Vísir


Vísir - 16.09.1957, Qupperneq 4

Vísir - 16.09.1957, Qupperneq 4
4 Ví SIB Mánudaginn 16. september 1951? Wl^XSS. D A G B L A Ð yUlr kemur út 300 daga á árl, ýmist 8 e5a 12 blaEsiOur, Bltstjórl og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson, Sirifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. JÖMtjórnafskriístofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla Ingólfsstræti 3, opin frá kl. S.,00—1S,00. Sími 11660 {fimm línur). Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIE HJF. Yísir kostar kr. 20,00 í áskrift á mánuði, kr. 1,50 eintakið í lausasölu, Félagsprentsmiðjan h.L | "H!r! Duibúin umhyggja. Almenningur gæti ætlað, að bæjarfulltrúarnir fimm, sem kærðu útsvarsálagningu nið - urjöfnunarnefndar fyrir fé- lagsmálaráðherra, beri ein- hverja sérstaka umhyggju fyrir einstaklingum í bæn- um, er útsvörin verða að greiða. Er það þó mjög fjarri sanni, því að umhyggjan, sem þessir menn bera er aðeins fyrir þeim sjálfum og mögu- Jeikum þeim, sem þeir hafa til að vera áfram í bæjar- stjórn um þetta leyti á næsta ári. Þeir eru að reyna að búa sér til einhverjar skraut- fjaðrir, sem þeir geta leyít bæjarbúum að sjá, er til kosninga kemur næst. Það eru hræddir menn, sem þarna er um að ræða, því að þeir vita, að þegar að næstu kosningum lœmur, þá verða þeir að viðurkenna, að hér í Reykjavík hefir verið unnið að meiri framkvæmdum á fleiri sviðum en nokkiu ! sinni fyrr. Jafnvel bæjarfé- lög úti á landi, sem eru undir stjórn manna úr minnihluta- flokkunum, eins eða fleiri, geta ekki bent á neitt sam- svarandi, ei.da þótt hentugí væri að geta gert slíkan sam- anburð, til að færa sönnur á ódugnað „íhaldsins“. En engu slíku er til að dreii.a, því að undir „íhaldsstjórn ‘ er Reykjavík að öllu lej'ti betur á sig komin og betur stæð en bæjarfélög undir annari stjórn. En nú kemur brátt að því, að það er nauðsynlegt að geta bent bæjarbúum á, hvað minnihlutaflokkarnir hafi staðið vel í ístaðinu fyrir kjósendur — staðið gegn lög- leysum ihaldsins. Aðferðin er að kæra útsvarsálagning- una, biðja félagsmálaráð- herrann að úrskurða lögmæti hennar eða óiögmæti. Og ekki stendur á honum — hann veit, til hvers er ætl- azt og afgreiðir pöntunina. Þar með er skrautfjöðrin, sem á að bjarga kempunum í kosningunum, fullgerð til notkunar. Ríkið eða bæríiui. Hafi menn ekki vitað það áður, er öllum það Ijóst nú, að bæj- arfélög eiga að leita heim- ildai- félagsmálaráðuneytis- ins, ef þau óska að leggja á hærri útsvarsfjárhæð en nemur svo eða svo miklúm hundraðshlula umfram með- altal útsvara undanfarinna ára. Ríkissjóður getur hihs- vegar innheimt hvaða fúlgu sem vera skal, þegar Alþingi hefir samþykkt það, og það spyr engan heimildar — og sízt gjaldþol þegnanna. Það kom greinilega í ljós fyrii’ jólin síðustu, þegar skatt- arnir voru í einu vetfangi hækkaðir um 300 milljónir króna. Og það gerðu þeir flokkar, sem segja þeim mönnum fyrir verkum, er kærðu útsvarsálagninguna. Enginn heyrðj þá andmæli frá þeim vegna pyngju Reyk- vikinga, og