Vísir - 07.02.1956, Blaðsíða 4

Vísir - 07.02.1956, Blaðsíða 4
» VÍSIR Þriðjudaginn 7. febrúar 1956. WXSXXL i q P aærrar ' i Ritstjóri: Hérsteinii Pálsson. j j|i Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstófur: Ingólfsstræti 3. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1666 (íímm linur) Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR HJ1. Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. Fargjold strætisvagnanna. Það hefur lengi verið á döfinni að hækka verð á farmiðum með strætisvögnum Reykjavíkur, og þetta er nú komið til framkvæmda, eins og menn hafa séð af auglýsingum fyrirtæk- isins þar að lútandi. Eru nokkrir mánuðir, síðan hækkuninni var fyrst hreyft í bæjarstjórn, en ekki fékkst þá samþykkt annars aðila fyrir hækkunirmi, svo að ekki hefur orðið af henni fyrr en nú. Var það þó löngu fyrirsjáanlegt, að nauð- synlegt mundi að hækka fargjöldin, þar sem kostnaður allur hafði aukizt hröðum skrefum, og ýmislegt benti til þess, að hann mundi enh eiga eftir að hækka til muna, eins og nú er að koma á daginn. . . Rekstur strætisvagna er orðinn svo mikilvægur liður í samgöngum bæjarins, að fyrirtækið verður að hafa nægt fé til þess að ekki verði um neina truflun á rekstrinum að ræða. Það verður að vera hægt að endumýja vagnakostinn eftir þörfum, og það er ekki nema eðlilegt að slit sé mikið á slíkum farar- tækjum, sém eru í notkun 17 tíma úr sólarhring nær allt árið, og oft í erfiðri færð. Þá hefur það og verið baggi á fyrirtækinu, áð það hefur haft nokkra benzínvagna, sem eru mjög þurftar- frekii- á eldsnéyti, en væntanléga vérður hægt að taka þá úr umferð á 'þessu ári, þar sem ætlunin t.-r að kaupa fjölmarga nýja dieselvagna, og yrði þá allur vagnak’ostur ' fyrirtækisins með slíkum hreyflum, sem eru mjög sparneytir. Rcykjavík þenst nú rnjög út, og má segja, að ný hverfi rísi á ár-i hverju. Mörgum finnst óhyggilega að farið, þar sem ekki er reynt að spara allskonar útgjöld með því að reisa stór isambýlishús én ekki skal farið út í bollaleggingar um það að Binni. Hitt liggur í augum uppi, að þeim mun meira sem bær- inn er þaninn í allar áttir, þeim mun meiri kröfur eru gerðar til samgangna ög þeirra tækja, sem notúð eru í þeim tilgangi í þágu almennings. Strætisvagnarnir verða þess vegna að hafa skilyrði til þes? að vaxa með bænum, og færa út samgöngunet sitt. eftir því sem þarfir fjölgandi bæjarbúa gera kröfu til. Það liggur í augum uppi, að strætisvögnunum ér fyrir beztu að geta unnið sem mest fyrir eigið fé, það er að segja það fé, serri inn kemur fyrir flutning fólks um hin ýmsu hverfi bæj- arihs. Fyrirtækið á ekki að þurfa að leita til bæjarsjóðs, verða baggi á honum, enda þótt það sé kannske eðlilegt, að bærinn greiði að einhverju Ieyti þá nýju vagna, sem keyptir eru ár- Jega til að endurnýja vagnakostinn. En bærinn á að minnsta kosti ekki að þurfa að standa straum af daglegum útgjöldum fyrirtækisins, eða greiða með þeim farþegum, er nota vagnana Þeim, sem nota stræíisvagnana eitthváð að ráði, mun að sjálf- sögðu þykja illt, að fargjöldin