Morgunblaðið - 26.03.1915, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
viðurkent um allan heim sem bezta kex
er fæst.
í heildsölu fyrir kaupmenn, hjá
G. Eirikss, Reykjavík.
Einkasali fyrir ísland.
vátííyggingaí;
Vátryggið hjá:
Magdeborgar brunabócafélagi
Den Kjöbenhavnske Söassurance
Forening limit. Aðalumboðsmenn:
O. Johnson & Kaaber.
A. V. Tulinius
Miðstræti 6. Talsími 254.
Brunatrygging: Nordisk Brandforsikr.
Sæábyrgð: Kgl. oktr.
Skrifstofutími 9—11 og 12—3.
Menn gleyma
öllum sorgum
þegar
menn reykja
Special Sunripe Gigarettur.
Det kgl octr. Brandassurance Co.
Kaupmannahöfn
vátryggir: hus, husgögn, alls-
konar vöruforða o. s. frv. gegn
eldsvoða fyrir lægsta iðgjald.
Heimakl. 8—12 f. h. og 2—8 e. h.
í Austurstr. 1 (Búð L. Nielsen)
N. B. Nielsen.
Carl Finsen Austurstr. 1, (uppi)
Brunatryggingar.
Heima 61/4—7 !/* Talsími 331
Skrifstofa
umsjónarmanns áfengiskaupa
er opin
3—5 síðdegis á Grundarstíg 7.
Sími 287.
Heinr. Marsmann’s
Yindlar
Cobden
eru lang’beztir.
Aðalumboðsmenn á Islandi:
Theodor Johnson
Konditori og Kafé
stærsta og fullkomnasta kaffihiis
í höfuðstaðnum.
— Bezta dag- og kvöldkaffé. —
Vörumerki.
Nathan & Olsen.
Hljóðfærasláttur frá 5—7 og 9—11V2
nS^”' EtÖGMBNN • >*S fM
Sveinn B.jörnsson yfird.lögffl-
Frfklrkjuveg 19 (Staðastað). Sími 202.
Skrifstofutími kl. 10—2 og 4—0.
Sjálfur við kl. 11—12 og 4—V
Eggert Claessen, yfirréttarmála-
fiutningsmaður Pósthússtr. 17-
Venjulega heima 10—11 og 4—5. Slmi IB.
Olafur LániHHOn yfird.lögtn*
Pósthússtr. 19. Sími 215.
Venjulega heima 11—12 og 4—S-
Jón Asbjörnsson yfid.lögm-
Austurstr. 5. Sími 435.
Venjulega heima kl. 4—j1/*-
Hjörtur Hjartarson yfirdóms-
lögmaður. Bókhl.stíg 10. Sími 28.
Venjul. heima i2Va—2 og 4—5J/»*
Guðm. Olafsson yfirdómslögm.
Miðstr. 8. Sími 488.
Heima kl. 6—8.
Bjarni Þ. Johnson
yfirréttarmálaflutningsmaður,
Lækjarg. 4.
Heima 12—1 og 4—3. Sími 263
LrÆF^NAÍ^
Brynj. Björnsson tannlæknir.
Hverfisgötu 14.
öegnir sjálfur fólbí í annari lækninga-
stofnnni kl. 10—2 og 4—6.
Öll tannlæknisverk jramkvæmd.
Tennur búnar til 0% tannqarðar af
ollum trerðum, oy er verðið ejtir vöndun
á vinnu og vali á efni.
Ait sem að greftrun lýtur:
Líkkistur og Líkklæði
bezt hjá
Matthíasi Matthíassyni.
Þeir, sem kaupa hjá honum kistuna,
fá skrautábreiðu lánaða ókeypis.
Sími 497.
^DraMié: „Saniíasu Ijúffánga Siíron og Æampavin. Simi 190.
Gullna drepsóttin.
Saga
gullgerðarmannslns.
21 eftir
Övre Richter Frich.
(Framh.)
Fjármálamaðurinn laut honum
kurteislega.
— Þá er erindi mínu lokið, mælti
hann. Eg treysti þagmælsku yðar,
Mr. Burns og vona að þér iðrist
ekki þessarar ákvörðunar.
— Mér þykir leiðinlegt að hafa
orðið að neita bón yðar, en eg vil
ekki fást við neitt það, sem liggur
utan við minn verkahring. Mér
hefir altaf látið bezt að fást við hin
grófgerðari glæpamálin.
