Vísir - 03.12.1957, Qupperneq 1
OWrerwoaæa* 5 ggaggR
47. árg.
Þriðjudaginn 3. desember 1957
284. tbl.
Fjöldi árebtra og um-
ferbarslysa um helgina.
Árekstra- cg sSysahætta eykst stórlega í
hvert skipti, sem tekur a5 rigna.
Talsvert varð um árekstra bif-
reiða um helgina og það er eins
og þeir aukist í hvert skipti sem
tekur að rigna eða dimmir í lofti,
enda safnast þá móða á rúður og
bifreiðastjórarnir sjá verr út.
Samt er það svo að heildar-
tala árekstra þeirra, sem bók-
færð er hjá lögreglunni er tals-
vert lægri það sem af er þessu
ári heldur en á sama tíma í
fyrra. I gær höfðu orðið 1508 á-
rekstrar frá s.l. áramótum, en 2.
desember í fyrra 1634, eða nær
130 árekstrum fleira.
Um helgina varð árekstur á
Öskjuhlíð, sem umferðardeild
rannsóknarlögreglunnar æskir
upplýsinga um ef einhverjir
kynnu að geta gefið þær. Þann-
ig var mál með vexti að um kl.
hálfsjö á sunnudagskvöldið voru
tveir bílar á leið útúr bænum
suður Öskjuhliðina. Var annað
4 manna fólksbíll og fór hann
á undan en á eftir kom jeppa-
þíll. Á móti þessum tveim bílum
kom fólksbifreið niður brekkuna
og ók hann fyrst utan í fólksbil-
jnn, sem á undan fór, þó ekki
þannig að um verulegar skemmd
ir væri að ræða, en strax á eftir
slengdist hann utan í jeppann, og
olli. allmiklum skemmdum á
honum. Síðan ók bílstjórinn, sem
árekstrunum olli á brott, sem
skjótast og greindist ekki skrá-
setningarmerki hans, né heldur
að hægt væri að gefa nokkura
lýsingu á bílnum. Nú væntir
rannsóknarlögreglan þess að
þeir, sem einhverjar upplýsingar
gætu gefið, sæju t. d. rispur eða
skemmdir á hægri hlið fólksbif-
reiðar, létu hana vita þegar í
stað.
Frá því fyrir helgi og þar til
í gær urðu nokkur umferðarslys
í bænum, en ekki alvarleg. Um
helgina varð telpa 14—15 ára
gömul fyrir bíl á Bergþórugötu
en slasaðist ekki alvarlega. Þá
varð og maður, Guðmundur Rós-
mundsson að nafni, fyrir bíl á
mótum Réttarholtsvegar og Suð-
urlandsbrautar og meiddist á
höfði.
I gær slóst drengur utan í bíl
á mótum Túngötu og Suðurgötu
og var fluttur í slysavarðstofuna
en reyndist lítið eða ekki meidd-
ur.
1 Hafnarfirði urðu þrjú um-
ferðarslys s.l. laugardag. Stúlka
slasaðist í bíl, er bíllinn, sem
hún var í, lenti í árekstri. Dreng
ur varð fyrir bíl og skarst á
höfði og loks datt kona af palli
vörubíls og skarst hún einnig á
höfði.
Af öðrum slysförum má geta
þess að á laugardaginn féll dreng
ur, sem var að klifra upp vinnu-
palla við kirkj ubygginguna við
Háteigsveg, niður og varð að
flytja hann í Slysavarðstofuna.
Þá var ennfermur ölvaður mað-
ur, sem dottið hafði á götu og
meitt sig fluttur í Slysavarðstof-
una.
Hornafjarðarbátar
afla vel á línu.
f vetur hafa vélbátar frá
Hornafirði róið með línu og
aflað vel.
Afli í róðri hefur verið frá 5
—7 lestir af vænum fiski. M.b.
Akurey hefur þegar farið 17
róðra.
HammarskjöFd er
þjóðasættir.
Fregnir frá aðalbækistöðí
Sameinuðu þjóðanna í New
York herma, að Jórdanía hafi
heitið Hammarsjöld 'þvi, að
hafa einlæga samvinnu við eft-
irlitsnefnd S.- þj. í Palestínu.
Hammarsjöld dvelst nú þar
1 eystra og ræðir við ríkisstjórn-
ir ísraels, Jórdaníu Sýrlands
og' Líbanon.
Talið er, að hann hafi lagt
fram áætlun, sem miðar að því,
að lausn fáist á deilumálum
ísraels og Jórdaníu, eða a. m. k.
girði fyrir, að í odda skerist út
af deilunum.
Jeyce litlu Graig langaði til þess að sjá drottninguna við þing-
setninguna á dögunum, og tókst það af því að hún laumaðist
inn á milli raða varðliðsmanna, að aftanverðu frá — og fékk
að vera þar, enda stóð liún kyrr þar sem liún var komin, — eins
og varðmaður. .
lóða
mikið magn síldar,
en veiða samt sáralíti5 — Sjór líklega of
heitur á yfirborÓinu.
Frlðrik og Yanowski hafa 1
vinning, en Friðrik enga biðskák.
Friðriti vanm Mesh&vski
i 2. uatíevö.
