Vísir


Vísir - 12.12.1957, Qupperneq 1

Vísir - 12.12.1957, Qupperneq 1
17. árg. Fimmtudaginn 12. desember 1957 291. tbl. Verib að reisa um 6S m. háan reykháf á Akranesi Þetta er hæsti reykháfur á Isndinu. Reykháfurinn mikli á Sements verksmiðjunni á Akranesi er nú orðinn hæsti reykháfur á land- inu og gnæfir hátt yfir Akranes- bæ. Hann hækkar enn um 4 metra á degi hverjum og í dag er hann 54 metra hár orðinn. Enn er eft- ir að steypa 10—12 metra ofan á hann og verður því verki lokið í byrjun næstu viku. Það er ýmsum annmörkum h.áð að vinna að slíkri steypu- vinnu í vetrarveðrum hvenær sem er. Hefur hvassviðri þegar komizt upp í 10 vindstig á með- an unnið var að reykháfnum, en kom ekki að sök, sem hetur fór, Friðrik er nú í 3ja sæti. í 9. umferð í Dallas fór svo, áð Reshevsky sigraði Friðrik Ólafsson. í 10. umferð sigi’aði Reshev- sky Najdorf, en jafntefli varð hjá Friðrik og Evans, Gligoric og Szabo, en biðskák hjá Lar- sen og Yanowski. Að lokinni 10. umferð er staðan þessi: Reshevsky 644, Gligoric 6, Friðrik 544, Szabo 544, Larsen 444 og biðskák, Yanowsky 4 og biðskák, Naj- dorf 4 og Evans 3 vinninga. í 11. umferð munu þessir leika saman: Friðrik og Naj- aorf, Gligoric og Reshevsky, Larsen og Evans, Szabo og Yanowsky. enda tryggilega og vel um allt búið. Auk reykháfsins er unnið að byggingu Kvarnahússins af miklu kappi og áherzla lögð á að koma þvi upp hið fyrsta. Stærð þess öll verður helmingi stærri en háskólabyggingin í Reykja- vík og geta menn þá farið nokk- uð nærri um stærð þess. 3ja ára þræíkun vegna flótta. f Austur-Þýzkalandi liafa verið þyngd ákvæði hegning- arlaga fyrir flóttatiiraunir úr landi. Þeir, sem reyna að flytja vestur fyrir tjald, eiga nú yfir höfði sér, að vera dæmdir í þriggja ára fangelsi, ef á þá sannast að hafa undirbúið flótta eða reynt að flýja. En þrátt fyrir síaukna gæzlu og men neigi á hættu, að vera skotnir á flótta, heldur flóttinn áfram. SeðBaveSfa vex i Breflandi. Englandsbanki býst við mikl- um viðskiptum fyrir jólin. Kemur það fram i því, segir bankinn, að seðlaveltan hefir vaxið um 14,4 millj. punda síð- ustu vikur. Hún er nú 95 millj. punda meiri en í fyrra og hefir aldrei verið meiri, er í heild 2 milljarðar. Gömul beita er á öngli Búlganins. SjáSfstæðisfélögin efna til fiindar um kosningalögíit. Fjölmennið á fimdinn kl. 8.30. Vörður, Hvöt, Heimdallm’ og Óðinn halda sameiginlegan fund í kvöld kl. 8,30 í Sjálfstæðisliús- ínu. Umræðuefni: Að liverju stefna kosningahömlur ríkis- stjórnarinnar? Frummælendur á fundinum verða alþingismennirnir Bjarni Benediktsson og Gunnar Thor- oddsen. Tilefni fundarins er það, að fyrir nokkru lagði ríkisstjórn in fram á Alþingi frumvarp um breytingar á kosningalögunum. Miðar það að því að skerða kosn- ingarrétt manna og er að öllu leyti gegn lýðræðisskoðunum vestrænna ríkja. Allt Sjálfstæð- isfólk er velkomið á fundinn meðan húsrúm leyfir. Kýpurmál rætt á næturfundi hjá Sþ. Stjórnmálanefnd allsherjar- þingsins ræddi Kýpurmálið á fundi í nótt. Fundi var frestað, án þess nokkur atkvæðagreiðsla færi fram. Noble fulltrúi Breta lagði til, að reynt yrði að ná samkomulagi á þríveldafundi (þ. e. Breta, Grikkja og Tyrkja). Eisenhower ræðir bréf hans víö triínaðar< menn sína. Eisenhower forseti ræðir í dag við ihelztu ráðunauta sína j bréf Búlganins forsætisráðherra Ráðstjórnarríkjanna, en á morg- un leggur hann af stað til Par- ísar. Bréfið var birt í gær, en bréf Búlganins til Gaillards forsætisráðherra Frakkiands og Macmillans forsætisráðherra Bretlands, hafa ekki enn verið birt. Líklegt er talið, að bréfin til Gaillards og Macmillans séu sama efnis og lík að orðalagi og bréfið til Eisenhowers. í bréfinu til Eisenhowers er ekkert nýtt. Búlganin lofar brottflutningi herliðs Rússa frá fylgiríkjum þeirra, gegn því að Bretar, Frakkar og Banaaríkja- menn flytji allt herlið sitt burt frá V.