Vísir - 03.09.1954, Blaðsíða 4

Vísir - 03.09.1954, Blaðsíða 4
V t S I R Föstudaginn 3. september 1954 A WISS38. Ð A G B L A © Ritstjóri: Hersteinn Páisaoa. Auglýsingastjóri: Kristján Jónnon. Skrifstofur: Ingólfsstrseti 3. Otgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.3T. AfgreiSsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1860 (flmm Unur). Lausasala 1 krónm. Félagsprentsmiðjan h.f. Stúdentar fá laun. Tveir rauðleitir stúdentar eru fyrir skemmstu komnir austan úr Þýzkalandi — austanverðu að sjálfsögðu — og eru þeir látnir vitna í Þjóðviljanum í gær. Er það, sem eftir þeim er haft, eitthvert broslegasta rugl, sem lengi hefur sést á prenti hér, og er leitt til þess að vita, að ekki skuli vera hægt að ganga alveg úr skugga um það, hvort vitleysan er beint frá þeim félögum komin eða blaðamaðurinn hefur lagað hana í hendi sér, til þess að hún passaði betur í kramið. Þeir förunautar skýra frá því, að stúdentar séu á launum í Austur-Þýzkalandi, meðan þeir stunda nám þar. Hefði þetta mátt koma fram fyrri, því að svo oft hefur Þjóðviljinn birt fregnir og frásagnir frá Austur-Þýzkalandi, en haldið þessu vandlega leyndu, hva’S sem því kann að valda. En í þessu sambandi er ein.-ennilegt, að þeir félagar skyldu ekki fá neina ákveðna tölu um fjölda stúdenta í háskólum Austur-Þýzkalands. Kommúnistar eru tölvísindamenn góðir, og það hefði að minnsta kosti mátt fylla þá félaga með nokkrum prósentu- tölum um það, hversu mjög fjöldi stúdentanna hefði farið vaxandi austur þar síðustu árin. Á einum stað segja þeir félagar: „Eitt af því fyrsta, sem við rákum augun í í Vestur-Berlin, var leikfangabúð, þar sem .-stillt var út skriðdrekum og hverskyns stríðstólum í smækkaðri mynd sem barnaleikföngum að amerískum sið. í austurhlut- anum var hinsvegar allt öðru máli að gegna, enda er þar allt gert til þess að ala börnin upp í anda friðar og vináttu. Yfir- leitt má segja, að aðbúnaður æskunnar sé þar aðdáanlega ,góður.“ Já, það mun vera allt öðru máli að gegna í austurhlutanum, því að þar eru skriðdrekarnir ekki sem leikföng, eða ekki voru þeir það rússnesku skriðdrekarnir, sem notaðir voru til þess að bæla niður byltingartilraun verkalýðs Austur-Berlinar fyrir rúmu ári, þegar þeir risu upp vegna þess ástands, sem sjálfir foringjar kommúnista þar lýstu yfir að hefði verið orðið óþol- andi,. En í þessu efni vita kommúnistar utan af íslandi vitan- lega allt miklu betur en þeir sjálfir, sem fengið hafa að kynnast .sælunni frá því að styrjöldinni lauk. Að sjálfsögðu minnast ferðafélagarnir ekkert á það, hvernig matvælaástandið hafi verið þar eystra. Þó er ósennilegt, að ’þeir hafi verið látnir svelta því ekki mun slíkt venja, þegar um góða gesti er að ræða hjá kommúnistum. Hefði þeir því átt að geta þess með góðri samvirzku, að þar skorti engan neitt, allir hefðu nóg að bíta og brenna. Hefði, það verið í samræmi við annað að þeir sæu það, sem valdhafarnir koma ekki auga á, valdhafarnir, sem voru ekki alls fyrir löngu að þiggja gjafakorn frá aBndaríkjunum, eins og menn rekur minni til. Og af því að annar stúdentanna leggur stund á guðfræðinám við háskólann hér, hefði ekki verið úr vegi, að hann upplýsti aðbúnað kirkjunnar austur þar, því að vitanlega ríkir þar algert frelsi í trúmálum eins og öllum öðrum efnum. Og satt er það, að kommúnistar í Austur-Þýzkalandi hafa veitt nokkurt fé til kirkjunnar að undanförnu, þar sem þeir þora ekki að ( berja trúna niður með harðri hendi, meðan þeir eru ekki| fastari í sessi en raun ber’vitni, en hinsvegar hafa þeir rokið ^ til og minnkað framlög þes§i nýverið, eða síðan Ígndsfeðurnir j austur í Moskvu tóku sig til og