enginn þeirr i nefndi, að rétt væri að sam- þykkja ályktun í mótrnæla- skyni og senda Alþingi og ríkisstjórn. Þá var þagað. Þar birtist hin raunverúlega umhyggja þessara manna fyrir hag bæjarbúa. Úr bví að ríkisstjórnin þurfti á fé að halda, þá var allt í lagi. Þá mátti hafa álögurnar eins miklar og hana langaði til — mótmælalaust. Þannig ræður hin pólitska þörf gerðuia þeirra að öllu leyti. Þjóðskráin veitir ýmis konar upplýsingar. Reglur hafa veri5 settar um þessháttar starfsemi hennar. Tvíeggjað sverð. Engum blandast hugur.um, að úrslit bæjarstjórnarkosninga fara að miklu leyti eiftir gangi landsmáia og stjórnar- farinu undir forsjá hræðslu- bandalags kommúnista. Eng- um blandast hugur um. að álit almennings á stjórnvizku ' og' hæfileikum þessara flokka hefir farið óðum ’ þverrandi síðustu mánuði, ’■ svo að minnihluta ilokk.arr.ir I fara halloka, cí þeir cetia ekki að hafa annað tii að státa af en ágæti núverandi rikisstjórnar. Nú dregur óðum að bæjar- stjórnárkosningurn, og nú efu góð ráð dýr. Þá er jafnvel hægt að notast við kærui yfir útsvarsálagningu, enda þótt það brölt geti orðið til mikiila tafa við ýmsar fram- kvæmdir í bænum. Það m:m einnig koma á daginn, að þetta getur verið tvíeggjað sverð. Svo getur iarjð, að þetta skæða „vopn“ minni- I lögum um Þjóðskrá og al- mannaskráningu, er sett voru á síðasta ári, er gert ráð fyrir því, að Þjóðskráin láti í té vott- orð og úpplýsingar eftir skrám hennar og gögnum, og er þetta mikilvægur þáttur í starfsemi hennar. Hér er annars vegar um að ræða vottorð um aðset- ur fyrirspyrjanda sjálfs eða urn eitthvað annað um hann skráð, og hins vegar upplýsingar, sem fyrirsyrjandi óskai’ að fá um aðsetur annarra manna nú eða fyrr. Veiting upplýsinga unij önnur skráningaratriði en að- setur er háð vissum takmörk- únum, eins og vænta má. Áður var ekki til nein slík upplýsingamiðstöð, þar sem op- inberir aðilar, fyrirtæki og ein- staklingar gátu fengið upplýs- ingar um aðsetur manna hvar sem er á landinu, og kom það sér illa fyrir marga aðila, sem hér eiga hlut að máli. Nú hefir þjóðskráin tekið við þessu hlut- verki og mun hún kappkosta að fullnægja þörfum þeirra, sem nota sér þessa þjónústu. í því sambandi má geta þess, að áður fyrr gat sá aðili, er annaðist manntalsskráningu í hverju sveitarfélagi, yfirleitt aðeins veitt upplýsingar um aðsetur manna samkvæmt síðasta mann tali, en Þjóðskráin fær jafnóð- um tilkynningar um breytingur á aðsetri og getur hún því að jafnaði upplýst aðsetur þeirra, sem flutt hafa eftir síðasía skráningardag, sem er 1. des- ember ár hvert. Það skal tekið fram, að upp- lýsingaþjónusta Þjóðskrárinnar er, að því er snertir fyrirspurn- ir um aðsetur rnanna í Reykja- vík, einskorðuð við aðila, sem þarfnast upplýsinga vegna at- vinnurekstrar eða annarrar starfsemi. Almenningur skal eftir sem áður snúa sér til Manntalsskrifstofu Reykjavík- ur með beiðnir sínar í þessu sambandi. Sömuleiðis skal al- menningur í hverju umdæmi utan Reykjavíkur snúa sér til ifilutaðeigandi