Vísir - 12.12.1957, Side 1
17. árg.
Fimmtudaginn 12. desember 1957
291. tbl.
Verib að reisa um 6S m.
háan reykháf á Akranesi
Þetta er hæsti reykháfur á
Isndinu.
Reykháfurinn mikli á Sements
verksmiðjunni á Akranesi er nú
orðinn hæsti reykháfur á land-
inu og gnæfir hátt yfir Akranes-
bæ.
Hann hækkar enn um 4 metra
á degi hverjum og í dag er hann
54 metra hár orðinn. Enn er eft-
ir að steypa 10—12 metra ofan
á hann og verður því verki lokið
í byrjun næstu viku.
Það er ýmsum annmörkum
h.áð að vinna að slíkri steypu-
vinnu í vetrarveðrum hvenær
sem er. Hefur hvassviðri þegar
komizt upp í 10 vindstig á með-
an unnið var að reykháfnum, en
kom ekki að sök, sem hetur fór,
Friðrik er nú
í 3ja sæti.
í 9. umferð í Dallas fór svo,
áð Reshevsky sigraði Friðrik
Ólafsson.
í 10. umferð sigi’aði Reshev-
sky Najdorf, en jafntefli varð
hjá Friðrik og Evans, Gligoric
og Szabo, en biðskák hjá Lar-
sen og Yanowski.
Að lokinni 10. umferð er
staðan þessi: Reshevsky 644,
Gligoric 6, Friðrik 544, Szabo
544, Larsen 444 og biðskák,
Yanowsky 4 og biðskák, Naj-
dorf 4 og Evans 3 vinninga.
í 11. umferð munu þessir
leika saman: Friðrik og Naj-
aorf, Gligoric og Reshevsky,
Larsen og Evans, Szabo og
Yanowsky.
enda tryggilega og vel um allt
búið.
Auk reykháfsins er unnið að
byggingu Kvarnahússins af
miklu kappi og áherzla lögð á að
koma þvi upp hið fyrsta. Stærð
þess öll verður helmingi stærri
en háskólabyggingin í Reykja-
vík og geta menn þá farið nokk-
uð nærri um stærð þess.
3ja ára þræíkun
vegna flótta.
f Austur-Þýzkalandi liafa
verið þyngd ákvæði hegning-
arlaga fyrir flóttatiiraunir úr
landi.
Þeir, sem reyna að flytja
vestur fyrir tjald, eiga nú yfir
höfði sér, að vera dæmdir í
þriggja ára fangelsi, ef á þá
sannast að hafa undirbúið flótta
eða reynt að flýja.
En þrátt fyrir síaukna gæzlu
og men neigi á hættu, að vera
skotnir á flótta, heldur flóttinn
áfram.
SeðBaveSfa vex
i Breflandi.
Englandsbanki býst við mikl-
um viðskiptum fyrir jólin.
Kemur það fram i því, segir
bankinn, að seðlaveltan hefir
vaxið um 14,4 millj. punda síð-
ustu vikur. Hún er nú 95 millj.
punda meiri en í fyrra og hefir
aldrei verið meiri, er í heild 2
milljarðar.
Gömul beita er á öngli Búlganins.
SjáSfstæðisfélögin efna til
fiindar um kosningalögíit.
Fjölmennið á fimdinn kl. 8.30.
Vörður, Hvöt, Heimdallm’ og
Óðinn halda sameiginlegan fund
í kvöld kl. 8,30 í Sjálfstæðisliús-
ínu. Umræðuefni: Að liverju
stefna kosningahömlur ríkis-
stjórnarinnar?
Frummælendur á fundinum
verða alþingismennirnir Bjarni
Benediktsson og Gunnar Thor-
oddsen. Tilefni fundarins er það,
að fyrir nokkru lagði ríkisstjórn
in fram á Alþingi frumvarp um
breytingar á kosningalögunum.
Miðar það að því að skerða kosn-
ingarrétt manna og er að öllu
leyti gegn lýðræðisskoðunum
vestrænna ríkja. Allt Sjálfstæð-
isfólk er velkomið á fundinn
meðan húsrúm leyfir.
Kýpurmál rætt á
næturfundi hjá Sþ.
Stjórnmálanefnd allsherjar-
þingsins ræddi Kýpurmálið á
fundi í nótt.
Fundi var frestað, án þess
nokkur atkvæðagreiðsla færi
fram. Noble fulltrúi Breta
lagði til, að reynt yrði að ná
samkomulagi á þríveldafundi
(þ. e. Breta, Grikkja og Tyrkja).
Eisenhower ræðir bréf
hans víö triínaðar<
menn sína.
