Vísir - 25.03.1957, Síða 12

Vísir - 25.03.1957, Síða 12
Þelr, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir 10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. Vt£IR er uaj rasta blaðið og þó það fjöl- breyttasra. — Hringið í síma 1660 «g 2,erist áskrifendux. Mánudaginn 2S. marz 1957 Sundhöll Reykjavíkur átíi 20 ára afmæli í gær. Cöstir voru fleiri en daginn sem kún var opnuð. í gær voru liðin 20 ár frá því að Sundhöll Reykjavíkur var opnuð til afnota fyrir Reykvík- inga. Það var öllum mikið fagn- aðarefni, þcgar þessi menning- arstofnun, sem lengi hafði vcr- ið beðið eftir, tók loksins til starfa. Aðspurður sagði forstjóri Sundhallarinnar, Þorgeir Svein bjarnarson, að afmælisins hefði ekki verið sérstaklega minnzt að öðru leyti en því, að flest af starfsfólkinu fór í Þjóðleikhúsið í tilefni dagsins. í sundhöllinni var ekki hægt að merkja, að afmælisdagur væri, en þar var buslað og synt að vanda og gestir voru fleiri en daginn sem sundhöllin var opnuð. Aðsóknin er nú orðin mjög svipuð frá ári til árs. Skólarnir og íþróttafélögin taka mikinn tíma daglega, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Sagði framkvæmdastjórinn, að svo virtist sem sama fólkið sækti mest sundhöllina og þá helzt fólk, sem byggi nærri henni. Bendir það til þess, að heppilegra er að hafa fleiri sund laugar og dreyfðar um bæinn, til þess að tryggja aðsókn ungra sem gamalla. Forstjórar Sundhallarinnar hafa verið fjórir: Ólafur Þor- varðarson, Erlingur Pálsson, Sigríður Sigurjónsdóttir og nú- verandi foi’stjóri, Þorgeir Sveinr bjarnarson. Sex af starfsmönnum sund- hallarinnar hafa verið þar síðan hún tók til starfa. Eru það vaktstjórarnir Bergsveinn Jóns son og Friðjón Guðbjörnsson, afgreiðslustúlkurnar Jóhanna Guðmundsdóttir og Ingibjöi'g Sigurgeirsdóttir, Björn H. Björnsson baðvörður og Una Þorsteinsdóttir, Komnar snapir á hrein- dýraslóðum. Fregnir hafa borizt um það frá Egilsstöðum, að þíða hafi verið undangengna daga og séu komnar upp snapir fyrir lnemdýr. Munu horfur hafa batnað all-verulega að þessu leyti bæði á Héraði og í Berufirði. Þaðan fréttist, að tekinn hefði verið hreindýrakálfur á hús á bæ einum, þar sem hann virtist lítilfjörlegur. Ekki vildi hann hey, en mjólk drakk hann. Er hann var hress orð- inn og sprækur var honum sleppt aftur til dýranna. Farfuglar hafa fengið fél fyrir gtstfheímili í Í isBSills'lBsisaiaajii ea6*»;*fts fféSagsblaðs. Mikið um sjúkrafiug a5 undanförnu. Mikið hefur verið mn sjúkra- flug að undanförnu og reynst ómetanlegt að hafa skíða-út- búnaðinn, sem settur var á flugvélina. Henni var flogið til Möðru- dals í gær. Flutti hún sjúkling þaðan til Akureyrar. Ennfremur sótti hún i gær sjúkling til Djúpavogs og flutti í sjúkrahús hér. Evrópufundur í Rómsborg. Utanríkisi’áðheiTar Vestur- Evrópulandanna sex safnast í dag sainan í Rómaborg. Undirrita þeir þar sáttmála um sameiginlegan markað og og þau mál og um samstarf á sviði kjarnorku til friðsamlegra nota. Adenauer kaslai’i V.-Þ var í morgun á leið til Rómaborgar á fundinn, en hann skrifar und- ir fyrir hönd lands síns, þar sem von Brentano er víðs fjarri (í Ástralíuheimsókn). Frá Abessiníuheimsókn Nixons. Hér er kona lians ó leið til op- inberrar veizlu með Haile Selassie keisara. Hlc5 niBur snjé í Stykkishchni. Frá fréttaritara Vísis. Stykkishólmi 22. marz. Síðustu daga hafa verið ógæftir í Stykkishóhni, en í síðustu veiðiför bútanna, sem var um helgina, fengu þeir al- mennt frá sex og upp í 12 lestir á bát. Allar horfur voru á að bát- arnir gætu róið í kvöld. í gær var hríðarveður og hélzt það fram eftir degi í dag en er nú að batna. Hefir kingt niður snjó í þessari bylgusu og mesta ófærð komin í nágrenni Stykkishólms.Bændur úr næsta' nágrenni eru í stökustu vand- ræðuni með að koma mjólk til Stykkishólms sökum ófærðar. Undanfarið hafa allmiklar vöruflutningar farið fram frá Stykkishólmi suðm’ yfir Kerl- ingarskarð til bænda á sunnan- verður Snæfellsnesi. Nú hefur í bili tekið fyrir þessa flutn- inga því leiðin er alófær orðin öllum bílum. Landsskíðagangan er í full- um gangi og hafa miðskóla- nemar lokið göngunni með 100% þátttöku. Próf í iðnskóla Stykkishólms byrja í næstu viku. 09 Isiandsmet í gær. Metin voru í langstökki og stangarstökki. settii Á meistaramóti