skuli vera hækkuð, en það verður vitanlega ekki hjá því komizt að greiða hinn aukna kostnað við rekstur þeirra, ef hann á ekki að dragast saman, en þess rnunu menn varla óska, endá væri það engan veginn í. samræmi við hagsmuni bæjarbúa. Menn munu því almennt sætta sig við þetta í trausti þess, að þjónusta strætisvagnanna fari enn .batnandi eíns og hún hefur gert síðustu árin. 1« altl r rt-Loi'ttir hjá I .H. Hefur verift symhtr nær 50 simNim á vegum LR. í 40 ár. f> inn ,vt/ tt tiur hviiltl í sttínitttjtt Gunnars fí. Mtnnsen. Annað kvöld, miðvikudag 8. febrúar, frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur Galdra-Loft, sjón- leik Jóhanns Sigurjónssonar, í nýrri sviðsetningu Gunnars R- Hansens leikstjóra. Galdra-Loftur er fyrsta leik- rit eftir Jóhann Sigurjónsson, sem Gunnar R. Hansen svið- setur hér á landi, en hann er manna kunnugastur öllum verk um skáldsins og hefur m. a. sviðsett „Bóndann á Hrauni“ í Danmörku. Fyrri sýningar L. R. á Galdra-Lofti. Leikfélag Reykjavíkur sýndi Galdra-Loft í fyrsta skipti á jólum 1914. Það var þriðja leik- rit Jóhanns Sigurjónssonar, sem félagið. sýndi, og þótti mikill leiklistarlegur viðburður. Var leikritið sýnt 15 sinnum og að auki 5 sinnum haustið 1916 með sömu leikendum og var það mikil aðsókn þar sem íbúatala bæjarins var aðeins um 14 þús. Þá léku þau Jens Waage og Stefanía Guðmundsdóttir aðal- hlutverkin, Loft og Steinunni. Emilía Indriðadóttir lék Dísu, Andrés Björnsson ráðsmanninn og Árni Eiríksson lék Ólaf. Þá má nefna að Friðfinnur Guð- jónsson lék blinda ölmusumann inn og Anna Borg litlu dóttur- dóttuf hans. Hefur félagið sýnt Galdra-Loft 47 sinnum áður en sýningar hefjast að þessu sinni. 60 ára starfsferill og Færeyjaför. Á næsta ári verður L. R. 60 ára og nálgast þannig merki- leg tímamót í sögu félagsins. —- S.l. sumai- konf til tals, að fé- lagið færi leikför til Færeyja og hefði þá að sjálfsögðu ís- lenzkt leikrit í förinni. Nokkur undirbúningur hefur farið fram og mikill áhugi fyrir málinu á báða bóga, en vitanlega ekkert ráðið af endanlega um förina fyrr en séð er, hvernig tekst um sýningar hér og næg trygging fengin á fjárhagshliðinni. •/ Leikendur í Galdra-Lofti. Aðalhlutverkin í Galdra- Lofti, Loft og Steinunni, leika þau Gísli Halldórsson og Erna Sigurleifsdóttir. Föður Lofts, ráðsmanninn leikur Brynjólfur Jóhannesson, Árni Tryggvason leikur blinda ölmusumanninn og Guðjón Einarsson biskupinn á Hólum. Litlu dóttur-dóttur blinda ölmusumannsins Ieikur Kristín Waage, sonardóttir Jens Waage, en biskupsfrúna leikur Edda Kvaran. Dísu óg Ólaf leika þau Helga Bachmann og Knútur Magnússon, en aðrir leikendur eru: Einar Ingi Sig- urðsson, Valdimar Lárusson, Auróra Halldórsdóttir, Stein- grímur Þórðarson, Björn Magn- ússon, Karl Sigurðsson og Bene- dikt Benediktsson. Leikstjóri er, sem áður segir, Gunnar R. Hansen, og hefur hann sert alla uppdrætti og fyr- irmyndir tjalda og búninga. Lciksýningar. Leikfélagið hefur nú sýnt fyrra viðfangsefni sitt á leikár- inu, Kjarnorku og kvenhylli, gamanleik Agnars Þórðarsonar, 31 