bæjarstjóra eða oddvita, þegar óskað er upplýs- inga um aðsetur manna í sama umdæmi. Stjórn Þjóðskrárinnar hefir fyrir nokkru sett reglur um til- högun þessarrar starfsemí og gjöld fyrir vottorð og upplýs- ingar, sem hún lætur í té. Þjóðskránni ber að veita opin- berum aðilum hverskonar upp- lýsingar, sem er að finna í skrám hennar og gögnurn, ef þeir þurfa upplýsinganna við vegna embættisfærslu eða hlið- stæðrar starfsemi, og gerir Þjóðskráin þetta endurgjalds- laust. En aðrir, sem fá upplýs- ingar frá Þjóðskránni, þurfa að greiða fyrir þær tilskilið gjald samkvæmt gjaldskrá. Gjaldið er breytilegt eftir tegund þeirr- ar þjónustu, sem um er að ræða, og það fer líka eftir tölu fyrir- spurna hverju siimi, þannig, að afsláttur er veittur, ef margar fyrirspurnir eru bornar fram í einu lagi. Auk þess er hægt að fá keypt afsláttai’hefti með 25 eyðublöðum undir fyrirspurnir til Þjóðskrárinnar. Sérstakur taxti gildir fyrir upplýsing'ar veittar ætlfræðingum og öðrum fræðimönnum. — Gjald fyrir vottorð og' upplýsingar úr Þjóð- skránni greiðist um leið og fyr- irspurn er frarn borin. Nota skal sérstök eyðublöð undir fyrirspurnir til Þjóðskrár innar og fást þau í Hagstofunni. Þjóðskráin er lögum sam- kvæmt séfstök stofnun undir eigin stjórn, þar sem sæti eiga fulltrúar þeirra aðila, sem stóðu að stofnun hennar, en hins veg- ar er hún starfrækt sem deild í Hagstofunni. Hagstofustjóri er formaður stjórnar Þjóð- skrárinnar, en aðrir stjórnar- menn eru: Einar Bjarnason að- alendurskoðandi, skipaður af fjármálaráðuneytinu, Gutt- ormur Erlendsson, forstöðumað- ur endurskoðunardeildar Reykjavíkurbæjar, skipaður af borgarstjóra Reykjavíkur, dr. Sigurður Sigurðsson, skipaður af heilbrigðismálaráðuneytinu fyrii’ hönd berklavarna ríkisins, Sverri Þorbjörnsson forstjói, skipaður af Tryggingastofnun ríkisins og Þormóður Páisson bæjarfulltrúi, skipaðúr af fé- iagsmálaráðuneytinu. hluta flokkánna verði þein hættulegra en „íhaldinu“, sem það er ætlað að veill holundina. Það mun einnig í minnum haft um langan ald- ur, að eitt mesta afrek minn»- hluta flokkanna er brölt, sem getur bakað bæjarfélaginu ýmislegt tjón vegna tafa . á innbeimtu útsvaranna. Sérfræðingar á vegum Söiutækni l»að lith'ir nú verið afráðið að fá hingað til lands á vegum félags- ins SÖLUTÆKNI, með aðstoð lðnaðarinálastofnunar íslands, tvo erlenda kunnáttumenn til þess að halda námskeið í ýmsu, er einknm lýtur að rekstri smá- söluverzlana. Hinir erlendu sérfræðingar eru Bandarikjamaðurinn Walter H. Channing og Norðmaðurinn H. B. Nielsen, en báðir hafa þeir áður komið hingað svipaðra er- inda og eru hér góðkunnir. Þeir hafa unnið saman að stjórn slíkra námskeiða á vegum Efna- hagssamvinnustofnunar Evrópu í Noregi og víðar og liefir það samstarf borið góðan árangur. Námskeiðið, sem iialdið verð- ur i salárkynnum Iðnaðarmála- stofnunar Islands, mun hefjast 19. þ.m. og standa til 17. okt. n.k. í fyrra voru allmörg námskeið lialdin hér á ’vegtim SÖLU- TÆKNI og urðu þau mjög vin- sæl, en þetta er