Vísir - 26.08.1958, Page 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirliafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Þriðjudaginn 26. ágúst 195S
Danir hafa valið lið til
landskeppninnar.
Vinnum við keppnina fyrri dag nieð
61:45? Hugleiðingar um úrslit.
Nú hafa verið valdir þeir Dan-
ir sem ganga eiga til leiks við
íslendinga í frjálsum íþróttum í
tianders 30. og 31. ágúst nk.
Lið hinna dönsku íþróttamanna
-er nokkru öðruvísi skipað en
almennt hafði verið' álitið að
verða mundi, en ekki er ósenni-
,legt að farið hafi vefið að ein-
þverju leyti eftir úrslitum á
sjálenska meistaramótinu og
Kaupmannahafnarmótinu. Danir
tefla ekki fram nokkrum af sín-
um sterkustu nöfnum, hvernig
sem á þvi stendur, s.s. Benny
Stender sem er besti maður
þeirra í 800 og 1500 m, en auk
þess sakna menn nafna eins og
Claus Gade og nokkurra fleiri.
Ekki þarf þetta þó að þýða að
þetta veiki aðstöðu Dana neitt að
ráði, enda má vera að meir sé
farið eftir jafngóðum árangri en
einu góðu afreki.
• Ýmsar bollaleggingar eru ætíð
milli manna um væntanleg úrslit
í keppni sem þessarri sem nú fer
í hönd, og er því ekki úr vegi að
reyna að gera sér grein fyrir úr-
slitunum.
Fyrri dagur:
100 m. Hilmar virðist nú vera
að ná sér, og ekki ósennilegt að
hann verði í 1. sæti. Röðin: Hilm-
ar, Rassmusen, Madsen og Val-
björn. Stigin 6:5.
Stangastökk. Þar er ekki úr
vegi að álíta að við fáum 1. og 3.
mann. Röðin: Valbjörn, Larsen,
Heiðar og Knudsen. Stigin 7:4.
Kúluvarp. Við reiknum með
Leo Blecli liííinn.
Látinn er Leo Blech, hinn
heimskunni, þýzki hljómsveit-
arstjóri.
Hann varð að flýja land frá
Þýzkalandi árið 1937, var síðan
um árabil hljómsveitarstjóri í
Stokkhólmi, en hvarf aftur til
Berlínar árið 1949.
sigri Huseby, þrátt fyrir hið nýja
met Thorsagers. Röðin: Huseby,
Thorsager, Skúli og Michelsen.
, Stigin 7:4.
110 m grindahlaup. Pétur má
teljast öruggur, en við setjum
Björgvin í 3. sæti. Röðin: Pétur,
Christensen, Björgvin og Ander-
sen. Stigin 7:4.
400 m hlaup. Við ættum að
eiga sterkasta manninn þar. Gera
má ráð fyrir að Dani komi sér í
annað sætið. Röðin: Þórir, Frand
sen, Hörður og Hansen. Stigin
enn 7:4.
Kringlukast. Hallgrímur ætti
að vera sterkari en Danirnir og
,ef við reiknum með því að J.
Munk Plum komist upp á milli
Islendinganna verður röðin: Hall
grimur, Munk Plum, Friðrik og
Michelsen. Stigin sama og áður
7:4.
1500 m. Þar má segja að Svav-
ar sé öruggur en Kristleifur svip
aður og Danirnir. Röðin: Svavar,
Schmidt, Kristlejfur og Jensen.
Stigin 7:4. •
Þrístökk. Við getum hér reikn-
að með 2 fyrstu mönnum. Bezta
afrek Dananna í ár mun vera
14,10 m. Röðin: Vilhjálmur, Jón,
Lindholm og Jörgensen. Stigin
8:3.
5000 m hlaup. Hér má reikna
með dönskum sigri. Röðin: Tög-
ersen, Lauridsen, Kristján, og
Hafsteinn. Stigin 3:8.
Reikna má með því að Danir
vinni 4x100 og vinna þeir senni-
lega mest á skiftingum. Stigin
2:5.
Þá verða stigin eftir fyrri dag-
inn 61:45 okkur í vil. Eins og
áður segir, þá er um að ræða
marga nýja menn í danska lið-
inu og ekki loku fyrir það skotið
að þeir kunni að koma á óvart,
og kann því mörgum að finnast
þetta full mikil bjartsýni. Á
morgun kemur svo síðari hluti
spárinnar, en hætt er við að hún
verði ekki eins hagstæð.
