Vísir - 04.03.1957, Page 1
VI
47. árg.
Mánudaginn 4. marz 1957
52. tbL
Róið á loinusunnudag í
Eyjunt aldrei þessu vant
Nokkrir bátar brutu bannið og
öfluðu vel.
Loðnusunnudagur kallast í
Vestmannaeyjum sunnudagur-
inn í vikunni, sem loðnan geng-
ur, og loðnusunnudagur var þar
i gær. Það er samþykkt sjó-
manna í Eyjum að róa ekki á
línu á sunnudögum, en í gær
brutu nokkrir bátar þessa sam-
þykkt, því freistingin er mikil,
þegar lítið hefur aflast imdan-
farið, að bæta nokkuð hag sinn,
þegar fiskurinn loksins fæst á
línuna.
Vegna þess að fram til þessa
hefur vertíðin verið mjög léleg
i Eyjum voru fundir haldnir í
sjómannafélögunum þar til að
ræða um hvort róa ætti á loðnu-
sunnudag. Voru menn ekki á
eitt sáttir og varð það úr að með
naumum meirihluta var sam-
þykkt að breyta ekki frá því
sem véi'ið hefur undanfarin ár
og róa ekki.
Þrátt fyrir þessa samþykkt
fundarins ætluðu margir bátar
að róa, en svo kom yfirlýsing frá
stjórnum félaganna þar sem
skorað var á félagsmenn að
brjóta ekki samþykktina og
varð það til að margir hættu
við að róa.
Nokkrir bátar fóru þó á sjo
og öfluðu frá 5 til 16 lestir á
bát. Meðalaflinn mun hafa ver-
ið um 9 lestir. Samþykktin mun
ekki gilda fyrir handfærabáta
(og voru þeir allir á sjó en
fengu lítinn afla. Hafa þeir afl-
[ að minna síðan loðnan gekk á
; miðin.
Mikið veiðist af loðnu og er
nóg í beitu fyrir alla bátana í’
Vestmannaeyjum.
Heildaraflinn í Vestmannaeyj
um frá áramótum eru nú orð-
inn 6800 lestir og er það stórum
minna en var á sama tíma í
fyrra. Til dæmis mun afli sá er
Vinnslustöðin hefur tekið á móti
í ár um 1000 lestum minni en
á sama tíma í fyrra og hlutfallið
mun vera það sama hjá öðrum
. fiskverkunarstöðvum þar.
Einn bátur hefur róið með net
en hefur aflað lítið, eina til
I tvær lestir í róðri. Þó er kominn
hugur í menn a,ð taka net um
borð og í morgun var annar bát-
ur að búa sig út á net. Er það
fyrr en venjulega.
Úrslit í jsraelsmálinu í dag.
Norðmenn prófa
fiíkalyf í fiski.
Fró fréttaritara Vísis.
Osló í fyrradag.
Um þessar mundir er verið að
byrja tilraunir með að setja
fúkkalyf í fisk til útflutnings,
til að verja hann skemmdum.
Tilraunir þær, sem fram hafa
farið að undanfömu, leiða í ljós
að fiskurinn helst sem nýr um
það bil 20 dögum lengur en ella.
Engin hætta er á skemmdum
fyrstu 5—6 dagana. Læknar
eru ekki alveg sannfærðir um,
að hættulaust sé að setja fúkka-
lyf í fisk, og í landinu gilda enn
lög, er banna, að þau séu sett
í matvæli.
Þjófnaður framinn í
3 bifreiðum í nótt
Slökkvlliðið gabbað þrívegis
í gær og í morgun.
t nótt var framin þjófnaður
úr þremur bifreiðxun, sem stóðu
fyrir utan bifreiðaverkstæði
Niels K. Svane að Háaleitisvegi
39 hér í bænum.
Bifreiðaverkstæði þetta er á
homi Háaíeitisvegar og Miklu-
brautar og stóðu bifreiðarnar
rétt við Miklubrautina þannig
að ekki er ósennilegt að ein-
hverjir vegfarendur, sem þar
hafa átt leið um í nótt, hafi
tekið eftir þjófunum þegar þeir
voru að stela úr bifreiðunum.
