Morgunblaðið - 18.11.1913, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.11.1913, Qupperneq 2
78 MORGUNBLAÐIÐ Helga lýsir honum þannig, að hann hafi verið hversdagsgæfur maður og hófsamur. Hafi hann lítið skeytt um búning sinn, en verið sistarfandi og samhaldssamur með afbrigðum, jafnvel sjálfsvesalingur. Að kvöldi hins 4. þ. m. heimsótti hann þau hjónin og var þá venju fremur fálátur. Húsfreyja brá á gaman við hann og sagði honum að nú skyldi hann fá sér ný föt, svo hann þyrfti ekki að ganga leng- ur í þeim görmum sem hann klædd- ist. En hann kvað nægan tíma til þess að hugsa um fatakaupin, enda væru þau góð er hann ætti fyrir. Helga setti nú fyrir hann mat og bað hann eta, en þá þótti henni kynlega við bregða, er hann hafnaði þvi boði. Eyólfur var matmaður mikill og tók ósleytilega til matar síns jafnan, enda sagði húsfreyja oss að hún vissi ekki til þess að honum hefði nokkru sinni orðið misdægurt. Frétti hún hann nú eftir hverju þetta gengdi, en hann kvaðst vera veikur. Hún spyr hverju það sætti og segir hann henni pá að sér hafi verið byrlað eitur. Hún biður hann að mæla ekki þvílíka fásinnu, en hann sat fast við sinn keip; þó vildi hann ekki segja hver valdur væri að ódæðinu. Aður en hann fór, lofaði hann Helgu að koma þar aftur daginn eftir og hreinsa fyrir hana ösku- kassa o. s. frv. En svo leið sá dag- ur og annar og þriðji, að ekki kom Eyólfur. A laugardaginn (9. þ. m.) fór Helga heim að Dúkskoti til þess að vita hverju þetta sætti um fjarveru Eyólfs. Lá hann þá í rúm- inu og mátti sig hvergi hræra. Þó var hann þjáningalítill. Hún spurði nú enn hverju sætti krankleika þessi er hann hafði tekið, en hann kvað orsökina vera eitur- byrlun, eins og fyr. Grenslaðist hún nú eftir hver verksins væri valdur, en hann fór fyrst undan í flæmingi; þó kom að því að hann sagði henni alt af létta, og er sú saga þegar birt í Morgunblaðinu. Ræddu þau nú margt saman og kom þar orðum þeirra, að rætt var um eigur hans og mælti hún á þá leið að ekki skyldi hann arfleiða þá systur sina sem hefði leikið hann svo grátt. Enda var það á vitorði hennar og fleiri manna, að Eyólfur sál. fóstraði upp fátækt stúlkubarn, sem nú er vestur á Barðaströnd og mun hafa ætlað því barni allar eig- ur sínar eftir sinn dag. Eyólfur svaraði henni og sagði að hann mundi reyna þegar er hann kæmist á fætur, að skjóta loku fyrir að nokkuð af eigum sínum rynni í vasa Júlíönu systur sinnar. »En ertu nú viss um það að þú komist nokkurn tíma á fætur aftur?«, spurði Helga. »Já, það er eg viss umc, mælti hann, »það þarf meira til þess að drepa mig en þettac. Það voru síðustu orðin sem fóru þeirra á milli. Hún fór til síns heima og sá hann ekki siðan. Fluqmaður. Símfréttir. Akureyri i %œr. Dáin er hér Guðríður Jónsdótt- ir, ekkja Jónasar læknis Jónssonar frá Tunguhálsi, en móðir sira Jónasar frá Hrafnagili. Slys: Maður nokkur, Benedikt frá Argerði í Eyjafirði, gekk á rjúpna- veiðar í fyrradag ok kom eigi aftur. Var síðan farið að leita hans og fanst hann þá örendur. Hafði fallið á hann snjóflóð mikið og var líkið mjög skaddað, er það fanst. Skarlatssótt: Valdemar læknir Stef- fenssen hefir fundið skarlátssótt í manni frá Glerá, sem hann var sótt- ur