Vísir - 26.06.1957, Blaðsíða 4

Vísir - 26.06.1957, Blaðsíða 4
4 HISIA Miðvikudaginn 26. júlí 1957. D A G B L A Ð yífiir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Eltstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 1660 (fimm línur). Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIE H.F. Vísir kostar kr. 20,00 í áskrift á mánuði, kr. 1,50 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Krókódílistar Tímans. Á sunnudaginn fjallaði forustu- grein Tímans — öll og ó- skipt — um Ungverjalands- skýrsluna, sem kom út í síð- ustu viku. Eins og menn rekur minni til, kaus alls- herjarþingið á sl. hausti sérstaka nefnd til að rann- saka alla atburði í sambandi við frelsisbyltinguna, og nefndin hefir nú skilað áliti eftir hálfs órs starf. Niður- stöður hennar hafa verið birtar hér að nokkru leyti, eða eins og rúm þeirra blaða leyfir, sem telja ekki á- stæðu til að halda öllu leyndu um hana, og menn vita því, að skýrslan er í alla staði hörð ákæra og miskunnar- laus fordæming á kommún- istastjórninni í Moskvu fyr- ir athæfi hennar gagnvart Ungverjum, svo og á þjónk- un Kadars og annarra slíkra kvislinga. Og vitanlega er Tíminn fullur hluttekningar með Ungverj- um. Hann kemst meðal ann- ars svo að orði í forustugrein sinni á sunnudaginn: „Með þessari framkomu sinni í Ungverjalandi hefir stjórn Sovétríkjanna sýnt, að hún metur einskis rétt og frelsi smáþjóðanna, þegar völd- hennar eru annars vegar. Þess vegna er furðulegt. að til skuli vera menn meðal smáþjóðanna, sem dá fram- ferði hinna rússnesku vald- hafa og teija stjórnarhætti þeirra hina'' sönnu fyrir- mynd. Það minnir vissulega á þá, sem létu blindast af Hitler forðum.“ Ennfremur segir Tíminn: ,,Nú- verandi stjórn er bersýnilega fylgislaus meðal þjóðarinn- ar og byggir völd sín ein- göngu á rússneska hernum, sem dvelur í landinu. í skjóli hans fremur hún hin full- komnustu myrkraverk.Menn hafa verið fangelsaðir þús-1 undum saman, fjöidi dauða-j dóma hefir verið kveðinn' upp, jafnvel konur hafa ver-j ið fluttar nauðugar úr iandi o. s. frv. Það litla frelsi, sem ’ þjóðinni var veitt á síðast1 liðnu ári, hefir verið afnum- 1 i ið aftur. Kugun og ofriki fer vaxandi að nýju á flestum málurn .'. . . Eina hjálp er þó örugglega hægt að veita' henni (ungversku þjóðinni)J Það er að gleyma ekki því, ^ sem gerzt hefir og er að ger- ast í Ungverjalandi, heldur halda því stöðugt vakandi, unz hinir rússnesku valdhaf- ar gera sér ljóst, að það er þeim og áliti þeirra fyrir beztu, að lina á heljartökun- um á Ungverjaiandi og' draga her sinn þaðan í burtu.“ Fleira skal ekki til tínt úr þessari grein Tímans -----að sinni. Já, Tíminn grætur örlög Ung- verjalands, en hvað aðhefst flokkur Tímans meðan rit- stjórarnir kjökra? Jú, hann situr sem fastast í stjórn með þeim flokki, sem óskar einskis annars en að komast í aðstöðu Kadars hér á landi. Beztar sannanir fyrir því, að kommúnistaflokkurinn hér er á Kadarslínunni, fengust fyrir aðeins fáeinum dögum, þegar Brynjólfur Bjarnason vítti einn blaðamann Þjóð- viljans fyrir að láta sér til hugar lcoma, að kommún- istaflokki Kína litist ekki á aðfarirnar í Ungverjalandi m. m. Það væri öðru nær. Og sami Brynjólfur Bjarnason1 er ráunverulegur stjórnandi stærsta stjórnarflokksins, Alþýðubandalagsins, enda þótt hann sé ekki látinn sjást þar að jafnaði. 