Vísir - 21.01.1957, Síða 9

Vísir - 21.01.1957, Síða 9
Mánuáaginn 21. janúar 1957 Leitin... Frh. aí 4. s. en eítir á, að þetta var heimsku- legt,“ svaraði Wood. „Þér um það,“ urraði í mann- inum með stóra andlitið, „en þér skuluð eyða tímanum öðru vísi í næsta skipti, það skal eg ráðleggja yður.“ Hann mætti fröken Maríu á ganginum þegar hann kom fram. Þau skiptust á nokkrum orðum og það kom í ljós, að henni var kunnugt um sím- skeytið. „Þeir hafa það fyrir sið að hrella sendimennina með svona móttökum til þess að þeir fái að sjá, að þeirra er vel gætt.“ Þetta róaði hann að vísu. en ' hann gerði sér þó fyllilega ljóst! hversu aðstaða sín var orðin ■ hættuleg. Gerda. Næstu vikur vann Wood hvíldarlaust í skrifstofu sinni í; ráðuneytinu og gætti þess vand- lega að setja sig ekki í neina hættu. Margvíslegar og mikils- verðar upplýsingar voru í skjölum þeim, sem fóru um hendur hans og ómetanlegt gagn hefði bandamönnum orð- ið af vitneskju þessari, svo sem því, er skipun var gefin um að senda Kesselring aukinn liðs- styrk til ítölsku vígstöðvanna. En ekki hefði honum verið mögulegt að koma þessari vitn- eskju til vina sinna í tæka tíð. Áður en hann væri kominn til Bern mundu bandamenn þegar hafa verið búnir að fá að vita um skipun þessa af rás viðburð- anna sjálfra. Huggun hans og hjálp, allan þennan langa tíma, á meðan hann varð að bíða og bíða, var Gerda, þessi blíða, dökkhærða kona, trúverðug og þolinmóð. Löngu áður en hann hóf sam- starf sitt við dr. Ritter hafði hann kynnst henni. Hún starf- aði þá sem aðstoðarstúlka hjá þekktum lækni í Berlín og hann hafði sent.hana 1 ráðuneytið til Woods til að fylla þar út skýrslu fyrir hann. Við þetta tækifæri skiptust þau á nokkr- um orðum og ekki leið á löngu unz hann varð tíður gestur í einkasjúkrahúsi dr. Ritters en þar hittust margir þeir, sem andvígir voru Hitler og ræddu xnálin sín á miUi. í sjúkrahúsinu vann einnig ungur maður ættaður frá Elsass. Dag nokkurn hvíslaði hann að George: ,Ef þérþurfið einhvern- tíma á laeknisáðstóð að hálda, þá skuluð þér koma til mín. Út- þrælkaðir embættismenn þurfa stundum að fá vottorð um heilsufar sitt og góðum lækni setti ekki að vera það skota- skuld að gera yður hæfilega heilsutæpan.....“ ,,Diploinatisk“veikindi. Wood var vanur því að hripa niður hjá sér með hraðritun á lausa miða hið mikilvægasta úr skjölum þeim, sem hann fékk í hendur og stinga svo miðum þessum í vasa sína. Það kom einnig fyrir, að honum var falið að eyðiíeggja ýmisleg skjöl, en oftast gat hann þó komið því við, að táka afrit af þeim. Þar sem hann þorði ekki að geyma þessi skjöl sín í íbúð sinni, né heldur í skrifborðinu á vinnu- staðnum, bar hann oft allmikið Framh. VÍSIR fengmgar norsicu eru a® gerafist em- ráðlr á þessti sviðl. Frá fréttaritara Visis, Osló í des. Kreppa er yfirvofandi í hval- veiði iðnaði Norðmanna. í land- inu er mikið rætt og deilt, hvort sinna skuli tillögu hins þekkta útgerðarmánns Anders Jahres, sem leggur tit að Norðmenn segi sig úr alþjóðasamtökum um hvalveiðitakmarkanu- og hefji ótakmarkaðar hvalveiðar, meðan nokkuð aflast. Gunnar Jahn for- maður hvalveiðiráðsins hefur þó eindregið beitt sér gegn því að horfið verði að þessu ráði. Málið er þó enn ekki útrætt og er langt frá því, að þessi deila sé til lykta leidd. Norðmönnum finnst, að verið sé að ýta þeim út úr þessari atvinnugrein, sem þeir stofnuðu til fyrstir manna. Það er sam- keppni Japana,, sem kemur harð- ast niður á þeim. Síðan um aldámótin, er