Rússnesk vopn kafda áfram
að streyma til iemens.
©g soldaniiiii lieftn* fengið
flugvéS að gjöf.
Bretar halda hví fram, að
Rússar haldi jafnt og þétt
áfram að senda vopn til Jem-
ens.
Hefur Hutton hershöfðingi,
sem hefur á hendi yfirstjórn
brezku hersveitanna á verndar-
svæðinu Aden og við Persa-
flóa, hefur látið uppskátt, að
varðsveitir hans verði æ oftar
varir víð það, að Jemen-menn
fái allskonar útbúnað frá
Sovétríkjunum. Meðal þess,
sem Bretar hafa orðið varir við,
eru brynvarðar bifreiðar, sem
Jemen hefur ekki haft yfir að
ráða áður. Þá hefur orðið vart
við fjölda stórra hrískota-
byssna, sem eru í rauninni litlar
fallbyssur, og hefur verið unnt
að skjóta niður flúgvélar fyrir
Bretum með þeim. — Þá hafa
Bretar safnað kúlum, sem
skotið hefur verið að virkjum
þeirra, og eru flestar af rúss-
neskri gerð.
En það er raunar fleira en
vopn, sem Jemen fær frá Rúss-
um, Það hefur verið tilkynnt,
að þeir hafi gefið soldáninum
farþegaflugvél af gerðinni Ily-
ushin-14.
Stúlkan á myndinni var nýlega
kjörin fegurðardrottning kjóla-
sýningarkvenna í París. Hún
heitir Mirielle Lapous ,en því
miður vitum vér ekki heimilis-
fangið.
Erlendur Ó.
Pétursson
iézt i f/ts'i'.
I gærmorgun lézt hér í bæn-
um Erlendur Ó. Pétursson, for-
stjóri Sameinaða gufuskipafé-
lagsins hér á landi.
Með honum er til moldar
hniginn einn mætasti og vin-
sælasti borgari þessa bæjar.
Erlendur O. Pétursson var einn
af áhrifamestu og merkustu
íþróttaleiðtogum landsins og
formaður Knattspyrnufélags
Reykjavíkur um langt árabil.
Hann var og einn þeirra, sem
setti sinn svip á bæinn, Reyk-
víkingur, svo að ekki varð um
villzt. Hann hafði átt við lang'-
vinn veikindi að stríða, en mun
hafa verið á batavegi, er blóð-
tappi varð honum að aldur-
tila.
25.894 mál af síld veidd-
ust í sl. viku.
Búið að salta í 288.297 tn., í bræðslu
221.445 mál. Heildaraflinn 148 þús.
málum minni en í fyrra.
Börn í sumarfeyfí á brezkum tog-
urum flutt heim.
Lokatillaga um málamiðlun í París
í dag.
Brezkum togaraskipstjórum, að ef íslendingar hætti við
sem yerið hafa á íslandsmiðum veiðibann sitt innan 12 mílna
og haft börn um borð í sumar- línunnar, muni brezkir togarar
leyfum þeirra, hefir verið fyr- sætta sig við að veiða á tiltekn-
irskipað að fara mð börnin til um svæðum innan þeirra
Bretlands fyrir fyrsta septem- marka.
ber.
Stórblaðið „Daily Mail“ í
Lundúnum greindi frá þessu í
forsíðu í gær. í fréttinni segir,
að venjan sé sú, að á sumrin
séu allt að því fjögur börn um
borð í hverju skipi, og fá þau
með þessu móti ódýrt sumar-
leyfi á sjó. Engin börn f-rá að
fara með kipum þeim, sem nú
láta úr höfn á íslandsmið.
Blaðið segir, að um 200 togarar
muni verða að veiðum við ís-
land á næstunni.
Fréttaritari „Daily Mail“
ræddi við dr. Kristin Guð-
mundsson ambassador í fyrra-
kvöld. Sagði hann, að íslend-
ingar myndu færa ut fiskveiði-
lögsöguna í 12 mílur, enda
hefðu þeir bolmagn til þess.
