Alþýðublaðið - 07.03.1958, Side 3

Alþýðublaðið - 07.03.1958, Side 3
Föstudagur 7. marz 1958 AlþýSnblaðlf S Alþýöublaðið Útgefandi: Ritstjöri: Fréttastjóri: Auglýsingast j óri: Ritstjórnarsímar: Auglýsingaslmi: Afgreiðsluslmi: Aðsetur: Alþýðuf lokkurinn. Helgi Sæmundsson. Sigvaldi Hjálmarsson. Emilla Samúeladóttir. 14901 og 1490 2. 14906. 14900. Alþýðuhúsið. Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8—10. Beinir skattar og óbeinir EINS og frá hefur verið skýrt í fréttum, hafa þingmenn Alþýðufiokksins flutt á alþingi tillögu þess efnis, að athug- að verði hvort ekki sé tiltækilegt og réttlátt, að afnuminn verði tekjuskattur, en samsvarandi fé til ríkissjóðs tekið með tollum. Er þetta hugsað sem spor í þá átt, að óbeinir skattar taki við af þeim beinu í framtíðinni. Vissulega verður ekki annað sagt en hér sé um stefnubreytingu hjá Alþýðuflokknum að ræða í orði, enda er þingmönnum hans það fyllilega iljóst. En síðasti flokksstjórnarfundur talái rétt, að þes'si athugun í skatta- málum yrði gerð. Þjóðviljinn gerir |þessa tillögu og stefnu breytingu þá, sem hún vitnar um hjá Alþýðuflokknum, aö ; umræðuefni nú ;í vikunni. Er ekki að isökuan að spyrja, að hér eiga að vera á ferðinni stórkostleg svik flokksins við vinnandi stéttir o-g jalla ,alþýðu. Er túlkun Þjóðviljans . svo einhliða og illviljuð, eins o-g raunar mátti vænta það- an, að rétt er að ræða ofurlítið þetta nýja viðliorf í skatta málum. Það er á allra vitorði, sem nokkuð fylgjast með skatt- lagningu og skattgreið'slu, að launastéttir greiða yfirleitt tiltölulega mleira í tekjuskatt af föstu kaupi en þær stéttir, sem að einhverju Ieyti geta rfáðið kaupi sínu sjálfar. Sá, sem vinnur hiá öðrum, getur ekki stungið neinu undir stól aif kaupi slnu. hann Verður skilyrðislaust að greiða tekju- skatt af hverjum peningi. Við þessu ier að sjá-lfsögðu ekkert að segja, ef allt væri með felldu, Skattar eru nauðsyn, og án skatta fengi þj óðfélagið ekki staðizt. En rnú er svo kom- ið, — og er engin ásæða til að draga neina fjöður yfir það, — að stór hópur mþnna finnur leiðir til að stinga miklum fjárfúlgum undan skatti. Við þessu væri ef til vill ekkert að segja, ef hér ætti einungis hlut að máli fátækt fólk og' illa stætt, þótt slíkt hljóti alltaf að valda misrétti, ef að því eru nokkur brögð'. En reyndin er sú, að það eru einmitt vel stæðir borgarar og eignaimienn, alls konar kaupsýslu- mJenn og atvinnurekendur, sem helzt koma því við að stinga tekjum undan skatti. Og sömuléiðis mlá í þessu sambandi behda á heilar stéttir, sem iafnan geta lagað kostnaðarhlið svo í hendi sér, að tekjuskattur verður miinni en ætla mætti. Hver borgar svo skatt fyrir |þá, sem ,geta falið tekjur sínar og lagað tilkostnað í hendi sér? Það gera þeir, sem einungis selja öðrum vinnu sína, með öðrum orðum hin- ar almennu vinnustéttir. Skattsvik verða því fyrst og fremst á kostnað hins vinnandi fjölda, verkalýðsins, en í þágu þeirra, sem meira þafa umleikis. í krafti þessa sann- leika er til'laga Alþýðufiokksþingmannanna flutt, og skyldu menn ætla, affi Þjóðviljinn kynni að meta þessa viðleitni. ,En hann einblínir aðeins á bókstafinn, en hifð- ir ekkert um andann, og er hann ibar sjálfum isér trúr. Kjarni miálsins er í raun og veru sá, að þótt hér sé um stofnubreytingu Alþýðuflokksins að ræða í orði, er hún engiri á borði. Málið er jPlutt í þeim tilgangi einum, að reynt sé að koitta í veg fyrir, að launastéttir þurfi að borga brúsann fyrir þá, sem komið hafa ár sinni óeðli- lega vel fyrir borð. En tollar eru eðlilega þyrn-ir í augum stórra fjölskyldna, sem mikið þurfa til heimilis, og því er auðvelt að gera allt mlálið næsta tortryggilegt. Og ekki þarf að draga það í efa, að Þjóðviljinn reynir að grugga vatnið sem mést, enda er kreddufestan hans' líf. Áður fyrr hefði líka verið erfitt að ja;fna mletin svö, að ekki hefði komið þyngst niður á barn- mörgum heimilum, ef tollar hefðu aukizt. En með þeim margvíslegu félagslegu umlbótum, sem orðið hafa á síðústu áratugum, og mest fyrir baráttu Allþýðuflokksins og verka- lýðshreyffingarinnar, er næsta auðvelt að bæta barnafjöl- skyldum upp hina hækkuðu tolla. Tryggingar og fjölskyldu- bætur leystu þar hnútinn. 