Vísir - 15.12.1954, Síða 12
VlSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjol-
fereyttasta. — Hringið I gíma IS60 ®g
gerist áskrifendur.
WM
>
Miðvikudaginn 15. desember 1954.
Þeir, sem geiast kaupendur VÍSIS eftir
mánaðar, fá blaðíð ékeypis til
nanaðamóta. — Sími 1660.
RÉmnafélagið gefur út tvær
rímur upp lír áramétuitt.
ItímEiakveðskap HaiigrÍBiis
PéfEirssenar yerll skli.
1 Aðalfundur Rímnafélgsins var
fealdinn í Landsbókasafni snnnu-
daginn 12. þ. m.
Forseti félagsins, Jörundur
Brynjólfsson, alþin., gaf skýrslu
ran starfsemi félagsins. Úr stjórn
inni gekk Gísli Gestsson, safn-
vörður og var í stað hans kos-
inn Arnór Guðmundsson, skrif-
stofustjóri.
Aðalstarf félagsins er útgáfa
rímna. Eru þegar komin út 5
bindi af rímum, og 1 eru þau
t?essi: ,
1. Sveins rímur Múkssonar
eftir Kolbein Grímsson Jökla-
Kkáld.
2. Persíus rímur eftir GuS-
snund Andrésson og Bellero-font-
Ssrimur, að likindum eftir sama
Btöfund.
3. Hyndlu rímur og Snækóngs-
EÍmur ásamt Kappakvæ'ði eftir
Steinunni Finnsdótur.
4. Hrólfs rímur Kraka eftir
Eirik prest Hallsson og Þorváld
Magnússon.
5. Ambáles rímur eftir Pál
Bjarnason.
í" prentun eru nú og væntan-
legar á markað rétt upp úr ára-
mótum:
6. Brávallarímur eftir Árna
Böðvarsson í útgáfu dr. Björns K.
Þórólfssonar og
7. Rímur af Flóres og Leó eftir
Bjarna Borgfirðingaskáld og sira
Hallgrím Pétursson i útgáfu
Finns Sigmundssonar, lands-
feókavarðar.
Á næsta áfi er og áformað að
gefa úf:
8. Króka-Refsrímur og Rímur
af Lykla-Pétri og Magellónu eft-
ir síra Hallgrím Pétursson.
Með þeim útgáfum hefur fé-
lagið gerí rímnakveðskap síra
Hallgrims skil. En sá kveðskap-
œr síra Haligrims hefur verið
naesta ókunnur mönnum. Mun
það gleðja alla Hallgrimsunn-
endur að eiga von á rímum hans
2 góðum útgáfum.
Vert er að benda fólki á að
éfgáfur Rímnafélagsins eru al-
þýðlegar með fróðlegum inn-
gangsgreinum og skýringum,
eins og þurfa þykir.
Nú hefúr félagið ákveðið að
Ijúka þessu verki og liefja útgáfu
á nýju Rimnasafni er taki yfir
allar óprentaðar rímur fram yf-
ir miðja 16. öld. Slík útgáfa er
aðkallandi nauðsynjaverk. Vænt-
ir félagið þess að geta lokið því
verki skjótlega og er áformað að
1. heftið komi út siðla næsta árs.
Þeir dr. Björn K. Þórólfsson og
Jakob Benediktsson munu koma
Rímnasafninu á laggirnar.
Nýir félagsmenn.
Ástæða er til að hvetja menn
til að ganga i Rímnafélagið. Það
hefur merku lilutverki að gegna.
Rímurnr eru ein yfirgripsmesta
bókmenntagrein þjóðarinnar, og
íslenzk bókmenntasaga verður
ekki rakin né rædd án þess að
viðunandi úrval íslenzkrar rímna
gerðar vcrði prentað. Þeir fjöl-
mörgu menn sem hafa áhuga á
íslenzkum fræðum ættu hið fyrsta
að ganga i félagið og eignast rit
þess frá upphafi. Rit Rímnafé-
lagsins verða verðmæt eign, en
útgjöldin eru engum tilfinnanleg
séu þau keypt jafnóðum.
Nýir félagar gefi sig fram yið
einhvern úr stjórn félagsins, en
þeir eru Jörundur Brynjólfsson,
alþm., Arnór Guðmundsson,
skrifstofustjóri Fiskifélagsins og
Ragnar Jónsson, hrl., Laugavegi
8. Einnig tekur Finnur Sigmunds
son, landsbókavörður við nýj-
um félögúm.
