Morgunblaðið - 26.03.1915, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
H. P. DDDS
A-deild.
Beztn Lakalóreft úr
Dowlas, Hðr og Tvisti.
Haudklæðadreglar
með öllu verði.
Léreft í undirföt,
gróft og fínt.
Bomesie og Pique.
Borðdúkar, fjöldi tegunda.
Búmteppi,
af öllum geiðum og með öllu verði.
Nærfatnaður kvenna,
úr lérefti og ull.
Alt framúrskarandi gott
og ódýrt.
Allir meðlimir
Taflfélagsins
eru beðuir að koma á fund
í kvðld.
Stjórnin.
húsum í landinu að ekki er hægt að
einangra þá sem taugaveikir eru.
Einhverra kröftugra meðala verður
að leita nú þegar til þess að bjarga
Serbíu. Eg er viss um það, að
ekkert land undir sólu er jafn
hörmulega statt að öllu leyti og
þarfnast svo bráðnauðsynlega hjálpar
sem Serbía. Eg fullvissa yður um
það að hvergi nokkurs staðar er
jafn mikil þörf fyrir mannúðarstarf
Rauðakross-félagsins eins og hér.
Simskeyti
frá Central News.
London, 25. marz.
í gær köstuðu brezkir flugmenn
sprengikúlum á kafbáta-smíðastöð
Þjóðverja í Hoboken, sem er skamt
frá Antwerpen.
Tveir kafbátar skemdust og eldur
kom upp í smíðastöðinni. Einn flug-
maður neyddist til þess að lenda i
Hoílandi.
Paris: Belgar sækja fram hjá
Yser. Frakkar tóku tvær skotgrafa-
raðir á Hartmannsweiler-hæðinni í
Elsass.
Petrograd: Rússum þokar
heldur áfram í Póllandi, þrátt fyrir
það þótt Þjóðverjar hafi fengið þar
öflugan liðsauka.
Prinz Eitel Friedrick.
Bandaríkjastjórn hefir ákveðið,
að gera megi við vopnaða kaupfarið
Prinz Eitel Friedrich, sem nú liggur
i höfn í Bandaríkjunum, svo að það
verði sjófært. Brezk beitiskip liggja
nú fyrir framan Newport News og
ælta að hremma skipið þegar það
leggur út.
Talsverður úlfaþytur hefir verið í
blöðum Bandaríkjanna yfir þvi að
Prinz Eitel sökti amerísku kaupfari
sem getið var um í Morgunolaðinu
fyrir skömmu.
Kona Rockefellers látin.
Kona John D. Rockefellers stein-
oliukongs er nýlátin. Hún hét Laura
C. Spelman og var ættuð frá Cleve-
land i Ohio. Hún giftist Rockefeller
1864. Hann var þá 25 ára gamall
og efnalaus.
Er sagt að vinkona hennar hafi
sagt við hann um það leyti sem
þau trúlofuðust, að hún væri sann-
færð um að hún hefði tekið Rocke-
feller, ef því henni þætti vænt um
hann, þvi aldrei mundi auðnum fyrir
að fara hjá honum.
r -------------------
Þjóðverjar missa loftför
Brezk blöð frá 15. þ. mán. segja
frá þvi, að franskir og brezkir flug-
menn hafi skotið niður Zeppelins-
loftfar í Belgíu daginn áður.
Skipverjar á loftfarinu voru alls
41. Tíu þeirra fórust þegar, en
29 meiddust mjög mikið. Tólf
þeirra dóu sama kvöld.
— Þá segir blaðið frá þvi, að
þýzkur ioftbátur hafi farist í Norður-
sjónum skamt frá Jótlandströndum.
Danskt skip, sem þar sigldi fram
hjá, bjargaði skipverjum, sem kyr-
settir hafa verið í Danmörku.
— Þjóðverjar eru ætíð önnum
kafnir við að byggja ný loftför í
stað þeirra, sem þeir hafa mist. En
þau eru orðin æði mörg. í Fried-
richshafen er aðal-verksmiðja Zeppe-
lins greifa, og er þar nú unnið dag
og nótt.
14. þ. mán. var eitt fullgert þar.
Er það mun stærra og aflmeira en
hin Zeppelins-loftförin og flytur með
sér sprengikúlur af nýrri gerð, sem
kváðu vera mjög skaðvænlegar.
Yfirleitt hafa loftför Zeppelins
ekki reynst eins vel í ófriði þess-
um og búist var við. Þau eru
þyngri og eiga erfiðara með að koma
óvinunum óvörum, en flugvélar, og
það hefir reynst miklu auðveldara
að skjóta þau niður, en t. d. frönsku
flugvélarnar. Bretum stendur því
lítill stuggur af loftfarasmið Þjóð-
verja.
Ávextir
í dósum eru altaf í lang mestu,
beztu og ódýrustu úrvali í
Liverpool.
Þar fæst nú:
Ananas
Apricosur, 2 teg.
Blandaðir ávextir
(Fruit Salat)
Epli
Ferskjur (Peaches).
Jarðarber
Kirsuber
Perur 2 teg.
Plömur 21.
Tomater.
