Vísir - 20.02.1957, Síða 4

Vísir - 20.02.1957, Síða 4
4 VtSIR Miðvikudaginn 20. febrúar 1957 UR 5IMI DRÖTTAMA Manchester U. tókst að sigra Bilbao. 0g heldur því áfram í hernismsistsra- keppnlniéi. Mikla athygli liefur vakið! viðureign spænsku meistaranna Bilbao og brezku meistaranna Manchester United, en þessi lið hafa háð tvo leiki sín á milli í meistarakeppni Evrópuland- anna. United heimsótti Bilbao 16. janúar og var snjókoma mikil og stormur er leikurinn fór fram, en þrátt fyrir það sýndu liðin skemmtilega og góða knattspyrnu. Bilbao sigraði ör- ugglega, 5:3, eftir að hafa haft 3:0 í hálfleik. Fannst Bretunum þeir fá sum mörkin nokkuð ó- dýrt og hétu því, að láta þá ■ekki sleppa svona vel, er þeir hittust í Manchester 6. febrúar og sú varð raunin á. United sigraði í þeim leið með 3:0 og tryggði sér þannig rétt til á- framhalds í keppninni, en markatala ræður úrslitum ef lið vinna sitt hvorn leikinn. Hér fer á eftir stutt lýsing á leiknum í Manchester: Leikvangur: Old Trafford, Manchester. — Áhorfendur um 65.000. Bilbao hóf leikinn og ætlaði að skora undir eins, en var stöðvað innan vítateigs Manch., en það óhapp vildi til að Jones, miðframvörðui’ Manch., meidd- ist í þessu upphlaupi, og virtist útlitið ekki gott fyrir Manch., en hann náði sér furðu fljótt, og gat spilað áfram sína stöðu. Manch. tók svo leikinn strax 1 sínar hendur, og virtist Bilbao frekar hugsa um að halda marki sinu hreinu, en að bæta fleiri mörkum við þessi 2 sem það -'hafði yfir frá fyrri leiknum. Manch. var því í svo til stans- lausri sókn allan fyrri hálfleik- inn, en tókst þó ekki að skora fyrr en seint í hálfleiknum og var það Violett sem skoraði, en þá hafði oft munað mjóu við mark Bilbao. Manch. hóf svo seinni hálf- leik af miklurn krafti og skoraði; 2 mörk á fyrstu 3 mínútunum, en bæði voru dæmd „off side“. Þetta er Dennis Violett, aðal- skytta Mancliester United, sem þakka má að mikUi leýti gengi liðsins. Annað a marklínu. Er fimmtán mínútur voru af seinni hálf- leik skorar Taylor 2. markið eftir sendingu frá Edwai’ds, en þeir voru tvimælalaust beztu menn Manchester. Bilbao lifnaði nú aðeins við og hóf sókn, en nú var Manch. ekki á þvi að gefa eftir og hóf. mikla sólcn að marki Bilbao, og var oft stórfurðulegt að það skyldi ekki skorá. Fór knöttur- inn annáð' hvort í sténgumar eða rétt smáug framhjá mark- inu Það var eklii fyrr -‘n 5 mínútur fyrir leikslok að Manch. tekst að sliora 3 mark- ið. Táylor fekk sendingu frá Edwards, dró vörnina með sér svolítið til hliðaf, gaf svo til Bérrys, hægri útherja Manch. scm þurfti ekki annað en að ýía khettinum yfir línuná. Ekki var Bilbao búið að gefa sig ennþá og hóf nú harða hríð að marki Manch., en öllum áhlaupum var hrundið. Er 1 mínúta var til leiksloka fær Bilbao hornspyrnu til vinstri og fóru þá allir leikmenn inní vítateig Manch. nema markm. Bilbao og sá er framkvæmdi spyrnuna. Gaf hann vel fyrir til innherjans, sem spyrnti við- stöðulaust, og hitti hann beint í Wood markv. Manch. og flaug knötturinn út fyrir vítateig. Er Mortensen að hætta? Upp er kominn orðrómur um það, að Stan Mortensen, sem verið hefur einn bezti knatt- spyrnuinaður Breta um árabil, ?