sinni og hefur ekki orðið neitt lát á aðsókninni. Verður sýningum haldið áfram á gam- anleiknum, fyrst um sinn á fimmtudögum og laugardögum en Galdra-Loftur verður svo sýndur á venjulegum sýningar- dögum félagsins, miðvikudög- um og sunnudögum. WWWWWMWVWWWMW MUNIÐ PAKKAN* M£0 grænu MÍRKJUNUM Jökull víðlesnastur meðal er- lendra vísimiamanna. Merkileg sýning. "D eykvíkinguin og öðrum gefst kostur á að sjá nýstárlega sýn- ingu um þessar mundir í Listamannaskálanuni. Er þar 'brugðið upp myndum af þeirri þróun, sem orðið hefur á sviði kjarnorkuvísinda í Bandaríkjunum, og hversu víðtæk not maðúrinn hefur nú þegar. af þessum mikla þjónustuandá, kjarhanum. Þegar þess er gætf, aS það er aðeins rúniur áratugur, síðan mannkyhinu barst fyrsía yitneskjan um hina miklu orku, sem mamiinum hefur tekízt að leysa úr læðingi með hugviti sínu, eru þær framfarir ævintýralegai-, sem orðið hafa á þessu stutta tímabili; Þó mun óháett að fullyrða, að maðurinn sé aðeins' að þreifa sig áfram að þessu leyti enn, þetía sé aðeiiís lítil toyrjun stórferiglegs framfaratímabils. Vitanlega er það þó bundið því skilyrði, að maðurinn beiti þessari nýfundnu orku rétt, láti hana einungis verða mannkyní til gagns og blessunar, en ekki til að eyðileggja verðmæti og tortíma mannslífum. Sýnihg í Listamanriaskálanum er ekki sízt girnileg til fróð- leiks fyrir þjóð, sem býr í erfiðu landi, því að möguleikar kjarnorkunnar á ýmsum sviðum ættu að geta náð hingað, er stundir líða. Jökull, ársrit Jöklarann- sóknafélags íslands, er nýkom- inn út og er það fimmti árgang- ur hans. Jökull mun hafa náð meiri útbreiðslu en nokkurt annað íslenzkt tímarit eða ársrit og er lesið af jöklarannsóknamönnum víðsvegar um heim. Er enda mikill hluti af efninu jafnan skrifaður á einhverri höfuð- .tungu Norðurálfu, ýmist enksu, frönsku eða þýzku. Og í þeim tilfellum að greinar séu á ís- lenzku fylgir þeim jafnan út- dráttur á einhverju erlendu tungumáli. Fyrír'bragðið hefir JökuJl mikla þýðingu fyrir er- lenda vísindamenry sem .vita vilja eitthvað um jöklamæl- ingai' og jöklarannsóknir hér á íandi. Efni Jökuls að. þessu sinui er m. a. On the Flow o£ See- Sheets and Glacier, eftir Gunn- ar BÖðvarsson, Úbersicht úber die Eisrandlagen in Kringils árrani von 1890—1955 eftir I M. Todtmann, Contribution la Connaissance du Vatnajök ull, eftir Albert Bauer, Vatna jökulsför 1955, eftir Jón Ey þórsson, Mælingaleiðangurinn Vatnajökli vorið 1955, eftir Si; Þórarinsson, Skeiðarárhlau 1954, eftir Sigurjón Rist Skafi árhlaup í sept. 1955, eftir í Rist og S. Þórarinsson, Jökla mælingar: 1955 eftir J. Ey Vathajökulsför í sept.1955 efti J. Ey„ Breiðárlón, eftir I Björnsson, Rannsókn á Kötl og Kötluhlaupi 1955, eftir S Þórarinsson og’ S. Rist, Vatns dalshlaup, eft’ir S. Gíslasor Report on Sea off the Icelandi Coasts in Öct 1954 til septbi 1955t eftir J. Ey o. s. frv. Mjög er til ritsins vandað, hvívetna, prentað á mjög gþð an pappír og með fjölda Ijós mynda, upþdrátta og línurití Ritstjóri er Jón Eyþórsson. Það er nú orðið alltítt, að efnt sé til fjölbreyttra