Vísir - 03.09.1954, Page 7

Vísir - 03.09.1954, Page 7
Föstudaginn 3. september 1954 TISIB nr ^vivbfvvvvvvvvv^ft^ivv'^^’w/^fyvvvvvvpkfvwvwJVFkFfawyvjw'irfVft Ijiíandi - - ■ dauöuv £ftir P Potter 13 WPU^/VWV^^WWW^»WW^F%^W^^Vt^WWV^^WVS^WWVW#V ^FVwvv^v-vr^vvvN^vvvvvvvvvvvvjVb^vvs^^vs/vvvvrwíVFwvvvwrwv^ Evrópuráðið eg hafi fengið einhverjum náunga í lestinni umslagið. Eg gæti meira að segja logið upp einhverju nafni. En von bráðar munduð þér sannreyna að eg hefði sagt rangt frá. Og á meðan mundu Hússarnir finna umslagið. * — Hvers vegna eruð þér orðinn svona hjálpfús, allt í einu? sagði Schmidt. — Gæti það verið af því að yður langar ekki til að iáta Ottó yfirheyra yður? — Mig langar áreiðanlega ekki til þess, sagði eg. — Ekki undir þessum kringumstæðum. En eg hugsa samt að eg mundi ráða við hann ef þið leggið frá ykkur skammbyssurnar. — Láið þér mig tukta hann til, yður hágöfgi, sagði Ottó. Nú var glottið horfið af honum. Eg leit á klukkuna. — Lestin hefir staðið á Keleti-stöðinni í hálftíma. Eða vel það. Ef Rússarnir hafa ekki fundið umslagið, þá finna þvottakonurnar það vafalaust. Schmidt gekk inn fyrir skrifborðið og horfði á myndina af Hitler — „der Fuhrer“. — Eg hefi sagt yður hundrað sinnum, að mér stendur alveg á sama um hvað þér hafið fyrir stafni, sagði eg. — Og ungfrú Torres líka. Þér vitið hvers vegna eg kom til Uhgverjalands og hvers vegna hún er hérna. Eg verð að hefjast handa um leitina að bróður mínum, og ungfrú Torres verður að komast aftur til Genéve. Okkur langar jafnlítið og yður að lenda í klónum á Rússum. Því fljótar sem þér fáið umslagið því fljótar losnum við. — Setjum svo að eg sendi yður á brautarstöðina með Ottó, sagði Schmidt. Hann mun hafa hugsað hátt. — Hvernig á eg að vita hvort þér eruð ekki að veiða okkur í gildru? — Hverskonar gildra ætti það að vera? sagði eg. — Þér vitið að bæði Rússar og Ungverjar eru að leita að okkur ungfrú Torres. Ætli eg ætti ekki mest á hættu? — Hermann ætti bráðum að fara að koma, sagði doktorinn. — Eg gæti sent hann og Ottó á stöðina. — Heillaráð! sagði eg. — Það er bara sá gallinn á að þeir vita ekkert hvar þeir eiga að leita. Hvað haldið þér að það taki lang- an tíma að leita í tólf vögnum? — Ef eg sendi þá báða með yður þá gætuð þér ekki sloppið, sagði Schmidt. — Og.þið gætuð verið komnir aftur eftir klukku- tíma. ! 1 — Ekki hingað, sagði eg. — Það kemur ekki til mála. Á sömu stundu og þér fáið umslagið yfirgefum við ungfrú Torres ykkur. Doktorinn barði skammbyssuskeftinu í borðið. — Það’ereg sem skipa fyrir hérna! — Þá það, sagði eg. Nú var um að gera að láta ekki leikinn falla niður. — Eins og þér viljið. Eg lyfti hendinni og leit á klukkuna. — En þér farið illa með tímann. Doktorinn tók í eyrnasnepilinn. Svo sagði hann: — Gott og vel! En ef annaðhvort ykkar gabbar mig þá skýt eg ykkur bæðL Þegar við fórum hafði Ottó farið í fötin, sem Hermann hafði fært honum, Schmidt og bófamir tveir kvöddu mynd Hitlers nazista-kveðju og tautaði „Heil Hitler!