Vísir


Vísir - 28.03.1957, Qupperneq 1

Vísir - 28.03.1957, Qupperneq 1
VI 47. árg. Fimmtudaginn 28. marz 1957 74. íbl. Neyðarástand í N.-Noregi. Afli hefur brugðizt að miklu leyti. Unglingurinn á myndinni er einn af mörgum. sem kommúnistar í Ungverjalandi liafa dæmt vegna uppreistar gegn yfirvöldunum. Hlaut hann fjögurra ára fangelsi. Öflugir flokkar Sþ. á landa- mærum Israels og Egyptalands Ægileg sprenging í Mexico. 26 biðu bana, en yfir 130 meiddust. Fregnir bárust í morgun frá Mexico um ægilega sprengingu sem varö í vöruskemmu, þar sem dynamitbirgðir voru geymdar. A. m. k. 26 menn biðu bana, en um 130 meiddust alvarlega, sumir lífshættulega. Þrjú fjöl- býlishús, sem verkamannafjöl- skyldur búa í. hrundu til grunna í sprenginguni. Ekki er kunnugt um orsök sprengingarinnar. l/orÍMr ern u Iru rfei/iir. Kuniiu{*i um áraiigur af ftairoíör llammarsKjölds í dag. Myndftrlegifir gullmoli. Tass-fréttastofan segir, að nýlega Jiafi fundizt gríðarstór gullmoli í Síberíu. Vó gullmoli þessi hvorki meira né minna en 12,4 kg. og fundu hann tveir gullgrafarar á bökkum Lenu-fljóts. Molinn er næstum 20 sm. í þvermál. Þingleiðtogar berjast. Fregnir frá Valetta, höfuð- borginni á eynni Möltu, herma að Don Mintoff forsætisráðheiTa og dr. Carmel Caruana, leiðtogi þjóðemissinnaflokksins, hafi lent í óvanalega harðri sennu á þinginu. Hitnaði svo í þeim, að þeir fóru saman, og er menn gengu i milli höfðu báðir fengið áverka, og þó forsætisráðherra meiri, var hann alblóðugur í framan eftir þetta einvígi í þingsalnum. Um tíma kútveltust þingleiðtogar þessir á gólfinu. Krisna Mehnon sendiráð- herra índlands, sem nýlega var í Kairo og ræddi við Nasser, telur horfurnar tnn alvarlegar. Öflugir flokkar úr gæzluliði Sameinuðu þjóðanna hafa íek- ið sér stöðu á landamærum Israels og Egyptalands. Dag Hammarskjöld fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna ræðir í dag í höfuðstöð þeirra í New York við sjö þjóða nefndina, sem honum er til aðstoðar, og á þeim fundi gerir hann grein fyrir árangrin- um af viðræðunum við Nasser. Engin opinber tillcynning hef- ur verið birt urn þær viðræður. Eftir fundinn mun Hammar- skjöld ræða við fastafulltrúa Bandaríkjanna og Bretlands, hvorn í sínu lagi, og þar næst við fulltrúa Egyptalands og Israels, einnig hvorn í sínu lagi. Liggur ljóst fyrir í dag. Ætti þá að liggja ljóst fyrirj í dag hversu horfurnar raun-1 verulega eru, og hverjum aug- um verður litið á árangurinn af Kairoför Hammarskjölds. — Fréttaritarar segja að vísu, að I Hammarskjöld sé ánægður með \ árangurinn, en ekkert liggur | fyrir um það opinberlega hverj- ar niðurstöður urðu. Sagt er, að Hammarskjöld hafi fallist á, að öll skipagjöld vrðu greidd samkvæmt tillögum Egypta, en þetta er mikið deiluatriði, og Bretar hafa til dæmis krafist þess, að brezk skipagjöld yrðu j greidd inn á reikning í London. 1 Þá er það meginatriði hvert - eigi að vera framtiðarfyrir- komulag á skurðmum og þykir meir en vafasamt, að siglinga- þjóðir telji mikið öryggi í því, ef ekki verður alþjóðleg' stjórn á skurðinum, eða a.m.k. al- þjóðlegt eftirlit með rekstri hans. Siglingarnar um skurðinn. Israelsmenn eru nú sagðir ætla að senda skip inn í skurð- inn til þess að fá úr því skorið, hvort Egyptar muni fram- kvæma fyrri hótanir um að leyfa israelskum skipum ekki að nota hann. Nú hefur Krisna Mehnon skýrt frá því, að Nass- er hafi fallist á, — þótt hann sé á öðru máli en indverska stjórnin — að láta alþjóðadóm- stólinn í Haag skera úr um rétt Israels til að nota skurðinn. — Indverjar telja ölium þjóðum heimilt að nota hann. Að sjálf- sögðu tekur nokkurn tíma að fá þann úrskurð. En hvað ger- ist þangað til, spyrja menn. Gaza og Akaba. Þó byggja menn nokkrar vonir á því, ef rétt reynist, að Egyptar hafi fallist á, að gæzlu- 1 lið Sameinuðu þjóðanna verði áfram um sinn í Gaza og við Akabaflóa. En ekki er vitað, að þeir hafi fallið frá yfirlýsing- j