é um það bil að hætta keppni. Mortensen, sem nú er orðinn 34 ára. var flestum á óvart tek- inn út úr liði Hull City og hafð- ur sem varamaður í 3. umferð bikarkeppninnar, en síðan hef- ur hann ekki einu sinni verið nefndur sem varamaður. Lík- legt er talið, að Mortensen muni fara fram á að skipta um félag :ða „leggja skóna á hilluna“ fyrir fullt og allt, og er síðari tilgátan talin sennilegri. Næsta umferð bikarkeppni. Þessi lið mætast í næstu um- ferð bikarkeppniimar (Quarter- Finals): Birmingfiam — Nottingh. Forest. Bournemouth — Manch. United. Blackpool eða W. B. A. gegn Preston eða Arsenal (úr því fæst skorið í dag, þar sem þessi lið skildu jöfn um helg- ina). Burnley — Aston Villa. í s.l. viku varði Joe Brown frá New Orleans (t. vinstri) heims- meistaratign sína í léttivigt fyrir Wallace Smith, er var meist- ari, þar til Brown sigraði lvann í ágúst á s.l. ári. Brown hélt einnig velli í þessum bardaga. i Saga heimsmetanna. Eflaust þykir mörgum fróðlegt að vita hverjir hafa átt hin ýmsu heimsmet gegn um árin og bera saman hinar geysilegu framfarir, sem orðið liafa í frjálsum ífþróttum undanfarna áratugi. Höfum við því ákveðið að birta skrá yfir staðfest heimsmet frá byrjun til dagsins í dag_ og hér keinur listinn yfir 100 inetra hlaup: Ólympíumeistari tapar. Olympíumeistarinn í 800 m. Iilaupi, Tom Courtney, tapaði nýlega fyrir Annie Sowell á innanhússmóti í Madison Square Garden. Sowell vann á nýju heims- meti innanhúss, 1:50,3. Á sama móti setti tugþrautarmeistar- { inn Milton Campell nýtt heirns- met í 60 yards grindahlaupi, • 7,0 sek. Don Delany sigraði í míluhlaupi á 4:06,7. Annar varð .Ungverjinn Tabori með 4:07,6 sek. Tími: Nafn: Land: Sett: 10.6 D. F. Lippincott U.S.A. 6. júlí 1912 Stokkhólmi 10.6 J. V. Scholz U.S.A. 6. sept. 1920 Stokkhóbni 10.4 C. W. Paddock U.S.A. 23. apríl 1921 Redlands_ Cal, 10.4 E. Tolan U.S.A. 8. ágúst 1929 Stokkhólmi 10.4 — U.S.A. 25. ágúst 1929 Kaupm.höfn 10.3 P. Williams Canada 9. ágúst 1930 Toronto, Can. 10.3 E. Toran U.S.A. 1. ágúst 1932 L. Angeles 10.3 R. H. Metcalfe U.S.A. 12. ágúst 1933 Budapest. 10.3 E. Peacock U.S.A. 6. ágúst 1934 Oslo 10.3 C. D. Berger Iiolland 26. ágúst 1934 Amsterdam 10.3 R. H. Metcaife U.S.A. 15. sept. 1934 Osaka, Japan 10.3 _ — U.S.A. 23. sept. 1934 Darien Mansh. 10.3 R. Yoshioka Japan 15. júní 1935 Tokyo 10.2 J. C. Owens 20. júní 1936 Chicago 10.2 H. Davis U.S.A. 6. júní 1941 Compton, Cal. 10.2 L. B. la Beach Panama 15. maí 1948 Fresno U.S.A, 10.2 N. H. Ewell U.S.A. 9. júlí 1948 Evanton 111, 10.2 E. Mc. Don. Bailey G.Brit. 25. ágúst 1951 Belgrade 10.2 H. Fútterer Þýzkal. 31. október 1954 Yokohama 10.2 B. Morrow U.S.A. 19. maí 1956 Texas 10.2 I. J, Murchison • U.S.A. 1. júní 1956 Compton, Cal. 10.2 B. Morrow U.S.A. 22. júní 1956 Bakersf. Cal. 10.2 I. J. Murchison U.S.A. 29. júni 1956 Los Angeles 10.2 B. Morrow U.S.A. 29. júní 1956 Los Angéles 10.1 W. WiÚiams U.S.A. 3. ágúst 1956 Berlín 10.1 I. J. Murchison U.S.A. 4. ágúst 1956 Berlín af sjónarsviðinu, alveg eins og hann hvarf þegar hann fór frá Kairo í byrjun styrjaldarinnar og hélt út á eyðimörkina, til þess að berjast fyrir hugsjón sinni nm að sameina Beduina og stökkva Tyrkjum úr landinu, sem