50 ára afmæli Búnaðar- sambands Vestfjarðar. Sambandið hefur í huga að ráða til sín ráðunaut. Búnaðarsambund Vestfjarða hélt aðalfund dagana 22. til 24. þessa mánaðar á ísafirði og' minntist þá hálfrar aldar afmæl- is síns. Sambandið var stofnað 1907 og hafði Guðjón sálugi Guð- mundsson búnaðarráðunautur aðalforgöngu um stofnun sam-J bandsins. Fyrsti formaður sam- bandsins var síra Sigurður Stef- ánsson í Vigur. Er sr. Sigurður lét af formannsstörfum tók Kristinn Guðlaugsson bóndi og búfræðingur að Núpi við, og síð- ar núverandi formaður Guðm. Ingi Kristjánsson bóndi að Kirkjubóli í Bjarnadai í Önund- arfirði. Þeir' Arngr. Fr. Bjarnason, Páll Pálsson, á Þúfum, Bjarni Sigurðsson Vigur og Ásgeir Guð- mundsson, Æðey, afhentu sam- bandinu kr. 6493.54 frá Slátur- félagi Vestfjarða, sem stofnfé sjóðs er varið sé til eflingar sauð fjárrækt á Vestfjörðum, og setur sambandið nánari reglur um meðferð hans. Sjóðurinn heitir Sauðfjárræktarsjóður Slátursfélags Vestfjarða. Sambandið hefir ákveðið að gefa út rit i tilefni afmælisins, þar sem gert er grein fyrir störí- um þess í aðaldráttum. Fjárhagsáætlun sambandsins fyrir næsta ár nemur rúmlega 150 þúsund, og ganga um 2/3 hlutar af þeirri upphæð til efl- ingar ræktun. Rætt var um að sambandið ráði til sín sérstakan ráðunaut. Voru fulltrúar yfirleitt því hlynt- ir, en fjárráð sambandsins ekki bóndi i Grænumýrartungu síðari liluta fundarins sem fulltrúi Búnaðarfélags Islands. Núverandi stjórn sambands- ins skipa: Guðm. Ingi Kristjáns- son formaður, Jóhannes Davíðs- son ritari og Kristján Jónsson (frá Garðsstöðum) féhirðir. A síðastliðnu ári var keypt ný jarðýta. Er hún nú að störfum í Önundarfirði. Mun siðar í sumar vinna norðan Breiðadalsheiðar. Á mánudaginn skoðuðu fulltrú- ar Önundarfjörð. Var sameigin- legur hádegisverður að Holti í Önundarfirði. Var þar góður fagnaður og margar ræður flutt- ar. Veður var hið fegursta og bjart yfir vestfirzku bændunum, sem strax eftir heimkomuna taka til við heyannir. Er spretta þegar sæmileg á deiglendum túnum, en víða lakleg á harð- velli. En vestfirzku bændurnir láta sér fátt fyrir brjósti brenna. Þeir eru vanir að glima við grjót og mold og mislynda veðr- áttu. Arn. Rithöfundar sitja fund í Finnlandi. 26. júní fara til Finnlands þeir Kristján Bender, formaður Rithöfundafélags íslands, og Þóroddur Guðmundsson, for- maður Félags íslenzkra rithöf- unda, til þess að sitja fund Nor- ræna rithöfundaráðsins í Hels- ingfors 27. júní sem fulltrúar talin nægilega mikil til þess að ¥enzku rithöfundafélaganna. taka upp þá nýbreytni, að A fundinum verða rædd þessi I óbreyttum ástæðum. Fundinn sátu fulltrúar frá 23 búnaðarfélögum- Auk þess sat Gunnar Þórðarson fyrrverandi Fyrir hverja er skrifað? Það er eðiilegt, að spurt sé, fyr- ir hverja Tíminn sé eigin- lega að skrifa, þegar hann gerir sér upp grát með ekka- sogum eins og á sunnudag- inn? Gerir hann ráð fyrir, að nokkur maður hér á landi sé svo skyni skroppinn, að hann geri sér ekki grein fyrir þvi, að menn af Kadars-taginu eru meðal helztu stuðnigs- manna ríkisstjórnarinnar, enda þótt hér starfi að nafn- inu til enginn kommúnista- flokkur? Það er ekki til neins fyrir Timann að reyna .að telja al- menningi trú um, að hann sé harmi lostinn yfir því,1 hvernig kommúnistar hafa leikið Ungverjaland, þegar( . flokkur hans situr sem fastast í stjórn með raun- verulega sömu mönnurn og eykur áhrif þeirra og hús- j bænda þeirra með hverjum deginum. Nýjasta dæmið er mál: | 1) Þóknun til rithöfunda af hálfu útvarpsstöðva. 2) Ellistyrkur rithöfunda. 