til. Veikin væg og ráðstafanir þegar gerðar til að einangra heimilið. Gierá er í Kræklingahlíð, skamt frá Akureyri. Fjárskurður. Sigurður dýralæknir Einarsson hefir skoðað alls 24260 kindarskrokka í haust. Er það meira en nokkru sinni áður. Framboð: Björn R. Stefánsson i Breiðdalsvik býður sig fram til þing- mensku í Suður-Múlasýsiu. Hann er bróðir Jóns Filippseyja'kappa. Ólafsvík í qœr. Afli ei hér dágóður. Menn réru í dag og fengu 43 í hlut. Tiðinda- laust að öðru leyti. Hljómleikar. Frú Finsen, norska söngkonan, syngur í kvöld í Bárubúð. Frúin hefir stundað söngnám mörg ár í Noregi, Danmörku og Þýzkalandi og sungið opinberlega i Kristjaníu, Khöfn og Hamborg. Söngskráin er einkar vel valin. Lögin falleg og ýms þeirra aldrei heyrst hér áður. Þrjú lög eru þar eftir Grieg, Standchen eftir Strauss o. m. fl. Um sönglist frúarinnar verður eigi dæmt að svo stöddu, því hún hefir aldrei sungið hér opinberlega. En lagavalið á söngskránni ber vott um áreiðanlegan smekk — og eiga Reykvikingar vafalaust í vændum ánægjulega söngskemtun i kvöld. Ó. B. Hvernig á eiginmaður- inn að vera? Svar nr. 9. Eiginmaðurinn á að vera: 1. Svipfríður, snotur á vöxt og lið- legur í hreyfingum. 2. Vinnusamur og reglusamur í hví- vetna. 3. Jafnlyndur og umgengnisgóður við alla. 4. Umhyggjusamur og nærgætinn. 5. Helzt síungur í anda, þ. e. fylg- jast með í andlegum og likam- legum framförum. Svar nr. 10. Spurningunni um hvernig eigin- maðurinn á að vera, mundi eg svara á þessa leið; Eg vil fríðan eiga mann, ungan, bliðan, hraustan, glaðan, þýðan, gáfaðan, guði hlýðinn dygðugan. 1885 - 17. nóvbr. -- 1913. Þennan dag var stúkan Einingin stofnuð fyrir 28 árum, Þessa verður minst á fundi hennar annað kvöld. Allir félagar hennar eru beðnir að mæta á fundinum. Nýjir innsækjendur velkomnir. Sandgræðsla á Meðallandi. Eins og kunnugt er, hefir hér tvö undanfarin vor verið unnið að sand- græðslu undir umsjón skógræktar- stjórans, K. Hansen. Vinna þessi hefir nú þegar borið talsverðan árang- ur, þó mikið vanti á að fullnægjandi sé. í fyrra var byrjað á að hlaða í svonefnda Lyngkvísl; um hana rann áður alt vatn úr Langholtsskurði norðvestur í Beraflóð og lónaði þar uppi. En nú, síðan hlaðið var upp í kvíslina, rennur vatnið austur og suður á sandana og dreyfir sér þar. Heldur það sandinum blautum, svo hann nær siður að fjúka þó storm- ar gangi. Sást það bezt síðastliðið vor. Þá gerði austanveður, en fyrir það að vatn var á söndunum gerði það engum skaða, en að undanförnu hafa slík veður gert stórtjón, feykt sandinum yfir meiri og minni gras- flæmi, eins og sýnir sig. Ef það tekst að halda vatninu á söndunum vetur og vor, þá mun takast að vernda graslendið fyrir sandfokinu, og svo munu sandflákarnir sjálfir gróa upp og verða graslendi áður en langt um líður. TiSuðurlandU. E=3 DAGBÓIflN. 1=3 Afmælí 18. nór. Hjörtnr Hjartarson trésm. 56 ára H. S. Hanson kaupmaður 47 — Kolbeinn Þorsteinsson skipstj. 33 ára Guðjón Egilsson bakari 32 4ra Helgi Guðmundsson trésm. 