Vísir - 08.01.1957, Blaðsíða 1
Dswsen hv@rgi smeykur.
Stefnt vegna 20. þús. stpd. veð-
skuldar á skrauthýsi hans.
Cxcor-ge Dawson, scm kunnur
varö um allt Jlretland og hér á
landi. er Jiann á dögnm lönd-
unarbannsins ætlaði að gerast
fiskkóngur, og græða á sölu og
dreifingu á íslenzkum fiski í
Bretlandi, skýtur alltaf upp
kollinum í blöðum Brctlands,
án þess mjög langt líði á milli,
og þá oftast í sambandi við
einhverjar brösur eða mála-
ferli.
Nú stendur hann í stíma-
braki út af 20.000 stpd. veð-
skuld á sveitarsetri sínu, en það
er skrauthýsi mikið í Garden
Court, Oxshott, Surrey. Það er
byggingafélag, sem hefur höfð-
að málið, vegna vanskila. Mál-
ið verður tekið fyrir 18. jan.
Hvergi smcykur
hjörs í þrá.
En Dawson er bardagamaður
og „hvergi smeykur hjörs í
þrá“.
„Það er ekki víst, að eg verði
heima, þegar málið verður tek-
ið fyrir. Eg kann að verða að
sinna viðskiptum erlendis. Það
er meira um peninga utan Bret-
lands en innan sem stendur og
eg ætla mér að krækja í eitt-
hvað af þeim. Eg er enn tals-
vert loðinn um lófana og það
tekur langan tíma að koma mér
á kné. — Eg hefi ágæta máls-
vörn og tel, að mál þetta hafi
verið höfðað vegna misskiln-
íngs“
Olga léysir
frá skjóðunnL
Blaðamaður talaði við frú
Dawson, Olgu að nafni. Hún
kvaðst ekkert um þetta vita.
„Eg véit ekkert um viðskipti
Georgs. Hann lætur mig fá á-
kveðna upphæð mánaðarlega til
heimilisins og fjögurra barna
okkar, og það er erfitt að láta
það hrökkva til en hann er
mjög skilningsgóður, og eg hefi
aldrei þurft að biðja hann um
aur tvisvar."
Skarar fram úr
öllu í Hollywood.
Dawson keypti Garden
Court frá öðrum „selfmade"
milljónaeiganda. Hann lýsti
því, eftir kaupin við vini-sína,
sem skrautlegra húsi en fyrir-
fyndist í Hollywood. Auk aðal-
hússins, en framhlið þess er 45
metrai- er sérstakt hús fyrir
húsvörðinn og þjónustufólk. —-
í barnastofunni eru rafknúnir
Rolls Royce bílar og raforku-
knúnar enskar og bandarískar
járnbrautir— handa börnunum
til að leika sér að.
Svanir Bretadrottn-
ingar skotnir.
Meira en 100 af svönum
Bretadrottningar á Tempsá
voru skotnir um áramótin.
Ástæðan var sú að lítið olíu-
skip hafði sokkið undan Batter-
sea, og með næsta flóði barst
olíuna úr fiðrinu, en 100
svanir lentu í olíunni, og var
hægt að ná 200 þeirra og hreinsa
olíuna úr fiðrinum, en 100
höfðu gleypt svo mikla olíu, að
ekki var um annað að ræða en
að lóga þeim.
Sjómannaverkfall hófst í
Grindavík í nótt.
Útgeriarmenn hafa boftsð 2% hærri hluta-
skipti en eru í Vestmannaeyjum.
í sáttaumleitunum, sem fram
fóru milli útgerðarmanna og
sjómanna í Grindavík fyrir
helgina, náðist ekki samkomu-
!ag og hófst verkfall hjá sjó-
mönnum í nótt.
Ef samkomulag hefur ekki
náðst fyrir 14. janúar hefur
Verkalýðsfélag Grindavíkur
boðað til samúðarvinnustöðvun
ar með sjómönnum.
Grindavík er nú eini staður-
inn, þar sem kaupdeila milli
útgerðarmanna og sjómanna
stendur yfir. Á Akranesi og
Hornafirði þar sem hlutaskipta
samningum hafði einnig verið
sagt upp, náðust samningar
fljótt og róðrar eru að hefjast
frá báðum stöðum.