kvöldskemmt- ana hér í bæ, svonefndra kabar- ettsýninga, þar sem margir, oft- ast innlendir, listamenn koma fram og kannske einnig einliverj ir þekktir erlendir mcð. Njóta þcssar skemmtanir mikilla vinsælda nú, eihkum meðal yngra fólks, því að cfni til yfirgnæfir þár jasstónlist og dægurlagasöng- ur, eða þá skemintiatriði, sem teljast til léttmetis til aðgreining- ar frá klassiskum söng eðamúsik- skemmtunum. Hvorl það er rétt að ncfna jassinn og dægurlaga- sönginn ævinlega léttmefi á sviði tónlistar læt ég aðra mcnn dæma um, en þegar kabarettskemmtan- ir cru vel skipulagðar, geta þær verið mjög góð skemmtun, sem vel er þess virði að evða nokkr- um aurum og thna til þess að sjá. i Þorrakabarettinn. Skammdegisskemmtun sú, sem haldin var í Austurbæjarbíói, er nefnd Þorrakabarettinn, því eitt- hvað verður skemmtunin að heita. Og svo fer hún fram á þorranum svo réttncfni er það að þvi leyti. en svo hætta öll líkindin. Það er vingjarníegur og þægilegur blær yfir þessari skemmtun frá fyrsta atriði til þess seinasta. Óþving- aður söngur og leikur ágætra ínnlendra og erlendra listamanna á þessit sviði. Og rétt er að láta fólk njóta sannmælis, og í þessu efni frekar ánægju en hitt, því kabarcttinn, og reyndar sumar fyrri kabarettsýningar, sem liér liafa sézt, standa fylliíega á sporði svipuðum sýningum á er- lendum vettvangi. Svo tint sé til það, scm skvggði á, þá var það fyrst að halda verður slika sýn- ingu í kvikmyndahúsi, þar sem kvikmyndasýningar hafa veriS uni kvöldið, en skemmtunin er kl. 11,30 að kvöldi. Gólf eru þvi óhrein og ósópuð. Þetta er smá- atriði, sem crfitt er kannske að gcra við, en rétt að minnast á, ef hægt væri að ráða bót á. Hraðinn niikið atriði. í flestum kabarettsýningum er hraðinn mikið atriði, og má aldr- ei líða langt á milli atriða, þau verða að reka hvert annað og niðurröðun að vera lieppilega skipulögð. í þessu efni skorti lít- ið á lijá Þorrakabarettinum, en ítölsku melódíurnar finnst mér að hefðu átt að vera fyrst, en ekki skotið inn á milli, eins og var í þetta sinn. Heildaráferð kabar- ettsins var góð og voru hlé öll mjög stutt eða þvi nær engin. Kynnirinn, Haukur Mortliens, hefði mátt hafa samið betur það sem liann flutti með atriðunum, en það má líka telja til smærri. sýndanna. Og meðlimirnir i hinni ágætu hljómsveit Baldurs Kristj- ánssonar hefðu gjarnan mátt brosa stöku sinnum, þvi enda þótt* Ieikur þeirra væri óaðfinnanleg- ur og ckkert útfararsnið á hon- um, var eins og hljómlistarmönn- unum sjálfum leiddist, og munií þá hafa verið þeir einu, sem það gerðu á skemmtúninni. Var ekki saknaði En bezta lofið um þessa kvöld- skemmtun mun þó felast i þvi, að þótt auglýst spænsk dansmær Iieíði ekki lcomið fram, vegna þess að flugvélinni, er átti að flytja hana liingað til lands, seink aði, var ékki á áhorfendum að í’inna að þeir’ söknuðú hennar. Eu þeir, sem koma á síðari lcvöld- skemmtanir þessa kabaíetts fá það atriði auk allra liinna, sem vöktu ósvikinn fögnuð á sunnu* dagskvöldið. — kr.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.