hófu herferð gegn trúarbrögð- unum, sem enn eimir af meðal þjóðarinnar þrátt fyrir áratuga kúgun. En sennilegt er, að hvorki Þjóðviljinn né guðfræði- neminn hafi sérstaklega mikinn áhuga á þessu máli, og er þá eðlilegt, að það sé látið liggja milli hluta. Þótt þessir tveir ferðafélagar þykist hafa frá ýmsu að segja, fara þeir því miður fram hjá því, sem Þjóðviljinn ætti að hafa mestan áhuga á — aðbúnaði alþýðu manna í þessu ríki kommúnista. Það verður vart skilið á annan veg en þann, að bezt sé að segja sem minnst um það efni, því að vitnanir stjórn- arherranna fyrir skemmstu gefa ekki í skyn, að þaðan sé neitt gott að frétta. En að öðru leyti virðast þeir félagar hafa ferðazt .að mestu leyti blindir á augum eða skynsemi, og getur slikt verið heppilegt, þegar satt má ekki segja, en ekki hægt að jcoma skreytni við. ,VeruJeikinn var fegurri en draumurinn..." Viðtal við Richard og Bertu Beck. Dr. Richard Beck prófessor og kona hans, frú Berta eru stödd hér á 3ja mánaða ferða- lagi sínu um Norðurlönd. Komu þau hingað frá New York 2. júlí síðastliðinn og dvöldust þá hér til 24. júlí, én þá fóru þau til Noregs og Danmerkur, en þaðan koma þau nú. Meðan þau dvöldust hér, ferðuðust þau um alla lands- hluta og voru á mörgum sam- komum. Meðal annars heim- sóttu þau ættarslóðir frúar- innar, Þykkvabæinn. Frú Berta er fædd í Dakota. Afi hennar og amma fluttust vestur árið 1885 og foreldrar hennar litlu seinna. Faðir henri- ar var af hinni kunnu Víkings- lækjarætt, en móðir hennar af Melsætt. Er þetta í fyrsta skipti I sem frúin kemur til íslands, og er þau hjónin komu í Þykkva- j bæinn var þeim haldið sam- sæti þar og tóku þátt í því 60—70 manns, allt skyldfólk frúarinnar. Einnig fóru þau í boði Há- skólans austur í Fljótshlíð og skoðuðu sögustaði, svo sem Hlíðarenda, Bergþórshvol, Keldur o. fl. staði. Þá fóru þau hjónin norður í land í boði ríkisstjórnariim- ar, til Siglufjarðar og víðar og skoðuðu sögustaði. Voru þau mjög heppin með veður. Síðan fóru þau landveg um Eyjafjörð, Ásbyrgi að Dettifossi og aust- ur á land á ættarslóðir pró- fessorsins, en han er fæddur á Svínaskálastek í Reyðarfirði og alinn upp á Litlu-Breiðuvík. Á afmælisdag prófessorsins, 9. júní, voru þau hjónin stödd á ísafirði. Var þeim þá haldið samsæti þar. Töluðu þar Þoi'leifur Bjarnason kennari og Ragnar H. Ragnars, en kvæði flutti Haraldur Leós. Prófessor Richard Beck kom upphaflega hingað sem fulltrúi Þjóðræknisfélagsins og segir frú Berta, sem kemur hingað í fyrsta sinn að í þessari ferð hafi veruleikinn verið fegurri en draumurinn, og kveðast þau hjón bæði fara héðan með meiri virðingu en áður á landi og þjóð. Frú Berta var sérstaklega hrifin að af að koma að Reykjalundi og dáðist mjög að framkvæmdum, en hún er sjálf fyrrverandi forseti berkla- varna í North Dakota. Þá dáð- ist hún mjög að íslenzkri mál- aralist, og þótti hún merkileg, þótt ung sé. Prófessor Beck þótti mikið koma til framkvæmda hér á landi svo á andlega sviðinu sem á hinu efnalega. Eru þau hjónin, .prófessor Beck og frú Berta kona hans, meðal beztu fulltrúa íslands á erlendum vettvangi. * 1 Var fyrst aiufstæðingur Zeppe- lins, síðan eftírmaður hans. Dr. Hugo Eckener látSnn í Pýzkalandi. Þann 14. ágúst síðastliðinn lézt í Þýzkalandi dr. Hugo Eckener, sem varð aðalflug- maður stýranlegra loftskipa eftir að hann hafði lýst því yf- ir, að þau væiiu einskis virði. I greinum, sem dr. Eckener skrifaði áður fyrr í Frankfurter Zeitung um Ferdinand Zeppe- lin greifa, kallaði hann til- raunir hans „loftkastala loft- greifans". Allt um það hittust þessir tveir menn og tefldu saman, og þannig fói', að Zeppelin greifi gerði Dr. 