Vísir - 09.04.1957, Síða 1
<*.?. árg.
Þiiðjudaginn 9. apríl 1957
84. tbl.
Áþekkur @fll kcMmiun þar á BasizS
t£3n sasíaia leytl i fyrra.
Frá Vestmannaey.jum var
Vísi síniað í morgun, að þar væri
nú kominn áþekkur aíii á land
og um saina leyti í fyrra, undan-
farna dag-a hefur verið þar bæði
mHíill og jafn afli.
Siðustu 4—5. sólarhringana
hefur þess einkum gætt, að
meira aflaðist en áður. Á laug-
ardaginn öfluðu tveir bátar um
eða yfir 60 lestir hvor, sem telja
má algert einsdæmi. Sídon fékk
66 lestir í einum róðri og Gull-
borg 59 lestir. Síðan hefur afl-
inn ekki verið jafnmikill hjá ein-
stökum bátum, en aftur á móti
mun jafnari og heildaraflinn
meiri. Á sunnudaginn bárust um
1500 lestir af fiski á land þar og
mun það vera einn mesti afla-
dagur það sem af er vertíð. 1
gær voru- bátarnir einnig með
ágætann afla.
Gamlir Vestmannaeyjasjó-
menn telja aflahrotu með fyrsta
straumi í aprílmánuði nær ó-
brigðula og þeim virðist hafa
orðið að trú sinni að þessu sinni.
Þessa dagana er veiðiveður lika
eins og bezt verður á kosið,
stillilogn og góðviðri.
Alls lætur nærri, að um 120
skip, stór og smá, stundi veiðar
frá Vestmannaeyjum og eyjar-
skeggjar eiga afkomu sína nær
eingöngu undir sjósókn og afla-
brögðum hverju sinni.
Gífurlegt annríki hefur verið
við höfnina undanfarna sólar-
hringa og er unnið þar látlaust
að nóttu sem degi, ekki aðeins
við löndun fiskaflans, heldur og
við út- og uppskipun. Flutninga-
skip, sem lestar 1000—2000 lest-
ir af beinamjöli, saltskip hefur
verið að losa salt.
ranJHOll
r? ' r £•> I
f- ivrvn' ra '
X.' .4 & -i'ií *i i' 5 L w w 'o 3
'
rrr . r ■
a. PSS3*S*SS
ÉSBSS ÉjÖE'SS.
Selfangarinn Polar Qusst og
togarinn Van der Weyde Iiggja
enn á Meúall > adfíjöru og 'nafa !
ekki náðst á flot.
Hefir nú Potar Qu:st legið j
þar í mánuð en Van der Weyde ■
í 10 daga. j
Búið er aí ná mestöllum
fiskinum úr Van der Weyde en
í honum voru um 100 tonn. Er
það nýr togari og mjög vand- !
aður. Mun hann vera sama og j
ekkert skemmdur og Polar j
Quest lítið skemmdur. Úm 7
km. mun vera milli strandstað-
anna og liggja bæði skipin á
þurru um fjöru, svo að hægt er
að komast út í þau þurrum fót-
um.
Smástreymt er nú og er ekki
hægt að vinna neitt að björgun
sem stendur, en með straumi
verður hafizt handa um að
reyna að ná skipunum á flot.
Menn eru alltaf niðri á sandin-
um til að gæta að hvað líður.
Einmuna veðurblíða er nú
fyrir austan, vegir ágætir og
jörð alauð.
q Hafskip á siglingaleiðum á
Norður-Atlantzhafi hafa orð-
ið að sigla allt að 40 sjómíl-
um sunnar en vanalega
vegna þess að borgarís er
nú meiri á venjuleguin sigl-
ingaleiðum en nokkrun tíma
fyrr í hálfa öld.
Þessi mynd var tekin í gserkvcl á foreldrafundi, sem haldinn var í Melaskólanum. Þar kom
fram lúðraveit Vesturbæjrv. ungir sveinar og áhugasamir, sem skemmtu fundarmönnum með
leik sínum og fensu svo mikið tófatnk að launum, að þeir urðu að „gefa aukalag“. Paul
Pr.rr iichíei' hefur stjórnað lúðrasveitinni frá byrjun — véturinn 1955—56 — og tekizt með
ágætum. (Ljósm.: Pétur Thomsen).
*
m e
Mikið athafnalíf í ÞorSákshöfn.
Shipahotnur tíöur «<r/ úgcetur
ufli ú hútuna.
Frá fréttaritara Vísis
Selfossi í gær.
Ágætur afli var hjá Þorláks-
hafnarbátum í vikunni sein leið
og einn daginn komst heildar-
afli þeiri-a (en þeir eru 7-8) allt
upp í 180 Iestir.
Síðastliðinn föstudag öfluðu
þeir samanlagt 130 lestir, sem
einnig verður að teljast mjög
gott.
Á laugardaginn leituðu bæði
Eyrarbakka- og Stokkseyrar-
bátar til Þorlákshafnar vegna
brims og sjógangs í heimahöfn-
um. Aflanum var skipað upp i
Þorlákshöfn, en megnið af hon-
um síðan flutt á bílum til Eyrar-
bákka og Stokkseyrar.
Lítilsháttar af aflanum var
íSaltað í Þorlákshöfn.
Mikið hefur verið um skipa-
komur til Þorlákshafnar síðustu
dagana og athafnalíf þar mikið.
Faxaborg frá Reykjavík lagði
þar upp afla sínum s. I. laugar-
dag, en bílar sóttu fiskinn og
fluttu til Reykjavíkur.
