Vísir - 26.10.1957, Qupperneq 1
17. irg.
Laugardaginn 26. október 1957
252, tbi
Brotist inn hjá DAS að-
faranótt föstudags.
Pemmgaskápurinit stóðst allar árásir.
í nótt var innbrot framið í
skrifstofu happdrættis Dvalar-
ibeimilis aldra'ðra sjómanna í
Tjarnargötu 4.
Þar hefur einu sinni áður
verið farið um, svo sem menn
muna og var þá stolið þaðan
allmikilli fjárfúlgu.
Að þessu sinni var þjófur-
5nn ekki jafnheppinn, því nú
hafði hann ekki nema 1600
krónur upp úr krafsinu, en
þeim náði hann úr borðskúffu.
Aftur á móti mun hann, eftir
öllum tilburðum að dæma, hafa
gert ítarlegar og ítrekaðar til-
raunir til þess að brjóta upp
ramgeran peningaskáp, sem
geymdur var á skrifstofunni.
Sú fyrirhöfn hefði þó naumast
svai’að kostnaði þótt'tilraunin
hefði tekizt því fátt var fjár-
muna í skápnum.
Þjófurinn eða þjófarnir
hafa framið allmikil spjöll í
skrifstofunni, rótað þar og um-
turnað öllu, sýnilega í leit að
verðmætum.
Ríkið hætti veitingu
Tillaga borín fraim um það
a þingi.
Sjö ný þingskjöl vorii lögð
. ýram á Alþingi í gœr. Þar á
meðal eru tvær iillögur til þ.ál.
<— önnur um afitám áferigisveit-
jngar á kostnað ríkisins.
Flutningsmenn hennar eru
Pétur Ottesen o. fl.
Það hljóðar svo: Alþingi á-
lyktar, að áfengir drykkir skuli
ekki veittir á kostnað ríkisins
eöa ríkisstofnana,
í greinargerð segir, að Skúli
Guðmundsson hafi flutt sams-
konar tillögu á þinginu 1946.
Einnig var lagt fyrir þingin 47,
og 49, að hætt skyldi að veita
áfengi á kostnáð þess opinbera.
Ekki náði nein þessara tillagna
fram að ganga. Bent var á í
greinargerð fyrir frumvarpinu
1946, að ekkert áfengi hefði
verið veitt í Hátíðaveizlunni að
Þingvöllum 1930, sem Tryggvi
Þórhallsson, þáverandi forsætis
ráðherra, hélt. í greinargerð
fyrir þessu frumvarpi nú segir
meðal annars: Öilum þorra
landsmanna mun hafa fallið vel
í geð sú ráðstöfun ríkisstjórn-
arinnar 17. júní s.l., að veita
ekki áfengi í gestaboði því, er
hún efndi til þann dag.........
Komst eitt dagblaðanna meðal
annars svo að orði í.tilefni þess:
Það sem þjóðin væntir af for-
ustumönniun sínum, ér ekki sízt
forganga um nýja og betri siði.
Rétt spor var stigið í þessa átt
af hálfu stjórnarinnar 17. júní.
Nú er það hennar og forseta ís-
lands að fylgja þessu máli enn
betur fram og fara helzt að
dæmi Tryggva Þórhallsonar.
Að því er stefnt með flutn-
ingi þessarar tillögu.
breytt
IKIukkunni
í nótt.
3 dag er fyrsti vetrardagur.
'JÍ nótt þegar klukkan er 2 eftir
suniartíma verðuir henni seink-
að um cina stund, þ.e. til kl.
eitt eftir miðnætti.
Nú mun margur álíta, að
síðasti sumardagur hafi verið
í gær en ónefndur maður vakti
máls á þessu við Vísi kvað
hinn síðasta sumardag hafa
verið þann 23. s.l. Frá þeim
tíma til vetrardags hins fyrsta
kallast í fomum fræðum
„veturnætur“. I
Glópska ráð-
herrans!