þeir höfðu kúgað og merg- sogið öldum saman. Hugsið ykkur ljóshærðan tmgan mann, grannvaxirm og lágan í lofti, með blá augu, hátt enni og óvenjulega langa höku. Hann er sveipaður drif- hvítri skikkju og er gyrður stuttu bjúgsverði prins af Mekka_ aðalsmerki afkomenda Móhameðs spámanns. Fáir eru bornir til slíkrar virbingar og varla nokkur maður vinnur slík afrek, að hann teljist hennar verður. Úlfaldinn hans er frár é fæti og hann ferðast einn síns liðs, því að hann nýtur virðing- ar og lotningar allra vegna klæðaburðar síns — allra nema Tyrkja. Þeir vita, að hann er hættulegast fjandmaður þeirra og hafa lagt hundrað þúsund sterlingspund til höfuðs honum. En þeim tekst ekki að hafa hendur í hári hans, þótt hann sé alltaf einn, því að hann er aldrei þar_ sem þeir búast við honurn. Þvert á' móti leikur hann svo kænlega á þá, að þeir sverja við skegg spámannsins, að hann þiggi ráð af „djöílinunp vini sínum.“ Þannig var Lawrence fyrst í síríðinu, þegar hann sá fyrst hilla undir það_ að hann gæti framkvæmt hugsjón sína um að sameina Arabíu undir stjórn eins konungs. Eftir stríðið (1914—18) hefir Lawrence ofrusti ritaði umþessa herför í auðnum Arabiu, sem hann framkvæmdi með aðstoð örfárra brezkra liðsforingja. Auk þess hefir margt og mikið verið ritað um ævintýri hans sjálfs_ en þau voru mörg og margvísleg. Hann sprengdi svo oft í loft. upp herflutningalest- ir Tyrkja, að menn fóru að halda, að það væri beinlínis ástríða hjá honum að sprengja upp lestir. Óteljandi sinnum fór hann langar leiðir bak við stöðvar Tyrkja, dulbúinn sem Arabi_ og . skeytti ekkert um það, þótt stórfé hefði verið lagt til hofuðs honum. Hann aflaði ómetanlegra upplýsinga fyrir Allenby hershöfðingja_ sem sófti fram vestur í Palestínu, og stjórnaði sjálfur Beduinaher, sem sigraði hvað eftir annað tyrkneska heri, sem voru miklu mannfleiri..... Lawrence kornst að raun um það_ þegar hami kom fyrst til Arabíu, að ætíbálkarnir sem reikuðu um auðnimar, voru eyðimerkurbúar í húð og hár. Flestir þeirra fluttu hibýli sín stað úr stað með litlu millibili, börðust, verzluðu höfðust við í tjöldum úr úlíaldahári. Þeir voru vinir vina sinna en óþarí'ir fjandmönnum sínum. Fáeinir menntaðir Ai’abai’ áttu heima í Damaskus_ höfuðborg Sýrlands, og nokkurum hinna smærri borga, svo sem Mskka, Medina og Akaba. En eyðimerkurbú- aimir vorú hinjr sönnu Arabar — harðfengir bardagamenn og ffábærir hestamenn —1 og þeir báru ekkert skynbragð á stjórn- mál eða' nauðsvn stjórnar, er héldi styrkri hendi um stjórn- völinn. Það er engin furða, þótt Tyrkir hafi ekki reynt að gera neina breytingu á lifnaðarhátt- um landsmanna. Þeir höfðu stjórnað landinu öldum saman, reynzt slæmir húsbændur en kom ekki til hugar að bæta ráð sitt. Það er einnig öllum Ijóst, hvað Lawrence varð að kenna landsbúum. Þegar stríðið brauzt út, var Law’rence staddur í Arabíu óg vann þar að fornménjarann- sóknum. Honum var þegar boð- ið að vinnh í kortadeild her- stjórnai’innar í Kairo. Byrjaði hann þar starf sitt sem lægsti liðsforingi, en varð bráðlega yfirmaður deildar sinnar. Var starf hans fólgið í því að safrta Frh. á 9. siðu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.