Vísir - 08.12.1955, Blaðsíða 4

Vísir - 08.12.1955, Blaðsíða 4
VÍSIR Fimmtudaginn 8. desembei- 1955, » rr 'G • • sr og Tíbet li merk Það hefir sannast nú sem áð-! ur, að Bókfellsútgáfan er fund-1 vís á góðar bækur. Nýlega er komin á markaðinn frá forlag- inu „Sjö ár í Tíbet“ eftir Hein- rich Harrer, þýdd af Hersteini Pálssyni. Bók þessa tel eg hiklaust ■ bezta bóka þeirra^ sem ritaðar hafa verið um Tíbet — þak ver- allar — og er Sven Hedin þar, þar ekki undanskilinn. Enginn Himalaja-fari hefir öðlast þá þekkingu og skilning á Tíbet sem Harrer, eða þá lært mál fjallabúa sem hann. Þær dyr, sem öllum voru lokaðar, hafa verið opnaðar fyrir fjallamanni þessum, sem dvaldi þar í sjö ár sem gestur tíbetönsku stjórn- arinnar og Dalai Lama í hinni fögru borg Lhasa, að nokru leyti kennari Guð-konungsins unga. Hin mikla og einlæga samúð höfundar með þjóðinni, og tál- laus frásögn mikilla örlaga, veldur því að enginn, sem les bókina, mun gleyma henni. Lífsferill höfundarins er svo ævintýralegur að furðu sætir. Ungur að aldri var hann í fremstu röð íþrótta- og fjcdl- göngumanna Tyrols. Heims- frægð hlaut hann 1938, er hann, ásámt félögum sínum, kleif norðurhlið Eiger-fjallsins í Svisslandi fyrsta sinn. Um a® þessa mestu og hættulegustu fjallgöngu Alpanna ritaði eg frásögn í Sunnudagsblaði „Vís- is“ 25. sept. 1938. (En eg var þá staddur á Eiger-skála með félögum við fjallgöngu). Fjórt-I án manns höfðu látið lífið á. tveim árum í viðureigninni umj tindinn, og margir hlotið alvar-1 leg meiðsli, kal og beinbrot. í Fjallganga þeirra félaga stóð íj þrjá daga, og var ógerningm' að snúa við eftir fyrsta daginn sökum þess að grjót og íshrun lokaði leiðinni. Upp komust þeir kapparnir, með einn særð- an félaga, en þeir voru allir stórskaddaðir og kalnir. í stuttu máli þétta afrek varð upphaf hins mikla ævintýralífs Harrars. Þegar hann ári síðar var valínn til að undirbúa leið- angur fjallamanna Alþanna til Himalaja, þá var það ósk og von okkar aðdáenda hans og vina, að gifta mundi fylgja sporum hans, sem áður. Nauga-Parbat, þriðji eða fjórði hæsti tindur Himalaja hafði krafist mikilla mannfóma. Sjö félagar höfðu látið lífið og margir þrautreyndir fylgdar- og burðarmenn þarlenlir. Heimsstyrjöldin síðari batt énda á allar þær framkvæmdir. H. Harrer og félagar hans voru fangar Englendinga. Síðar struku fjórir þeirra úr fanga- búðum og voru „týndir“ um sex ára skeið. Frásögnin um hinn ævintýra- lega flótta þeirra félaga um 1000 kílómetra auðnir fjallanná frá Indlandi til Tíbet, er svo lit- rík og heillandi að af ber. Með 45 kílóa bagga á baki klifu þeir fjöll og hamra. Stundum hafa þeir aflóga jakuka og horaðan hund að ferðafélaga. Eymd þeirra og larfar vérnda þá fyrir ræningjum og öðru illþýði. Jafnvel „Bönpo“ (erindrekum) stjórnarinnar í. Tíbet finnst varla ómaksins vert að líta á þá. og við eigum að venjast um Himalajafara, og leiðangra stórþjóðanna, sem ferðast með úrvals útbúnað og klyfjaða uxa- kerrur af skíru silfri. Á ferð þessari koma þeir fé- lagar til staða, þar sem enginn Evrópumaður hefur áður stigið fæti. Þeir gera margar stór- merkar athuganir um kortlagn- ingu og nátturuundur. Komast yfir fjallaskörð, sem Sven He- din sneri frá o. fL | f" Tel eg víst, að enginn nema þaulreyndur fjallamaður hefði lifað af þær