Fréttaritarinn spurði dr. Krist-
in, hvernig íslendingar hygðust
halda brezkum togurum utan
markanna, er herskip væru þar
til verndar. Ambassadorinn
svaraði því til, að fslendingar
hefðu líka skip. Aðspurður um
möguleika á friðsamlegri lausn
málsins, sagði hann. „Hver
veit?“ Hann bætti við: „Álítið
þér, að Bretar muni beita skot-
vopnum?“
Loks segir „Daily Mail“, að
Bretar og fleiri fiskveiðiþjóðir
Atlantshafsbandalagsins muni í (
dag leggja fram lokatillögu umjfrá Hollandi,
málamiðlun í París. Segir þar, hersöfðingi frá Frakklandi, Sir
Michael M. Denny, aðmíráll frá
Bretlandi óg Walter F. Boone,
aðmíráll frá Bandaríkjunum,
Munu þeir m. a. heilsa upp á
utani'íkisráðherra. (Fréttatilk.
frá utanríkisráðuneytinu).
Hammarskjöld
Mið-Austurlanda.
Dag Hammarskjöld, fram-
kvæmdarstjóri Sameinuðu þjóð-
anna er nú á leið til landanna
fyrir botni Miðjarðarliafs, sam-
ræmi við tillögri þá, sem sam-
þykkt var á aukafundi alisherj-
arþingsins.
Hann kemur fyrst til Róma-
borgar og hefur þar skamma við
dyöl, fer siðan um Kýpur til
Beirút í Líbanon, síðan til Amm-
an í Jórdaniu, þá til Genfar þar
sem hann situr fund um kjarn-
orkumál og loks til Kairó til við-
rseðna við Nasser forseta.
A'bandalagsmenn
hér á feri.
Fastafulltrúar herforingja-
ráðs Atlantshafsbandalagsins
(Standing Group) kom við hér
á landi í gærmorgun á leið frá
Frakklandi til Bandaríkjanna.
Herforingjar þeir, sem hér er
er um að ræða, eru Benjamín
R.P.F. Hasselman, hershöfðingi
Jean M. Piatte,
Alla síðustu viku var bræla
á miðunum norðanlands og því
ekki um veiði að ræða fyrir
Norðurlandi. Dálítil veiði var á
grunnmiðum og inni á fjörðum
Austanlands. Óveruleg rekneta
veiði var norðanlands í vik-
Vikuaflinn nam 25.894 mál-
um og tunnum og er hér aðal-
lega um bræðslusíld að ræða.
Síðastliðinn laugardag' á mið-
nætti var síldaraflinn sem hér
segir. (Tölurnar í svigum eru
frá fyrra ári á sama tíma.)
í salt
288.297 uppsalt. tn. (146.876)
í bræðslu
221.445 mál ' (510.667)
í f rystingu
14.003 uppmæld. tn. (14.451)
Samtals
523.745 mál og tn. (671.994)
Aflahæstu skipin eru: Snæfell
með 8403, Víðir 2. 8343, Grund-
firðingur 2. 7486 Björg, Eski-
firði 7101, Haförn, Hafnarfirði
7014, Jökull, Ólafsvík 6916 og'
Þorsteinn Þorskabítur 6885.
Flestir bátar eru hættir veið
um, en aflahæstu skipin halda
flest áfram veiðum nema Jök-
ull, sem mun vera hættur.
Enn er möguleiki fyrir síld-
veiði, því síðast í gær var síld-
veiði úti fyrir Austfjörðum og
fengu þá nokkrir bátar mikla
veiði, þar á meðal Grundfirð-
ingur 2., Víðir 2. og Björg. —
Kastað var við Papey í nótt en
bátarnir hurfu frá því síldin er
og smá.
Hálpípa ...
Frh. af 1. s.
viðtöl við sjávarútvegsmála-
ráðherra, en fulltrúar hinna
flokkanna innan ríkisstjórnar-
innar, forsætisráðherra, og
utanríkisráðherra, segi ekki
orð, eða að minnsta kosti síma
fréttamenn ekkert eftir þeim.
Er komizt svo að orði um þetta,
að Lúðvík Jósepsson virðist al-
gerlega vera málpípa stjórnar-
innar í þessu máli, og finnist
vinum ísland,s einkennilegt. að
maður úr hans flokki skuli lát-
inn hafa orðið einvörðungu,
þegar svo mikið hljóti að vera
í húfi.
Virðist tímabært, að aðrir
ráðherrar láti einnig til sín
heyra gagnvart utnheiminum,.
því að þeir munu vart taka að
öllu leyti undir það, sem sjáv-
arútvegsmálaráðherra segir um
landhelgismálið og önnur mán,
er miklu varða og athygli vekja
á erlendum vettvangi.