í smáum og stórum dósum eftir
vild. Leitið ætið fyrst i Liver-
pool, þvi það sparar ykkur margan
eyririnn og margt ómakið.
Þýzku blöðin og stríðið.
»—■—*» DA68ÓF[IN.
Aftnæli í dag:
Margrót Magnúsdóttir, jungfrú.
M. Th. Rasmus, húsfrú.
Ragna Stephensen, jungfrú.
Þorsteinn F. Einarsson, trésm.
Afmæliskort selur Friðfinnur Guö'
jónsson, Laugaveg 43 B.
Sólarupprás kl. 6.13 f. b.
S ó 1 a r I a g — 6.56 síSd.
Háflóð er í dag kl. 2.2 e. h.
og — 2.37.
Lækning ókeypis kl. 12—I 1
Austurstræti 22.
Eyrna-, nef og hálslækning ókeyP'
is kl. 2—3 Austurstr. 22.
Veðrið í gær:
Ym. logn, frost 0.3.
Rv. a.n.a. kul, frost 1.8.
If. logn, frost, 10.0.
Ak. logn, frost 15.0.
Grs. logn, frost 14.0.
Sf. n.n. kaldi, frost 7.1.
Þórsh., F. n. kaldi, frost 1.8.
í Bretlandi eiu blöðin að öllu
leyti með venjulegu útliti, stærð og
verð óbreytt, og rýrnun auglýsinga
yfirleitt lítil, í sum blöðum engin.
Stjórnin hefir ritskoðun á símskeytum,
en ekkert eftirlit með hver útlend
blöð eru flutt inn i landið, og enga
almenna ritskoðun á blöðum.
í Frakklandi er alls engin ritskoð-
un, hvorki á símskeytum né prent-
uðu máli. Alt er það jafn-frjálst sem
á friðartimum.
í Þýzkalandi eru öll simskeyti
undir ritskoðun og allar fréttir. Sum
málefni er bannað að minnast á
nokkurn hátt á. Þannig er nú orðið
hverju þýzku blaði bannað að rita
neitt um friðarskilyrði. Stjórn og
stjórnarvöld heimta að auglýsa borg-
unarlaust í blöðunum. Borgaðar aug-
lýsingar einstakra manna eða félaga
eru orðnar sárlitlar i flestum blöð-
um, í surnurn þvinær engar. Pappir
er stiginn mjög í verði, og prent-
sverta helmingi dýrari orðin en
fyrir striðið. Stjórnin heimtar fjölda
eintaka af hverju blaði ókeypis, handa
sjúkrahúsum og særðum mönnum.
Það er talið að ókeypis auglýsingar
og ókeypis eintök nemi fyrir mörg
blöð svo þúsundum marka skifti
um mánuðinn.
Síðan stríðið byrjaði hafa 864
blöð alveg hætt að koma út íÞýzka-
landi.
[Eftir »Hovedstaden« 5. Marz].
K. í Gh.
í Karpatafjöllum
vita menn óglögt um mannýall
Austurríkismanna; en það telja menn
nú víst, að síðan um miðjan janúar
og fram í marz hafi Rúsar tekið
þar af þeim yfir 200.000 fanga.
K. í Gh.
Atlas, botnvörpungur frá StftvangeÞ
kom til Hafnarfjarðar í fyrra kvöld-
Skipstjóri er Kristján Kriatjánsson,
sem áður var á »Skúla fógeta«.
hann utan í vetur til þess að seekja
skipið og beið lengi eftir því i Sta-
vanger. Falck útgerðarmaður á skipi®>
og með þvf kom Bjerkevik frani'
kvæmdastjóri hans hér. Þeir lögð|J
frá Noregi þ. 20. þ. mán. og sigld11
norðarlega. Urðu þeir eigi varir við
nein herskip á leið sinni. Veðn>'
hreptu þeir stór, en aldrei var mik>|
kvika. Sagðist Kristján skipstjórI
aldrei hafa séð jafnmikinn snjó á Fær
eyjum og núna þegar hann sigldi þat
hjá.
Með skipinu kom frá Noregi Valde
mar Árnason, sem einu sinni vat
verzlunarmaður hjá Edinborg h®r
bænum. Hann hefir í nokkur a'
verið í siglingum og farið víða o01
heim.
Sterling fór frá Kaupmannahöf»
gærmorgun beina leið til Færeyj®
Reykjavíkur.
Tage Möller, kaupm., fór úr
fyrradag og liggur nú rúmfast»>'-
Haraldur Sigurðsson pianolejA1^
hefir legið rúmfastur um hríð. ^
er nú kominn á fætur og kvað
að efna til hljómleika bráðum.
Jón Boli viðar i
Kaupmenn í Róm hafa ^ ^ð
skýrslu frá Argentínu um Pa ’ a)ia
Bretar (stjórnin) hafi keyP a fc.
hveiti-uppskeru Argentínu P
(Hveiti-útflutningur Argentio^ vjfð:
nú vera um 400,000,000 '
eftir vana-verði; nú vafal3°s
sakir ins háa verðs). , pi.j'
[Eftir útl. blöðum frá 5^. Qh-