Morgunblaðið - 19.03.1916, Side 7

Morgunblaðið - 19.03.1916, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 Skrifstofum ^ínum verður fyrst um sinn lokað kl- 6 e. m. Opnað kl. 9 f. h. ö. Eiríkss. Húsnæðisleysið. Borgarstjóra hefir verið falið að rannsaka, hve margir af þurfalingum bæjarins muni verða hús- useðislausir í vor. Er það gert til þess að reyna að koma í veg fyrir það önnur eins vandræði rísi af því að hola þeim niður eins og síðast. 1500 fermetra ætlast menn til að hankinn þurfi undir hús sitt. Það er enn óákveðið, hvað lóðin skuli kosta, ®u gert er ráð fyrir, að söluverðið muni aldrei vera minna en 100 þús. kr. Hverasilimgar og hverafuglar. (Morgunblaðið hefir verið beðið að birta þessa grein). Bverasilunqur. Þenna einkenni- Isga fisk hafa margir heyrt nefndan eQ færri hafa vist lagt trúnað á að bann væri til. En svo mun þó vera. Inn á Landmannaafrétti eru svo- kallaðar Laugar. Það eru sjóðandi hverir, í dálítilli dæld. Á bökkun- ^tn við þessar laugar tjalda Land- Qienn oft í leitum, þar er hentugt að fá heitt vatn í katlana rétt fyrir ^taman tjaldskörina, og í þessum ^ver kvað vera mikið af ofannefnd- fiski. Leitarmenn náðu eitt sinn einum fiski upp úr á staf. Sá var ^ að gizka I pd. á þyngd. Hann er móbrúnn á lit en bleikur í sárið. Fiskur þessi hlýtur að vera mjög eitraðnr. Þeir gáfu hann einum ^uudinum, en hann steindrapst á eftir. Gaman væri að vita eitthvað ná- kvæmar um þennan einkennilega fisk, og einhver sem hefir gott vit á, ætti að segja álit sitt um hann. Ofanritað hefi eg eftir sannorðum manni að austan, sem hefir séð flsk- inn. Hverajuglar. Sagan um hvera fugla virðist en merkilegri en sagan af silungnum, enda mun þó mörg- um mönnum hafa verið um það kunnugt að þeir væru til, og það frá löngu ltðnum tímum. Gömlu fræðimennirnir mintust á þá. Egg- ert Ólafsson getur nm hvera-andir í jarðsögu sinni og Snorri prestur á Húsafelli, fróðleiksmaður mikill, getur um «heita fugla«, se:n stinga sér niður í hverasuðu og bíða ekki meiri skaða af en venjulegir sund- fuglar, sem stinga sér niður í kalt vatn. Andersen — þýzkur maður, sem ritaði bók um ísland 1746, getur um fuglana. En fræðimenn, íslenzkir hafa lítið bygt á frásögum hans — setn voru margar hverjar æði fjarstæðar sannleikanum. Þó skal þess getið eftir frásögn hans1) að »þeir séu svartir með löngum nefjum, ekki ólíkir hrossagaukum2) En nú mun eg segja sögu nokkra sem eg hefi eftir gamalli konu. Að sagan sé sönn dettur mér ekki til hugar að efast um, þessi gamla kona er alt of sannsögul og heiðvirð til að láta sér koma það til hugar, að hún hafi skrökvað upp sögunni. Hún var á tvítugsaldri og var hjá föður sínum á bæ i Ölfusi. Var send eftir kind, um haust, að öðrum bæ langt þaðan. A leiðinni fór hún meðfram á, þar sem götur lágu, en eigi alllangt frá veginum voru hvera- holur, og rauk upp úr, en vatnið var langt niður í og sást ekki. Verð- ur henni litið til árinnar, og sér að úr þeirri átt kemur litill fugl fljúg- andi. Hann er heldur minni en mýrirspýta og grár á lit, með mjög stutt nef, hún kvaðst hafa séð hann svo greinilega því hann flaug ekki *) Tímarit hins ísl. Bókmfél. 