Þjóðviljmn æríst:
Það er haft fyrir satt, að
£>jóðviljinn styðji núverandi
ríkisstjórn. Þó mimu margir,
sem lásu blaðið í gær. bei’a
brigður á það, því að stór
fyrirsögn á fyrstu síðu krefst
þess, að utanríkisráðlierra
stjómarinnar biðjist „afsök-
unar á glópsku sinni. Flutti
(ráðherrann) fráleitustu
firrur £ útvarpsræðu sinni í
gærkvöld“. Ennfremur segir
skömmu á eftir, að „furðu-
legri samsetningur hefir
sjaldan heyrzt; sagnfræði
Morgunblaðsins er jafnvel
hátíð hjá málflutningi ráð-
herrans."
En menn skulu ekki gera
ráð fyrir, að Þjóðviljinn sé
hættur að styðja benna ráð-
herra. Blaðvesalingurinu
heldur áfram að veita hon-
um stuðning sem áður —
sennilega fyrir ræðuna á
fimmtudagskvöld.
Myndin er af Fjallfossi, sem kom með óvenju mikinn þilfars-
fann í gær, Farmurinn er fjöskur, pakkaðar í balla. Viðtakend-
ur eru auðvitað Egill Skallagrímsson Áfengisverzlunin og
Mjólkursamsalan.
Alþjóða fiskiðnaðarsýning
haldin i Lowestoft
— einum elzta ©g imesta útgeróarbæ
/r
a
i
toft
útgerðarbænum , Lowes-
á Englandi er nú halciin 1,
tmessa“ aiþjóðafiskiónaðar-'og
útgerðarsýning sem haldin hef-
ir verið þar í landi, og er það
fiskveiðaritið Fishing News,
sem gengst fyrir heimi. Sýn-
endur ýmissa afurða, tækja og
véla, eru um 500. Var sýning
þessi opnuð í fyrradag.
Það ér sagt um Lowestoftbæ,
að hann hafi verið fiskimanna-
bær að kalla frá upphafi byggð-
ar á Englandi. Upprunalega hét
þarna 50.000 manna nútíma-
hið hægstreyma fljót. Nú er
þanva 50.000 manna , nútíma-
borg, velmegimar og framfara-
bær.
Fyrr á tímum reru menn til
fiskjar í smábátum, en á 14. öld
var Lowestoft orðínn útgerð-
ar- og viðskiptabær, og síðar
fóru menn að sækja þangað á
fjarlægari mið, jafnvel til fs-
landsmiða, og farið var í hval-
veiðileiðangra til Grænlands.
En þótt margt væri
stunduðu menn þó aðallega
síldveiðar við strendur Austur-
Anglíu. í byrjun 19. aldar hófst
sú þróun útgerðar og viðskipta,
sem framhald hefir orðið á til
þessa dags. 1814 var ák\Æðið
að gera höfn í Lowestoft og var
verkinu lokið 1832. Járnbraut
var lögð til borgarinnar 1847.
Miklar endurbætur voru smám
saman gerðar á höfninni, sem
varð bækistöð togara og síld-
veiðiskipa til reknetaveiða.
Fyrir fyrri heimsstyrjöld höfðu
um 300 togarar og álíka mörg
síldveiðiskip bækistöð í Lowes-
tofthöfn. — Á síldarvertíðinni
fara karlar og konur frá Skot-
landi í hundraðatali „suður á
síld“ alveg eins og menn fara
norður á síld hér á sumrin.
Austur-Aiiglíu og verður stofn-
að þar af hýju til hins syo-
nefnda Síldarmarkaðs (Herr-
ing Fair) að tilhlutun síldarút-
vegsnefndarinnar brezku.
Ekki er blaðhiu kunnugt,
hvort íslenzkir útgerðarmenn
muni fara á sýninguna, en
vafalaust verður þar margt að
sjá, sem fróðlegt og gagnlegt
gæti verið að kynnast.