Að því er Jón Gíslason, út-
gerðarmaður í Grindavík, tjáði
menn boðið sjómönnum betri (
kjör, eða 2 prósent hærri hlut
en sjómenn hafa í Vestmanna-
evjum, en þar er hliðstæð út-
gerðaraðstaða við Grindavík.
Það voru útgerðarmenn, sem
-sögðu upp samningum, þar eð
þeir töldu sig ekki geta gert út
uppá gömlu samningana, sem
aðallega voru miðaðir við út-
gerð á litlum bátum.
„Það er ekki nokkur leið að ■
gera stóru bátana út upp á þessi
kjör, sem munu vera hærri en
nokkurs staðar þekkist,“ sagði
Jón.
Taldi Jón líklegt að samkomu
lag myndi samt nást áður en
langt um liði.
Frá Grindavík Aærða gerðir
út um 20 bátar.
Hsdfaleikabann I
í Neregi? i
Það er ekki óhugsandi, að j
bann verði lagt við iðkun 1
„hnei'aleika“ ■ Noregi, sagði i
Kari Evang, lieilsugaezlu- \
stjóri, á fundi nokki-um í
Osló i síðasta mánuði. Kvað
hann svo margar staðreynd-
ir fyrir hendi um hætturnar
af þessari „íbrótt“, að heil-
brigðisyfirvöldin gætu ekki
skellt skollaeyrunum við
þeim. Odd Lindahl, yfir-
læknir, tók einnig til máls
á fundinum og sagði, að
Iæknisskoðanir hefðu fært
sönnur á hað, að hnefaleilc-
ar sé skaðlegir heiisufari
manna, og þeir, sem legðu
stund á bá, hlytn varanlcgt
mein af þeim.
Leggja íslenzkir togarar
afia á land í N.-Shieids?
JitííÍBiu hreyft trívt*sp£s í
i^ishing JXtttrs.
Gina
a von a
ser í juli.
AHt, sem snertir kvikmynda-
stjornur, þykir mikil tíðindi
\úða um heitn.
Þess vegna var haldinn sér-
stakur blaðamannafundur ný-
iega í skrauthýsi einu fyrir ut-
an Róm. Tilgangurinn var að
tilkynna, að Gina Lollobrigida
ætti von á barni — um 20. júlí
— eftir sjö ára hjúskap. „La
Lollo* er gift júgóslavneskum
lækni, Milko Skofic að nafni.
Akurey fékk
18.781 pd.
Togarinn Akurey
frá Akranesi seldi í
raorgun í HuII 212 lest-
ir fyrir 18.761 stpd.
og er það sú langhæsta
aflasala íslenzkt togara
í Bretlandi s.I. 10 ár.
Fyrir 10 árum seldi,
samt Neptunus fyrir
meir en 19 þúsund
sterlingspund. en það
mun hafa verið meira
magn sen» hann seldi.
Fækkar í sveitum
Frakklands.
Þeitn sem í sveitum búa í
Frakklandi, fer ört fækkandi.
Fyrir 35 árum bjuggu næst-
um 4,3 milljónir manna í sveit-
um landsins, en eru aðeins lið-
lega 3 milljónir nú. Með sömu
fækkun áfram verða franskir
sveitamenn orðnir aðeins 2,6
milljónir árið 1971.
Blað’ð Fishing News hefur
tvívegis sagt í'rá áformum varð
andi landanir á ísfiski úr ís-
lenzkum skiþum í North
Shields.
Ekki verður séð af þessum
fregnum, að neinar ákvarðanir
hafi verið teknar um landanir,
en viðræður hafa átt sér stað
um málið, sem hefur komizt á
dagskrá vegna áhuga manna í
N. S. fyrir því, að fá islenzk.an
fisk þangað beint úr islenzkum
skipum, en nokkrar deilur hafa
orðið um þetta. Eitt togaraféiag
þar hefur gagnrýnt áformin, en
hin tvö hafa lofað íslenzkum
skipum allri sömu fyrirgreiðslu
sem veitt er öðrum erléndum
fiskiskipum.
