Vísir - 05.09.1957, Page 1
17. irg,
Fimmtudagirm 5. septcmber 1957
208. tbl
V
Þarna bjargaði Helgi
á hættulegu augnabliki.
Drottning fer of oft á
skeiðvöllinn.
Elísabet gagnrýnd fyrir a5 fara oft
á veðreiðar.
Enn hefur Elisabet Breta-
idrottning orðið fyrir gagnrýni
og ávítum vegna hegðunar
sinnar.
Sunday Pictorial hefur birt
tveggja síðu „hræsnisárás11 —
eins og' sumir komast að orði —
á drottninguna. Þar er ekki
komið með neitt nýtt um
drotíningu, en bent er á það,
að ferðir hennar á kappreiða-
brautir, þar sem hún er aðili að
veðmálum um hestana, sé eins
reglubundnar og ferðir hennar
í kirkju.
Blaðið bendir á það, að Fil-
ippus hertogi hafi fyrirlitningu
á veðreiðum, og sé það á allra
vitorði, og fyrir bragðið verði
drottning að fara í veðreiðaleið-
angra sína eiginmannslaus og
með systur sinni, móður eða
einhverri annari konu.
. Enn getur blaðið þcss, að
* á síðustu þrem árum bafi
drottning liaft hvorki meira
Þróttur vaein fyrsta
leikinn í Luxemburg.
Annar flokkur knattspyrnu-
félagsins Þróttar, sem nú er í
keppniferð í Luxemburg, lék
fyrsta leik sinn sl. þriðjudag
við liðið Aris og sigraði með
fjórum mörkum gegn engu.
Næsti leikur liðsins fór fram
í gær, en eigi hafa fréttir bor-
ist um úrslit hans.
Drengjunum líður öllum vel,
þeir eru mjög ánægðir með það
sem af er' ferðinni og biðja
folaðið að flytja ættingjum og'
yinum kveðjur.
né minna en 100,000 sterlings
punda tekjur af hestum sín-
um, því að þetta hafa þeir
fengið í verðlaun.
Sunday Pictorial klykkir út
með því, að menn bollaleggi
mikið um það, hvort almenn-
ingur venji komur sínar of oft
á skeiðvelli, og ef til vill sé rétt
fyrir drottninguna að hugleiða,
hvort hún egi að venja komur
sínar þangað eins oft og hún
hefur gert.
Tveir bátar á Súðu-
veióum frá Akranesi.
Frá fréttai’itara VisLs
Akranesi í morgun.
Frá Akranesi eru gerðu- út
tveir bátar á línuveiðár lun
þessar niundir.
Er þetta aðallega gert i til-
raunaskyni á meðan aðrar veið-
ar liggja að mestu eða öllu niðri.
Þessir bátar eru Fram og Aðal-
björg. Hafa þeir fengið sæmileg-
an afla af skötu en litið veitt
af lúðu.
I morgun kom Fram til Akra-
ness og hafði hann verið með
skötulóð vestur á Breiðafirði.
Fékk hann 8-9 iestir af skötu og
8 stórlúður. Hélt báturinn áfram
til Pæykjavíkur og selur aflann
þar í dag.
Þýzka herskipið Bliicher
liggur á hafsbotni við Nor-
egsstrendur. Áætlað er, að
[bað kosti 5—6 millj. kr. að
ná því upp. Svarar það ekki
kostnaði, sökum þess hve
verð á stáli er lágt.
B^gging sundlangar í
Vesturbænum er hafin.
Logar upp úr
í Arkansas?
Fylkisstjórinn í Arkansas,
Orval E. Faubus, hefur símað'
Eisenhower forseta, og segir í
skeytinu, að hann búizt við, að
alríkislögreglan eða hermenn
komi og handtaki sig þá og þeg
ar, og loftið sé hlaðið sprengi-
efni.
Áður höfðu borizt fregnir
um, að fylkisstjórinn hefði fyr-
irskipað að fylkishermenn
skyldu gæta þess, að blökku-
mannabörn kæmust ekki inn í
nokkurt skólahús, sem hvít
börn stunda nám í. í gagnfræða
skóla í Little Rock var 9 ung-
mennum meinað að fara inn í
skólahúsið af 200 vopnuðum
hermönnum. Hópar hvítra
manna höfðu safnast saman og
gerðu óp að hinum blökku ung-
mennum. 1
Veróur í heild hlð fegursta mannvirki, og
auk útilaugar verður þar baðhús og stért
skemmtisvæði.
