Vísir


Vísir - 25.03.1958, Qupperneq 1

Vísir - 25.03.1958, Qupperneq 1
43. árg, Þríðjudaginn 25. marz 1958 68. tb?< Björgunarflug þyrlunnar átti að hefjast kl. 10. Hún átti að fljúga frá Grænlandi. Klukkan tíu í morgun átti að gera aðaltilraunina til að bjarga siasaða manninum af norska sel- veiðaranum Drott. Eins og Vísir skýrði frá, var stór þyrla af Sikorski-gerð flutt í skrokki risaflugvélar af Globe- mastergerð til Meistaravíkur og þar átti að setja hana saman og búa til flugs. Þegar til kom, vant aði stóran krana I Meistaravík svo að hægt væri að lyfta þyrl- unni og setja undir hana hjól. Sótti Globemaster-vélin krana til Keflavíkur í nótt, og klukkan tíu 1 morgun átti allt að vera tilbúið til.að senda þyrluna af stað. Henni i til aðstoðar verða tvær björgunarflugvélar frá Keflavík af Skymastergerð og fylgist önnur allan timann með þyrlunni, en hin heldiu- rakleiðist á þann stað, þar sem Fornfræg brú endurreisf. Ein af mörgum fornfrægum brúm yfir fljótið Amo í Flór- ens hefir verið endurbyggð. Brú þessa eyðilögðu Þjóð- verjar á undanhaldi sínu norð- ur Ítalíu 1944, og var talið ó- gerningur að endurreisa hana í sinni fornu mynd. Fyrir áhuga borgarbúa hefir þetta þó tekizt, en kostnaðurinn varð sem svaraði 8 millj. ísl. kr. Brúin var reist árið 1567—70. Drott Iiggiu- í ísnum, og verð- ur í sambandi við hina björg- unarflugvélina, svo að liægt sé að miða staðinn jíieð aðstoð hennar. Gizkað er á, að leiðin frá Meist aravík til Drotts sé um 175 km. Þyrlan mun ekki lenda, þegar hún verður komin, heldur verða tveir af 4ra manna áhöfn henn- ar, hjúkrunarmenn, látnir siga niður á ísinn, og er þeir hafa gert vel að sárum mannsins og búið hann undir ferðina, verður honum lyft í þyrluna með stál- vír og síðan flogið til lands. Veður mun vera hagstætt norð ur yfir ísbreiðunni, enda mundi erfitt um björgun ella. Gaiffard hótar enn að fara. Gaillard forsætisráðherra Frakklands hefir endurtekið, að liann biðist lausnar, ef liægriflokkainir kippi ráðherr- um sínum úr samsteypustjórn Ihans. Þeir frestuðu í fyrri viku að taka ákvörðun sína í þessu efni, en höfðu þá í hótunum að gera það, ef Gaillard féllist á að sleppa yfirráðum flugvalla í Túnis, til þess að samkomulag næðist í Túnisdeilunni. Talið er, að hægri flokkarn- ir muni taka ákvörðun sína í dag. „Innbrotsþjofnaður” í mis- munandi stórum stíl. Þjóðvlljlnn skHfar um gengislækkunar- fyrirætlanir bandamanna. Kommúnistar hamast nú ákaflega gegn gengislækkun, að það er haft fyrir satt, að ríkisstjórnin sé alvarlega að hugleiða þá leið út úr vandanum. Enn sem komið er, liefur krötum og framsókn þó ekki tekizt að bjóða svo vel í kommúnista, að þeir sé reiðubúnir til að fallast á þessa leið, og kemur það fram í Þjóðviljanum í morgun, að betur má bjóða, ef duga skal. Þjóðviljinn birtir nefnilega áberandi ldausu, sem heitir „Gengislækkun — innbrotsþjófnaður í stærsta stíl.“ Síðan koma tvær sögur til að skýra þann málstað, sem kommún- istar hafa enn í máli þessu (hvað sem síðar verður) og heitir önnur: „Þeir, sem brjótast inn og stela,“ cn hin „Þeir, sem stolið er frá.“ Gengislækkunin dulbúna, sem kommúnistar stóðu að fyrir jólin 1956, er þá sennilega „innbrotsþjófnaður í ekki of stórum stíl.“ Það er munur, þegar það er hægt að flokka glæpina svona nákvæmlega. Þessar myndir voru teknar á jniðvikudaginn i Siglufirði, er hinn hörmulegi bruni varð þar, þegar Gísli Stefánsson iiótelstjóri og sonur hans, Stefán, fórust af völdum eldsins. Myndin hér til hliðar gefur góða hugmynd um það. liversu verður var stillt Jienna morgun, en þar sést til brunastaðarins úr um 500 inetra fjarlægð. Stærri myndin sýnir eldliafið aðeins um það bil 15 mínútum eftir að eldsins varð vart. Myndin er tekin I.