fslands, inn- anhúss, sem fram fór í gær, setti Valbjöm Þorláksson nýtt ís- landsmet í stangarstökki, stökk 14.15 m., sem er 5 cm betra en gamla metið, er hann setti á afmælismóti Í.R. Þennan árangur Valbjörns má telja afbragðsgóðan, þar sem aðstæður til stangarstökks inn- anhúss eru hér ekki góðar. — Gefur þetta afrek góð fyrirheit um enn stærri hluti í sumar. í hástökki án atr. sigraði Vil- hjálmur Einarsson, stökk 1.60 m. Hann reyndi við 1.67, sem er 2 cm. betra en gildandi met, en sú hæð reyndist honum of- viða. Vilhjálmur sigraði einnig í þrístökki, stökk 9.73 m. Ann- ar varð Daníel Halldórsson með 9.37. m. í hástökki með atrennu sigr- aði Heiðar Georgsson, stökk l. 75 m. og kúluvarpið vann Guðm. Hermannsson með 14.04 metra kasti. Vilhjálmur sigraði einnig í langstökki án atr., stökk 3.30 m. , sem er nýtt met. Gamla metið átti hann sjálfur, en það var 3.26 m. Aðalfundur Farfugladeildar Reykjavíkur var haldinn 4. r.iarz s.l. að Café Höll. Starfsemi félagsins var með miklum bióma sl. ár eins og undaniarið. Á þingi Alþjóðabandalags farfugla, sem haldið var i Skotlandi í ágúst s.l. var Banda lag ísl. farfugla gert að aðal- meðLim samtakanna, en undan- anfarin ár hefir það verið auka- meðlimur. Farnar voru tvær hópferðir til Skotlands á vegum félagsins og ferðast á reiðlijólum. Þátt- takendur í ferðum þessum tóku þátt í alþjóðamóti farfugla, sem haldið var í Edinborg dagana 10.—12. ágúst s.l. Næsta al- þjóðamót og þing Farfugla verður haldið i Hollandi í ág- úst n. k. Undanfarin ár hefur þeim ctöðugt fjölgað. er ferðast hafa erlendis og notið gistingar á farfuglaheimilum. Árið 1955 gistu íslenzkir farfuglar í 9 löndum samtals 1928 nætur, en árið áður voru gistinætur er- lendis 435. Undanfai’in sumur hafa farfuglar haft skólastofu í Austurbæjarbarnaskólanum til gistinga fyrir erlenda far- fug'la. Einnig hafa fai’fuglar haft aðgang að gistingu að Reynihlið við Mývatn og í Hreðavatnsskála. Síðastiiðið sumar gistu erlendir farfuglar hér á landi í samt. 637 nætur, en árið áður í 420 nætur. Fyr- irkomulag gistinga fyrir er- lenda farfugla verður með svipuðu sniði og verið hefur undanfai-in ár. Reynt verður að fjölga gististöðum úti á landi eins og auðið er. Farnar voru helgar- og. sum- arleyfisferðir hér innanlands á vegum félagsins. Meðal sumar- leyfisferða- vcru tvær ferðir í Þórsmörk og dvalið þar í tjöldum vikutíma í senn. Þátt- taka i öllum þessum ferðum var mjög góð. Eitt mesta velferðarmál fé- lagsins er að koma upp gisti- og félagsheimili hér í Reykja- vík. Á síðastliðnu ári var félag- inu úthiutað lóð við Rauðalæk fyrir væntanlegt félagsheimili, en það hefir ekki enn varið hægt að hefjast handa um bygg ingu, vegna þess að fjárfest- ingarleyfi hefir ekki fengist í undirbúningi er að hefja útgáfu á félagsblaði, er flytja innlendar og erlendcir fróttir af félagsstarfseminni ásarnt ferða- sögum og fleiru. Mikið ísrek á Atlantshafi. ísrek er nú mikið á Norð- ur-Atlantshafi undir strönd- um Ameríku (Þar sem Tit- anic fórst á sínum tíma) svo að skip hafa neyðzt til að sveigja mjög af leið, þegar komið er á Nýfundnalands- bankann. í síðustu ferð sinni — í síðustu viku — neyddist Queen Elizabeth til að fara 40 mílum sunnar en venju- lega, því að svo mikill borg- arís var á rekL Sii- Ivan Thompson, skipstjóri á risa- skininu. kvaðst efast um, að ísrek við Nýfundnaland hefði nokkru sinni verið meira þau 50 ár, sem hann hefur verið í siglingum yfir Atlantshaf. „Þetta virðist boða langt, vætusamt vor,“ sagði hann við blaðamenn. Tilboð frá Makar- iosi rætt í London. Brezka stjómin kemur enn saman í dag til þess að ræða Kýpurmálið. Makarios erkibiskup er sagð- ur hafa biðizt til að fyrirskipa að hætta skuli hermdarverkum á Kýpur. gegn vissum skilyrð- um. Það eru þessi skilyrði, sem stjórnin nú mun taka fyrir til ! athugunar. — Harding land- stjóri hefir frestað ferð sinni til Kýpur vegna breytts viðhorfs ★ Eugenio Castelotti, 27 ára, frægasti kappastursgarpur ítala, fórst í bOslysi i sA viku. Janos Kadar, forsætisráðherra Ungverjalands, leggur sveig á minnisvarða í Búdapest, á minningardegi Kossuth-byltingar- mmar 1848, sem var 15. þ.m. — Frelsissinnum var meinaður að- gangur, eins og getið var í fregnum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.