Vísir - 28.05.1957, Blaðsíða 1

Vísir - 28.05.1957, Blaðsíða 1
WI 47. árg. 1S6I Jbux -gz uuiSBpnfei.14 114. tbl. MoiiSesiiiáfisiy lokið - Piccioni sýknaður. Flestir aðrir s&kborningar vortp, einnig sýknaðir. Réttur í Feneyjum hefur hveðið upp dóm í máli því, sem reis út af ’því, að lík uiígrar konu, að nafni Wilmu Montesi, fanst í fjöru skammt frá Róma- borg í apríl 1953. Kviknaði grunur um, að ekki væri allt með felldu um dauðdaga lienn- -ar. Réttarhöldin stóðu fulla þrjá mánuði og hefur málið allt ver- ið efni heimsblaða. allt frá því er líkið fannst, og mikið hefur verið skrifað um eiturlyfja- nautn í Rómaborg í sambandi við þetta mál, g'leðihóf og því um líkt. Við riðnir voru þrír menn einkanlega, sem teljast aðal- sakborningar, og voru þeir allir sýknaðir. Þar var þyngstum sökum borinn Piero Piccioni, sonur Piccionis fyrrv. utanrík- isráðherra, sem baðst lausnar vegna hneykslismáls þessa, en hann var sakaður um mann- dráp, — Polito, fyrrverandi lögreglustjóri í Rómaborg, sem fór frá vegna getsaka — í sambandi við rannsókn máls- ins, og Montagna greifi, eða svo kallar hann sig, og voru tveir hinna síðarnefndu sakaðir um ' yfirhilmingu. Einnig voru sýknaðir 8 menn, sem gefið hafði verið að sök að hafa borið ljúgvitni fyrir rétti, en einn maður hlaut 10 mánaða dóm fyrir slíkar sakir. Á annað hundrað ítalskra manna, karla og kvenna, úr ýmsum stéttum var leitt fyrir rétt til þess að bera vitni. 1 Að undanförnu hefur ekki verið farið dult með það í Róma borg, að sýknudóms í málinu væri vænst. Er þar með eitt 100 Kinverjar drukkna. Úvarpið í Peking hefir skýrt frá miklu slysi, sein varð á Gula fljóti. Ferja með 280 manns innan- borðs var að fara yfir fljótið, þegar eldur kom upp í henni og hún sökk rétt á eftir. Hundrað manns drukknuðu. mesta hneykslismál síðari tíma til lykta leitt. Stjcrnaríi5Éð stóð hölEum fæti við umræðurnar í gær. [»«» þrcftíSí Bciigri ræðuiiEiia en sjtílísiæðisineim. er frá f. Kr. I Jeríkó í í‘ racl hefir fundizt liús, sem talið cr að sé frá 6800 f. Kr. burð. | Nemendur og kénnarar brezká fornfræðaskólans í Jerú- Fyrstu andarungarnir eru nú koninir á tjörnina. Þassi mynd var tekin í gærinorgun á nyrð.’i salem hafa unnið við uppgröft tjöniinni> þai. SMn hr.vkin mó0 r 1 borginni undanfarin fimm ár ,agð; frá landi með 8 dúnhnoðra. og komið m. a. ofan á nokkur Þsir ,!ættu sér ekki langt frá hús, og er hið elzta áætlað frá 6800 f. Kr. mömnui i byrjun. Lá við s'ysi í Bíll kastast langar leiðir út fyrir veginn vegna þess að hemlar biluðu. Síðdegis í fyrradag lá við slysi í Svínahrauni er bifreið fór út af veginum á ailmikiili ferð og mun liafa kastast marga metra út fyrir vegbrún. Orsakir þessa atviks munu vera þær að hemlar bifreiðar- innar biluðu og voru óvirkir þegar draga þurfti skyndilega úr ferðinni. Varð ógæfan þá ekki umflúin og skemmdist bíllinn mikið, en fólkið sem í bílnum var slapp ómeitt og þótti það furðu gegna eftir öllum aðstæð- um að dæma. , , ^ A 1 . , Fleygði sér í liöfnina. Aðfaranótt sunnudagsins fleygði maður sér í höfnina, en hann náðist í tæka tíð og var bjargað til lands. Hann var töluvert undir áhrifum áfengis og neitaði að segja lögreglunni til nafns síns. Var hann þá settur í fangageymslu og geymdur til morguns þar til bráði af honum. Ekki vai'ð hon- um meint af volkinu. Eldur. í gær var slökkviliðið kvatt að húsi einu við Ásvallagötu. Talið er að krakkar hafi kveikt þar í hjólbarða í miðstöðvar- I klefa og logaði í honum þegar slökkviliðið bar að. Skemmdir \ urðu engar. | Á laugardaginn varð elds ^ vart milli þils og veggjar í matstofunni Brytinn í Hafnar- stræti. Eldurinn var strax slökktu og skemmdir ekki telj- andi. Hús fýkur. I hvassviðrinu á föstudags-' morguninn fauk skúr í Skerja- firði á hiiðina. Lögreglunni var gert aðvart um þetta og mun hún hafa farið á staðinn til þess að koma í veg fyrir frekara tjón. _______ 9 IVIao tse Tung hefur fiegið boð Voroshilovs, að koma í opinbera hehnsókn til