æk.jar- götumegin frá suðri til norðu rs. (Ljósm.: Hjörtur og Hinni). Maður verður fyrir riffilskoti. Æðisgenginn eltingarleikur við mink um Reykjavíkurgötur í morgun. f gær barst lögreglunni tilkynn ing um að skot hefði lent í mann hér í bænum og myndi hann vera taLsvert særður. Við athugun málsins kom í Ijós að tveir ungir menn höfðu verið að leika sér eða fikta við riffil inni í miðstöðvarklefa húss eins hér í bænum, en vopnið var hlaðið og áður en varði hljóp úr því skot. Kúlan lenti í bakhluta annars piltsins og sat þar föst. Varð af talsvert sár og var pilt- urinn fyrst fluttur í slysavarð- stofuna til athugunar og síðan lagður inn í sjúkrahús, þar sem læknar ætla sér að skera eftir kúluimi. Ekki er talið að piltur- inn sé hættulega særður og má það telja hreina mildi. Minkur heimsækir Reykjavík. í morgun um níu leytið var íögreglunni gert aðvart um mink, sem hafði vsrið á moi-g- ungöngu á Hallvsigarstígnum og virtist vera í útvegunarleið- angri eftir morgunverði, einkum þótti hann líta dúfur óhýru auga og einhverja tilburði mun hann hafa haft í frammi til að hremma þær, hvern árangur sem það mun þó hafa borið. En heimsókn minksins á Hall- veigarstíginn var íbúunum þar ekkert kærkomin og sýndu þeir honum enga gestrisni. Safnaðist hópur vegfarenda á eftir honum og lét ófriðlega. Þar við bættist svo að sveit lögreglumanna sner ist á sveif með andstöðuflokki minksins, og sá hann sér ekki annað ráð vænna heldur en gsfa morgunverðinn upp á bátinn eins og sakir stóðu og leggja á flótta. Hófst æðisgenginn elting- arleikur um bæinn, en minkur- inn var fótfrár og léttur á sér og hvarf hann ofsóknarmönnum sýnum. Eftir nokkra stund bárust þó enn fréttist af minkinum. Þá var hann kominn í hóp annarra vegfarenda á Laugaveginum, móts við verzlunina Fálkann. Ekki þótti hann heldur neinn aufúsugestur þar og sízt konum, svo að nú var'lögreglu enn gert aðvart. Hófst nú eltingarleikurinn að : nýju, en óægfa minnksins varð sú, að hann leitaði skjóls inni í j húsi, skreið inn í felgugeymsl- Vegir tii Akur- eyrar ruddir. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri, í morgtin. Búið er aft ryðja alla vegi í nærsveitum Akureyrar og streyma nú mjólkurbílar til bæjarins úr öllum áttum nema úr Höfðahverfi og Fnjóskadal. j Vaðlaheiði verður ekki rudd á næstunni, því þar er allt á kafi í snjó. Hinsvegar verður vegurinn til Grenivíkur rudd- ur innan skamms. Erfið færð er á götum Akureyrar síðan hlákuna gerði um daginn, en í morgun var þar 7 stiga frost :og bjartviðri. Hitabylgja í Japan af völdum Rússa. Plómutrén í Japan standa í blóma mörgum vikum f.vrr en venjulega, og það er Sovétríkjunum að kenna, sagði japanskur þingmaður á þingfundi í vikunni. — Astæðuna fyrir hitanum kvað þingmaður vera þá, að Rússar væru að' loka sund- inu milli Síbiríu og Saka- líneyjar, en eftir því rcnnur jafnan kaldur straumur suð- ur með vesturströnd Japans- eyja. Væru þeir næstum búnir að loka sundinu, svo að loftslagið breyttist af þeim sölcum. Ýmsir haffræð- ingar viðurkenna, að sjáv- arhiti er meiri en áður við Japan, en vilja ekki kenna það þessum aðgerðum Rússa. Churchill aftur á bátavegi. Sir Winston Churchill veikt- ist aftur s.l. laugardag og var í fyrstu fregnum talið, að har.n hefði fengið snert af lungna- bólgu, en seinustu fregnir herma, að hann sé í afturbata. Vetrarveðrin að undanförnu eru talin hafa haft miður góð áhrif á heilsu öldungsins, en með batnandi, hlýnandi veðri standa vonir til að hann nái fullri heilsu. Ræðan er komin. Síðast liðinn þriðjudag flutti Hans G. Andersen sendiherra ræðu á landhelgisráðstefnunni í Geneve. Hefur Vísi nú borizt ræðan — hún var send út frá utanríkis- ráðuneytinu í gær — og verður hennar getið nánar í blaðinu síð- ar. una við í’eiðhjólaverkstæði Fálks ans og þar lokuðu lögreglumenn sig inni ásamt dýrinu og skutu það til bana. Dýrið var allstórt.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.