hið fyrsta á því starfsári, sem nú er að liefj- ast. 0 ltiuuiai'íska veðnrþjúnustiui het'nr spáð góðviðri í N'oregl septembcr. Talið er, að úr- komulitið verði um Jand allt í múmiðinum. Um póstmál. Á laugardaginn var gerð fyrit- spurn til Bergmáls út af pen- ingahvarfinu í pósthúsinu sent skýrt var frá 1 Vísi s.l. föstudag. Sú fyrirspurn var á þá lund hvort löglegt væri að senda pen- inga í pósti án þess að geta þess á bréfinu. Jafnframt var spurzt fyrir um það hvort það væri miklu ódýrara að hafa þann hátt á, sem Raforkumálaskrifstofan hefði — að senda peninga í ábyi'gðarbréfi og kaupa trygg- ingu á bréfinu hjá vátryggingar- félagi heldur en að borga undir bréfið, sem peningabréf á póst- húsinu. Loks var svo spurzt um það livort pósthúsið í Reykja vik gæti ekki gengið eitthvað tryggilegar frá ábyrgðarbréfúm !og öðrum ábyrgðarpósti heldur en raun virðist vera á. Bergmáli eru þessi mál ekki. nógu kunn til þess að geta svarað fyrirspurnunum, en vísar þeim til réttra aðila. Vöruþurrð í landinu. Bergmáli barzt svohljóðandi bréf frá reykvískri konu. „Einn góðan veðurdag fyrir skemmstu vanhagaði mig urn ákveðinn hlut á heimili mitt, hlut sem þarf ákveðið viðhald og endurnýjun og aldrei verið skortur á í verzlunum bæjarins til þessa. En svo undarlega brá við að þótt ég gengi götu úr götu og verzlun úr verzlun fékk ég ekki þennan hlut fyrr en í búðarholu i einu úthverfi jbæjarins, þar sem tiltölulega | fáir eða engir verzla nema þeir sem eiga heima þar í hverfinu. 1 En það sem mér fanst sér- kennandi við þessa göngu mína var sama viðhorfið, sem glumdi i eyrum minum af hálfu verzl- unarfólks og kaupmanna. „Við fáum engar vörur framar, engin leyfi, engan gjaldejTÍ. Við höf um reynt að fá þetta flutt inn en við fáum það bara ekki“. Mér er spurn: Er ný vöru- þurrð að dynja yfir? Blóinskrýddur bær. Flestum ber saman um það að aldrei hafi verið gert jafn mikið að þvi að fegra Reykja vík með blómskrúði og gróðri sem nú. Það má vafalaust þakka' að verulegu leyti dugnaði og hugkvæmni hins nýja garðyrkju ráðunautar Hafliða Jónssonar sem hefur verið vakinn og sofinn í þvi í allt vor og sumar að skreyta bæinn með gróðri. Hef- ur hann 'sýnt verulega hug- kvæmni i þessa átt og í sumar hefur borið meiri fjölda blóm- tegunda fyrir augu bæjarbúa en nokkru sinni áður. Þá hefur sú athyglisverða ný- lunda verið tekin upp við Austurvöll að skrá blómaheitin við ýmsar hinar fágætari og ó- venjulegri tegundir blóma og er að þessu mikill fræðsluauki fyrir blómaunnendur og garð- eigendur. Nú fara blómin að fölna hvað úr hverju og þeir sem njóta vilja fræðslu i þessu efni ættu að hraða sér niður á Austurvöll til þess að skoða blómin og auka sér fræðslu með því að lesa á spjöldin sem greina hinar einstöku tegundir. — Hafi garðyrkjuráðunautur þökk fyrir starf sitt. • Mikið tjón larð S.L l’östudag af völdurn fellibyls á KyiLsliu í Japan. Fjölda margir urðu he.imilislaasir vegna þess að hús eyðöögðust eða löskuð- ust.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.