Vísir - 26.04.1957, Side 1
Föstudaginn 26. apríl 1957
93. tbl.
Mli minkar sunnan Reykjaness,
en gSæðist í Faxaflca.
Lokirs eru í nánd
fádæma
Sandgerði eftir
vertíð.
Allmikið hefur dregið úr afla
Vestmannaeyjabáta síðustu
viku og fæst nú orðið lítið á
heimam’ðum, ien hinir stærri
bátar hafa flutt net sín austur
að Ingólfshöfða og hafa sumlr
fiskað þar mjög vel, t. d. kom
Víðir frá Eskifirði í fyrrakvöld
með 67 Iestir sem hann fékk á
þeim slóðum.
Þótt dregið hafi verulega úr
afla telja sjómenn að fiskufinn
sé ekki farinn, þótt hann fáist
hvorki á línu, í net eða á hand-
færi. Kemur það fyrir að lóðað
er á mikinn fisk, þótt hann fá-
ist ekki. Fiskurinn heldur sig
nokkra faðma fyrir ofan netin
en gengur ekki til botnsins. í
gær fengu 3 bátar 18 lestir hver
norðvestur af Eyjum og bendir
það til að nokkur aflavon sé þar
er.n.
Grindavík.
í Grindavík var fremur rýr
afli í gær. Viktað var þar úr 12
bátum 97,5 lestir samtals. Þrír'
hæstu bátarnir voru með 11 lest
ir hver, en aðrir fengu mjög
lítinn afla. Veður var fremur
risjótt en í dag er gott veður
og bátar allir á sjó.
Sandgerði
ing því þessa daga heíur bann
haft frá 7 til 11 lestir í róðri.
Það er með Eggert Gíslason,
skipstjóra á Víði í Sandgerði
eins og Bcnóný á Guliborgu
að þeir virðasi hafa yfirnátt-
úrulega hæfileika til að íiska.
Akcancs.
Þeir fcátar, sern eru mcð net
sín í Faxa ióa. ha.a atiað sæmi-
lega að u idfnför íu. Akránes-
bátar voru með 9 td ’S lestir
tveggja nátta. Svipaður afii
er hjá öðrum bátum í Faxa-
flóa.
Lokin eru í náfnd, símaði
fréttaritari Vísis í Sandgerði í
morgun. Afli er sáralítill, og nú
eru þrír aðkomubátar hættir
eftir mjög lélega vertíð. Eru
það Helga frá Húsavík, sem afl-
að hefur samtals 402,7 lestir.
Huginn frá Norðfirði með 225
lestir og Hannes Hafstein frá
Dalvík með 313,9 lestir.
Á þriðjudag var aflinn hjá
flestum 2—3 lestir. Á miðviku-
dag var það enn verra, þá var
aflinn frá l1/^—2 lestir, og í
gær var hann 3 til 7 lestir.
Víðir er þó nokkur undantekn-
Bát rsk’ií L-3 í
Þoríákshöfíi.
Frá fréttarritara Vísis Sel-
fossi í morgun.
í fyrradag réru bátar ckki
frá Þorlákshöfn vegna veðurs
og þegar kom fram á daginn
gerði ofsarok á austan. Vildi
þá svo til að cinn af bátum
Meitils h. f. slitnaði upp á leg-
unni og rak á land.
Var þetta m.b. Jón Vídalín,
17 lesta bátur. Þar sem bátinn
bar að landi rétt utan við
norður bryggjuna, gengur sand-
rif fram í sjóinn og skemmd-
ist því báturinn lítið að öðru
leyti en því, að lunningin brotn
aði nokkuð. í gær var svo
bátnum náð út og fór hann í
róður um fjögurleytið í morg-
un.
Afli er nú mjög tregur í Þor-
lákshöfn og hefur raunar lítið
sem ekkert aflazt síðan á skír-
dag, en þá var bezti afladag-
ur vertíðarinnar. Á land bárust
þá á annað hundrað lestir og
sumir bátar tvíhlóðu.
Vertíð er nú að ljúka á Þor-
lákshöfn.
DANÍA Á VALDI
OG KON
Herlög í gildi. - Ný stjórn mynduð.
Stjórnmálaflokkar bannaóir.
iSamIarík|alloía skipad tfál austur-
hluta Míðjarðarhak í öryggis skrni
Frcgnir frá Amman í morgun j Svo brá við, þegar eftir að
herma, að borgin sé algerléga herlög voru sett, að ei sást nokk
Þeíta cr Hrbos rl Majali, sem
gcrf’ur hefur verið formaður
herf. rimriaráðsins 1 Jordaníu
til bráðabirgða.
§kákþÍHgið:
Friðrik og Freysteinn
í jafntefli.
Frá fréttaritara Vísis Akur-
eyri í morgun.
Sjöimda umferð í landsliðs-
flokki Skákþings íslendinga var
tefld á miðvikudagskvöldið og
áttunda umferð í gær.
í sjöundu umferð vann Frið-
rik Ólafsson Júlíus Bogason,
Bjarni Magnússon vann Braga
Þorbergsson, Stígur Herlufsen
Ivann Kristján Theodórsson og
Sigmar Jónsson vann Eggert
Gilfer. Skák Arinbjarnar Guð-
mundssonar og Freysteins
. Þorbergssonar varð jafntefli.
I í áttundu umferð vann Arin-
björn Guðmundsson Bjarna
ÍMagnússon, Freysteinn Þor-
j bergsso og Friðrik Ólafssön
gerðu jafntefli, en aðrar skákir
fóru í bið.