Sven Foýn fann upp hvalskutulinn, háfa Norðmenn skoðað Suður- Ishafið sem sín heimamið, en smátt og smátt minnkar hlut- deild þeirra í veiðinni og eru þeir þó enn álíka stórvirkir á þessu sviði og allar aðrar þjóðir til samáns, eiga urh 9 af hverjum 19 eða 20 skipum hvalveiðiflot- ans. Þar að auki eru Norðmenn i á mörgum erlendum hvalveiði-, skipum, þó að norskum mönnum sé bannað að gérast skyttur á erlendum hvalabátum. Það er ekki langt siðan það, vakti mikla óánægju í Noregi, | þegar það fréttist, að útgerðar-i maðurinn Onassis léti skip sín veiða á friðuðum svæðum og friðunartima og bryti þannig al- þjóðareglur um hvalveiði. Samið var um að takmarka veiðina við 40.000 hvaleiningar. En þar sem mjög gengur á stofn- inn hefur hámarkið enn verið lækkað og er talað um að lækka það enn meira, því þetta er líka talin ofveiði. Mikið er þó deilt um þetta atriði, enda er erfitt að gera sér óyggjandi grein fyrir því, hversu stór stofninn er. Þar sem heildarveiðin er þannig bundin við vissan fjölda hvala, keppast leiðangrarnir um að ná sem mestu í sinn hlut, á sem stytztum tima, því þegar eftirlitsmennirnir tilkynna, að hámarkinu sé náð, verða allir að hætta veiðunum. Vegna hinnar miklu þátttöku og samkeppni styttist því vertiðin ár frá ári, og aðgangurinn verður harðari. í fyrra stóð veiðitíminn aðeins í 58 daga. Gífurleg fjárfesting hefur átt sér stað i útgerð þess- ari og eiga Norðmenn nú orðið erfitt með að standa keppinaut- unum á sporði á þessu sviði. Til dæmis um útþensluna má geta þess, að það kostar nú orðið um 20 til 25 milljónir n. kr. að gera út einn hvalveiðileiðangur. Heildaraflinn getur mest orðið um 1,7 milljónir föt af hvallýsi og koma þá um 88 þúsund tunn- ur, eða um 14750 smálestir af lýsi á hvern leiðangur. Verðið í fyrra var um 85 sterlingspund smálestin. Verða meðaltekjur hvers leiðangurs því um 25 milljónir n. kr. eða rétt fyrir út- gjöldunum. Það er því af, sem áður var, þegar útgerðarmaður- inn varð efnaður maður á einum leiðangri. Ef Rússar og Japanir halda áfram að auka fiota sinn munu Norðmenn tapa stórfé á næstu árum. Japanir eru nú að semja um kaup á stórum brezk- bætast fleiri skip á þeirra hend- ur, en aðrir gefast upp. Vegna hins ódýra vinnuafls og lágu krafa, sem japanskir hvalveiði- menn gera, getur enginn staðist þeim snúning á þessu sviði, þar að auki er stór markaður fyrir hvalkjöt í Japan og er smálestin seld fyrir yfir 100 sterlingspund. Geta Japanir greitt allan út- gerðarkostnaðinn með kjötsöl- unni einni saman, og verður : lýsið þá hreinn ágóði, Af þessum ástæðum hafa brezkir útgerðar-j menn hreinlega gefist upp og selja nú Japönum skip sin, eins og áður segir. I Flest útgerðai félögin norsku' eru á Vestfoldu og þaðan eru einnig áhafnirnar. Þetta hérað verður því illa statt, ef svo fer sem horfir, í þessum atvinnu- vegi. Á Vestfoldu er mikiil iðn- aður, sem á tilveru sína undir sölu útgerðarvara til hvalveiði- flotans. Þessi iðnaður legst niður ef ekki rætist úr, eða hann leitar j sér annara verkefna. Hvalveiðiskipunum stóru má að visu breyta í olíuflutninga-1 skip, en skytturnar mega muna tvenna tímana. Sú var tíðin að þær höfðu frá 50 til 100 þúsund n. kr. tekjur á einni vertið. Það er því ekki að ófyrirsynju, að Anders Jahre leggur til, að nú verði ekki lengur sinnt um friðunarreglur og alþjóðasam- þykktir um takmarkaða veiði, heldur verði ■ 'i veitt allt hvað af tekur, unz Norðmenn hafi grætt svo mikið á skömmum tíma, að þeir geti notað