafundurinn verður hald- inn þar í landi og stjórnar hon- um maður, til þess skikkaður af Kanadastjórn. Fundurinn verð- ur haldinn fyrir lyktum dyr- um og ekkert birt nema Kan- adastjórn leyfi. Verður þannig að fara í öllu samkvæmt áður birtum skilyrðum hennar. Sumri hatlar" í si5asti kvöld. sfiin í kvöld eru allra síðustu for- vöð að sjá Sumri hallar, hinn afburða góða sjónleik Tenn- essee Williams. Leikhúsvinir hafa fjölsótt sýningar á þessu leikriti í Þjóð- leikhúsinu, og leikdómarar hafa verið mjög á einu máli um á- gæti þess. Nú líður að jólum, annir kalla að, en fleiri verk- efni liggja fyrir Þjóðleikhús- inu. Ástæða er því til þess að hvetja þá, er hafa ekki séð Sumri hallar, að gera það nú í kvöld. Flokkaglíma Rvíkur háð á morgun. Á morgun fer fram í fbrótta- -húsi Jóns Þorsteinssonar flokka glima Reykjavíkiir og hefst hún kl. 2. Keppt verður í 3 flokltum, og tveim drengjaflokkum, en þátttakendur eru alls 25. í I. (þyngsta flokki) ei'u 8. kepp- endur, og þeirra skæðastir vafalaust þeir Rúnar Guð- mundsson og' Ármann Lárus- son. í 2. fl. eru meðal keppenda þeir Gunnar Ólafsson og Gísli Guðmundsson, báðir kunnir glímumenn. jLc£ðrétthtffm I frásögn Vísis í gær um rekstraryfirlit rikissjóðs á 9 fyrstu mánuðum þriggja síðustu ára (og þar með talið yfirstand- andi ár) varð meinleg prent- villa í uppliafsklausu fréttar- innar. Átti að standa að kostnaður við forsetaembættið hafi aukizt frá árinu 1951 úr 393 þús. kr. í 525 þúsund krónur árið eftir Á yfirstandandi ári hækkar kostnaðurinn svo í 693 þús. kr. svo sem stóð í blaðinu í gær. En þarna í öllum tilfellum var átt við 9 fyrstu mánuði hvers í framangreindum tölum felast í senn laun og risna forsetans. Þar eru skipanfr gefnar á frönsku, en nemendum gengur prýÖifega, segir Bidsfed batlettmeistari. Ilér sjásí nokkrir nemendur ballettskólans með Bidsted ballettameisara. í ballettskóla Þjóðleilíhússins eru nú um 140 nemendur, allt frá 7 ára og fram yfir tvítugt, en allir eiga þessir nemendur sammerkt í ‘því, segir Erik Bid- sted ballettmeistari, að áhugi þeirra er frábær, og alúð við æfingarnar eins og bezt verður á kosið. Tíðindamaður Vísis brá sér í vikunni í Þjóðleikhúsið og ræddi við Bidsted um skólann og starfsemi hans, en hann annast þar kennslu, ásamt konu sinni, Lisu Kærgaard. Ekki var annað að sjá en að æfingarnar gengju af fullu fjöri í æfingasalnum uppi á lofti, en þar stóðu nemendur í röðum upp við slár og hreyfðu sig eftir hljóðfalli slaghörpu, samkvæmt skipunum Bidsteds, sem allar voru á frönsku. Þar var talað um ,,demi-plier“, „rond des jambes a terre“ og „rond des jambes en l’air“, og enda þótt hinir verðandi ballett dansarar ha.fi ekki skiiið sjálf orðin, sem varla er von, skildu þeir mæta vel, hvað gera átti, er þau voru sögð. Franskan er nefnilega hið klassíska mál ballettsins, hvort heldur hann er dansaður í Höfn, London, Reykjavík eða Moskvu. Sama kerfi og í Moskvu. „Annars komu níssneskir ballettdansarar hingað í heim- sókn á dögunum,“ segir Bid- sted, „og þeir voru undrandi yfir því, að hér skyldi vera kennt eftir sama kerfi og þeir hafa hjá sér. En það er ekkert undarlegt, því að við lærðum það hjá rússneskum dansmeist- urum í París, en þangað flykkt- ist ballettfólk á sínum tíma. Þessir rússnesku gestir voru rmdrandi yfir því, hver árang- ur hefði náðzt hér á svo skömm- um tíma. En það er vitanlega fyrst og fremst undir eindæma áhuga komið, sem þessir ungu íslendingar sýna.