Alþýðublaðið - 26.05.1920, Page 1

Alþýðublaðið - 26.05.1920, Page 1
Alþýðublaðið éreliö út aí Alþýðuílokknuni. 1920 OS Fisteignafél. Rvíkur. Hvað er Fasteignafélag Reykja- víkur? Ósjálfrátt kemur manni þessi spurning í hug, þegar mað- ur les bréf það, er nefnt félag hefir sent bæjarstjórninni, og birt er í Morgunblaðinu 22. maí. Bréfið er staðhæfing frá upphafi til enda, en elcki ein einasta s'ónnun færð fyrir því, að innihald þess hafi við rök að styðjast. Fasteignafélag Reykjavíkur sam- anstendur af ,húsaspekúlöntum“ fyrst og fremst, og einstökum mönnum, sem húseignir eiga í bænum. Það er því tilgangur þess, að sjá um hag þessara m«mna, og því sjálfsagt, frá þess sjónar- miði, að það skari eidi að sinni köku. 9 Húsaleigalögin ófriðarráð- stöfun. Fyrsta ástæðan, sem íærð er fyrir því, að afneraa beri húsa- leigulögin, er það, að þau hafi verið ófriðarráðstöfun, sem ekki hafi verið ætlast til að stæði lengur en meðan styrjöldin stæði, en nú séu allar aðrar styrjaldar- ráðstafanir, er takmarka eignarrétt rnanna, afnumdar. Óneitanlega er þetta veigalítil ástæða, þegar þess er gætt, að þrátt fyrir það, þó heimsstyrjöld- inni, sem slíkri, sé Iokið, þá er svo langt frá því að ástandið í heiminum sé betra en á stríðsár- unum svo nefndu; þvert á móti verður það ískyggilegra með svo að segja hverjum degi. Nú viður- keuna húseigendur, að lögin hafi átt fullan rétt á sér á stríðsárunum, sem líka er rétt; en af því leiðir, að þau eiga miklu fremur rétt á sér nú, þegar ástandið er verra. Þessi ástæða fyrir afnámi lag- anna fellur því algerlega um sjálfa sig, ekki sízt ef litið ef á peninga- Miðvikudaginn 26. maí kreppuna, sem nú spennir landið greipum. Álit Alþiugis. Önnur ástæða, sem félagið slær fram, er þingsályktunartillagan fræga, sem 2. þm. Reykvíkinga flutti svo gallaða, að 1. þm. varð að gera leiðréttingu á henni, en tókst það ekki betur en svo, að hann varð sjélfur að láta prenta leiðréttingu við leiðréttingu sína! 1 Þessi tiliaga var svo drifin í gegn- um neðri deild með þessu annál- aða óðagoti og flaustri, sem var á þingmönnum í vetur, þegar þeir voru svo sturlaðir af heimþrá, að þeir vissu varla hvað verið var að ræða um. Tillagan kom aldrei fyrir efri deild. Enda var engin ástæða til þess, að ræða þetta mál á þingi, því í lögunum er tekið fram, að þau megi afnema með konunglegri tilskipun að fengnum tillögum bæjarstjórnar. Þingmenn úr öðrum héruðum fara, af skiljanlegum ástæðum, mest eftir sögusögn þingm. Reykvík- inga, en þeir eru aftur bundnir húsabröskurunum í báða skó; álit þingsins á þessu máli verður því að þessu sinni að teljast mjög lítils virði, og ástæða þessi því engin ástæða. Niðurníðsla og viðhaldsleysi. Þriðja ástæðan, sera færð er fram fyrir afnámi húsaleigulag- anna er sú, að fjöldi húsa í bæn- um séu orðin svo niðurnídd af viðhaldsleysi, að til ómetanlegs tjóns sé, bæði fyrir einstaklinga og bæjarfélagið, og það sé lögun- um að kenna. Með því að halda þeirri ein- dæmis vitleysu fram, að húsaleigu- lögunum sé um að kenna við- haldsleysi húsa, sýnir Fasteigna- félagið nekt sína helzt til áþreifan- lega, og í gegnum þessa „ástæðu" skín gróðaflkn húsabraskaranna. Ef það er rétt, sem ætla mætti af bréfinu í Mgbl., að hús séu yfirleitt í niðurníðslu, þá sér hver 116. tölubl. | heilvita maður og hlýtur að við- urkenna, að það er ekki húsa- leigulögunum - að kenna, heldur dýrtíðinni, og svo því, að húseig- endur vegna húsnæðisvandræða geta leigt svo að segja hvað lé- legar íbúðir sem verkast vill Og auðvitað trassa þeir í lengstu Iög að bæta það slit, sem hlýtur óhjákvæmilega að leiða af notkun- inni, enda er það að miklu leyti afleiðing af því, að þeir vona ár frá ári að dýrtíðin minki, að efn- ið, sem nota þarf til viðgerða, lækki í verði. En húsaleigan er engu að síður hækkuð. Allir vita, að húsaieigulögin eiga alls engan þátt í dýrtíðinni. En það er eðli- legt að þeir, sem hús leigja, vilji kippa lögunum um húsaleigu í burtu, þvf þá geta þeir — og gera vafalaust — flutt upp húsa- leigu eftir vild, þó þeir hafi ekki gert hið minsta við íbúðimar. Þetta er því engin ástæða til þess að að afnema lögin; því við- haldsleysið stafar af dýrtíðinni og peningagrœðgi húseigenda. (Framh.). Kvásir. jjæritm vatnslans. í morgun, er menn komu á fætur, þótti undarlega lítill kraftur á vatninu í vatnsleiðslu bæjarins. Var farið að Ieita að orsök þessa, og kom þá í ljós, að aðalvatns- æðin var sprungin á tveimur stöð- um. Er því haldið fram, að þetta hafi skeð í nótt, en réttara mun það, að þarna komi loks fram að nokkru leyti ástæðan fyrir vatns- skortinum, sem verið hefir hér í bænum undanfarið. Rannsókn borgarstjóra á orsök vatnsskorts- ins mun hér með lokið, því nátt- úran hefir komið honum til hjálp- ar. Þegar frostið er nú komid úr jörðu, brýzt það vatn, sem runnið hefir úr pípunum, upp á yfirborð- ið, og kemur þá bilunin í ljós.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.