Fyrir helgi kom Hvassafellið
til Þorlákshafnar og losaði þar
fóðurbæti og í gær kom Arnar-
fell með áburð. En ekki gat
skipið athafnað sig við bryggju
í gær sökum sjógangs og bíður
með að losa sig þar til brimið
gengur niður.
Vegna hinnar miklu atvinnu í
Þorlákshöfn síðustu dagana
hafa verkamenn frá þorpunum
austan fjalls farið í hópum til
Þorlákshafnar og unnið þar dag
og nótt við höfnina.
sakfelldur?
Krafist líflátsdóms. —
Horfur betri fyrir Adams vegna
ágreinings lækna.
Ákærandinn í málinu gegn
Adams lækni, en það er rekið í
London (í Old Baily réttinum),
og hann er sakaður um að hafa
myrt ekkjufrú Editli Morrel,
með eiturlyfjagjöfum, svo sem
getið hefur verið í fyrri fregn-
um, krefst dauðarefsingar.
Framburður vitna í þessu
máli að undanförnu hefur vak-
ið alveg geysilega athygli, eink-
anlega vegna þess, að verjanda
tókst að gera eitt aðalvitnið,
hjúkrunarkonu hikandi um fyrri,
ákveðinn framburð sinn, og leiða
fram sem vitni lækni, sem var
algerlega á annarri skoðun en
læknir sá, sem saksóknarinn
tefldi fram. Var verjandi svo
gunnreifur orðinn, að hann vildi
fá
málinu vísað frá, þar sem
sannað væri, að ekkert hefði
komið fram sem réttlætti,
að því væri haldið áfram,
— en því neitaði dómai’inn.
Ekkjan var 81 árs og átti
Adams von að fá arf samkvæmt
erfðaskrá hénnar. Hún lézt í
Eastbourne aðfaranótt 13. nóv.
1950.
Við vitnaleiðslurnar lét lækn-
ir sá, sem síðar var leiddur sem
vitni, dr. Harman, eftirfarandi
í ljós, gagnstætt því, sem hinn
læknirinn, dr. Douthwait hafði
haldið fram:
• Það er ekkert, sem mælir
gegn því að gefa öldruðu
fólki inn heroin.
@ Hann taldi ekki Iiættulegt,
að gefa inn bæði heroin og
morfin, en livorttveggja
Iyfið er unnið úr opium.
@ Það er rétt og lögmætt af
lækni að nota eiturlyf til að
lina þjáningar sjúldings,
þótt ekki sé um sárar kval-
ir að ræða.
• Að liætt var í 6 daga að gefa
sjúklingnum morfin, ineðan
lialdið var áfram með
heroin, bendir alls ekki til
að um neinn illan tilgang
liafi verið að ræða.
• Loks kvaðst lækniriim eklti
hafa fundið neitt furðulegt
við það, þótt læknirinn hafi
skipað hjúkrunarkoniuuii 9.
nóv. 1950 að gefa sjúklingn-
um korn af heroini, er þörf
krefði. „Eg geri það oft
sjálfur. En liimi læknirinn
liafði sagt, að þetta hefði
verið furðuleg fyrirskipun.
Saksóknara tókst ekki að fá
dr. Harman til að hvika frá
neinu.
Belgiskur togari
tekinn í fandhelgi.
Belgiskur togari var tekinn í
landhelgi síðdegis í gær og fór
varðskip með hann til Vest-
mannaeyja. Hófust réttarhöld
kl. 9 árdegis.
Togarinn var tekinn út af
Mýrnatanga kl. 6 síðdegis í gær
vestan Kúðafljóts og reyndist
vera 0.7 sjómílur innan land-
helgi. Skyggni var slæmt.
Fyrsti stýrimaður, sem var
á vakt, hefur játað að togarinn
hafi verið innan landhelgi.
Togari þessi er stór og nefn-
ist John og hefui einkennis-
töluna 081 og er frá Ostende.
Drengur sBasasf
i morgun.
Laust fyrir hádegið í morgun
varð slys á Laugavegi rétt aust-
an við gatnamót Rauðarárstígs.
Sex ára gamall drengur,
Helgi Kjartansson, Melgerði 25,
vara að fara út úr strætisvagni,
en féll við það í götuna. Vagn-
stjórinn mun hafa ekið um
sama leyti burt og að því er
sjónarvottur telur, mun vinstra
afturhjól vagnsins hafa lent á
vinstra fæti drengsins og far-
ið yfir hann.
Vagnstjórinn varð ekki
slyssins var^ en nærstaddur
maður kallaði til hans, er hann
sá hvað skeð hafði, og nam ek-
illinn þá strax staðar.
Drengurinn var strax fluttur
í Slysavarðstofuna og var ver-
ið að rannsaka meiðsli hans er
blaðið frétti síðast.
Aswanstíflan
- Seiimsíu írcgiiifl’
Seinustu fregnir um Aswan-
lileðsluna fyrirhuguðiu eru þess
ar: —
Egyptar breiða það út, að
ráðstjónrin rússneska ætli að
leggja fram fé það og tækni-
lega aðstoð til þess að reisa As-
wan-fyrirhleðsluna og önnur
mannvirki í tegslum við hana.
Vesrænir stjórnmálamenn líta
á þetta sem einskonar áróður,
sem eigi enga stoð í veruleik-
anum, og sé áróðurin ætlaður-
til þess, að hressa upp á álit
Nassers meðal arabisku þjóð-
anna, en trúin á forystuhæfi-
leika hans sé allmjög dvínandi.
jLiéfa telpan
rufnulaus enn.
Litla telpan sem slasaðist á
Suðurlandsbraut fyrra laugar-
dag, lá enn rænulaus í gær, er
Vísir spurði um hana í gær.
Er hún nú búin að vera
rænulaus í 10 daga.