Nefnd kanni
:
rekstur UA.
Frá fréttaritara Vísis
Akureyri í gær.
Skipuð hefur verið nefnd
þriggja manna til, þess að at-
huga rekstur útgerðarfélags
Akureyringa.
Nefndarskipun þessi er gerð
samkvæmt samþykkt síðasta að-
alfundar félagsins, en eins og
kunnugt er hefur rekstur fé-
reynt íagsins vakið allmiklar deilur
nyrðra að undanförnu og orðið
að hitamáli.
I nefndinni eiga sæti þeir Hall-
dór Jónsson framkvæmdarstjóri
í Reykjavik, Baldvin Þ. Kristjáns
son framkvst. á Kirkjusandi og
Tryggvi Helgason formaður
Sjómannafélags Akureyrar.
IMýjar fréttir í
stuttu máfli.
Tilkynnt er í Bandaríkj unum,
að i’annsóknarflaugin, sem
skotið var í loft upp frá Ioffr-
belg yfir Kyrrahafi kunni að
hafa farið allt að þvi 6400 km.
ut í liimingeiminn.
• Allslierjarþingið tók tU á nýj-
an leik að ræða deiiu Sýr-
lands og Tyrklands. Engar
fregnir höfðu horizt í gær-
kvöldi um að Saud konungur
hefði afturkallað tilboð sitt
uni niáiamiðluii, eins og Kuw-
atly fór fram á.
• SólarltringsverkfaU í Frakk-
landi í gærkvöldi var almennt
og olli iniklum erfiðleikum.
Víða var fólks raforku, gas
og jafnvel vatnslaust. Miklir
erfiðleikar á að komast leiðar
sbtnar í borgum og núlli bæja
og enginn póstur afhentur.
• í öryggisráðinu skoruðu full-
trúar Bretlands og Bandaríkj-
aitna á Pakistan og Indland
að gera nýja tilraun tU þess
að sættast á ágreininginn um
Kashmir og lögðu til, að frek-
ari málamiðlun yrði reynd.
Fundinum var frestað tU
þriðjudags.
• Forseti Pakistan er lagður af
stað I opinbera heimsúkn til
Spánar. (
• Ilerstjórn Frakka í Alsir neit-
ar sannleiksgildi tilkynningar
frá uppreistarmönnum um
alLslterja^sókn þeirra. Segir
herstjórn, að hér sé aðeins
rnn áróðurssókn að ræða.
• Gontulka hefur rætt um á-
greininginn I pólska komm-
únistaflokknum á fundi mið-
stjórnar. Viss öfl I flokknum
reyndu að ónýta gerðir fram-
kvæmtla stjórnarinnar. Þenn-
an ágreining yrði að jafna áð-
ur en flokksþingið kæmi sam-
an í desember. Ella yrði að
fresta því.
• Fækkað hefur í kommúnista-
flokknum um 1000.000 frá í
vor og eru þá meðtaldir þeir,
sem reknir voru úr flokknum
Viðræðum Eisenhowers og Macmillans íokið.
Viðræður i Ottawa í dag.
Viðræður Eisenhowers Banda-
rikjaforseta og Mactnillans lauk
i gærkvöldi. Spaak framkv. N. A.
varnarbandalagsins tók bátt í
lokafundunum. Dulles og Selwyn
IJoyd héldu sérfundi.
Þeir ræddu um horfur í nálæg-
um Asturlöndum, efnahagsmál
kynningu um viðræður Eisenh-
owers og Macmillans.
Macmillan og Selwyn Loyd
lögðu í gærkvöldi af stað til
Ottawa, Kanada þar sem þeir
ræða við Diefenbaker forsætis-
ráðherra og aðra kanadiska ráð-
herra. Þeir eru væntanlegir til
Nú líður að síldarvertíð í og væntanlega sameiginlega til. London á sunnudagsmorgun.