Vísir - 02.10.1957, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 2. október 1957
VÍSIR
1
Skógarmenn. — Október-
íundurinn verSur í kvöld kl.
8 í húgi KFUM. Munið skáía
sjóð. Fjölmenhió.
Síjórnin.
Samkomrmr
Nær yíirkorni.nn af á-
reynslu kiöngraðis.t Jint
Cross skjáiiaudi um boro i
bátinn og 'mátti engu.muna,
a5 iiann œtti næga krjdta
.cftir til þess a3 vega sig. upp
á borðstokkinn. Á meðan
barðist Tarzan upp á l-j . og i
dauða vi'ð Kraka, sem reyndi
að læsa nefmynduðuui .skoíti
'sínum í vöðva apamannsins.
En skyndiíega tó.lcst
áð reka hníf • sínum á kaf
milli hryllilegra og starandi
augna kolkrabbahs, sem á
næsta andartrki slakaði á ,
tökunum cg valt y"ir ‘sig.: j
KristnibpSsliúsið Dcíanle.
Laufáfvegi 13.-
Samkoma féllitr ''niður í
kvöld. Kristniboðssamkoma í
Hallgrímskirkj u á fostudags^
kvöld kl. 8,30. $áh&r'g'uglýkt„.
síðar,
^GATHA ThRISTIE
flUa? tetöi?
tiffja tii...
34
„Nei, það var engin ástæða til þess að ætla, að mér fyndist
það grunsamlegt eða skrítið,“ svaraði hann. „Eg hélt aðeins, að.
þetta væri einhver kona, sem ætti að taka við yfirstjórninni hjá 1
okkur. Hún yrði einskonar drottning eins og tiðkast meðal bý- j
flugnanna. En ertu viss um, að þú sért ekki að gera þér þetta
allt í hugarlund, Viktoria?“ Hann leit á hana, og tók viðbragð
þegar hann sá augnaráðið, sem hún sendi honuin. „Jæja, þá það,1
þá það,“ flýtti hann sér að bæta við. „En þú getur ekki með
neinu móti neitað þvi, að þetta virðist allt ákaflega einkenni- ’
legt og ósennilegt. Þetta er rétt eins og í ómerkilegum reyfara: j
Ungur niaöur ryðst að næturlagi inn í herbergið þitt, stynur'
upp einu orði eða svo, sem enginn skilur, og deyr við svo búið.
Eg get ekki með neinu móti litið svo á, að þetta sé líkt raun-
veruleikanum.“ i
„Nei, það er varla von, að þú leggir trúnað á þetta — því að.
þú sást heldur ekki blóðið, sem lagði úr sárinu á brjósti hans,“ j
svaraði Viktoria, og það fór titringur um hana, þegar hún rifjaði
þetta upp fyrir sér.
„Þetta hlýtur að hafa geigvænleg áhrif á þig,“ sagði Edward
með samúð.
„Já, það er hyerju orði sannara," mælti Viktoria með þungum
áherzlum. „En svo kórónar þú þetta með því að spyrja upp í opiö
geðið á mér, hvort eg muni ekki hafa búið þetta til frá upphafi
til enda. Þá er mér nóg boðið.“
„Eg bið þig fyrirgefningar á því,“ sagði Edvyard. „En þú getur
heldur ékki neitað því, að þú ert gædd ríku hugmyndaflugi, og
ert sérstaklega lagin við að búa til allskonar sögur. Til dæmis ;
um biskupinn af Ulangow og fleiri.“ |
„O, þáð gerði eg riú aðeins í barnalegri lifsgleði," svaraði
Viktoria. „Hér gegnir allt öoru rnáli, því að hér er fullkomm
alvara á ferðirini.“
„Þessi maður, Dakin — eða hvað hann nú heitir — virtist þá
vita sitt af hverju um það, sem hann var að tala um við þig?“
spurði Edward.
„Já, hann talaði af svo mikilli sannfæringu,“ svaraði Viktoria,
„að ekki var hægt annað en að trúa þvi, sem hann sagði. En
heyrðu annars. Edward, hvernig getur þú vitað um þessa sögu'
mína um biskupinn-------------“
Lengra komst hún ekki, því að nú kom írú Clayton út á svalir
hússins, og kallaði til þeirra: „Komið inn fyrir — þið þarna 1
niðri — hressing bíður."
„Við komum strax,“ svaraði Viktoria, og var þegar búin að
gleyma spumingu sinni, þótt hún hefði endilega viljað fá svar
við henni andartaki áður. |
Frú Clayton virti þau fyrir sér, er þau gengu inn í húsið, og
sagði síðan við mann sinn: „Hér er eitthvaö á seyði! Þetta eru
snotrustu unglingar, en sennilega eiga þau ekki eyris virði, þótt
þau legðu saman. Á eg að segja þér skoðmi mína á þessu, Gerald?"