'Eif afnám: tekjuskatts og síðlar allra beinna skatta yrði til þess að hamíla gegn þeirri sviksemi í skattamiálum, sem allt of mörgum finnst sjáltfsögð, og tryggja launastéttir gegn misrétti í skattgreiðslum, væri það stórt spor í framfara- átt. Það er því óhætt fyrir Þjóðviljann að iara sér hægt í óhróðri um Alþýðulfllokkinn út af þessu miili. ( Utan úr Heimi ) í ÚTJAÐRI BÖNE er verið að reisa riýja borg. Húsin eru lítil og notaleg. Hvert hús kost ar aðeins 3—4 þúsund krónur. Þau eru byggð fyrir öreigana, sem áður bjuggu í „bidonville", hrörlegum stré- ogkassahúsum. í miðju hinu nýja þorpi er lög- reglustöðin. og rétt við hana er hár útsýnisturn, þar standa lög reglustjórinn, þrír útlendir ferðamenn og nokkrir franskir embættismenn og liðsforingjar. Á götunni fyrir neðan híma fá- einir skeggjaðir og skítugir ar- abar. — Þeir eru fulitrúar' hinna lífsglöðu íbúa hinnar nýju borgar. Lögreglustjórinn, eiskulégur og heimsmannlegur helclur ræðu. Hann baðar út höndun- um og glæsileg mœlskan berst mjúklega út yfir hina skínandi hvítkölkuðu borg'. — Þetta eru framfarir, — þetta er menning- in. Sjáið hversu margt Frakkar gera fyrir ykkur hér í Alsír. Svo er stríðinu fyrir aðþakka að mikið hefir verið byggt af í- búðarhúsnæði í Alsír. Frakkar reyna nú að bæta fyrir fyrri vam-ækslusyndir í þeim efnum samfara múhameðstrúarmenn- ina um góðvilja sinn. Fá’r óbreyttir borgarar af frnskum' ættum hætta sér inn í hin þröngu hverfi í „bidon- ville“. Og enginn fær tækifæri til að líta inn fyrir húsdyr í- búanna þar. Franskur lögreglumaður lét svo ummælt, að miklum mun færri afbrot væru drýgð í þess- um fátækrahverfum nú en fyr ir stríð. En það mun mála sann ast, að enginn Fakki veit raun- veruiega hvað gerist í þessum hverfum. Þar ríkja sömu lög og í frumskógin.um og óvíst að lög reglunni sé tiikynnt þótt voveif legir atburðir gerist. Hin nýja, hvíta borg lögð beinum stræt- um er vel vöktuð frá útsýnis- turni lögreglustöðvarinnar. — Héðan er auðvelt að fylgjast með íbúunum og atferli þeirra. Tveir franskir hermenn standa gleitt við skóla þorpsins og munda vélbyssur sínar. Þeir standa þarna dag eftir dag, mónuð eftir mánuð. Þannig standa þeir í hverju þorpi, þeir eru tákn „]a présen- cefrancaise“ herverndar Frakka í Alsír. Þeir eru þarna einnig til að verja skólana fyrir spreng j ukasti her mdarver ka- manna, en það hafa verið brögð að því undánfarið. Þióð°rnis- sinnar hafa oft fyrirskinað skólabörnum að hætta skóla- göngu, og hefir franskt herlið orðið að fylgja börnum úr og í skóla. Þetta væri góður áróður ef áróður væri ekki einskis nýt- ur orðinn í Norður-Afríku. ISamtímis því að Frakkar hafa reynt að bæta úr húsnæðisskort inum 'hafa þeir gert stórt áak i skólamálum ATsír. í flestum þorpum landisins ganga öll börn í skóla. Frakkar hafa áreiðanlega rétt fyrir sér í því, að þeir, sem fluttir eru úr fátækra'hverfun- um sé fegnir að flytja í hin nýju hús. En um þakklæti er ekki að ræða. Enginn veit með vissu hvað arabarnir hugsa. í viðræðum við Frakka eru þeir 105% vinveittir Frakklandi; — Þeir lofa lögregluna hástöfum og þakka hernum fyrir þá vernd, sem hann veitir borg- urunum fyrir uppreisnarmönn- um. En hvað þeir þenkja innca með sér ve.it enginn. Arabiskur