Vísir - 25.03.1958, Blaðsíða 7

Vísir - 25.03.1958, Blaðsíða 7
I»riðjudaginn 25. marz 1958 VtS» — Snautaðu út, öskraði Jo. — Farðu út, Rufus, farðu. — Fyrir alla muni, Jo, sagði hann með ýktri þreytu í rödd- inni, — hættu þessu. Þú skalt ekki segja mér, að þú látir þennan skítuga bóndadurg koma þér úr jafnvægi. Eg sagði, að hann vaeri dauður. Og það er hann— í þeim skilningi, að hann hefur. í rauninni aldrei lifað. ■ Hún þaut upp af gólfinu, æðislega. King horfði á hana nálgast. j Á síðustu stundu vék hann undan og lamdi hana yfir andlitið með flötum Iófanum, nákvæmlega af kuldalegri grimmd, en reiðilaust, algjörlega reiðilaust. Hún lá á gólfinu við fætur hans og snökti. — Stattu upp, sagði hann. Röddin var róleg, tilfinningalaus. Hún lyfti meiddu, grátbólgnu andlitinu og starði á hann. — Eg sagði þér að standa upp, Jo, sagði hann rólega. Hún brölti á fætur eins og hrætt bam. Hegðu nú hantíleggina run hálsinn á mér og kysstu mig. Hún hikaði. — Jo.... sagði hann með óendanlega djúpri röddu. Hún faðmáði hann þegjandi. Hann kyssti hana lengi og vel, af nákvæmni og umhyggju og hæönislegri blíðu og uppgerðri ástriðu. Hann hafði aldrei fundið til neinnar raunverulegrar blíðu, eða tvíbura hennar, hinnar sönnu ástríðu, sem fædd var af ást. Ef til vill var honum vamað þeirra alvég eins og honum var ómögulegt að skilja ást, utan kynferðislegra marka. En þau skildi hann mjög vel. Hendur hans hreyfðust eftir líkama hennar eins og hendur fiðlumeistarans eftir strengjunum. Hann kyssti augu hennar, háls, fann munn hennar aftur og þrýsti hann með sínum þar til hann fann það sem hann leitaði, hina þöglu kippi holdsins, óreglulegan slátt, sem truflaði andardrátt hennar. Jo heyrði, þó ótrúlegt væri, einhvers staðar nærri, undarlegt hljóð — eins og kona styndi af ástríðu. Þá rann það upp fyrir henni að þetta hljóð kom úr hennar eigin háisi. Svei mér.hugsaði hún, þegar Rufus King tók hana upp og gekk yfir ganginn með hana eins og brúðu. En þá var henni orðið nokkum veginn sama. Enn seinna, er Rufus King hafði hlustað á snökt hennar sem hélt áfram svo sjálfsvítandi og örvæntingarfullt, komst hann að ákvörðun. Óróaseggur þessi Harkness, hugsaði hann. Ef til vill hef eg vanmetið hann. Það væri bezt að losna við hann fyrir fullt og allt. Ted — það er svona vinna, sem hann sækist eftir. Alla nóttma gekk Bruce Harkness eftir götum San Francisco. Hann varð énn að bíða í viku eftir fötunum, sem hann hafði pantað. Það var slæmt því það þýddi það, að hann yrði að fara yfir fjöílin til Oregon seint í október og það var ekki beinlínis hentugur tími til að fara yfir fjöllin. Haim ákvað að fara með strandferðaskipi norður til Oregon. Ferðin til Sacramento var tímaeyðsla. Það vissi hann. Hann var viss um, að hann mundi koma að öllu óbreyttu. En hann vonaði að hann hefði á röngu aö standa. Þegar hann hafði bölsótað Jo viö Hailey, hafði hann verið að rökrseða við sjálfan sig um leiö. Hann vissi einnig aö hann hefði verið asni að gera það en meðal þess, sem hann sætti sig við hjá sjálfur sér, var sú staðreynd, að liann var oft asni. Hann ætlaði ekki að halda aftur til búgarðs sins. áður en hann væri í'brúðarleit. Þvrfjær>sem hami væri Juana, því betra. Harin mundi allt í einu, orð gamla prédikarans? — Mundirðu láta það á þig fá ef eg segði þér, að hvórki þú né Hailey eruð, sem menn, þess virði að binda skóþveng Juana, sem konu. Bruce stanzaði, skömminn barðist innra með honum og hann hugsaði: — Eg er þess ekki einu sinni virði, að snerta hönd hennar. Og eg hef þær taugar að geta fordæmt Jo. Það var fyrsta nóttin í San Francisco, sem hélt honum þar, i greipum minninganna. Hann hafði komið að morgni dags, farið til klæðskerans, verið mældur og komið aftur á gistihúsið. Og þar.sathann með tveggja vikna bið framundan og ekkert að að- nema hugsa. Hann hafði í