„Já, gerðu það. góða mín,“ svaraði maður hennar. „Þú veizt
mæta vel af langri reynslu, að eg hefi alltaf áhuga fyrir að
hlýða á skoöanir þínar.“
„Eg held, að stúlkan þarna hafi aðeins farið til fundar við
frænda sinn, íornleifafræöinginn, til þess að hitta .þenna unga
mann,“
„Ekki trúi eg því, góða min,“ sagði ræðismaðurinn. „Þau virt- '
ust bæði verða undrandi, þegar þau hittust í fyrsta sinn í
morgun."
„Ósköp ertu grænn,“ svaraði kona hans. „Það er engin sönn-
un. En þó getur verið, að hann hafi orðið forviða — en hún
varð það ekki, það er víst!“ Gerald Clayton hristi höfuðið og
brosti til konu sinnar, vantrúaður enn. „Og þár aö auki er hún j
alls ekki af því tagi stúlkain," bætti frúin við, „sem leggur fyrir
sig fornleifafræði. Slíkar konur eru ævinlega mjög alvörugefnar
og hugsandi, nota gleraugu og eru þar að au.ki alltaf svalar í
lófunum."
„Góða mín, það er ekki hægt að marka mönnum svo ákveðinn
bás,“ svaraði Clayton.
„Auk þess eru slikar stúlkur svo óskáplega hálfeygar í tali,
að engu er líkt, og margt fleira kemur til greina, sem skilur þær
frá öðrum konum. Ungfrú Viktoria er hinsvegar elskulegur
hugsunarleysingi, en er þó gædd heilbrigðri skynsemi í ríkum
mæli. Hún er alger andstæða venjulegra menntakvenna. Edward
er lika geðþékktur piltur, Það er bara synd, að hann skuli vera
tengdur þessu heimskulega fyrirtæki — Olíuviöargreininni — en
sennilega er erfitt að fá heppilegrar, góðar stöður nú á dögum.
Rikisstjórnin hefði átt að gera sér að reglu að íinna viðunandi
stöðu fyrir þessa pilta, þegar þeir voru leystir úr herþjónust-
unni.“
„Hið opinbera liggur vissulega ekki á liði sínu að því leyti,
góða mín, en þetta er mjög mikið vandamál, því að þessir piltar
eru flestir menntunarsnauðir, hafa enga reynslu á neiriu sviði
n NÆRFATNA008
karlmanns
ifit *g drengja
m íyrirliggjandl.
U jlf/ J t % \ > L.H. Muller
Hótel Borg
Starfsstúlkur vantar. — Tahð við búrstúlkuna.
Heildverzlun
(með vefnaðarvörur)
óskar eftir sölumanni nú þegar eða 1. janúar n.k.
Gott kaup í boði. — Lysthafendur leggj 'npfn' sín
ásamt uppl. um menntun og fvrri störí á afgr. Vísis
fyrir 14. þ.m. merkt: „Heiióyerzlun — 555.“
E. R. Burrouglis
TARZ4N —
24 59
Verjist siysum af völdum
bílapallanna.
/
J
* Sjdl/lúóánctL \
SÖLUTliRNiNN
VIÐ ARNARHÓL
BÍMI 1417S
Hænsni
Vil kaupa dálítið af eins
árs gömlum hænsnum ef
um semur. — Uppl. I síma
32897 eftir kl. 8.
Áreiðanleg stúlka óskast
strax í blaða- og tóbaks-
söluna Laugavegi 8.
KENNSLA í ýirisum ’greiri-
um. Uppi, í síma 22827. (921
BÍLKENNSLA. — Sími
32250. — (11,9
KENNSLA. Kenni ensku.
Uppl. í síma 18535 eftir kl. 8.
Gunnar Ragnarsscn. (126
VIKINGUR!
Knattspyrnumenn.
. .Meistara- og II. fl. æfing
annað lcvöld kl. 6.30. —
Fjölmennið.
Þjálfarinn.
K.R. frjáisíþrótíamenn! ,
Innanfélagsmót í há-
stökki, kúluvarpi, kringlu-
kasti og sléggjukasti verður
næstk, föstudag kl. 5.30 e. h.
Stjórnin.
K.R.-----
Knattspyrnumenn.
II. fl. æfirig: í kvöld kl.
6.30 á íþróttaveílinum. Mjög
áríðándi ao B- liðið mæti.
Þjáifarmn.
K. F.