Ef svo hefði verið vill rann-
sóknarlögreglan hafa tal af
þeim.
Úr einum bílnum voru skrúf-
aðar felgur undan jeppabíl og
þeim stolið .ásamt varahjól-
barða, úr öðrum bíl var stolið
útvarpsviðtæki og tveimur
tjökkum úr þriðju bifreiðinni.
Þjófnaður þessi mun hafa verið
framin eftir kl. 12 á miðnætti
í nótt.
Slökkviliðið á ferð.
Frá því í gærdag og þar til
í morgun var slökkviliðið þrí-
vegis gabbað. Fyrst að .Fjölnis-
vegi 2 og síðan að Laugavegi
126 í gær en í morgun var það
abbað inn á Vitatorg. Á öllum
siöðunum höfðu brunaboðar
verið brotnir.
Á laugardagskvöldið kvikn-
aði í húsinu nr. 33 við Skóla-
vörðustíg. Eldurinn kviknaði I
utan frá og er talið að annað
hvort sé það af mannavöldum
eða þá að rafstraumur hafi með
einhverju móti komizt í járnið
á húsinu. Slökkvistarfið gekk
fljótt en skemmdir á veggnum
urðu talvserðar og þarf að rífa
úr honum og lagfæra.
Á föstudagskvöldið var
slökkviliðið kvatt að rafstöð-
inni við Elliðaár en þar hafði
kviknað eldur í sorptunnum.
Aðfaranótt laugardagsins var
lögreglunni tilkynnt um ofur-
ölvi mann og slasaðann, sem
lægi fyrir utan Þórscafé. Mað-
urinn var fluttur í slysavarði
stofuna og geymdur þar um
nóttina til rannsóknar.
f gær datt ölvaður maður í
höfnina en nærstaddir menn
björguðu honum. Hann var
fluttur heim til sín. i
Farmannadeilan:
Hýr sáttafund-
ur i dag.
Samkomulagsumleitanir í far
mannadeilunni hafa ekki borið
árangur enn, en þeim er haldið
áfram.
Sáttasemjari hefur boðað
fund með fulltrúum deiluaðilja
og hefst hann kl. 17.
Á laugardagsmorgun kk 9
lauk samningafundi, sem staðið
hafði frá því daginn áður, og á
laugardag kl. 17 hófst fundur
á nýjan leik.
Nú um helgina ræddi stjórn
Sjómannafélagsins við farmcnn.
Verkfallið hefur nú staðið
hálfan mánuð. I höfninni liggja
4 skip Eimskipafélagsins og 3
strandferðaskip, sem stöðvast
hafa af völdum verkfallsins.
Losun úr Hamrafellinu verð-
ur lokið í dag, en það hefur að
vanda verið losað úr þvi eftir
leiðslum milli skips og geyma í
landi. Hefur verið losað í geyma
á Laugarnesi og við Skerja-
fjörð og í morgun var verið að
losa í geyma í Örfirisey.
Mannfall í beggja
liði í Alsír.
Skæruliðar í Alsír felldu 17
Frakka í gær, en Frakkar 21
skæruliða.
Það var franskur flokkur,
sem varð fyrir árás úr launsátri
uppi í fjöllum. og féUu þá 11
menn af liði þeirra. Liðsauki
kom á vettyang og felldi 21
skæruliða. Á öðrum vettvangi
féllu 6 Frakkar.
Ben Gurion tiikynnir lokaákvörðun
og biður um traust.
ilrabaþjúðir rerna að knvja irain
refsiaðgerðir, ef ísrael lilvðir
ekki Sþ.
Israelsstjórn mun taka lokaákvörðun sína í dag varðandi
brottflutning herliðsins frá Egyptalandi, en stjórnin kom saman
á fund árdegis, og að honum loknum ávarpar Ben Gurion for-
sætisráðherra þingið og fer fram á, að það votti ríkisstjórninni
traust sitt. — Abba Eban sendiherra Israel í Washington til-
kynnir allsherjarþinginu ákvörðun Israelsstjórnar í kvöld.