ARK býður hjálp
á flóðasvæðum.
Ameríski Rauði krossinn hef-
ur boðið aðstöðu vegna fióð-
anna í Bretlandi.
Var hjálpin boðin bæði Eng-
landi og írlandi, þar sem
margvíslegt tjón varð af flóð-
um, eins og fregnir hafa borið
með sér.
Miichir nóvember — en rokur.
Frosf mældíst t Reykjavík í 7 daga.
Nóycinbermánuður var mild-
œr og úrkomusamur.
f Reykjavík var meðalhit
3.7", en það er 1.3° meira en í
meðalári. Á Akureyri var hann
3.1° eða 3.6° hlýrra en í með-
ællagi. Fram í miðjan mánuð
voru frost tíð um allt land, en
yfirleitt voru þau væg. Síðari
ísluta mánaðarins var hlýtt um
allt land. f Reykjayík mseldist
ffrost 7 daga. Kaldast var að-
ffaranótt þ. 13'., -t-6.8°. Úrkomu
varð vart í Reykjavík 23 daga
xhánaðarins. Mest var úrkomah
aðfarahótt þ. 8., éh morgni þ.
8. mældust 22.6 rhm, Mjög úr-
ifehmusamt vai á suðaustúrlándi
síðari hluta mánaðarins. Jörð
var alhvít í Reykjavk dagána
10.—14., en annars festi þar
ekki snjó. Stormar voru all-
tðir í mánuðinum. Þ. 8. og 9.
fór mjög djúp lægð norður yfir
landið vestanvert og olli vestan
stormi um allt land. Víða vest-
anlands var rok (10 vindstig).
Þ. 14.—-15. var hvöss suðaust-
læg átt um vestanvert landið og
þ. 19. var sunnan hvassviðri um
allt land (8—11 vindstig). í
Reykjavík mældust alls 18
sólskinsstundir og er það 10
stundum skemur en meðaltal
20 ára. Aðeins 2 daga mánaðar-
ins, þ. 5. og þ. 13., skein sól
meira en 3 tíma.
f Vestur-Þýzkalandi róa ýmsir andstæðingar stjórnarinnar gegn því, að V.-Þjóðverjum verði
leyft að vopnast. Myndin hér að ofan er af unglingum, er hljóluðu um borg eina í Bæjaralandi,
til að vinna gegn samningum um þetta efni. Á einu spjaldinu stendur: „Eg kann vel við góðan
fatnað, en eg hefi óbeit á einkennisbúrángum.“
Hu kemir í S|és, hvab ofan
á verbur í V.-Þýzkalandi.
Umræðan um utanríkismálin og Par-
ísarsamningana befst i dag.
IVIendes-France fer fram á traust þingsins
n.k. mánudag.
Skátar fara m Miébæ
og Vesturbæ í kvofcl.
í kvöld fara skátar um Mið-
bæinn og Vesturbæinn til fjár-
söfnunar á vegum Vetrarhjálp-
arinnar.
í gærkvöldi höfðu borizt 335
beiðnir um hjálp og er það
nokkuð meira en undanfarin
ár. Var þá þegar farið að út-
hluta til fólks.
Vetrarhjálpin hefur látið þess
getið við blaðið, að engir söfn-
unarlistar hafi verið eða verði
sendir til stofnana og fyrir-
tækja, þar sem það hefur leitt
í ljós, að það samrýmist ekki,
að skátarnir óski eftir gjöfum
frá sama fólki, sem búið hefði
verið að safna inn hjá áður.
Mun fólk, ef að líkum lætur,
bregðast vel við, þegar skátana
ber að dyrum, og láta eitthvað
af hendi rakna. Skátarnir eru
beðnir að mæta í kvöld kl. 7,30
í skrifstofu Vetrarhjálparinnar
í Thorvaldsensstræti 6.
Hijótnleikar á
veffum SVFI.
Hljómsveit bandaríska flug-
hersins hér ætlar að halda
nokkra hljómleika í nágrenni
Reykjavíkur til ágóða fyrir
slysavarnastarfsemina í Iand-
inu.
Flugsveit varnarliðsins og
þeim, sem hljómsveitinni
stjórna, er það mikið ánægju-
efni að styðja SVFÍ í mann-
úðarstarfi sínu með því að
stuðla að fjáröflun til þess.