Moskvu. — Seinast var Mao þar 1959, í tíð Stalíns sál- Eldhúsdagsumræðurnar hóf- ust í gærkvöldi og var ein um- ferð, 45 mín. fyrir hvern flokk. i Mun engum dyljast, sem hlustaði á umrreðurnar, að stjórnarliðið stóð höllum fæti, enda bentu sjálfstæðismenn á það, hvernig það hefði brotið, öll sín kosningaloforð. Að vísu fékk hver stjórnarflokkanna jafn-langan tíma til umráða' I og sjálfstæðismenn, en ekki næ' ir slíkt til að sannfæra al- m.f'nning um, að stjórnin hafi rert þ" 1, sem hún hafði heitið kí 'sendum sínum. Staðreynd- um veiður ekki breytt með því að fá stjórninni þrefalt lengri ræðutími en sjálfstæðismönn- um. Ræðumenn Sjálfstæðis- flokksins voru Ólafur Thors, Jón Pálmason og Sigurður Bjarnason. Ólafur var fyrsti ræðumaðurinn og rifjaði hann upp loforð stjórnarflokkanna og svikaferil þeirra. Ræða Jóns Pálmasonar fjallaði eink- um um málefni iandbúnaðar- ins og fjármálin yfirleitt, en , Sigurður Bjarnason gat þess m. a. í sinni ræðu, að skattar þeir, sem stjórnin tæki nú af fimm manna fjölskyldu á ári, væru jafn-háir og áætluð útgjöld jafnstórar fjölskyldur fyrir allt kjötmeti, sem hún legði sér til munns, mjólk, mjólkúrafurðir og þess háttar. Umræðunni verður haldið áfram í kvöld, og verða ræðu- menn Sjálfstæðisflokksins þeir Bjarni Benediktsson, Ingólfur Jónsson og Gunnar Thoroddsen. Ýmist í ökla eða eyra. Flóð mikil hefir igert í A.- Tyrklandi og hafa fimm manns drukknað og samgöngur teppzt. Fýrir aðeins hálfum mánuði báðu menn á þessum slóðum um regn í bænum sínum, því að gróður allur var að skrælna af völdum margra vikna þurks. Eldhúsumræðurnar: Röð flokkanna í kvöld. \ Eldhúsumræðui fóru fram í gærkveldi og var þeim útvarp- að. Verður þeim haldið áfram í kvöld. Röð flokkanna í gærkveldi var sem hér segir: Sjálfstæðisflokkur, Fram- sóknarflokkur, Kommúnista- flokkur og Alþýðoflokkur. Röð flokkanna i k\-öld verð- í ur sem hér segir: Sjálfstæðisflokkur, Alþýðu- fiokkur, Framsóknarflokkur og Kommúnistaflokkur. Einstæð skurðaðgerð á sel. Fyrir nokkuru var keisara- skurður gerður á kæpu norður í Axarfirði og munu ekki þekkjast dæmi slíks atviks hér við land áður. Blaðið Dagur á Akureyri hermir að Þorgrímur Maríus- son frá Húsavík, sem var ásamt fleirum á loðnuveiðum á Axar- firði hafi skotið sel. Selurinn reyndist vera kæpa og þegar búið að að innbyrða hana sást hreyfing í kviði hennar. Var þá skorið á kvið- inn og tókst að ná kópnum lif- andi. Hann var með litlu lífs- marki, en var gefin volg ný- mjólk að drekka og við það hresstist hann fljótt. Farið var með hann til Húsavíkur. Þoturnar flugu í lotu frá London til Los Angeles á aðeins tæpum 11 stundum. /»«*r Htiffu siivribur hintjad til aö tá eídsaeyti á flutji- Fyrir nokkru flugu þrjár bandarískar þotur með einum hrej’fli viðstöðulaust frá ILondon til Los Angeles vestur við ICyrra- ' haf. Hafa svo lítlar þotur aldrei flogið aðra eins vegarlengd í einni lotu, en þessi leið, sem um jer að ræða, er næstum 10,800 km. Lengir það Ieiðina til muna, jað þotumar flugu undir ísland á leiðirmi, en það var gert tii þess, að þær gætu fengið elds- neyti á Iofti frá flugvélum, sem hér hafa bækistöð og eru „fljúg- andi geymar'1. AIIs Iögðu sex þotur upp frá London og var ætlunin, að þrjár þeirra flygju yfir borgina Jam- esto'wn í Virginiu-fylki til að minnas t þess,. að nú eru 350 ár, síðan brezkir. menn stofr.uðu þar nýlendu. Þrjár flugvélar voru látnar fara með þeim „til vara“ í þeirri von, að a.m.k. þrjár kæsnust alla leið, enda tókst það. Voru vélarnar yfir hátíðasvæð- inu aðeins 7 klst. og 48 mín. eftir að þær lögðu upp frá London, en flugið alla leið til Los Angeles tók 10 klst. og 58 mín. Var Iengstum ■ flogið í 11 km. hæð. Kjörbúð verður opnuð á JLaugavegi 116, þai' sem Hús- gagnaverziun Austurbæjar vr.r til skamms tima. í gær var skitti fyrirtækisms sett npp og þurí’íi til þess krana mikinn, þvi að skiltið er næstum 3 mannliæóir og þungt eftir því.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.