Vísir - 26.06.1958, Page 1
48. árg.
Fimmtudagurinn 26. júní 1958.
136. tbl.
Vafasamt, aS Genfarfundur kjarn-
orkusérfræðinga verði hafdinn.
Rússar virðast nú telja tilgangslaust að
halda fundinn.
Ekki er nú vissa fyrir, að hin
fyrirhugaða ráðstefna kjarn-
orksérfræðinga, sem samkomu-
lag var um, að hefjast skyldi í
Genf næstkomandi þriðjudag
verði haldin. Hefur borizt orð-
sending til Washington frá Sov-
étstjórninni, sem er skilin sem
hótun um, að taka ekki þátt í
henni.
Haldið er fram í orðssnding-
unni, að Dulles utánríkisráð-
herra hafi tekið þá afstöðu, að
afleiðingin verði óhjákvæmi-
lega, að megintilganginum með
ráðstefnunni verði ekki náð, en
Rússar vilji ekki vera aðilar að
samkomulagsumleitunum sem
fyrirfram sé vitað að verði
gagnslausar.
Undir eins og orðsendingin
barst kvaddi Eisenhower Dulles
á sinn fund og ræddust þeir við
í hálfa klukkustund. Eftir fund-
inn var tilkynnt, að Bandaríkja
stjórn myndi halda áfram undir
búningi sínum að fundinum og
að þrír helztu sérfræðingar j
Bandaríkjanna, sem valdir voru
til þátttöku, muni leggja af
stað þegar í dag áleiðis til Genf-
ar.
Dulles sagði eftir fund hans ’
og Eisenhowers, að hann harm-
aði afstöðu Rússa, en það væri
ekkert nýtt af nálinni, að þeir
lýstu sig hafa mikinn áhuga
fyrir samkomulagi um mál, en
svo \iæri snúið við blaði á sein-
ustu stundu.
Dulles endurtók, að Bandaríkja
stjórn vildi ekkert gera sem
skuldbindi hana til þess að
hætta við kjarnorkuvopnatil-
raunir, nema það væri tengt al-
þjóðasamkomulagi um kjarn-
orkuvígbúnað og almenna af-
vopnun.
Af hálfu brezku stjórnarinn-
ar hefur verið lýst yfir, að hún
vilji og óski eftir, að Genfar-
ráðstefnan verði haldin, og enn
íremur sé það einlæg ósk
hennar, að samkomulag náist
þar.
Brezkt þota af Scimitar-
gerð hefir flogið frá Lon-
don til Möltu (tim 2060
km.) á 2 klst og 12 mínút-
um — á 940 km. meðal-
hraða.
k Miklubraut veröur þreföld akbraut.
Sex skip
stöðvuð
— t»nffíir viðrafður
Engir fundir hafa verið
haldnir með deiluaðilum í far-
mannadeilunni, síðan verkfallið
hófst á miðnætti síðastliðinn
mánudag.
Skipum, sem stöðvast af
völdum verkfallsins, fjölgar
stöðugt og voru þau orðin sex
um hádegi í dag: Esja, Gullfóss,
Katla, Hvassafell, Askja og
Hamrafell, en Litlafell er vænt-
anlegt til Reykjavíkur síðdegis
í dag eða á morgun og Skjald-
breið á morgun, auk þess sem
allmörg skip munu koma í höfn
hér um helgina.
Gatan verður 38V2 m. breið, þar sem
hún verður breiðust.
F'ar&mk
glgOMBUCÍESF*
Farouk jyrrv. konungi var ný-
lega stejnt fyrir rétt í Róma-
borg og honum gert að greiða
16.700 sterlingspund fyrir 2
vindlingaveski.
Málavextir voru þeir, að - á
meðan Farouk var enn þá kon-
ungur Egytalands, let hann
rómverskan gullsmið gera sér
tvö vindlingaveski. Er Farouk
var sviptur konungdómi og eig-
ur hans flestar gerðar upptæk-
*ar voru vindlingaveskin þar á
meðal. Lögfræðingar Farouks
héldu því fram, að hann bæri
ekki ábyrgð á greiðslunni, þar
sem egypzka ríkið hefði gert
eigurnar upptækar. Rétturinn
tók tillit til þess og bætti við
£600 í málskostnað.
Enn mistekst með
Vanguard-skeyti.
Enn hefur mistekizt vestra að
koma gervihnetti út í geiminn.
Kviknaði ekki i öðru þrepi
Vanguard-eldflaugar og hrap-
aði; sem átti áð flytja hann, í
sjó niður eftir 18 minútur. —
Hnötturinn var búinn rannsókn-
artækjum.
Verkfall rafvúkja
yfirvofandí- |
Sáttasemjari átti fund með
deiluaðilum í rafvirkjadeilunni
í gær, en samkomulag náðist
ekki.
Fundur hófst kl. 5 síðdegis
og var setið á rökstólum nær
samfellt til kl. 3 í nótt, að upp
úr slitnaði. Frekari samninga-
fundir deiluaðila höfðu ekki
verið boðaðir skömmu fyrir
hádegið.