1887. (2 Sbr. Saga Andersons. meira en svo sem faðm frá henni, en merkilegast var að bann steypti sér beint niður í hveraholu rétt við veginn, og gat hún með engu móti séð hann þar niður i og virðist lik- legast, að hann hafi steypt sér nið- ur í sjóðandi vatnið. »Engum þorði eg að segja frá þessu«, segir gamla konan, *því eg vissi að það var ekki til annars en að láta hlægja að sér, og spotta sig fyrir, því enginn mundi hafa trúað þessu«. En einu sinni segir mágkona hennar henni eigi ómerkilegri sögu, sem hún kveðst segja alveg sanna. Hún var að þvo við hver, en alt í einu bregður henni við að tveir svartir fuglar koma fljúgandi upp úr hvernum, þeir voru nokkuð stórir líkt og andir3) eða hrafnar, kveðst hún ekki hafa séð það greinilega. — Þeir flugu dálítið upp í loftið og svo steyptu þeir sér beint niður í suðuna aftur, og sást ekk meira af þeim. »Þá fyrst þorði eg að segja mina sögu«, segir gamla konan enn fremur, »og eg er jafn viss um sannindi þessarar sögu, og minnar, því mágkona min var sannorð kona«. Þetta er nú það sem eg veit um dýralif í sjóðandi hverum. en eg þori að ábyrgjast að sögur þær eru sannar, og gaman væri að fá fleiri. Þær benda til tvenskonar fuglateg- unda í sjóðandi vatni: Hvera-anda og hvera-gauka. Þetta og margt annað í náttúr- unni þarf rannsóknar við. H. G. 8) Sbr. hveraandir Eggerts Ól. „Röðull réttlætisins" nefnist kvæði eftir Indriða á Fjalli, og birtist nýlega i Morgunblaðinu. Kvæði þetta er snildarfagurt, og ríkulega úr garði gert, bæði að efni og formi. Það sýnir oss eins og i spegli, hina göfugu og glæstu hugsjón, sem á að vera ríkjandi og starfandi í stefnu- skrá jafnaðarmenskunnar, þessa stór- vægilegasta málefnis, sem nú dregur að sér athygli allra siðaðra þjóða. Það hefði verið fengur fyrir jafnaðar- mannablað vort, að fá kvæði þetta til birtingar, svo fagurlega, sem þar (i kv.) er brugðið upp merki frelsis og réttlætis. íslenzk alþýða er Ijóðelsk, það vita allir. Og víst er um það, að skáldskapurinn er sú grein bókment- anna, er bezt hefir varið og vermt andlegt líf hér á landi, glætt það og mótað. Að líkindum mundi það því enn sem fyr hafa mikil og góð áhrif á hugsunarhátt þjóðarinnar, ef henni gæfist kostur á að lesa mikið af skáldskap, er stefndi í sömu átt, sem þetta kvæði eftir Indriða. Ekki skortir hjer skildin góð, til að halda áfram að kveða góðar og fagrar hug- sjónir inn í þjóðarandann. Minna mætti hér á skáldsnilling- ana, sem nú eru uppi i Þingeyjar- sýslunni. Meðal þeirra er ludriði á Fjalli. Er það alleinkennilegt, að á meðal bænda i sömu sýslunni, skuli nú þjóð vor eiga tvo eða jafnvel fleiri af kjarnviðum sinna bestuskálda. 19. marz 1916. P. P. Sagt er í enskum blöðum að ó- spektir og uppþot hafi orðið í Köln, er það spurðist þangað hve geisilegt manntjón Þjóðverjar hefðu beðið hjá Verdun. Tyrkir vilja eigi kannast við það, að þeir hafi farið neinar ófarir fyrir bandamönnum og segja í seinústu opinberum skýrslum sinum, að her- staðan sé alls staðar óbreytt. joo hermenn Villa hershöfðingja í Mexiko réðust á Columbusborg í Bandaríkjunum þ. 9. marz og lenti þar í orustu milli þeirra og her- manna Bandaríkjanna. Urðu Villa- menn að hörfa burtu úr borginni aftur, en höfðu þá kveikt i henni og brann hún að miklu leyti. H?ers vegna pað? Eftir Kr. Linnet. Aðalmótspyrnan gegn spírítismanum °8 kenningum hans kemur frá tveim f,°kkum manna: þeim átrúnaðarlausn °S þeim »rétttrúuðu«. í fljótu bragði a,,t*ð kann það að virðast, að þessir 016,111 hafi svo gagnólíkar skoðanir, að ‘*eir tæplega geti átt samleið í þessu. Q þareð báðir flokkarnir eiga það Saihmerkt, að þeir telja sig (og sig Itla) hafa höndlað allan og fullkominn ^a?n,e'ka í trúmálum, þá er það ofur e8ti að þeir taki höndum saman eSlii Utia að vega að spírítistum, er álíta það Þeim og öðrum ofætlun að fá hór U^erau skilning á því rótta í trúmál- °g sem halda því fram að trú g^nilauna verði eftir því háleitari og 8em þeir sjálfir þrozkast, og v6l n§nr þeirra á andlegum hlutum Það er því ekkert undrunarefni, að svo vill til, að um svipað leyti og hinn átrúnaðarlausi Gísli Sveinsson hamast að spírítistum í Lögrettu, bannsyngur hinn »rótttrúaði« evangelisk lúterski prestur Olfert Ricard þá í grein í dönsku blaði.*) Báðir kvarta þeir yfir því, að menn skuli hlaupa eftir þessum »hindurvitn- um«. Presturinn af þvf, menn þess vegna leiðast frá trúnni á »hið góða, gamla evangelium« og Gfsli af því, menn leiðast frá sólarbirtu átrúnaðar- leysisins ofan í myrkur, heiffisku og hjátrúar. Mór dettur ekki í hug að gjöra lftið úr hvötum þessara manna. Þeir þykjast efalaust allir á sína vísu berj- ast fyrir því að »vitka« menn. En það þykjumst við lfka, spírítistar, og það má ekki minna vera, en að þeir gagnrýni röksemdir okkar, þegar þeir *) Sama hefir lfka »sá rétttrúaði« hór síra Ástvaldur Gíslason gjört ný- lega í ræðu — að því mér er sagt. eru að leggja dófn á það, sem við höldum fram og færi svo rök fyrir s í n u m málsstað. Því við teljum það engln rök, þó prestarnir berji á bibl- íuna og segi: »hór eru mínar sannanir«, eða Gísli berji f borðið og hrópi, »hind- urvitni«. Hvorttveggja er sama tó- bakið. Þegar við spírítistar staðhæfum, að framliðnir menn sóu að verki, þá skýrum við jafnframt frá, á hvarju við byggjum það og eigum heimting á því að röksemdum okkar só svarað með röksemdum á móti, en ekki með órök- studdum »hindurvitna« og »vantrúar«- aðdróttunum. Það er hverjum manni ósamboðið, sem vill fræða aðra menn um einhver efni, að kynna sór þau ekki sjálfur vel áður. En þetta gjöra þeir þó sjaldn- ast, sem hór eru að andmæla okkur spírítistum. Af þeim, sem opinberlega hafa um þetta ritað eða talað á móti okkur, undanskil eg Ágúst prófessor Bjarnason einan, sem er farinn að kynna sór mál þetta eftir föngum. Enda sá af þeim, sem næst stendur okkur, og eg tel ekki ólíklegt að fylli okkar hóp áður langt um Iíður. »Hindurvitnatalinu« ættu mótstöðumenn okkar að fara að hætta nema þá að rökstyðja um leið, á hverju þeir byggi það. Annars er hætt við, að manni langi til þess að segja við þá eins og vfsindamaðnrinn (spírítisti) sagði við einhvern stéttarbróður sinn, er kom með hjátrúar-slettur tll hans út af þessu: »ef þór hefðu h u g s a ð jafnmargar klukkustundir um þetta mál, eg hefi varið árum til að r a n n- s a k a það — þá mundi eg svara yður«. »H vers vegna það«, spyr G. Sv. fremur hryssingslega í Lögróttu— grein sinni, hvers vegna er það fagn— aðarefni að fá ljósmynd af látnum ást- vinum sínum (úr andanna heimi). Og hvaða áhrif getur sú ljósmynd haft til góðs á liferni manna — bætir hann enn fremur við.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.