um um, að gæzluliðið skuli hverfa burt, er þeir krefjast j þess. Frá fréttaritara Vísis. Osló í fyrradag. Vetrarvertíðin í Norður- Noregi og þá sérstaklega við Lofot virðist ætla að bregð- ast algerlega. Frá áramótum til þessa er verðmæti aflans upp úr sjó við Lofot 50 milljónum króna minna en gerist í venjúlegu ár- ferði og fyrir allan Norður- Noreg er búizt við að viðskipta rýrnunin af völdum aflabi'ests- ins nemi 100 milljónum norskra króna. I síðustu fréttum að norðan segir að ékki sé útlit fyrir að bregði til batnaðar með afla- brögðin. í vikunni sem leið landaði allur bátaflotinn ekki nema 1827 lestum, en í sömu viku í fyrra var vikuaflinn 8402 lestir. Heildaraflinn frá ára- mótum fram til 19. marz var oi'ðinn aðeins 9580 lestir á móti 22.000 í fyrra. Aflamagnið á vetrarvértíð- inni í fyrra var þó ekki sérlega mikið miðað við það sem áður hefur verið. Þá var þorskaflinn samtals 31.225 lestir en í hitt- eðfyrra var hann 55.330 lestir. Hver er ástæðan? Hver er ástæðan fyrir þessu aflaleysi, á þessum fengsælu fiskimiðum, þangað sem árlega eru sóttar milljónir króna? — Fiskifræðingarnir segja, að að- alorsökin muni vera sú að sjór- inn sé of kaldur allt niður í 120 metra dýpi Ástæðan fyrir þessum óvanalega sjávarkulda ier hins vegar ekki ljós. Þá benda fiskifræðingarnir á það, að hinar gífurlegu og kapps- fullu togveiðar Rússa nú á síð- ustu árum í Barentshafinu hafi mikil áhrif á fiskstofninn við Norður-Noreg. Vandræðaástnd Iiéfur skapazt. Átta bæir við Lofoten háf.t beðið rikisstjórnina um fjái ■ hagsaðstoð til handa sjómönn um og fólki, se matvinnu hefi af fiskvinnu í landi og.m.a, ósk að eftir því aðþeim væru gefn- ir upp skattar. Þar að auki hai þessi hæjarfélög beðið um ac - stoð frá í'íkinu vegna þess í i útsvarstekjur og aðrir tekji stofnar hafa algerlega brugðií : vegn fiskileysisins. Síldarvertíðin brást líka. Útgerðarmenn og sjómenn í Vestur-Noregi liafa líka orð > hart úti vegna þess að stórsílc arvertíðin var með lélegasi móti og vorsíldveiðar einn ; mjög léleg. Aflabresturinn c hæ'kkun á olíuverði samfaj margs konar hækkunum á öði um útgjaldaliðum í útgerð hef - ur orðið til þess að jafnvel hi i fjársterkustu útgerðarfélc . rámba á barmi gjaldþrots. Þótt ekki sé kominn sá tírr i sem vorsíldveiðinni venjuleg i lýkur hefur mörgum skipui 1 verið lagt, vegna þess að ekl i eru taldar líkur á því að nokl ur breyting verði á aflabrögð- unum. Krefjast hærra fiskverðs. Ú.isksölufélög í Þrándheur: og þar fyrir sunnan hafa fari ■ fram á það við verðlagsstjórr, ina að fá a'ð hækka fiskverði i til að mæta auknum kostnaöi og minnkandi afla. Gresjueldar valda miíljónatjóni. Tjón það, sem varð af gresju- eldunum í Vestur-Ástralíu laust eftir miðjan þennan mánuð, nam yfir 3 milij. dollara að minnsta kosti. Mikið tjón varð á spildum þar sem verið er að rækta skóg. Þegar mökkurinn var minstur, var borgin Perth hulin reykjar- mekki og varla líft i henni. Stjórnarblöðin gleyma nterkum degi. r>i PkY liðið frá samþykktinni um Knrottför varnarliðsins. Stjórnarblöðin hafa gert sig seka um mikla yfirsjón í morgun, því að þeim gleymdist alveg að geta þess, að í dag, 28. marz, er ár liðið frá því að núverandi stjórnarflokkar gerðu samþykktina um að varnarliðið skyldi hverfa af landi brott eins skjótt og kostur væri. Tóku kratar og framsókn þá höndum saman við kommúnista, sem alltaf eru fúsir til góðverkanna, og rifu einingu þá, sem verið hafði með lýðræðisflokkunum í utanríkismálum þjóðar- innar. — Það er kannske engin furða, þótt Alþýðublaðið og Tíminn nefni ekki þessa samþykkt Alþingis, því að svo illa hafa flokkar þeirra runnið í málinu, en hitt gegnir furðu, að Þjóðviljinn skuli gleyma þessum mikla degi. Hann hefði að minnsta kosti átt að geta krafizt þess, að farið verði „undanbragðslaust“ eftir samþykktinni, sem þingið gerði fyrir réttu árL

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.