Tveir róttækir flokkar í
Israel hafa tilkynnt. að þeir
muni greiða atkvæði gegn
stjórninni, ef hún boði heim-
kvaðningu liðsins en ekki ræð-
ur afstaða þessai'a flokka eimia
úrslitum. — Fréttaritarar í
Jerúsalem telja, að ekki sé ó-
líklegt, að stjórnin bjóðist til
þess áð flytja burt liðið frá
Akabaflóa í trausti á að viður-
kenning siglingavelda varðandi
öryggi þar muni nægja. Hins-
vegar muni stjórnin óska eftir
eftir ákveðnum yfirlýsingum
varðandi Gazaspilduna, svo að
tryggt verði, að spildan verði
ekki notuð til bækistöðva til
árása á Israel.
Margt
stangast á.
Fréttariturum ber saman um,
að afstaða Bandaríkjastjórnar
muni vega mikið, er ísrael tek-
ur lokaákvörðunina, en það var
megn óánægja með afstöðu
hennar, eins og hún kom fram
í yfirlýsingum Dullesar og.
Lodge, sem olli því, að Isrels
stjóm frestaði að láta yfirhers-
höfðingja landsins fara á fund
Byrns. Litu menn svo á, að þar
stangaðist margt á ^ið það, sem
sagt hafði verið við Eban, og
var ákveðið að bíða frekari
greinargerðar hans. — Var
mikið um kröfugöngur og mót-
mælafundi út af þessu í Israel
um helgina.
Abba Eban
í sjónvarpi.
Eban talið í sjónvarp í
Bandaríkjunum í gærkvöldi .og
var margspurður að því, hvort
Isrelsstjórn mundi lýsa yfir, að
hún ætlaði að hlíta fyrirmæl-
um Sameinuðu þjóðanna og
kalla heim herliðið, en hann
EramhaW » 6. síðu.
LEoyd og Menon
á fundS.
Selwyn Lloyd ntanríkisráð-
herra Bretlands og Krishna
Menon sendilierra Indlands
ræddust við tvívegis í gær.
Menon er á heimleið frá New
York. Á viðræðufundunum var
rætt um nálæg Austurlönd,
Kýpur og Kashmír og önnur
heimsvandamá], af fullri hrein-
skilni og vinsemd, að því er til-
kynnt er í London.
Líklegt að Polar Quest
verði náð á flot.
ifil úr Reykjavík fór srse5 öflugar dælur
austur á Slsafjöru í nólt.
Menn frá Björgun h.f. fórfl og hjálpar það til, að mikill sjór
s.I. mánudag austur á Slýja-
fjöru í Meðallandi til þess að
undirbúa að norska selveiði-
skipið Polar Quest verði dreg-
ið á flot, ef það reynist ó-
skemmt.
Vísir átti tal við Sigurgeir
Lárusson, bónda á Kirkjubæj-
arklaustri, í morgun. Sagði
er í því.
í nótt lagði bíll úr Reykjavík
af stað austur með öflugar dæl-
ur og er hann væntanlegur aust
ur á sand í dag. Eáai er hægt
að ganga úr skugga um skemmd
ir á skipinu, fyrr en búið er að
tæma sjóinn úr því og eru þá
taldar líkur fyrir því að það
fljóti. Straumur- fer nú stækk-
hann, að lítið hefði verið hægt and. Qg ef veður helzt stillt,
að aðhafast enn sem komið er,
þar eð skipið heíði verið fullt
af sjó og dælur ekki nógar til
að tæma það.
Síðan skipið strandaði hefur
eru taldar líkur fyrir því, að
hinu verðmæta skipi verði
bjargað.
Ekki verður farið með víra
og annan útbúnað austur fyrr
veður yfirleitt verið stillt og ' en séð verður að skipið náist
skipið lítið hreyfst í sandinum i óskemmt á flot.