“ Nemendur cru alls um 140, eins og fyrr segir, og er þeim skipað í 6 flokka eftir aldri og kunnáttu, en sumir voru í skólanum í fyrra. Þá vom um 60 í skólanum, en talan hefur sem sé meira en tvöfaldazt. Hífuðtilgangur með rekstri ballettskólans er tvíþættur: Annars vegar að kenna ungling- um (og fullorðnum) ballett til bess að öðlast fagrar og mjúkar hreyfingar, en fáar ,,íþrótt.ir“ eru betur til slíks fallnar en einmitt bállettinh, og hins veg- ar að koma hér unp sérstökum ballettflokki við Þjóðleikhúsið. Nú má heitá, að skólinn hafi í takinu um 35 manna flokk, sem sýna mun'hér i vetur. Sumir skara mjög fram úr. Nemendur úr skólanum munu sýna ballett í barna-jólaleik- ritinu Ferðin til tunglsins, og í náinni framtíð verður aftur tek- inn til sýningar ballet.tinn Eg bið að heilsa, se??. hætta varð við í fyrra. Þá má geta þess, að Bidsted hefur samið nýjan ballett og er með annan í smíð- um, en þeir verða báðir sýndir hér síðar í vetur eða vor. Tíðindamaður Vísis spyr Bidsted, hvort einhverjir nem- endanna séu sérlega efnilegir. „Nemendumir eru allir góð- ir,“ segir Bidsted, „en einir 15- 16 hafa alveg sérstaklega mikla danshæfileika, og þar af eru svo aftur 3 eða 4, sem alveg tvímælalaust gætu orðið frá- bærir dansarar. En ballettinn krefst óhemju-mikillar æfing- Frb á 5. s. MíkHI útflutníng- ur Breta í nóv. Úti'hitningur Breta í nóvem- ber nam 240 millj. stpd. og var hinn mesti í 20 mánuði. Innflutningurinn nam 272.5 millj. — Thornycroft verzlun- arráðherra sagði í gærkveldi, að ekki væri hægt að miða við skýrslur um útflutning og inn- flutning fyrir einn mánuð. Ef miðað væri við 11 mánuði. 1952 (1/1.—1/12) kæmi í ljós, að verðmæti útflutnings væri heldur meira en útflutnings- magnið aðeins minna. í tilefni af horfunum í iðnaði pg útflutningsverzlun hafa ýms ir leiðtogar á sviði iðnaðar og verzlunar vakið athygli á hinni harðnandi samkeppni, sem Bretar eiga við að stríða, ekki sízt frá Þjóðverjum í Véstur- Þýzkalandi. Er þjóðin mjög brýnd til nýrra átaka, — aðr- ar þjóðir vinni undir drep til þess að afla nýrra markaða og halda þeim, og hið sama verSi Bretar að gera. Sambaiidsflokkur Súdans stærstur. Úrslit eru aS mestu kunn í kosninguiuun til efri deildar þingsins, sem sett verður á stofn. x Súdan. Eins og í kosningunum til fulltrúadeildarinnar hafði Sam- bandsflokkurinn langmest fylgi. Af 30 þingsætum hefir hann fengið 20, tveir fl., sem. vilja sjálfstætt Súdan 5 og ó- háðir 2, en ókunnugt um 3 þingsæti. — Sambandsflokkur- inn vill samband við Egymta- land. Liöi Mau Mau- manna tvístrað. Eínkaskeyti frá AP. London í gær. Brezkar sprongjuflugvéiar f Kenya flugu í morgun yfir stöðvar Mau Mau-manna, sem voru áð drag-a að sér lið skammt frá brezkri flugstöð. Varpað var niður 10 smálest- um af spréngjum og heriið haft reiðubúið til þess að gera árás þegar. að sprengjuárásinni lok- inni. c ,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.