Cavendish svaraði engu. Hann
gekk hægt til dyra. Það var eins og
þung byrði hvíldi á honum. Hann
gekk eins og í leiðslu. Alt í einu
riðaði hann og greip um hornið á
skrifborðinu til þess að styðja sig.
Ljósmynd sem stóð á borðinu datt
um koll og valt niður á gólfið.
Burns flýtti sér þangað.
— Eruð þér veikur Cavendish
lávarður ?
— Eg bið yður að fyrirgefa, svar-
aði hinn. Mér sortnaði snöggvast
fyrir augum. — — Þetta eru erfiðir
tímar fyrir menn á mínum aldri,
Mr. Burns. — — Verið þér sælirl
Cavendish hleyþti í sig kjark, og
Burns laut niður til þess að taka
upp myndina. Hann leit snöggvast
á hana og um leið kom honum
nýtt í hug. —---------
— Bíðið þér við Cavendish lá-
varður, mælti hann og rétti fram
myndina — — hérna er mað-
ur, sem gæti hjálpað yður. Hann á
engan sinn líka. Hann er af stáli
ger, vitur, þrautseigur og kann ekki
að hræðast. Það var hann sem gekk
á milli bols og höfuðs á svörtu
gömmunum. Mér var þakkað það
------en eg átti það ekki skilið.
Þér sögðuð að Englandsbanka hefði
verið byrlað inn eitur. Þessi maður
er læknir. Hann mun öllum fremur
færari til þess að — — ef hann
vill þá gera það.
Lávarðurinn tók myndina og leit
á hana.
— Hvaðan er hann og hvað heit-
ir hann?
— Hann er Norðmaður og heitir
Jónas Fjeld. Hann ætti það skilið
að vera heimsfrægur. En frægðin
freistar hans ekki. Hann er einn
þeirra einkennilegu manna, sem af-
reksverkaþráin knýr áfram. Honum
eru áhættur og æfintýr jafn-nauðsyn-
leg og matur og drykkur. Og hann
er þeirri gáfu gæddur að hann gæti
fundið saumnál í heyhlassi. Fáið
hann í lið með yður og eg ábyrgist
það að eftir hálfan mánuð hefir hann
fundið menn þá er þér leitið að.
Þér getið fyllilega treyst honum.
Hann er enginn sporhundur, heldur
fágætur maður, sem getur alt það
er hann vill.
— Þér eruð æstur, Mr. Burns.
— Já, því eg trúi á þann mann.
Hann hefir tekið af mér annan hand-
íegginn og annan fótiun. Eg var
þá á heljarþröm í hvorttveggja skiftið,
en hann barg lífi mínu. Og eg fæ
aldrei fullþakkað honum.--------Lit-
ið þér á augun og munninn, Cav-
endish lávarður. — — Það er auð-
séð að þetta er ekki neinn flysjung-
ur.-----------
— Sögðuð þér ekki að hann væri
læknir?
— Hann er skurðlæknir. En fáið
honum eitthvert starf, sem er að
hans skapi, og þá skeytir hann ekki
um neitt annað. Það getur ekkert
aftrað honum frá því að gera það,
sem honum sýnist. Hann er sá harð-
gerasti maður sem eg þekki. — —
— Well, mælti Cavendish eftir
litla þögn, eg ætla að fara að ráð-
um yðar. Við eigum í vök að verj-
ast og megum ekki láta neins ófreist-
að til þess að bjarga okkur. Hven*r
getur vinur yðar verið kominn hing'
að ? —
Burns leit á úrið sitt.
— Nú er klukkan ellefu, maelti
hann. Ef við sendum hraðskeyti get"
ur það náð honum á ríkissjúkrahús-
inu í Kristiania áður en klukkan ef
tvö. Hann leggur á stað klukkao
hálfsex í kvöld og verður komi00
hingað eftir tvo sólarhringa. Þá skal
hann koma á fund yðar í Englaoí|s?
banka. Látið þetta mál eigi fara flelfl
á milli. Fjeld er þagmælskur eltlS
og steinn, en þið megið ekki ley°?
hann neinu. Og geti eg hjálp^
honum eitthvað, þá geri eg það. v1
erum góðir hver með öðrum.