menntamenn segjast margir hverjir líta á Frakkland sem sitt föðurland, en snnað hvort eru þeir undantekning eða hræsnarar. Og Frakkar hafa sfálfir komið þannig fram, aS hinir hægfara skilnaðarmemi, semi kannski hefði verið mögu- legt að semja við, eru úfcþurrk- aðir eða landflótta. Núna kemur ekki út eitt ein- asta blað á arabisku í Alsír, —■ ekki eitt einasta tímsrit, engin bók, sem túlkað geti viðhorf I Alsírbúa. Iiin arabisku borgarhverfi eru dimm og þögul. Verzlu'.iar- maður í Böne sagði mér, að á skrifstofu sinni borguðu allir mánaðarlegan skatt til upp- reisnarmanna. John Sannes. ( Frá Sameínuðu Þjóðunum ) ÁRIÐ 1957 má teljast eink- ar hagstætt ár fyrir launþega heimsins, segir í skýrslu frá David Ak Morse, framkvæmda- stjóra Alþjóðavinnumálaskrif- stofunnar í Genf, (ILO). Hann telur, að framfarir og bætt kjör verkamanna, sem urðu víða á árinu, bæti upp hitt, sem mið- ur kann að hafa tiltekizt. í flest um löndum heimsins var at- vinna vaxandi, kaupmáttur launanna örlítið hagkvæmari en árið áður, en félagsleg fríð- indi launþega voru aukin og styrkt og staðfest víða. Hvað snertir tap vinnudaga, sökum verkfalla eða verkbanna, var útkoman betri en á nokkru öðru ári frá því heimsstyrjöld- inni síðustu lauk. Á hinn bóginn — þegar allt er meðtalið — fór verðlag nauð synja yfirleitt hækkandi og setti lífsafkomu milljóna manna í hættu og gróf undan félagslegum tryggingarkerfum um allan heim. Efnahagslegt lággengi jók atvinnuleysi í nokkrum löndum. ERFITT AÐ ÚTVEGA HAGFRÆÐILEG GÖGN. Skýrsla Morse framkvæmda- stjóra ILO er byggð á hagskýrsl um, sem þátttökuríki stofnun- arinnar hafa sent. Þessi gögn reyndust oft ófullnægjandi svo leita varð annarra heimilda til viðbótar í sumum tilfellum til þess að fá heildarmynd af á- standinu. í flestum tilfellum er gerður samanburður milli eins mánaðar á síðasta ársf jórðungi 1956 og tilsvarandi mánaðar 1957. Þó má geta þess, að í ör- fáum tilfellum, einkum þar sem vikið er að launum í skýrslunni, voru.síðustu tölur frá miðju ári 1957. Skýrslur frá Austur-Ev- rópu, Asíu og Suður-Ameríku eru oft ófullnægjandi, þar sem það hefur reynzt erfitt að út- vega hagfræðileg gögn frá þeim stöðum. Hér fara á eftir nokkrar upp- lýsingar úr skýrslu Morse: VERÐHÆKKUN Á NAUÐSYNJAVÖRUM. Á s.l. ári jókst atvinnuleysi í Finnlandi um 82% og um 24% í Bandaríkjunum. Aftur á móti voru 2Ó0.000 færri verkamenn at.vinnulausir í Ítalíu í október mánuði 1957, en á sama tíma árið áður. Prósenttölur fyrir aukið atvinnuleysi var 43 í Sví- þjóð og 13 í Noregi. Um verðhækkanir á nauð- synjavörum er þess getið, að í Danmörku hafi ox'ðið 2% aukn- ing á árinu á móti 4% árið þar áður. í Finnlandi nam verð- hækkun nauðsynjavara 8,5%'. Til samanburðar má geta þess, að í Hollandi var talan 6,5, í Bretlandi 4,5 og í Frakklandi 10,1. í nokkrum Suður-Ame- ríkuríkjum nam verðhækkun nauðsynja 20—30% á árinu 1957 og allt upp í 156% — í Bolivíu. KAUPMÁTTUR LAUNA. Norðurlöndin þrjú, Danmörk, Noregur og Svíþjóð, eru meðal þeirra landa, þar sem kaup- ináttur launanna jókst nokkuð á s.l. ári. (í þeim flokki eru einnig Frakkland, V-Þýzkaland, Holland og Bretland.) Hins veg ar þvarr kaupmáttur launanna í Finnlandi, Bandaríkjunum, írlandi, ísrael, Japan og í Ar- gentínu. Framleiðslumagn á hvern iðn verkamann jókst að meðaltali um 3,5% í 11 Vestur-Evrópu- ríkjum. Mest var aukningin í Finnlandi, þar sem hún nam 9%, þar næst kemur Frakkland með 7%, Ítalía6% og Svíþjóð 4%. í Austurríki, Vestur-Þýzka landi, Danmörku, Hollandi, Nor egi og Bretlandi nam fram- leiðsluaukningin 2%—3% hjá hverjum verkamanni. I Belgíu dró hins vegar úr framleiðslu magninu miðað við hvern iðn- verkamann.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.