gróðan til að breyta um atvinnuhætti á þessu sviði. Segir hann að Norðmenn megi ekki gefast upp í samkeppninni, en verði að bjarga heiðrinum og halda fán- anum á lofti til hins síðasta. Gunnar Jahn_ telur að enn megi bjarga málinu, en norska ríkis- stjórnin hefur ekki tekið afstöðu enn. Hvalaolían er til margra hluta nytsamleg. Úr henni er búið smjörlíki, hún er notuð til snyrti- vörugerðar o.s.frv. Það verður erfitt að finna annað hráefni í hennar átað. Vitað er að hval- veiðifélögin eiga í smíðum um 32 stór olíuflutningaskip og sjálfsagt ern floiri. Þá eru kki meðtalin þau skip, sem Andera Jahre og Johr. t-asmusseit o;ga í smiðum, þar sem þeir hafi ekki látið neitt uppi um það. llæstiréttur: Líkamsárás, bifreiðastuldur og fEótti í stolnum bíl. Jlteíii vásað fveí vcfjna farntegalla. Nýlega var í Hæstarétti fjall- að um mál tveggja Dana, sem dvalizt hafa hér á landi um skeið. Höfðu þeir gerzt sekir um áfengislagabrot, líkamsárás, bifreiðastuld o. fi. Heita þeir Egon Hornshöj Hansen og Bent Östergaard Jörgensen. Höfðu þeir framið afbrot sín að kvöldi 21. sept. sl. Höfðu þeir verið á gangi hér í bænum um kvöldið og hitt íslending. Fóru þeir síðan, all- ir þrír_ um borð í Dronning Alexandrine og fengu þar er- lendan bjór. Síðan fóru þeir í land. Þegar í land var komið sló annar Daninn Hansen, ís- lendinginn, til jarðar og héldu Danirnir síðan á brott. íslend- ingurinn fór síðan á lögreglu- stöðina og kærði, en Danirnir stálu jeppabifreið og óku af stað, en Hansen stýrði. Skömmu seinna sáu lög- reglumenn til Dananna í jepp- anum og hófst þá eltingaleikur, sem lauk með því, að Danirnir voru handsamaðir bg færðir í varðhald. f héraðsdómi var Hansen dæmdur í 4 mánaða varðhald og var sviptur' rétti til að öðl- ast bifreiðastjórarétindi í þrjú ár. Jörgensen var sviptur sömu iréttindum 1 eitt ár og hlaut 45 jdaga varðhald. Auk þess var Hansen dæmdur til að greiða I íslendingnum 7335 krónur í skaðabætur. Hæstiréttur ómerkti dóminn vegna formgalla og vísaði mál- inu heim í hérað. Libsrtyskip — Framh. af 3. eáðu. Þessi sænski bílskúr er byggð ur fyrir 5 bíla, verksmiðju- byggður og reistur úr flekum á fyrirhuguðum byggingarstað. Ævintýr H. C. Andersen ♦ Litli Kláus og Stóri Kláus. Nr.7. ,,Góðan dag,“ sagði gestgjafinn við Litla Kláus. „Þú ert snemma kominn í sparifötin í dag.“ ,,Já,“ sagði Litli Kláus. „Eg er að fara til borgarinnar með hana ömmu gömlu, hún situr þarna úti í vagmnu. Viltu ekki færa henni glas af öli, en þú verður að tala hátt, því hún heyrir svo illa.“ „Hér er glas af öli frá syni þínum,“ sagði gest- gjafinn. „Heyrirðu ekki?“ hrópaði hann eins hátt og hann gat. Og enn einu sinni hrópaði hann þetta sama eins hátt og hann gat, en gamla konan hreyfði sig ekki. Þá varð gestgjafinn svo reiður að hann þeytti glasinu framan í gömlu konuna og hún datt aftur yíir sig í vagninum. „Hvað er að sjá þetta, þú hefur drepið hana ömmu mína! Það er stæroar gat á höfði hennar,“ sagði Litli Kláus og greip í brjóst gestgjaf- ans. „Ó, elsku Litli Kláus, þetta vildi til, af því að eg varð svo reiður,“ sagði gestgjafinn og neri saman höndunum í örvílnan. „Eg skal gefa þér skeffu fulla af peningum og láta jarða hana ömmu þína, efþúseg- ir ekkert um þetta, því annars heggur fógetinn höfuðið af mér og það er svo leiðinlegt.“ Svo fékk Litli Kláus skeffu fulla af peningum og gestgjafinn lét grafa ömmu hans eins og hún hefði verið hans eigin amma.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.