Blaðið segir, að tveir fulltrú-
ar Tynemouth borgarráðsins
haí'i átt viðræður við íormann
íslenzku sendinefndarinnar, er
hún kom heirn af Parísarfundin
um, þar sem rætt var um lausn
íisklöndunardeilunnar og
hafi sú viðræða átt sér stað
hálfri klukkustundu eftir' komu
nefndarinnar frá París. Hafi
honum verið skýrt frá óskum í
þessu efni og skilyrðum í North
Shields, og hann lofað gaum-
gæfilegri athugun á málinu.
Það voru þeir Stanley Holm-
es borgarráðsmaður, forseti iðn
aðar- og viðskiptanefndar borg
arráðsins, og F. G. Egner borg-
arr.itari, sem fóru til Lundúna
þessara erinda. Holmes kveðst
hafa sagt formanni ísl. nefnd-
arinnar, að ekki væri verið að
slægjast eftir komu stóru skip-
anna, heldur minni skipunum,
sem kæmu beint frá miðunurÆ
með ferskan fisk. North ShieM»
geti tekið við helming meira
fiskmagni en nú. Mikið- maga
kæmi frá Hull, og sumt af því
væri íslenzkur fiskur, síðaift
deilan leystist. Landanir beint
frá Islandi mundu draga úí’
þörfinni á fiski frá Hull og.
fækka flutningabifreiðum á.
vegunum, en þessi viðskipti
myndu þó ekki hafa alvarleg
áhrif varðandi kaup á Norður-.
sjávarfiski.
Geta ckki keppt.
Purdy, sem fyrir hönd G. ít.
Purdy Trawlers Ltd., hefufl
gagnrýnt áformin og segir m.
a.:
„Við getum ekki keppt viSÍ
togara, sem eru styrktir af himi
opinbera með 110 stpd. á dag.
íslendingar mundu ekki senda
litil skip svo langt suður á bóg-
inn, þeir mundu senda stóru tog
arna, skip eins og þau, sem wik
landa í Grimsby og HIull. Þess-
ir menn eru raunsæismenn, þeir
senda ekki lítil skip, þegar þeir
geta sent stóru skipin til stóm
hafnanna."
G. Dobie frá Richard Ii'vim
and Sons Ltd., stærsta togara—
félaginu, sagði hins vegar:
„Ef af því yrði, að litlu skip-
in kæmu, yrði fróðlegt að sja
hver áhrif það hefð.i og það yrði
allt gert til þess að greiða fyrir
þeim, þótt lioma þeirra hefíS
óhagstæð áhrif á markaðr.Hm
(fyrir togaraeigendur).“
Fiskkaupmenn í North Shieltis
hafa tekið hugmyndinni vel.
Hátt á fjórða þúsund
bifreiða í árekstrum.
Nýtt árekstramet í Reykjavík.
Hátt á fjcrða þúsund bif-
reiðar lentu í árekstrum í Rvík
eða umdæmi Reykjavíkur árið
sem leið.
Bókaðir árekstrar hjá 3ög-
reglunni voru 1795, og þar sem
gera má ráð fyrir a. m. k. tvö
farartæki hafi lent í hverjum
árekstri — og í einstöku til-
fellum þó fleiri — má gera ráð
fyrir að um 3600 bifreiðar hafi
lent í árekstrum á árinu. Flest-
ar hafa orðið fyrir meira eða
minna tjóni, sumar mjög miklu.
Enda þótt að bókaðir séu hjá
lögreglunni 1795 árekstrar um
síðustu áramót, er þar ekki um
endanlega tölu árekstra á ár-
inu að ræða, því að sumar kær-
ur eru ennþá ef til vill ókomn-
ar. Loks má svo geta þess að
fjöldi árekstra kemur aldrei til
bókunar hjá lögreglunni, held-
ur semja viðkomandi aðilar um
málið á eigin spýtur. Það má
því fullyrða að árekstrafjöid-
inn sé mun meiri heldur en að
framan greinir.
Ef gera má ráð fyrir að I
Reykjavík séu nú sem næst 8
þúsund bifreiðir, þá er þessi á-
rekstrafjöldi hlutfallslega geysi
hár og sýnir í hvílíku öngþveiti
umferðarmálin eru hjá okkur.
í fyrra voru 1597 árekstrar
bókaðir af lögreglunni í Reykja
vík og var það þá algert metár í
árekstrum. Nú eru árekstramir
200 fleiri en þá, svo að metintt
hefur verið rækilega hrundið,j