Fjárfestingarleyfi liefur fcng
izt fyrir byrjunarframkvæmd-
um að bvggingu Sundlaugar í
Vesturbænum, en á því leyfi
hefur staðið um nokkurt skeið
— og í morgun kl. 11 hófust
fyrstu aðgerðir að laugarbygg-
ingunni.
Það eru nokkur ár liðin frá
þvi vakið var máls á sundlaug-
arbyggingu í Vesturbænum,
enda talin full þörf á að sá bæj-
arhluti fengi sína sundlaug. Ár- j
ið 1953 komst skriður á málið
er skipuð var nefnd manna til
þess að vinna að undirbúningi
og skipulagningu en í henni
áttu sæti þeir Erlendur Ó. Pét-
ursson forstjóri, Jón Axel Pét-
ursson forstjóri, Gunnar Frið-
riksson forstjóri, Þór Sandholt
skólastjóri, Tómas Jónsson
borgarlögmaður og Birgir Kjar
an hagfræðingur, sem er for-
maður nefndarinnar. Réð nefnd
in Bárð ísleifsson arkitekt til að
Reykvíkingar eru barnakarlar
á við Suðurlandabúa.
Svíum finnst mikið um barn-
eignir hér.
Barnsfæðingar liér í Reykja-
vík eru tvöfalt fleiri miðað við
fólksfjölda en í Stokkhólmi.
Eins og menn rekur minni til,
var efnt hér til höfuðborgaráð-
stefnu Norðurlanda ekki alls
fyrir löngu. og sóttu hana full-
trúar frá Stokkhólmi sem öðr-
um höfuðborgum. Þegar þeir
komu heim, spurðu blaðamenn
þá um sitt af hverju varðandi
ferðina hingað, og er það haft
eftir þeim í Dagens Nyheter,
stærsta blaðinu í Svíþjóð, að
fæðingartaian hér í Reykjavík
sé eins mikil og hjá suðrænum
og blóðheitum þjóðum. —- I
Reykjavík fæðist tvöfalt fleiri
börn en í Stokkhólmi miðað við
þúsund íbúa, segir blaðið í.
þessu sambandi.
Þessi öra viðkoma eykur að
sjálfsögðu mjög á erfiðleikana
í byggingar- og húsnæðismál-
um Reykjavíkur, sögðu fundar-
menn, og þeim fannst einnig
furðanlegt, hversu mikið er
byggt hér, en einkum undruð-
ust þeir, hvernig hægt væri að
standa straum af öllum þessum
byggingum.
teikna laugina og svæðið um-
hverfis hana, en lauginni var
ætlaður staður við Hofsvalla-
götu gegnt Melhaga.
Sérstök fjáröflunarnefnd.
safnaði 150 þús. krónum í pen-
ingum en auk þess er 1 millj.
kr. handbærar til þessara fram-
kvæmda frá Reykjavíkurþæ.
Seinna bætast við þessa fjár-
hæð önnur framlög frá hinu
opinbera.
Þarna er um útisundlaug að
ræða, og verður aðallaugin 10
X 25 metra að stærð, en útúr
henni gengur svo grynnri laug,
óregluleg í lögun, og' er hún
ætluð fyrir börn og aðra, einn-
ig til sundkennslu. Næst laug-
innj verða steinstéttir en gras-
svæði kemur utar og allstórt
skemmtisvæði í kring'.
Þá er enn fremur gert ráð
fyrir byggingu myndarlegs
laugarhúss við laugina, en þar
verða búningsherbergi á hæð-
inni og' tvær baostofur með
fullkomnum böðum, önnur fyr-
ir konur, hin fyrir karla. í
kjallara byggmgarinnar kem-
ur lítil laug 10X5 metrar að
stærð, sem fyrst og fremst er
ætluð sjúklingum til baða og
hressingar og enn fremur til
þess að kenna yngstu börnum
sund.
Allt verður mannvirki þetta
og svæðið í heild hið myndar-
legasta og fegursta.
Birgir Kjaran lýsti undir-
búningi að mannvirki þessu
fyrir blaðamönnum og fleirum
í morgun og gat þar sér-
staklega aðstoðar, er þeir Þor-
steinn Einarsson íþróttafull-
trúi og Gísli Halldórsson form.
íþróttabandalags Rvíkur hefðu
veitt nefndinni við störf henn-
ar. Að ræðu sinni lokinni tók
Birgir Kjaran fyrstu skóflu-
stunguna að hinni nýju laug.
«*•: ■ ..... . ..
Rússneska þotan á Kefla víknrflugvelli í gær.