Morgunblaðið - 26.11.1914, Blaðsíða 1
Pimtudag
26.
nóv. 1914
MORGDNBLAÐID
2. argran«rif
26.
tölublao
Ritstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen.
Isafoldarprentsmiðia
Afgreiðslusimi nr. 140
Tals. 475
Kaupmannahöfn á dögum
ófriðarins.
Aukamynd.
Bræðurnir
Njósnarsaga i 2 þittum.
Aðalhlutverkin leika:
Clara Wieth, Carlo Wieth
og Gunnar Tolnes
há Þjóðleikhúsinu i Kristianiu og
Wunu margir kannast við hann því
“ann lék í hinni fögru mynd »Asta-
aldur* sem fyrir skömmu var sýnd
i Gramla Bio. Carlo og Clara Wiffth
Pukkja ailir Bio-gestir og þessi mynd
er, eins og allar aðrar, er þau leika
i, flestum höfuðkostum búin.
Shrifstofa
Eimskipaféfags isíancfs
Landsbankanum (uppi).
Opin kl. 5—7. Tals. 409.
Nýja verzlunin
— Hverfisgötu 34 —
í'iestalt (utast og inst) til kvenfatnaðar
og barna og margt fleira.
^ófiar vörur! — Odýrar vörur!
Kjólasaumastofa.
Öood
skóhlífarnar amerísku, reyn-
ast hér á landi allra skóhlífa
beztar.
^ood-Milne
slöngur og gummihringir á
bifreiðar, með stál-plöturo,
og án, eru notaðir um allan
heim.
^eerless
regnkápurnar ensku, mæla
með sér sjálfar.
'"koðsmaður fyrir ísland,
G. Eirikss, Reykjavík.
áhlaup á nokkrum stöðum, en þeim
hefir verið hrundlð. Áhlaup þessi
hafa einkum verið áköf í Argonne-
héraði. Þar höfum við unnið á í
nánd við Fonr de Paris.
Engar nýjungar frá svæðinu milli
Argonne og Vogesafjalla.
Niðaþoka hefir hindrað mjög fram-
kvæmdir. Heilsufar meðal hermanna
er mjög gottt.
Rússar vinna á við
Weichselfljótið.
London 25. nóv. kl. 1.20 árd.
Skeyti frá aðalstöðvum Rússa, sem
komu i kvöld, flytja mjög góðar
fregnir, er þangað hafa borist frá
vigstöðvunum millí Weichselfljóts og
Warta. Tilkynt er að Þjóðverjar
hörfi undan frá mjög þýðingarmikl-
um aðstöðum.
Sigur Rússa í Kákasus.
Herstjórnin í Kákasus tilkynnir
að Rússar hafi unnið sigur bæði við
Kara Kilisse og i héraðinu við
Khanessuphæðirnar. Þar tóku Rúss-
ar nokkurn hluta stórskotaliðs óvin-
anna.
Stórskotalið Þjóðverja er miður gott.
Sjónarvottur á orustusvæðinu í
Frakklandi leggur mikla áherzlu á
hve miklu betra sé stórskotalið
Frakka heldur en Þjóðverja. Nokkr-
ir stórskotaliðsflokkar Þjóðverja hafa
verið eyðilagðir og bygging hergarða
hefir verið hindruð.
Sjónarvottur lofar mjög fótgöngulið Frakka.
Sjónarvottur lofar mjög áhuga hins
frakkneska fótgönguliðs, sem þykir
sómi sinn liggja við þvi, að þeir
nái aftur hverju því svæði, er þeir
áður hafa mist.
Sir John French sendir heiilaskeyti.
Sir Jolin French hefir sent heilla-
óskir til liðsmanna fyrstu herdeildar,
eftir að hún hafði unnið sigur á líf-
varðaliði Þjóðverja. Kveður Sir
John það vera hið mesta hreystiverk
í sögu brezka hersins.
Þýzkur tundurbátur sekkur I Eyrarsundi.
Þýzki tundurbáturinn S 124 sökk
eflir árekstur við danskt gufuskip í
suðurhluta Eyrarsunds.
Opinber tilkynning
^ brezku utanríkisstjórninni
í London.
Viðureignin i Frakklandi.
L°ndon
°Pinber
siðd
egis
^firleitt
24. nóv. kí. 5,33 siðd
frönsk tilkynning, send
í dag, hljóðar svo:
hefir litil breyting orðið
Var á°ðun«i siðan i gær. Víðast
arða ,°rnstusvæðinu gera óvinirnir
í>ióðk0thrið með köflum.
‘ QVerÍar hafa gert fótgönguliðs-
De Wet.
Uppreisnarforinginn De Wet er
nú flóttamaður. Tveir af sonum
hans hafa gefist upp og einn er fall-
inn. Menn hafa hitt á slóð De
Wets sjálfs og nú er verið að elta
hann.
Ósigur Tyrkja I Austurálfu.
Það sem eftir var af liði Tyrkja
hjá Basrah hefir lagt á flótta og
skilið eftir fallbyssur sinar og rifla.
