Vísir - 14.07.1956, Blaðsíða 3

Vísir - 14.07.1956, Blaðsíða 3
VÍSIR Laugardaginn 14. júlí 1956. Van Johnson leikur í mynd- inni ..Keily and Me“ (KeSlý og eg) frá Universal kvikmynda- félaginu. Þetta er ævintýri sem Ever- ett Freeman hefur samið. Van Johnson leikur þarna söngvara og dansara^ sem ekkert verður ágengt á braut sinni, fyrr en liann af tilviljun tekur að koma fram með hundinum Kelly. Hann verður frægur og lifir góðu lífi, þar til hann skyndi- lega gerir sér það ljóst, að það er hundurinn, sem er hin raun- verulega stjarna. Þá er það af- brýðisemin, sem skilur þá. 5". Þarna fékk hánn nýja skó, litli snáð- inn, og það ber ekki á öðru én að hánn sé bærilega ánægður með bá! Myndin hér að ofan var tekin undir vetur árið 1946, 'þegar eymdin og harðréttið var hvað mest í Evrópu af völdum styrjald- arinnar. Rauði kross Bandaríkjanna hóf ])á víðíæka söfnun á matvælum og fatn- aði handa löndum þeim i Evrópu, sem verst höfðu orðið úti, og meðal annars var fatnaðarsending send til munaðar- leysingjahælis í Vínarborg, þar sem jþessi litli drengur var meðal vistmanna. Enginn vafi er á því, að hann kann að meta gjöfina. ••StáSNSSxl j' ~ ' .« Harðýðgi Austurlandabúa er við- brugðið, og frá Kína hafa árum saman borizt hroðalegar sögur um meðferð stjórnarvalda á kommúnistum á and- stæðingum sínum, bæði innlendum og útlendum. Ilafa embættismenn komm- linista stært sig af að hafa komið millj- ónum manna fyrir kattarnef, þar sem þeir voru „andbyltingarsinnar". Myncl- in hér sýnir, livernig réttlætinu er úí- deilt þar eystra. Bóndi nokur liefur neitað að láta af hendi jörð sína, „taka þátt í skiptingu jarðnæðis“, svo að hann er tekinn, dæmdur og dóminum full- nægt begar í stað öðrum til aðvörunar. smmsmsmrm) sa Libya var fyrsta landið, sem öðlaðist sjálfsforæði fyrir tilstilli Sameiniiðu þjóðanna. Árið 1950 vai’ efnt til kosn- inga í landinu, og fengu iandsmenn þá að kjósa í fyrsta sinn. Myndin er tekin þegar kosnir voru fulltrúar til þjóð- fundar, sem setti landinu stjórnarskrá, en 'þeir nutu aðstcðar fulltrúa Sam- einuðu þjóðanna við bað starf, enda flestir algerlega óvanir stjórnarstörf- um af öllu tagi. Libýa varð síðan opin- berlega frjálst og fullvalda ríki með blessun SÞ á aðfangadag jóla 1951. Konungur landsins er Arabahöfðingi, Idris I. Vinsælustu kyikmyndirnar. Tímaritið „Variety“ segir^ að eftirlaldar fimm kvikmyndir hafi gefið mestan arð fyrstu viku móvembermánaðar: „Cinerama Holiday“ — ferða- rnynd— (Independent); „Trial“ — Réttarhaldið — (Metro- Goldwyn-Mayer); „Gentle men Marry Brunettes“ — Heiðursmenn giftast dökk- hærðum — (United Artists); „Rebel Without Cause“ — Uppreistarmaður án hugsjónar -— (Warner Brothers); „Desper- ate Hours“ — Örlagastundir — (Paramount). iii ara Ný, spemandi Hítchcock-mynd. „Vandræðin með Harry“ jlieitir mynd frá Paramountfé- laginu, byggð á samnefndri skáhUögu eftir Jack Trevor Story. Stjórnandi og framleiðandi er Alfred Hitchcock. Sýningar á myndinni hófust fyrir skömmu í New York og hefur hún hlotið góða dóma gagnrýnenda og á- horfenda. Blaðið New York Tribune segir; „Hitchcock skýtur skolleyrum við hinum venjulegu morðrnyndum. Allir leikendur hafa náð að túlka hina næstum því ósvífnu efnis- meðferð hans. Tvíræðar merk- in^afe,. gánga eins og rauður þráður gegnum verkið. Flest fólk mun hafa jafnmikla á- nægju af að sjá þessa gaman- mynd og Hichcock hefur auð- sjáanlega haft af að búa hana lil.