-Þýzkalandi og öðrum Natolöndum. Ganila beitan. Með þessu væri Vestur- Evrópa svipt mikilvægum vörn um. Rússar losnuðu við Banda- ríkjamenn af meginlandinu, en hefðu sjálfir þá aðstöðu, að geta flutt lið í skyndi inn á þau landsvæði, sem þeir nú yfirgefa, en þá aðstöðu hefðu Banda- ríkjamenn ekki. Þá stingur Búlganin upp á belti, þar sem ekki mætti vera neinn kjarnorkuvígbúnaður, eldflaugastöðvar o. s. frv., þ. e, með öðrum gamla tillagan um hlutlaust belti sem hér kemur fram. Er hér því beitt bæði að því er brottflutninginn varðar og hlutlausa beltið — gamalli beitu. Einnig stingur B. upp á fundi æðstu manna. Markmiðið er hið sama sem jafnan fyrr: Að losna við her- afla Bandaríkjamanna og veikja varnir Nato. Engar beinar hótanir koma fram í bréfinu, en það er talað um það, að ef sam- komulag náist ekki sé öllum leiðum lokað, að því er virðist um alla framtíð, um sameiningu Þýzkalands. Af hálfu Vesturveldanna eða höfuðleigtoga þeirra hefur sú skoðun verið ofan á, að fundur æðstu manna mundi ekki ná til- gangi sínum ef haldinn væri nú — og það mundi valda meiru illu en góðu ef haldinn væri, án þess tryggt væri fvrirfram eitt- hvert samkomulag. Þekktasti dýratemjari Bertram Mills-hringleikahússins í Lundúnum hefur nýlega gefið út bók um samskipti sín og dýranna. Á útgáfudegi bókarinnar kom hann í skrifstofu út- gefanda með cftirlætið sitt, tígrislæðuna „Begum“, scm lagðist þar við eitt skrifborðið. Stúlkan virðist ekki vitund hrædd við óargadýrið. Bátarnir fengu mokafla í lirÉndavskursjó í nótt. Margir fengu 150-240 tn. Mikil síld í Miðnessjó en lítil veiði. Reknetabátarnir voru allir á sjó í nótt og voru þeir ýmist í Grindavíkursjó eða í Miðnessjó. Þeir, sem voru í Grindavíkursjó fengu afbragðs góða veiði, frá 150 til 240 tunnur á bát. Margiir voru með yfir 200 iimmir. Frakltar eru sagðir hafa far- ið fram ■ á 100 milij. dollara lán i Bandarikjumun. IHiartekjyr Ástralk hraðmmhka. Tekjur af ullarframleiðslu og sölu í Ástralíu munu rýrna, að jþví er áætlað er, á yfirstand- ; andi fjárhagsári, sem lýkur í júni næsta ár. j Gert er ráð fyrir, að tekju- rýrnunin muni nema 130 millj. ástralskra punda eða um 25% miðað við fyrra fjárhags- ár. Aðalorsökin er verðrýrnun á heimsmarkaðnum. I gærkvöldi voru miklar lóðn- ingar í Miðnessjó og gerðu menn sér vonir um mikla veiði, en það var eins og verið hefur í haust, lítið af síld í netunum. Tvílögðu margir og koma þeir bátar að mun seinna, en þeir sem voru í Grindavíkursjó, þótt þeir eigi skemmri leiði í land. Sex bátar Haraldar Böðvars- sonar á Akranesii voru í Grinda- víkursjó og voru þeir fyrstu væntanlegir til Akraness kl. 9,30 í morgun. Var afii þeirra áætlað- ur 900 tunnur samtals. Veðurspáin fyrir næsta sólar- hring er ekki hagstæð fyrir rek- netabátana. Kröpp lægð hefur myndazt út af Vestfjörðum, sem talið er að muni valda austan hvassviðri á síldarmiðunum. Er því ekki gert rðð fvrir að bátarn ir geti róið í kvöld.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.