4 ný verkföEI
héfust í nótt.
Verkfall bifvélavirkja, blikk-
smiða, jórniðnaðamanna og
skipasmiða hófst á miðnætti
síðastliðnu, þar eð ekki tókst
að miðla málum fyrir þann
tíma.
Sáttasemjari hefur ekki
fengið deilu þessa til meðferð-
ar, en klukkan 4 síðdegis í gær
komu deiluaðilar saman til
fundar og stóð hann til kl. 8.
Iðnaðarmennirnir héldu síðan
fund með sér í gærkvöldi og
var þar vísað endanlega á bug
tilboði um breytingar, sem
samninganefnd þeirra hafði
heldur ekki viljað fallast á fyrr
urri daginn.
Onnið er að því að skipta
m jarðveg í götunni.
Fyrir nokkrum dögum hófst
mikið umrót á Miklubrautinni
milli Rauðarárstígs og Stakka-
hlíðar, en á þeim kafla er
hugmyndin að gera þrefalda
akbraut og á að ljúka jarðvegs-
skiptum þeirra í sumar.
Eins og bæjarbúum mun
kunnugt var í fyrrasumar skipt
um jarðveg og púkkuð akbraut
sunan megin Miklubrautar eða
þeirri brautinni, sem næst
liggur húsunum. En í sumar
verður haldið áfram, sem frá
var horfið þá.
Hefir verið tekin ákvörðun
um fyrirkomulag götunnar að
norðanverðu og ákveðið að
koma þar upp tveimur akbraut-
um til viðbótar. Verða þær aðal
umferðarbrautirnar, en sú
brautin, sem syðst er, og næst
húsunum, er eingöngu ætluð
fyrir íbúa húsanna, sem við
hana búa. Er þetta fyrst og
fremst gert tjl þess, að bægja
| frá umferðarhættunni, ekki
sízt í sambandi við börn og
; unglinga, sem heima eiga í
Miklubrautarhúsunum á þessu
svæði.
I Fyrir bragðið breikkar gaean
allmjög út í Klambratúnið frá
því sem nú er og verður þá með
gangstéttum og ræmum sam-
tals 3814 metri á breidd þar
sem hún verður breiðust.
í sumar verður unnið að því
að moka burt mómoldinni úr
báðum akbrautunum að norð-
anverðu og aka möl þess í. stað
í brautarstæðin. Uppmokstur-
inum úr götunum verður ekið
út á Klambratún, sennilega að
mestu ofan á ofaníburðinum
frá því í fyrra. Reynslan hefir
sýnt, að hann hefir þjappast
mjög saman, enda er um 80%
af mómoldinni úr götunni vatn.
Þegar hún nær svo að þorna
sígur vatnið úr henni og mold-
in þjappast saman. Er þetta
hin ákjósanlegasta gróðurmold
og á að koma væntanlegum
skrúðgarði á Klambratúni til
góða.
Mölin, sem flutt verður í
götustæðið, verður sótt a. m. k.
að einhverju leyti í Grensásinn,
en gera rná ráð fyrir, að eitt-
hvað af efni verði þó að sækja
lengra.
Ætlunin er að Ijúka undir-
búningi undir gatnagerð á þessu
svæði öllu í sumar, en að sumri
er hugmyndin að malbika göt-
una, gera kanta og helluleggja
gangstéttir beggja vegna göt-
! unar, að svo miklu leyti, sem
við verður komið.
Að því er verkfræðingar
tjáðu Vísi, er nú komið að
gatnagerð á tveim stöðum í
bænum. Það er annars vegar á
Hringbrautinni milli Bræðra-
borgarstígs og Framnesvegar,
en sá götuhluti var búinn und-
ir malbikun í hitteðfyrra og
átti að byrja að malbika hann í
gær. Hinsvegar er svo unnið
að malbikun Borgartúns á
milli Skúlatorgs og Skúlatúns,
en þar var undirbúningi undir
gatnagerð lokið í fyrra.
Þrálát kvefsctt
í rénun.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið fékk í skrifstofu
Borgarlæknis í morgun er
lieilsufar í bænum sæmilegt og
j heldur batnandi, en annars hef-
j ur gengið hér mjög þrálát
kvefsótt.
Hún mun þó ekki hafa haft
alvarleg' eftirköst, svo að vitað
j sé (lungnabólgu), en valdið
hálsbólgu og sem sagt verið
þrálát og allútbreidd.
Blaðið spurði sérstaklega um
heilsufarið nú, vegna þess að
það hafði heyrt, að inflúenza
kynni að vera að stinga sér hér
niður, og fólk fengið háan hita,
um 40 stig, en skrifstofa Borg-
I arlæknis kveðst ekki hafa nein-
' ar upplýsingar, sem bentu til
Þessi mynd er frá Lamartine í Alsír, þar se n serkneskt flók kom saman til þess að votta ag inflúenzufaraldur væri hér
Frakkla ídi hollustv,. á uppsiglingu.