Eftir átta umferðir eru efstir
Friðrik Ólafsson með 7% vinn-
ing, Freysteinn Þorbergsson
6V2 vinning og Arinbjörn Guð-
mundsson með 5 % vinning.
í meistaraflokki er Þráinn
Sigurðsson frá Siglufirði efstur
með 8 vinninga eftir 9 umferð-
ir og næstur Jóhann Sorrason
Akureyri með 7 vinninga.
í gær var sákmönnum boðið á
sýningu Gullna hliðsins á Akur-
eyri.
Meðal skemmtiatriða á útihátíð barnadagsins í gær var leikur
lúðrasveitar drengja úr Vesturbænum. Venjulega stjórnar Paul
Pampicher leik þeirra, en þar sem hann stjórnaði að þessu sinni
Luðrasveit Reykjavíkur, tók einn af drengjunum að sér hlut-
Verk hans — Eyjólfvr Melsteð. Fórst honum stjórnin vel úr
liendi. (Ljósm.: P. Thomsen).
Norsk verksmiðja, Stella
Polarplast, hefur byrjað
framleiðslu á fiskikössum úr
plasfi. Er það alger nýjimg.
Hægt er að nota kassana oft-
ar, þarf ekki annað en að
þvo þá, til þess að > nota þá
t. d. til ávaxtaflutninga.
á valdi hersins og en"ar fregnir
hafa borizt, er benda til annars
að herinn hafi allt Iandið á
v'Idi sínu.
Þs; ar Khaldis var til þess
k iúirin að biðjast lausnar fyrir
sig og rúðuneyti sitt að kröfu
róitæ&u flokkanna, en lýður-
inn æstur upp af kommúnist-
um stofnaði til útifunda og æs-
inga, tók Hussein konungur til
sinna ráða, setti herlög í land-
inu, bannaði alla stjórnmála-
flokka og fól Ibrahim Hasjim
að mynda ríkisstjórn, en hann
er aldraður þrautreyndur
stjórnmálamaður. sem hefur
fjórum sinnum verið forsætis-
ráðherra.
Þegar var seni herlið á öll
vegmót, sem liggja til aðal-
borganna og brynvarðar bif-
reiðar sáust á götunum og
skriðdrekar. Kom enn í ljós, að
konungur gat treyst á herinn,
en Beduinar eru hans tryggustu
stuðningsmenn jg kjarni hers-
ins.
Brezkir koptar
eftirsóttir.
Bretar hafa smíðað fleiri
helikopterflugvélar en nokkur
þjóð önnur.
Vestur-þýzka stjórnin hefur
nýlega samið um smíði 50
helikopterflugvéla af gerðinni
„Sycamores", og verða þeir
smíðaðir í Bristol. flugvéla-
verksmiðjunum. Flugvélaverk-
smiðjur í Bandaríkjunum og
víðar sóttust eftir, að fá að
smíða helikopterflugvélar fyrir
V.-Þ. — Á pöntunarlista hjá
Bristolverksmiðjunum eru alls
200 helikopterflugvélar sem
stendur.
Atvinnuleysi minnkar
hjá Bretum.
Nýhirtar skýrslur um at-
vinnuleysi í Bretlandi sýna, að
tala atvimiulausra í landinu
hefir verið 363.000 um miðbik
sl. mánaðar.
Mánuði áður voru þeir 380
þús. talsins. — Búist er við, að
tala atvinnulausra manna fari
mjög lækkandi í vor, eins og
venja er á þessum tíma árs.
ur maður á götunum í Amman,
nema hermenn, nema á þeim
tveimur tímum, sem fólki var
leyft að fara í búðir til þess að
afla sér nauðsynja.
Hussein ber sakir
á Nabulsi.
Bæði hinn nýi forsætisráð-
herra og konungurinn ávörp-
uðu þjóðina í útvarpi. For-
sætisráðherrann bað um stuðn-
ing hennar, og bað hana vera
rólega og gætna og veita kon-
unginum fulla hollustu. Kon-
ungurinn veittist harkalega að
kommúnistum í ræðu sinni og
kenndi Nabulsi um hversu
farið hefði í landinu. Var það
vitað, að það var að konungi
þvernauðugum, að hann var
tekinn í stjórn Khalidis, en það
var þó gert, ef það gæti orðið
til þess að friða róttæku flokk-
ana. Það brást. Konungur kvað.
Nabulsi samsærismann — hann
hefði setið á svikráðum við
konungsvaldið. Konungurinn
kvaðst mundu halda áfram bar-
áttu sinni gegn kommúnisman-
um. Hann kvaðst ekki hafa
tekið afstöðu til Eisenhower-
áætlunarinnar — Það yrði gert
í samráði við aðrar Araba-
þjóðir.
Stuðningur Saud.
Kuwatli fer til
fundar við Nasser,
Fregnir voru birtar um, að
Saud konungur hefði fyrirskip-
að að koma Jordaníu til stuðn-
ings, ef til nokkurrar íhlutun-
ar kæmi frá Sýrlands hálfu og
var jafnvel fullyrt, að arabisk
Framh. a 5. síðu.
Þjófalykill
úr nylon.
Fyrir nokkru var handtekinn
í Genf þjófur, sem hafði í fór-
um sínum þjófalykil, sem Jhægt
er að opna með næstum hvaða
lás sem er.
Hann er útbúinn nylonburst-
um á öðrum enda. Lögreglusér-
fræðingar telja þetta einhverja
hættulegustu uppgötvun, sem
frá glæpamönum er komin, og
segja hana bera mikilli hug-
vitssemi vitni.