“ um leið og þeir fóru út úr dyrunum. Eina vonin var að komast á burt úr þessu greni. Framh. af 5. siðu. ég m. a. lagði áherzlu á, að auð- vitað vissu íslendingar vel, að undirtektir Norðurlandaráðsins undir þetta velferðarmál íslend- inga, skiptu að þvi leyti engu máli, að örlög þess yrðu ráðiu annars staðar. Hið eina sem vér mæltumst til og þættumst eiga siðferðilegan rétt á, væri þess vegna samúðaryfirlýsing vina vorra og frænda. í nefnd þeirri sem um málið fjallaði, sat Hannibal Valdimars- son alþm., af liendi íslendinga, en auk þess mættum við Stein- grímur Steinþórsson, landbúnað- ar- og félagsmálaráðherra á fund um nefndarinnar. Skýrði Hanni- bal Valdimarsson málið ágæt- lega fyrir nefndarmönnum, en við Steingrímur Steinþórsson lögðum orð i belg eftir þvi sem ástæða þótti til. Var síðan kosin undirnefnd í málið. í þeirri nefnd kom fram breytingartillaga af hendi Svía. Tókum við hana til athugunar, feldum úr henni þriðja hlutann en ■ lýstum okkur siðan fylgjandi lienni. Voru um það sammála allir fulltrúar ís- lands í ráðinu, en þeir eru al- þingismennirnir Bernharð Stef- ánsson, Gísli Jónsson, Hannibal Valdimarsson, Jörundur Brynj- ólfsson og Sigurður Bjarnason, ásamt okkur Steingrími Stein- þórssyni. Var tillagan síðan sam- þykkt einróma, og er svohljóð andi: „Norðurlandaráði er full- ljóst, að það er hagsmunamál allra landa, sem stunda fisk- veiðar við strendur íslands, og íslendingum lífsnauðsyn, að gerðar séu ráðstafanir í þeim tilgangi að vernda fiski- stofninn á þessum slóðum, Að því leyti sem lögmæti þeirra ráðstafana, sem þegar hafa verið gerðar, er deilu- mál milli íslands og annars ríkis, er Norðurlandaráð ekki bært um að láta í ljós álit sitt. Réttur vettvangur til þess að komast að þjóðréttarlegri nið- urstöðu um ágreiningsefnin er Haagdómstóllinn, en ekki Norðurlandaráð eða Evrópu- ráðið. Norðurlandaráð ákveður að beina þessari ályktun sinni til stjórna þeirra landa, sem að- ild eiga að ráðinu.“ í þessari tillögu felst aðallega tvennt sem máli skiptir. Hið fyrra er að ráðstefnan lýs- ir yfir að aðgerðir til verndunar íslenzkum fiskimiðum sé mörg- um þjóðum nauðsyn en íslend- ingum lífsnauðsyn. Þeir sem þessa samþykkt gerðu, — en til- lagan var einróma samþykkt, — vissu allir hvaða ráðstafanir fs- lendingar eru búnir að gera og af lífsnauðsyn. - Kaupmanna hafnar stórblaðið Berlingske Tid- ende sagði einnig berum orðum, að ráðið liefði lýst samúð með aðgerðum þeim, sem íslendingar hefðu gert í landhelgismálinu. Þessi samþykkt er því íslending- um mikill siðferðilegur styrkur. í öðru lagi lýsir Norðurlanda- ráðið yfir því, að Evrópuráðið sé ekki réttur vettvangur til að á- kveða lögmæti aðgerða íslend- inga. Út af því tel ég rétt að vekja ahygli á, að enda þótt íslending- ar fagni því að eiga þess kost að ræða í Evrópuráðinu löndunar- bann brezkra útgerðarmanna og skýra málstað vorn, telja þeir að