þráúitír, sem urðU hlutskipti þeirra félaga. Klæð- litlir og stundum matarlausir ösluðu þeir um fentar slóðir í 20—30 stiga frosti. Fóru yfir hæsta skarð Transhimalaja (um 20 þús. ensk fet) með þungar byrðar skólitlir og hungraðir. Gleði þeirra við að sjá hin gullnu þök Potalahallarinnar var ekki óblandin, því þeir voru flóttamenn í forboðnu landi. Þá sem oftar var hamingjan með þeim, og gestrisni Tíbetinga var ósvikin. áinstæðir eru kafl- arnir um veru þeirra félaga í Lhasa og kynni Harrers af Dalai-Lama — guð-konungin- um — og fjölskyldu hans, ög! frásagnir af þjóðháttum og trú landsmanna. Þar fáum við svör við ýmsu því torræðasta í lífi fjallabúa. Aldagamalli menn- j ingu sem þróast í skjóli hæstu fjalla veraldar. Að öllu athuguðú þá hefi eg varla lesið skemmtilegri og fróðlegri bók. Bíð eg þess með óþreyju, að Aufschnaiter, félagi Harrers, komi heim frá Tíbet óg segi frá því hvemig Tibet- ingum vegnar í samskiptum við. Kínverja, er nú hafa hernumið landið. Vafalaust á Tíbet eftir að koma við sögu síðár meir. Seigla og ódrepandi menning þessarar þjóðar er dæmalaus. Hvorki innrásir né kúgun hefir getað drepið þessa dugmiklu þjóð, sem lifað hefir menningarlífi við hin hörðustu skilyrði. Bókin „Sjö ár í Tíbet“ bregð- ur skæru Ijósi yfir lífi á „Þaki veraldar". Eg ráðlegg yður að lésa hana. Guðmundur Einarsson. frá Miðdal. KALPHOLLIISI er miðstöð verðbréfaskipt- anna. — Sími 1710. i-eiðrétting. í bókaríregn í Vísi þ. 6. þ. mán. .eftir J. um ævisögti Tryggva Gunnarssonar, stendur þessi klausa: „Landsbanki tslands hefir átt frumkvæðið að því, að ævi- saga Tryggva var rituð, og hef- ir bankinn þar sýnt minningui hins fyrsta stjórnanda síns verulega ræktarsemi." Ekki veit eg hvar þessi villá er upp runnin, en villa er það. Tryggvi Gunnarsson var ekki fyrsti stjórnandi bankans. Fyrsti bankastjóri Landsbank- ans var Lárus Sveinbjörnsson, síðár dómstjóri. Landsbankinn! tók til stai'fa árið 1886 og várcS L. S. þá bankastjóri. Þettst er gömlum Reykvíkingum sva! kunnugt, að ekki þarf neinna heimilda um það að leitad Tryggvi Gunnarsson varð síðar; bankastjóri Landsbankans. Tóki hann við stöðunni 1. maí 1892. Með þökk fyrir birtinguna. , Gamall Reykvíkingur. APMAKHOL MAURICt »URTÖIC draheimur OÝRANNA .... Heildarsaga þjóðarhmar frá öndverðu til 1918. BÓKAÚTÖÁE4 MENNINGARSJÓÐS . OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS býðúr öllum landsmönnum góðár bækur við vægu verði. 'Á' Allar félagsbækurnar eru komnar út: 5 bækur fyrir 60 króna árgjald. Ár Átta aukafélagsbækur, allar -hentugar til gjafa. -yk Munurinn á félagsverði og lausasöluverði'þessara bóka nemur nær tvöföldu félagsgjaldinu. Ár Gerizt félagsmenn, og iiotið yður þessi einstæ'iu hlunnindi. ★ Veljið aukafélagsbækur félags yðar til jólagjafa. ★ Munið að ekkert bókaútgáfufélag býður yður betri kjör. Baráttusaga brautryðjandans. ÍSLENZKAR DULSAGNIR, 2. bindi. Fróðleg bók um mikilvægt málefni. MYNDIR FRÁ REYKJAVÍK. Falleg og ódýr bók til að áenda vinum og viðskipt-amönnuoa innanlands og utan. ! CU0MÚHndá fViMANN' KENNSLU&ðk ! BOKBAND! OG SMÍDUM ' ' BókAÚtGÁiA Fjölbreytt froðleikur frá fyrri tímum. HeiIIandi bók fyrir unga sem aldna. Bók um öndvégishöf unda allra tíma. sig að eiga. árið 1935.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.