3) Afgjöld af útlánum bóka úr söfnum í ýmsum löndum. Einnig var fulltrúunum boðið á 60 ára afmælishátíð finnska rithöfundafélagsins, Suomen Kirjailijaliitto í Savonlinna (Nyslott), sem haldá á dagana 29. og. 30 júní. Menntamálaráðherra veitti styrk til fararinnar. það, að íslenzkir visinda- menn eru látnir iátá Rússum í té upplýsingar um .athug- . anir sínar og störf, $vp 'að, hægt sé að sendaúrússneskan veiðiflota upp a"ð landstein- um hér. Tíminn ætti að skammast sín fyrir hræsni þá, sem fram kom í forustu- grein háns á sunnudaginn. Hann hefir oft verið ósvífinn en sjaldán ein's og að þessu $ínni. Samsýning þriggja listamanna. Þrír listamenn hafa samsýn- ingu um þessar mundir í sýn- ingarsalnum í Alþýðuhúsinu. Var hún opnuð kl. 10 f. li. í dag. Eru þetta 20 myndir alls, og allir hafa þessir listamenn sýnt áður og eru Reykvíkngum að góðu kunnir, en þeir eru: Benedikt Gunnarsson, Eiríkur Smith og Guðmunda Andrés- dóttir. Benedikt sýnir glermyndir, olíumálverk og vatnslitamynd- ir, Eiríkur sýnir sipólíumjmdir ’og Guðmunda sýnir olíumál- : verk. j Allt eru þetta ný málverk, máluð í ár og í fvrra og hafa aldrei verið sýnd áður. Öll eru málverkin til sölu. . ' Sýningin verður opin lil 8. júli og verður opin daglega kl. i 10-—12 i. h- og 2—10 e. h. ,,Trillukarl“ skrifar Bergmáit eftirfarandi: ,,Mig langar til að biðja Berg- mál fyrir nokkrar línúr til for- ráðamanna Reykjavíkurhafnar, því svo er mál með vexti að nú á að útskúfa okkur trillubátaeig- endum algerlega úr höfninni. Aðstaðan með trillubáta versrt- ar alltaf og nú er svo komið að hvergi er friður með bátana, og það endar með því að við verð- um að taka þá á land þvi okkur virðist ekki vera ætlaður tilveru- réttur innan hafnargarðanna. Menn gerðu sér vonir. Fyrir fjórum árum þegar Faxaflói var friðaður, gerðu. I margir sér vonir um að hægt væri að hafa nokkrar tekjur af trillubátaútgerð frá Reykjavík. Margar trillur voru smiðaðar eða keyptar að. Þessi hagnaðar- von brást að mestu leýti, þvl þrjú undanfarin sumur hefur varla fengist bein úr bugtinni þó svolitið haíi íiskast skár í ■ sumar en áður var. Þótt margir hafi gefist upp á trillubátaútgerðinni eru þó nokkrir, sem halda áfram og það er alltaf svo að þeir fiska, sem á sjó fara en aðrir ekki. Þess vegna finnst okkur, sem enn höldum áfram, að við eig- um rétt á því eins og hverjir aðrir að hafa viðlegupláss fyrir bátana okkar, eltki siður en þeir, sem eiga stóra báta og láta þá liggja bundna árum saman. Legufærin flutt. Fyrir atbeina smábátaeigenda- félagsins, sem stofnað var fyrir nokkrum árum voru settar bauj- ur og viðlegufæri fyrir smábáta við Ægisgarð og Grandagarð. Þetta bætti aðstöðu okkar að mun, því við þessi legufæri voru bátarnir nokkurn veginn örugg- ir. Nokkrir trillubátaeigendur • gerðust þá svo djarfir að byggja sér beitingaskúra á Grandagarði, þar sem bátar þeirra lágu. Nú hafa þessir skúrar verið fluttir burtu og legufærin tekin upp, svo ekki er annað að gera en flytja eitthvað með bátinn og þá helzt upp á land, en þaðan verður þeim ekki róið. Höfnin stækkar ekki. Við erum i miklum vanda. Þó við vildum gera hafnarstjóra | það til geðs að selja bátana, þá. er bara alls ekki markaður fyrir þá, svo við yrðum að gefa þá burtu, en því miður er víst eng- inn okkar það efnaður, að hann geti það. En ég vil að lokum benda á það, að þótt trilluaflinn sé ekki mikill að vöxtum, myndu margir kvartá undan því að fá ' ekki færafisk yfir sumarmánuð- ina. Annars mega allir borða kraminn togarafisk fyrir mér, ef þeir kjósa hann fremur en færa- fisk. Á hinn boginn skal ég við- urkenna vanda þann, sem hafn- arstjóri á við að etja, það éru þrengslin í höfninni, en eins og mér og nokkrum körlum kom samah um, þegar við vorum að | ræða þessi mál, þá stækkar ihöfnin ekkert við að fyila hana upp. Trilhikarl. RF7T AÐAUGLYSAIVISI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.