Eisenhower forseti ræðir í
dag við ihelztu ráðunauta sína j
bréf Búlganins forsætisráðherra
Ráðstjórnarríkjanna, en á morg-
un leggur hann af stað til Par-
ísar. Bréfið var birt í gær, en
bréf Búlganins til Gaillards
forsætisráðherra Frakkiands og
Macmillans forsætisráðherra
Bretlands, hafa ekki enn verið
birt.
Líklegt er talið, að bréfin til
Gaillards og Macmillans séu
sama efnis og lík að orðalagi og
bréfið til Eisenhowers.
í bréfinu til Eisenhowers er
ekkert nýtt. Búlganin lofar
brottflutningi herliðs Rússa frá
fylgiríkjum þeirra, gegn því að
Bretar, Frakkar og Banaaríkja-
menn flytji allt herlið sitt burt
frá V.-Þýzkalandi og öðrum
Natolöndum.
Ganila beitan.
Með þessu væri Vestur-
Evrópa svipt mikilvægum vörn
um. Rússar losnuðu við Banda-
ríkjamenn af meginlandinu, en
hefðu sjálfir þá aðstöðu, að
geta flutt lið í skyndi inn á þau
landsvæði, sem þeir nú yfirgefa,
en þá aðstöðu hefðu Banda-
ríkjamenn ekki.
Þá stingur Búlganin upp á
belti, þar sem ekki mætti vera
neinn kjarnorkuvígbúnaður,
eldflaugastöðvar o. s. frv., þ. e,
með öðrum gamla tillagan um
hlutlaust belti sem hér kemur
fram. Er hér því beitt bæði að
því er brottflutninginn varðar
og hlutlausa beltið — gamalli
beitu. Einnig stingur B. upp á
fundi æðstu manna.
Markmiðið er hið sama sem
jafnan fyrr: Að losna við her-
afla Bandaríkjamanna og veikja
varnir Nato.
Engar beinar hótanir
koma fram í bréfinu, en það
er talað um það, að ef sam-
komulag náist ekki sé öllum
leiðum lokað, að því er virðist
um alla framtíð, um sameiningu
Þýzkalands.
Af hálfu Vesturveldanna eða
höfuðleigtoga þeirra hefur sú
skoðun verið ofan á, að fundur
æðstu manna mundi ekki ná til-
gangi sínum ef haldinn væri nú
— og það mundi valda meiru
illu en góðu ef haldinn væri, án
þess tryggt væri fvrirfram eitt-
hvert samkomulag.
Þekktasti dýratemjari Bertram Mills-hringleikahússins í
Lundúnum hefur nýlega gefið út bók um samskipti sín og
dýranna. Á útgáfudegi bókarinnar kom hann í skrifstofu út-
gefanda með cftirlætið sitt, tígrislæðuna „Begum“, scm lagðist
þar við eitt skrifborðið. Stúlkan virðist ekki vitund hrædd við
óargadýrið.
Bátarnir fengu mokafla í
lirÉndavskursjó í nótt.
Margir fengu 150-240 tn. Mikil síld
í Miðnessjó en lítil veiði.
Reknetabátarnir voru allir á
sjó í nótt og voru þeir ýmist í
Grindavíkursjó eða í Miðnessjó.
Þeir, sem voru í Grindavíkursjó
fengu afbragðs góða veiði, frá
150 til 240 tunnur á bát. Margiir
voru með yfir 200 iimmir.
Frakltar eru sagðir hafa far-
ið fram ■ á 100 milij. dollara
lán i Bandarikjumun.
IHiartekjyr Ástralk
hraðmmhka.
Tekjur af ullarframleiðslu og
sölu í Ástralíu munu rýrna, að
jþví er áætlað er, á yfirstand-
; andi fjárhagsári, sem lýkur í
júni næsta ár.
j Gert er ráð fyrir, að tekju-
rýrnunin muni nema 130
millj. ástralskra punda eða um
25% miðað við fyrra fjárhags-
ár. Aðalorsökin er verðrýrnun
á heimsmarkaðnum.
I gærkvöldi voru miklar lóðn-
ingar í Miðnessjó og gerðu menn
sér vonir um mikla veiði, en
það var eins og verið hefur í
haust, lítið af síld í netunum.
Tvílögðu margir og koma þeir
bátar að mun seinna, en þeir
sem voru í Grindavíkursjó, þótt
þeir eigi skemmri leiði í land.
Sex bátar Haraldar Böðvars-
sonar á Akranesii voru í Grinda-
víkursjó og voru þeir fyrstu
væntanlegir til Akraness kl. 9,30
í morgun. Var afii þeirra áætlað-
ur 900 tunnur samtals.
Veðurspáin fyrir næsta sólar-
hring er ekki hagstæð fyrir rek-
netabátana. Kröpp lægð hefur
myndazt út af Vestfjörðum, sem
talið er að muni valda austan
hvassviðri á síldarmiðunum. Er
því ekki gert rðð fvrir að bátarn
ir geti róið í kvöld.