33 — Misprentað. Það er á morgun en ekki í dag, sem Gunnar Gunnarsson verður sex- tugur. Veðrið. Snjór um land alt i gær, nema 4 Akureyri. Þar hálfheiðskýrt. Frost afarmikið á Grimsstöðum 12 stig. Ann- ars lítið frost, i Vestmannaeyjum —j— 3,8 i Rvík 0,0, ísafirði -r-4,6, á Akureyri -4-0,5, Seyðisfirni +L0. Nokkuð sunnar í Atlanzhafi i Þórshöfn var +10,8 stig. Á Akureyri logn, i Vestmannaeyjum snarpur autsanvindur, kaldi i Rvik, gola og stinningsgola annarsstaðar. Háflóð er í dag kl. 8,3 síðd. Sólarupprás kl. 9,8 árd. Sólarlag kl. 3,17 siðd. í auglýsingu i Morgunblaðinu þ. 16. þ, m. frá verzluninni á Laugavegi 5, hefir af vangá fallið burtu nafn verzlunareig- andans M. Th. Easmus, sem nndir átti að standa. Óskast keypt hestur, erfiðis- vagn, sleði og tilheyrandi kassar og 2000 pd. hey. Menn snúi sér tii Þórðar Jónssonar úrsmiðs, Aðalstr. 6. Greinileg frásögn af eiturmorðinu birtist fyrst i Morgunblaðinu i gær. I sunnu- dagsblaðinu kom ekkert um málið vegna þess, að iögreglan mæltist til þess, að eigi væri á það minst í því blaði. Skemtanir i höfuðstaðnum vorn eigi eine vel sóttar í gær og ella. Vafalaust hefir það stafað af þvi, að hugir manna voru bvo gagnteknir af morðinu, að eigi höfðu lyst eða löngnn til skemtana. Ekki kemur svell á Austurvöll og verð- ur þess ef til vill langt að blða. Ná sitja skautamenn inni »alldaprir 4 kven- pallic og biða þess að birti og frysti. En hversu lengi 4 að bíða þannig? Er það nú alveg vístað forsjónin gefi ykkur svell 4 völlinn? Það væri, svei mér, ekki hið ótrúlegasta, að sumarið' kæmi áður en bið ykkar er á enda. En þvi notið þið ekki það sem býðst 1 svipinD, snjóinn — og skiðin? GMft iþrótt hefir skiðahlaup verið talið til þessa, þó nú sé hún litt iðkuð. Eða hefir í. S. í., og aðrir íþróttamenn, gleymt að >taka hana upp á prógram sitt«? Gamla Bfó skifti um myndir i gær og sýndi þá: »Fyrsta ástinc. Efnið er i fám orðum þetta: Piltur og stúlka eru ástfangin hvort af öðru. Hann er rikur en hún er dóttir leiguliða á jörð föður hans. Foreldrar hans mega ekki af samdrætti þeirra vita og eru þau feðgin þvf rekin á brott úr landareignÍDni. Vill þá svo vel til, að þau kynnast góðum og göfugum manni,. sem veitir þeim alla þá hjálp er þau þarfnast. En svo deyr hann og þá tekur fátæktin aftur í taumana, hálfu nærgöng- ulli en nokkuru sinni fyr. Sultur og freistingar hefir löngum verið sá ásteit- ingarsteinn sem flestir hafa hrasað um. Og svo fór hér. Unga Btúlkan eekkur niður i hyldýpi svívirðingar og lasta. En þrátt fyrir alt, lifir þó æskuástin í brjósti hennar og það er hún sem mark- ar lifi hennar skeið. Frú Lilli Beck leikur aðal-hlutverkið með aðdáanlegri snild, og allur frágang- ur myndarinnar er hinn bezti. Ankamynd Var »Bónorð Grissemannsc og er hún svo átakanlega gamansöm að maður verður að hlægja hvort hann vill það eða ekki. Sterling er væntanlegur. hingað í dag snemma. Með skipinu koma 60 Færey- ingar að sækja þilskip þau, er Gunnar bankastjóri Hafstein keypti, er hann var hér fyrir skömmu. Flest þilskipanna eru i Hafnarfirði og flytur Sterling mennina þangað, áður en hann kemur hingað. Hjúskapur. Skarphéðinn Árnason, Njáls- götu og ym. Valgerður Sigurðardóttir Hverfisgötu 25. Gift 16. nóv. Snorri Sturluson fór til Grimsby i gær- kvöld með 1200 körfur af fiski. April fór til Hull i gærkvöld með 1000 körfur af fiski.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.