'Eck- ener að jafnmiklum áhuga- manni um flug og hann var sjálfur. Dr. Eckener varð heimsfræg- Ur 1924, þegar hann flaug ZR-3 frá Þýzkalandi til Lakshurst. Fimm árum seinna flaug dr. Eckener Graf Zeppelin til Lakehurst, og heim aftur til Friedrichshafen í Þýzkalandi. Méðan heimurirín dáðist að þessu flugafreki lagði Graf Zeppelin áf stað austur á bóg- inn í hringferð um heiminn. Hann flaug frá Friedrischs- hafen til Japan á 101 klukku- stund og 53 mínútum. Fáein- um dögpm seinna lagði hann af stað yfir Kyrrahafið og kom til Los Angeles eftir 78 klukku- tíma og 58 mínútna flug. Þaðan var haldið áfram til Lakehurst og þaðan til Friedrichshafen aftur .og hafði flugið umhverfis iörðina tekið 288 klukkutíma og 14 mínútur. Dr. Eckener var fæddur 10. Hinir mörgu ágætu leikvellir, sem gerðir iiafa verið i bænum siðari árin, og bæjaryfirvöldin hafa reynt að gera eins vel úr garði og unnt hefur verið, liafa komið margri húsmóðurinni vel. Þar geta börnin leikið sér óhult fyrir allri bíláiimferð, en allra leikvalla bæjarins gæta konur, eru á verði um að böniin fari sér ekki að voða og eru ávallt til taks, ef eitthvað kemur fvrir. Börn gleyma sér oft. En þegar börnin eru að leik geta þau oft gleymt tímanum, og ef þau'eru ekki sótt, er varla að búast við því að þau átti sig á því þegar matmálstími er kom- inn. Um þetta ritar ein móðir Bergmáli og fer bréf hennar hér á eftir: „Mig langar til þess að biðja Bergmál um að birta frá mér nokkrar línur, sem mættu gjarnan kallast ábending til þeirra gæzlukvenna, sem hafa þann starfa á hendi að gæta leik- vallanna. Mæður, sem enga hús- hjálp hafa og eiga erfitt með að fara að lieiman nota sér það ó- spart að senda stálpuð börn á leikvellina til þess að þau séu að leika sér úti. Gleymt tímanum. Þegar börnin eru svo að leika sér gleyma þau alveg timanum og koma ekki heim til sín fyrr en þau eru orðin þreytt á leikn- um og svöng í þokkabóta. Á þessu mætti ráða þá bót og er það til lagan, sem ég ætlaði að koma fram með, að gæzlukonurnar segðu börnunum til þegar klukk- an væri að verða 12 á hádegi og einnig þegar hún nálgast sjö að kvöldi. Með þessu móti myndu þær gera ýmsum mæðrum mik- inn og góðan greiða. Flest myndu börnin hlýða því að fara heim í mat, þótt undantekningar gætu verið. En við það geta auðvitað gæzlukonurnar ekki ráðið. Marg- ar mæður, sem auk barnanna, sem eru að leika sér á leikvelli, eiga ungbarn herna, sem þær geta ekki farið frá, myndu verða þakk látar fyrir þessa hugulsemi. Góð tillaga. Vona ég svo að engin gæzlu- kona styggist víð, þótt ég hafi komið fram með ofanritað.“ — Bergináli finnst tillaga móður- innar ágæt, en vill aðeins benda á að gæzlukonur sumra leikvalla liafa -þráfaldlega bent börnunum á -það, þegar mahnálstími hefur verið að nálgast og beðið þau að fara heim. Aftur á móti er sjálf- sagt að þetta komi fram, ef það gæti orðið til þess að tekin yrði upp þessi regla almennt á leik- völlum. Það segir sig sjálft, að mörgum mæðrum kemur þetta vel og útlátalaust er það fyrir gæzlukónur vallanna. — kr. ágúst 1868 í Flensburg í Schleswig-Holstein í Þýzka- landi og var sonur tóbakskaup- manns. Hann stundaði nám í háskólunum f Múnchen og Berlin. í maímánuði 1937 brann Zeppelin-loftfarið Hinderburg, þegar það var að lenda í Lake- hurst og fórust 36 manns. Dr. Eckener var þá á fyrirlestra- ferð í Ástsalíu. Hann fór heim til Þýzkalands og hófst þegar handa um bygg- ingu nýs Zeppelínloftfars í stað þess gamla. Árið 1948 var hann ákærður fyrir að hafa verið meðlimur nazistaflökksins og stríðs- gróðamaður, en sýknaður sama ár af þeirri ákæru.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.