einveru sinni lesið all mikið. í skólanum hafði hann verið meira en meðalgóður nemandi. Hugur hans, sem sífellt var að leita að því hversvegna hlutimir gerðust hafði kynnt honum sögu, heimsspeki og hin miklu skáld, en ekkert þessa leysti vandamál hans. — Jo, sem hann hafði gefið æsku sina, fyrstu æskuástina, gerðist vændiskona, og lá, eins víst og hann sat þarna einn í hreinlegu gistihúsherberginu, í örmum Rufusar Khig. Og Juana, sem — það gat hann nú viðurkennt, hann hafði þroskast þaö mikið — stóð ofar heimskulegum fordómum æsku hans og hon- um varð í hjarta sínu ljóst að sama var hvort amma hennar hefði verið rauð, svört eða jafnvel græn, hann hafði orðið ást- fanginn af Juana af fullri dómgreind, af hugsuðu máli. Hann unni henni ekki aðeins vegna fegurðar hennar heldur öllu heldur vegna þessarar innri fegurðar, er geislaði frá henni. Juana var gift Pepe, vini hans, hinum glaða hlæjandi félaga hans, sem hann unni bróðurást. Vandamál hans tvö sem voru í rauninni eitt vandamál: tóm- leiki lífs hans, einmanaleiki hans, sem var bitur vegna and- stæðnanna. Ekkert, sem hann hafði lesið, séð eða heyrt gaf kvöldvökunni l verður haldinn í Tjarnarcafé niðri miðvikudaginn 26. marz 1958, kl. 15,30. Fundarefni (að lokinni kaffidrykkju): Umræður um reglur rafmagnseftirlits ríkisins vai'ðandi þrífasa fjögurra víra 380/220 volta kerfi og aðrar nýlegar tilkynningar frá raf- mágnseftirlitinu. Smælki. .......... — Konan míri ér alitaf að kaupa sér hanzka, kvartáði ungi eiginmaðurinn. — Hvað get eg gert til þess, að venja hana af þessum ávana? — Eg get gefið yður gott ráð við því, svaraði annar, — kaupið handa henni dýrmætan demantshring. ★ Kinsey, skoðunarkönnunar- maður, sþurðd unga koriu um ástina. — Ástina? sagði hún. — Eg héfir bara aldrei kynnzt henni. — Nei, heyrið mig frú, sagði skoðunarmaðurinn. — Aldrei kynnzt ástinni? — Nei, eg hefi aldrei haldið fráiri hjá manninum mínum ennþá .... ★ kunnið þér" að i ong- Rafmagnseftirlitsstjóri og verkfræðingur litsins munu hefjá umræður. rafmagnseftir- Sýnd verða sýnishorn af nýrri gerð rafspjalda, sem Raf- tækjaverksmiðjan í Hafnarfirði hefur gert. Stjórn félags löggiltra rafvirkjameistara í Reykjavík. wmm Kristmn 0. GuBmundsson hdi. Málflutningur — Innheimta — Samningsgerð Hafnarstræti 16. —Sími 13190. óskast leigð eða keypt. Virmuþrýstingur niinnst 18 kg. á cm2 eða 250 Ibs. á þvertommu. — Góðfúslega hringið 1 síma 1-7400 eftir kl. 13 eða fyrir kl. 12 á morgun. Rafmagnsveita ríkisins. E. R. Biirrouglis — Herra, synda? — Nei, öskráði hinn um sínum. — Klifrið þá þegar í stað upp á bak mitt, annars erú fjórir fjórðu hluta' lífs ýðar glataðir. ic Oscar Wilde var eitt sinn beðinn um að skrif a um huridr- að beztu bækur, sem harin þekkti. Hann ritáði' aftur og sagðd: — Mér er ómögulcgt að rita um hundrað beztu bækurnar, þai’ sem eg hefi aðeins skrifað fimm. ★ Tveir ungir' menn, sem áuð- sjáanlega höfðu lent í slags- málum, voru fluttir á lögreglu- stöðina. — Herra vaktstjóri, hrópaði arinar, — þessi maður réðist á mig' í símaklefa. Eg var áð tála við unnústu mína og við skemmtum okkur svo véli’ Þá reif þessi náungi upp hurðina ög dró mig út úr 'klefanurri. — Einmitt, sagði lögreglu- maðurinn, — og þá urðuð þér óður bg lömduð hann? — Nei, hrópaði maðurinn, —-eg slepþti mér fyrst þegar þessi þorpari tók líka unnustu mína ög dró hana út úr klef- anum .... p á s Jk a e g <g p s Si. a & g ?| p á ís & íe e g g p ÍB S lá. s* f* p s Ic a e g ö Bi ’s •'ðastra-n 54. N.ú'.aa. liónið ’a dáutt íyrir ’ótum í’arzans. Hann .stóð yfir því og riú b. rgmálaði hið ógurlega siguí’öskur apamannsins i Jdoítunum. Tarzari áekti' .hnífinn £ tíélU man •.;. En að hsfá verið ▼ottce Isardaga Tarzans iu IjóniS 'arð marininum um megn, hatþi hafði fallið i öngvit i-jo'im -».

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.