Zobeir, sem Tyrkir hafa haidið, hef-
ir gefist upp. Það er sagt að 2000
Tyrkir hafi orðið sárir i orustunni
I7. nóvember. Arabar þeir, sem
kvaddir voru til herþjónustu, en nú
eru sendir heim, eru mjög óánægð-
ir yfir meðferð Tyrkja á sér.
Viðureignin I Vestur-Afriku.
Fregnir eru komnar um það, að
enskar og franskar liðsveitir hafi
unnið sigur milli Nigeriu og Came-
roons.
Bandamenn hafa tekið Victoria,
hafnarborg Bua, þar sem nýlendu-
stjórnin þýzka hefir aðsetur sitt.
Smábardagar hafa verið háðir á
landamærum Nigeriu og hafi vorir
menn rekið Þjóðverja at höndum
sér.
Undirróður Þjóðverja.
Landsstjórinn í brezku Bornu hafði
i höndum 8. okt. yfirlýsingu frá
Þjóðverjum á arabisku, þar sem sagt
er að Tyrkjasoldán sé vinur Þjóð-
verja, og að orsök ófriðarins sé sú,
að England vilji taka Miklagarð og
afhenda heiðingjum borgina. Þetta
var næstum því mánuði áður en ó-
friðurinn við Tyrki hófst.
Tilraunir hafa verið gerðar til þess
að æsamúhameðstrúarmenn til óhlýðni
— en þær reynst árangurslausar. —
Mörg hollustuávörp hafa komið frá
múhameðstrúarmönnum.
Bornu er svertingjaríki í Sudan,
vestan við Tsadvatn. Árið 1900
skiftu Englendingar, Frakkar og Þjóð-
verjar því á milli sín. íbúar eru 5
miljónir og ramir Múhamedsmenn.
Hermaður og trúboði.
Það hefir komið í ljós, að Þjóð-
verji sá, sem reyndi að sprengja
brezka herskipið »Dwarf« í loft upp
með vitisvél, var trúboði. Þegar
hann var spurður hvernig hann færi
að samrýma þetta verk við stöðu
sína, þá svaraði hann því, að hann
væri fyrst og fremst hermaður og
þar næst trúboði.
Viðureignin við Weichel.
London 25. nóv. kl. 1.20 e.h.
Eftirfarandi opinber tilkynning hef-
ir komið frá herstjórn Rússa:
Orustan milli Weichel og Warta
heldur áfram og virðist muni verða
langvinn enn norður af Lodz.
Allan daginn þ. 22. þ. m. gerðu
Þjóðverjar æðisgengin áhlaup, en
voru alstaðar brotnir á bak aftur. í
Wieltunhéraði kom fram nýtt lið
Þjóðverja, sem reynir að hrekja
vinstra herarm vorn aftur á bak.
Engin breyting hefir orðið milli
Czestochovo og Kraká.
21. nóvember tókum vér meira
en 5000 austuriska fanga.
Frá Kákasus.
Eftirfarandi tilkynning hefir komið
frá aðalherstöðvum Rússa í Kákasus:
NÝJA BÍÓ
mtt
prógram
í kvöíd!
Hjálpræðisher-
inn.
Minnist þess
að stabskapt. Grauslund
flytur erindi
fimtudaginn 26. nóvbr. kl. 8V2.
Ennfremur að
ljósm. Magnús Olafsson
sýnir skuggamyndir
föstudaginn 27. nóvbr. kl. 8V2.
Hrís til uppkveikju í 40 punda
böggum á 1 kr., til sölu í vöruhúsi
landssjóðs (hjá Völundi).
Framsóknarlið vort, sem heldur í
áttina til Erzerum, hrekur óvinina
stöðugt á undan sér.
Flutningalest óvinanna sem hafði
meðferðis skotfærabirgðir handa hern-
um, var hertekin.
Suður af Kara Kilisse hafa orðið
nokkrar smáskærur okkur í milli
Kúrda og hermanna vorra. Tyrkir
biðu ósigur í Khanessar-héraði. Tyrk-
neskt stórskotafylki hefir verið hand-
samað.
Brezk herskip skjóta á Zeebriigge.
London 25. nóv. kl. 1.45 e. h.
Flotamálastjórnin kunngerir að i
gær hafi tvö brezk herskip látið
ákafa skothrið dynja á öllum þýð-
ingarmestu herstöðvunum í Zee-
brugge. Viðnám Þjóðverja var lítil-
fjörlegt. Ekki er enn kunnugt hve
mikill skaði hefir af þessu hlotist.
Biezku skipin komu aftur heil á
húfi.
Indverjar vinna sigur á Þjóðverjum.
London 25. nóv. kl. 2 e. h.
Indverskar hersveitir hafa með
hreysti sinni náð aftur nokkrum
skotgryfjum, sem óvinirnir unnu í
gær.
Þrjá þýzka liðsforingja, rúmlega
100 óbreytta hermenn, r fallbyssu
og 3 vélbyssur tóku þeir þar her-
fangi.