Áður hefur þessi sama hljóm-
sveit haldið nokkra, mjög vel
heppnaða hljómleika hér í
bænum til ágóða fyrir barna-
spítalasjóð Hringsins.
Stjórnandi hljómsveitarinn-
ar 'er Patrick F. Veltre undir-
foringi, en einsöngvarar þeir
John Peck jr. og Philip Celia,
en einleikari á básúnu Neill
Humfeld flugmaður.
Fyrstu hljómleikarnir á
vegum SVFÍ verða á Akranesi
í Bíóhöllinni n.k. sunnudag kl.
4.30 éíðdegis. Eftir áramótin
verða híjómleikar á Selfossi, í
Keflavík, Hafnarfirði og víðar.
Einkaskeyti frá AP.
Bonn í morgun.
Umræða hefst í dag í fulltrúa-
deild vestur-þýzka sambndsþings
ins og flytur Adenauer kanzlari
aðlræðuna og gerir grein fyrir
afstöðu sinni og stjórnarinnar til
Parísarsamninganna og Saar-
málsins.
Umræðunnar hefur verið beð-
ið með mikilli óþreyju um allt
Vestur-Þýzkaland og úti um
heim, þvi að undir úrslitunum í
atkvæðagreiðslum, sem fram fara
eru Parísarsamningarnir komn-
ir og Saársamkomulagið. Að um-
ræðunni lokinni verður Ijóst
hvort Adenauei' tekst að koma
fram þessum málum, sem eru hin
mikilvægustu fyrir allt samstarf
og samtök lýðræðisþjóðanna.
Það er því engin furða, þótt á-
liuginn sé almennur, enda hafa
allar útvarpsstöðvar landsins
vprið teknar í notkun til útvarps
og endurútvarps og sjónvarpið
verðað einnig einnig frá umræð-
unum.
Alment er búizt við, að Aden-
auer koini þvi fram, að Vestur-
Þýzkaland endurhervæðist á
grundvelli Parísarsamninganna,
GM veir stórfé
til stækkunnar.
Detroit (USIS). — General
Motors munu verja nærri 200
millj. dollara til stækkunar á
verksmiðjum sínum víða um
lönd árin 1955—56.
Fyrirtækið á vei'ksmiðjur í
fjórum Evrópulöndurrí, Frakk-
landi, Svrþjóð, Danmörku og
Englandi, og hefur verið ákveð-
ið að verja samtals 190 millj.
dollai'a (meira en þrerxi
milljörðum kr.) til stækkunar
á verksmiðjum þar.
en vafasamara er unr Saarsam—
komulagið.
f París hefst orra-
hríðin á mánudag.
í fulltrúadeild franska þjóð-
þingsins hefst bardaginn um
Parísarsamningana mánudag
næstkomandi og' er búizt við af-
ar heitum limræðum. Um úrslit
þar eru spár einnig þær, að það
hafist fram, að Parisarsamning-
arnir verði fullgiltir, en að or-
ustan verði liörð. Stjórnin sam-
þykkti á fundi sínum í gær, ð
heimila Mendes-France að kréfj—
ast traustsyfirlýsingar við um—
ræðuna.
Ráðherrafundur
Nato á föstudag.
Athyglin iim héim allan bein- -
ist einnig að ráðherrafundi Nato,
sem hefst í París á föstudag.
Dulles utanrikisráðherra er nú
á leið til Parísai* og ráðherrar
ýmissa N.A.-landa. Dulles sagði
við burtförina, að eins og jafnan...
fyri' myndi starfað á þeim
grundvelli, að hér væri um varn-
arsamtök að ræða.
Hann kvað þátttökuþjóðirnar
hafa fullan skilning, á nauðsyn
þess, að hver um sig og þær all-
ar sameiginlega hefðu sem öflug-
astar varnir, en þær liefðu aldr-
ei haft og hefðu ekki nein árás-
aráform í huga.
© 6000 manns urðu að yfir-
gefa heimili sín í Dublin og
grennd vegna flóðanna ný-
skeð og ástandið enn mjög
slæmt. Shannonáin flæddi
yfir bakka sína og alls imi
70 ferkílómetra lands.
© 5 menn úr Bræðralagi Mo-
hameðstrúarmanna voru í
gær dæmdir til lífláts í Kairo.
Fjórir að auki voru dæmdir í
ævilangt fangelsi.