í annarri umferð alþjóða-1
skákmótsins í Dallas í Texas á
sunnudag fóru leikar svo, að
Friðrik vann Reshevsky, New
York.
Szabo og Najdorf gerðu jafn-
tefl'i, en skákir Evans og Yan-
ovskis, Gligorics og Larsens
fóru í bið eftir sjö klukku-
stunda leik.
Standa leikar þannig eftir
þessar tvær umferðir, að Frið-
rik og Yanowsski hafa einn
vinning hvor, en Szabo, Gli-
goric, Najdorf og Evans hálf-
an hver og Reshevski og Lar-
sen engan, en hér verður að
bæta því við, að allir eiga bið-
skák nema Friðrik.
í þi'iðju umferð teflir Frið-
rik við Evans, Larsen við Yan-
owski, Szabo við Gligoric og
Reshevski við Najdorf.
Mótið stendur til 16. desem-
ber, og hefur áhugi verið mik-
ill í upphafi, að því er segir í.
skeytum frá Dallas. Komu um
400 áhorfendur, þegar tefld var
önnur umferðin, en teflt er í
danssal í Hotel Adolphus.
Sáralítil síldveiði var hér
við Suðvesturland í nótt, en
samt telja sjómennirnir s.ig
hafa lóðað óhemju magn síldar
og aldrei meir en í nótt.
Veður var hlð ákjósanleg-
asta og því ekki hægt að kenna
því um að ekki veiddist.
Sjómennirnir gizka helzt á
að yfirborð sævarins sé of heitt
og síldin haldi sig á of miklu
dýp'i að til hennar náist. Hins
vegar sé síldin, sem heldur sig
ofar, smásíld, sem smýgur
möskvana.
Sandgerðisbátar fengu frá
10—15 tunnur bæði í nótt og
Nægir a5 senda fána
í eldflaug til tunglsins?
Ekkert ákvœði í alþjóðalög-
um getur komið í. veg jyrir, að
Rússar slái eign sinni á tunglið.
Andrew Haley, bandarískur
sérfræðingur í alþjóðalögum,
hefur sagt í fyi'irlestri við laga-
deild Harvard-háskóla, að ef
Sovétríkin geti skotið fána sín-
um til tunglsins með eldflaug,
geti þau talið hann eign sína,
samkvæmt fornum venjum.
fyrrinótt, þeir sem á annað borð
veiddu en nokkurir fengu ekki
neitt.
Svipaða sögu höfðu Akur-
nesingar að segja. Nokkrir bát-
ar þaðan fengu upp í 30—40
tunnur, en marg'ir minna og
jafnvel ekkert.
Heilda'rsíldarafli Akran'ess-
báta í nóvembermánuði var
6661 tunna. Langhæstir voru
Keilir og Höfrungur með um
1000 tunnur hvor. Heildarsölt-
un frá því veiðar hófust hjá
Akranesbátum í haust nemur
6478 tunnum.
Eisenhower á
stjómarfunidi.
Eiscnhower Bandaríkjafor-
seti sat fund með stjórn sinni
í gær og var hinn hressasti að
sjá.
Fundurinn stóð á aðra klst. í
dag mun forsetinn hefja við-
ræður við þingleiðtoga um til-
lögur þær, sem hann hyggst
leggja fram á fundi forsætis-
ráðherra Norður Atlantshafs-
varnarbandalagsins 16. þ. m.
Samþykkf um
Kashmir.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna kom saman á fund í gær-
kvöldi og ræddi Kaslimírmálið.
Fyrir fundinum lá tillaga frá
fimm þjóðum, þeirra meðal
Bretum, um að dr. Graham
gerði nýja tilraun til málamiðl-
unar. Indland tók tillögunni illa
en Pakistan vel.
Fulltrúi Rússa tók fram, að
stjórn hans teldi taeinar sam-
komulagsumleitanir heppileg-
astar, en hann sat hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
„Karlinif sá
rautt!
Sú fregn barst til útgerðar-
félags á Englandi um helgina,
frá skipstjóra á cinum togara
félagsins, er var á leið á fs-
Iandsmið, að stjórnpallurinn
hefði skipt um lit. Var hann
hvítur, en var nú allt í einu
orðinn fagurrauður.
Nokkrum stundum síðar barst
skeyti frá skipstjóranum um,
að stjórnpallurinn væri aftur
orðinn hvítur. Tekið er fram í
fregnum frá Englandi, að skip-
stjórnn sé þekktur að áreiðan-
leik, og var þess helzt til getið,
að einhverjar geislaverkanir
hefðu valdið því, að grunnmáln
ingin á stjórnpallinum, sem var
rauð, hafi oi’ðið hvítu málning-
unni sterkari.
Ná kommúnistar völdum
í Guatemala?
Efnt verður til jorsetákjörs
í Guatemala þ. 19. janúar næst-
komandi.
Óttast margir í grannríkjun-
um, að laumukommúnistar
muni ná völdunum, því að and-
kommúnistar eru sundurþykk-
ir og geta ekki starfað saman.
Margir kommúnistar hafa snú-
ið heim úr útlegð síðustu vik-
urnar með leyfi stjórnarvald-
anna.