Vísir - 23.12.1957, Page 3
Mánudaginn 23. desember 1957
VlSIR
3
uldsstöðum til að anna söng og
öðrum prestsverkum. Af bæna-
húsum þessum voru tvær hálf-
kirkjur. Þar skyldi messa flutt
annan hvern helgan dag, en
nokkru færri að hinum. Eigend-
ur bænahúsanna greiddu presti
eina til tvær merkur í söngkaup.
Mörk var fjörutíu og átta álnir
vaðmáls eða þess ígildi, svo
bænhúsa- og hálfkirknahaldið
hefur ekki verið bændum út-
látalaust. Tekjur Höskulds-
staðaprests á þessa grein voru
um níu merkur og því drjúgur
tekjuauki.
Af því, sem nú hefur verið
talið sézt að heimatekjur
Höskuldsstaðaprests hafa verið
drjúgar. En ekki runnu þær til
hans óskertar með öliu. Hann
galt aðstoðarpresti sínum kaup,
sem vart hefur verið mjög háít
og á honum hvíldi viðhald
kirkju og kirkjueigna. Hann
þurfti að vera viðbúinn að sýna
glöggan reikning um viðskipti
sín og kirkjunnar, hvenær sem
biskup eða umboðsmann hans
bar að garði í kirkjuskoðun.
Honum tjóaði ekki að sóa fé
kirkjunnar, hann bar ábyrgð á
því. Öllu var óhætt í höndurn
Þórðar prests. Hann glopraði
engu niður.
Kirkjan skuldaði
klerki.
Efalaust hefur Þórður prest -
ur setið vel staðinn á Hösk-
uldsstöðum og gætt vel allra
landsnytja. Hann hefur og gætt
vel eigna kirkjunnar, sem arð-
bærar voru og eflt hana að þeim
en verið tómlátari um allan
búnað innan kirkju, því þess-
háttar eignir voru að vísu nauð-
synlegar vegna tíðagjörða og
helgiathafna, en arðlausar eins
og glys og skrautmunir. Óvíst
er hvernig kirkja sú var, sern
Þórður prestur tók við er hann
kom að Höskuldsstöðum. Ýmis-
legt bendir til þess að kirkjur,
sem þar voru reistar í kaþólskri
tíð, hafi verið með stærra og
vandaðra móti, eftir því sem
aldarsiður var þá og oftast af
'timbri gerðar, en torfkirkjur
voru þá og lengi síðan algeng-
astar og að mun ódýrari í
byggingu og viðhaldi. Er leið á
prestskapartíð Þórðar, hefur
kirkja hans efalaust verið all-
hrörleg orðin, því hann tók hana
ofan og byggði nýja, sennilega
með svipuðu lagi.
Þá kirkju vígði Pétur biskup
Nikulásson á Sviðungsmessu 2.
júlí 1395. Um leið var skráður
máldagi kirkjunnar og vand-
lega taldar og skrásettar eignir
hennar allar utan húss og inn-
an, ítök og tollar. Er reiknings-
skil voru gerð og allt talið
reyndist kirkjan skulda presti
hálft þriðja hundrað (þrjú
hundruð álnir). Þá ,.af séra
Þórður refla um framkirkjuna,
þó svo, ef hann kynni síðar meir
kirkjunni nokkurra peninga
skuldugur vérða í porcionem
eða hrörnun staðarins, þá skyldi
það þar upp í snúast“. Hér koma
glöggt fram hyggindi séra Þórð-
ar og féskyggni. Þarna átti hann
varasjóð, sem verið gat, hvort
sem vildi, gjöf eða gjald.
Því fleir vottar,
þvi betra.
Af máldaganum sézt, að
messuklæði og ýmsir gripir