“ Biaðið World Telegram & Sun segir að myndin „The Trouble with Harry“ sé „með skemmtileg'ustu myndum árs- ins“. Ðaily Mirror segir, að „allir snilldarhæfileikar Hitch- cocks njóti sín í þessari mynd“. Aðalhlutverkin eru leikin af Edmund Gwen, John Forsythe og Shirley MacLaine. Þetta er VistalVision litmjmd. — --------- Biana Dors, brezka leikkon- an, sem faeimsfrægð hefur hlot- ið fyrir líkamsfegurð sína, síður en s'V'o slaka leikhæfileika, á- gæta ka-upsýsluliæfileika, og hnittni i tilsvörum, er nú kom- in til Hollywood ásamt manni síinum, Dennis Elamilton, og hefur koma hennar heldur en ekki verið fréttaefni vestra. Diar.a Dors hefur stundum verið kölluð „Marilyn Monroe Bretlands“ og jafnvel Evrópu, og þykir því að minnsta kosti sambærileg Marylin að líkams- fegurð. en annars ólíkt meiri hæfileikum gædd. Ekki hefur það rýrt álit Bandhríkjamanna á henni, að hún hefur kaupsýsluvit gott og er ófeimin, að ræða um hlutina, eins og henni býr í brjósti. Og ekki hafði hún verið sólarhring vestra, er hún skýrði „Holly- wood hreykin af „fimm ára áætl un sinni", eins og' fréttaritarinn Christopher Lucas kemst að orði: „Eg héfi gert mér ákveðna, tímabundna áætlun. í fimm ár ætla eg mér að græða eins mik- ið fé og mér er framast unnt, og' það er það, sem eg aðhefst nú, m. ö. o. eg ætla mér að græða fé meðan eg er ung og get notið þess. Fimm ár — svo f jölskyldu- líf. þar sem eg get notið hins sanna, raunverulega lífs.“ Diana Dors er þegar með hæsflaunuðu „stjörnum“ Breta og hún hafði áður gefið í skyn, að hún mundi íhuga öll góð boð, sem henni kynnu að berast vestra, til þess að auka doilara- sjóð sinn_ segir Wren, og hann hefur þetta eftir henni: „Þegar allt kemur til alls eru fimm ár hæfilega áætlað „stjörnu“-skeið. Skeið sumra kann að vera 10 ár og miklar leikkonur eins og Joan Craw- ford og Barbara Stanwyck geta gert ráð fyrir frægðarferli æv- . ina á enda, en eg geri mér eng- ar vonir um að verða í þeim flokki.“ Myndir af Diönu Dors eru; birtar í öllum blöðum Banda- í’íkjanna og kvikmyndajarlarnir í Hoilywood hafa áreiðanlega áhuga fyrir fimm ára áætlun leikkonunnar. — Stærstu blöðin birtu fyrirsagnir af komu Diönu og kalla hana „brezka sprengi- efnið“, „keppinaut Ginu og Marylin“ og þar fram; eftir göt- unum. Við síðustu talningu reyndist tala kvikiuyndahúsa í Banda- ríkjunum vera rúmlega 20.009. Þar af eru rúmlega 5,000 úti- kvikmyndahús —• þ. e. þar sem fólk ekur inn á afmarkað svæ'ði og horfir á kvikmyndir úr bif- reiðum sínum — og um 15.000 venjuleg kvikmyndahús. Úti- kvikniyndahúsum í Bandaríkj- unum fer ört fjölgandi, og eru þau mjög vinsæl, sem og er ekki að furða, þar eð 48 milljón Ameríkumenn eiga bifreiðir — þ. e. að meðaltali ein bifreið á minna en tvær fjölskyldur. Cary Grant mun leika aðal- hlutverkið í Paramounlmynd. mni „Houseboat“. Hún er byggð á rómantískri g'amansögu eftir B. Winkle. Fjallar hún um ekkjumann, sem er að leita að móður fyrir börn sín. Leikstjóri verður Melville Shavelson, en stjórnandi verður Jack Pose. Þessi franska stúlka iieitir raunverulega Odile Eodin; en liún hefir tekið sér nafnið Sofia Lollobrigida, því að hún þykisí vera jafnvel vaxin og fögur og þær stöllur, Sofia Loren og Gina Lollobrigida. Hafa þær báðav mótmælt 'því opinberlega, að Odile noti nöfn þeirra. UFA er að íaka til starfa. Iívikmyndafélagið þýzka, UFA, fer nú að taka til starfa aftur. Það ætlar að koma sér upp stóru kivkmyndaveri í úthve.’fi því í Berlín, sem Marienfelde heitir. Hefir borgarstjórnin látið lóðina endurgjaldslaúst^ til þess að auka atvinnu í borginni. verta IHonroe. Marilyn Monroe hefur að sögn gert nýjan samning við Fox-félagið. Á meðan hún átti í þrefi við það félag, heppnaðist annarri leikkonu, Sheree North, að verða forrík, en hún líkist Marilyn mikið og' lék öll hlut- verk, sem Marilyn voru ætluð. Sheree þessi hafði áður um- sjón á bilastæðum í Hollywood og ætlaði með því móti að vinna Einhver kurteisasti maður í Hollywood — og jafnframt bezfc búin, er Adolph Menjou. Sést hann því miður ekki eins oft í myndum og áður, enda fær ast nú árin yfir hann. Nýlega spurði einn vina hans, hvort hann hefði ákveðið áletrun á legstein sinn. Menjou kvað já við. Þar á að standa: „Afsakið', að eg stend ekki upp.“ s.ér inn skilding til þgss að kosta dansnám sitt. Nú er hún orðia fræg leikkona. ft ir essu

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.