sjálfsögðu Evrópuráðið ekki rétt- an aðila til að dæma um lögmæti friðunarráðstafana vorra heldur Haagdómstólinn. Með samþykkt Nerðurlandaráðsins hefur m. a. það unnist, að Norðmenn, Danir og Svíar hafa skuldbundið sig til að fylgja þeirri skoðun íslend- inga. Á þessu stigi málsins sé ég ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð. En ég get eigi skilið svo við frásögn af atburðum sem skeðu á Osío-fundunum, að ég skýri ekki íslendingum frá því, að Norðmenn létu sér ekki nægja að fagna íslendingum með ein- stakri gestrisni, heldur sýndu þeir oss sem þangað komu sem umboðsmenn íslenzku þjóðarinn- ar, vináttu og ástúð, sem vér munum aldrei gleyma. Ríkisarfinn, forsætisráðherr- ann, rikissjórnin í heild, allir lögðust á eitt um að hylla ísland, og blöðín birtu daglega viðtöl við oss og öll án unóantekningar í sama anda vinátu og bræðralags. Er sízt ofmælt þótt sagt sé, að engir aðrir en Norðmenn liefðu fagnað íslendingum með svipuð- um hæti. Er vel að íslendingar séu þessa minnugir. Mér þykir ekki rétt að ræða að þessu sinni önnur mál er ég athugaði af hendi ríkisstjórnar- innar, en hef að sjálfsögðu gefið stjórninni skýrslu um þau. SKIPAUTG€R§ Ruusms vestur um land til ísafjarðar hinn 7. september. Vörumót- taka til Snæfellsneshafna, Flateyjar og Vestfjarðar í dag og árdegis á morgun. Far- miðar verða seldir á mánudag. HREINSIÐ Klóset- skálarnar með Sani Flush Hreinsar auðveld- lega og gefur þægilega lykt. Hreinsar einnig mjög vel hitavatnskassa. Heildsölubirgðir: Kristjánsson h.f. Sími 2800. Nýkomið: Ermablöð. Svört flauels- bönd. Plast-bandprjón- ar, allar stærðir. Libelle- hárspennur. — Hárspennur með plasthnúð. Mikið úrval af smávörum til fatasauma. H. Toft Skólavörðustíg 8. Sími 1035 Einu sinni var.... Þessar fréttir birti Vísir m. a- þ. 24. ágúst 1919. Markús Einansson, Laugavegi 44, selur eftir- taldar vörur: Tvisttau frá 1.25- 1.50 pr. m. Verkamannatau 2.25 pr. m. Léreft frá 1.75— 2.45 pr. m. o. m. fl. Ef buddan yðar gæti talað mundi hún ráð- leggja yður að verzla við mig. Fjallganga. Fjórir menn lögðu af stað héðan í gær, sjóveg upp á Kjal- arnes, og ætla að ganga á Esju í dag. Þessir menn eru: Ólafur próf. Lárusson, Stefán læknir- Jónsson, Ingvar Sigurðsson og. Baldvin Sveinsson. Svo höndulega tókst til í gær, er verið var að; skipa póstinum í land úr „fs- landi“ að einn póstpokinn féll útbyrðis og í sjóinn. Pokinn náðist þó aftur en viðbúið er að skemmst hafi það sem í honum var. Copr. líM. Kð[»r Rict Burrough*. Ine.- -Tm. Rta.TJ. OB. jDistr. by United Featúre Syndlcate, Inc.v C & SumugfU: - TARZAN 1637 - Þegar Gozu hafði rekið. upp öskur hlupu allir meimirnir í áttina til Tarzans. Þeir voru vopnaðir spjptum og hnifum og voru illilegir á svip. Til þess að verjast árás þeirra greip Tarzan kyndla af veggnum og fleygði þeim á þá. Logandi olían flæddi yfir óvinina- svo þeir ráku upp hræðileg öskur.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.